Tíminn - 31.08.1971, Blaðsíða 7

Tíminn - 31.08.1971, Blaðsíða 7
ÍRIÐJUDAGUR 31. ágúst 1971 TIMINN 7 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN rramfcvœindastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Jón Helgason, IndriOi G. Þorsteinsson og Tómas Karlsson Auglýsingastjóri: Stelngrimur Gislason Rit stjómarskrifstofur i Edduhústnu, sirnar 18300 — 18306 Skrif- etotur Bankastræti 7 — AígreiOslustmi 12323. Auglýsingasiml: 10523. Aðrar skrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr 196.00 á mánuði lnnanlands. 1 iausasölu fcr. 12,00 eint. — Prentsm Edda hf. Atvinnurekstur og umhverfi Á ráðstefnu, er Stjórnunarfélag íslands efndi til um helgina, um markmið og umhverfi atvinnurekstrar, flutti Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, erindi Forsætisráðherra gerði grein fyrir stefnu ríkisstjórnar sinnar í atvinnumálum. Markmiðið er, sagði forsætis- ráðherra, að búa sem bezt í haginn og bæta afkomu vinn- andi fólks og setja löggjöf um alhliða vinnuvemd og löggjöf um hlutdeild starfsfólks í stjórn fyrirtækja, sem líkleg er til að auka skilning þess á eðli og markmiði fyrirtækisins. En ríkisstjómin hefur einnig sett sér það markmið að stefna að því í nútíð og náinni framtíð, að á íslandi verði hreint og ómengað umhverfi, og að tryggja að þess verði gætt við hagnýtingu íslenzkra auð- linda, að sjónarmið alhliða náttúmvemdar verði ríkj- andi. Ennfremur sagði forsætisráðherra: „í samræmi við þetta umhverfisverndarsjónarmið vinn- ur iðnaðarr.h. nú að því, ásamt þar til skipaðri nefnd, að undirbúa reglugerð, sem geri fyrirtækjum skylt að gera nauðsynlegar varúðarráðstafanir til þess að draga úr og helzt fjrirbyggja með öllu mengun lofts frá þeim. Þess- ar reglur munu væntanlega gilda um öll iðjuver í land- inu. Það er mjög mikilvægt að verið sé á verði í þessum efnum. Það þarf að samræma og sætta atvinnurekstrar- markmiðið og umhverfisvemdina. Og það þarf að gera í tæka tíð og áður en það er um seinan. Umhverfisvernd er viðfangsefni, sem æ fleiri fjalla nú um af stöðugt aukinni ábyrgðartilfinningu. Stórþjóð- imar, sem milljónum saman búa í hinu mengaða and- rúmslofti stórborganna og brælulofti iðnaðarhéraðanna, gera sér það nú í æ ríkari mæli ljóst, hversu mikilvægt það er fyrir framtíð hins lifandi lífs á jörðinni, að um- hverfinu sé ekki spillt. Andrúmsloftið er þegar orðið óhollt víða í stórborgum og iðnhéraðum; mörg fljót og margar ár 1 námunda við iðjuver em þegar orðin dauð, þar sem að þær hafa verið notaðar til þess að veita í þær smádrepandi úrgangsefnum í skolpi og frá marg- víslegum iðjuvemm; og sjórinn er víða hættulega meng- aður vegna þess að hann hefur of oft og víða verið notaður til þess að losa í hann olíuúrgang og margvís- leg úrgangsefni, sem sum hver hafa verið meira og minna eitruð. Má segja að hann hafi verið hafður fyrir sorptunnu. Heimurinn er að vakna til meðvitundar um nauðsyn þess að snúa þessari mengunarþróun við. Menn gera sér í æ ríkari mæli ljóst, að byggja verður atvinnu- og iðnaðarreksturinn þannig upp, að hann verði starfrækt- ur á arðbæran hátt án þess að spilla umhverfi manns- ins til lands og sjávar. Þess vegna undirbúa Sameinuðu þjóðimar nú ráðstefnu um umhverfi mannsins, sem halda á í Stokkhólmi árið 1973. Við íslendingar tökum virkan þátt í undirbúningi þeirrar ráðstefnu. Við mun- um taka þátt í Stokkhólmsráðstefnunni um umhverfi mannsins og láta einkum til okkar taka í sambandi við mengun sjávar og samningu reglna til þess að fyrir- byggja hana. Ég minni ennfremur á, að ríkisstjómin hef- ur lýst því yfir, að hún muni setja reglur um 100 sjó- mílna mengunarlögsögu. En að því er varðar íslenzkan iðjurekstur þá er það stefna stjómarinnar að leitast við að finna það jafnvægi sem þarf að vera á milli heil- brigðs, heilsusamlegs og fagurs umhverfis og arðbærs reksturs. — TK C. L. SULZBERGER: Sambúð grísku stjórnarinnar við kommúnistaríkin er góð Herforingjastjórninni er mikill ami að háværri gagnrýni vestrænna manna, en kommúnistaríkin leika tveim skjöldum og halda stöðugu sambandi við stjórnarandstæðinga í Grikklandi PAPADOPOULOS fersætisráSherra GRÍSKUR ráðherra sagði við mig í umkvörtunartón: „Við eigum aðeins í erfiðleik um með vini okkar. Óvinir okk ar halda að sér höndum og gera sér vonir um að hagnast að lokum.“ Hann átti einkum við brott- rekstur Grikkja úr Evrópuráð- inu, deilumar um framhald á bandarískri hemaðaraðstoð við Grikki og nagandi kurr á bak “ við tjöldin innan Atlantshafs- bandalagsins. Valdhafamir í Aþenu hafa sett sig í mjög óvenjulega að- stöðu gagnvart samherjum sín- um með því að leggja niður þingræðisstjórn og stjóma í þess stað eftir herlögum og með einræði í meira en fjögur ár. Portúgalir hafa meira að segja nálgazt lýðveldið ofurlít- ið á þessum árum og Tyrkir láta þingið starfa, enda þótt herinn hafi yfirumsjón á hendi. TRUMBUSLÁTTUR vest- raenná andmælenda gegn ástandinu í Grikklandi heldur áfram að angra hina hörðu, þunghöggu en hömndssáru ríkisstjórn í landinu. Hún stendur á því fastar en fótun- um, að innanlandsmál Grikk- lands komi Grikkjum einum við og afskipti erlendra aðila af þeim verði ekki liðin. Ég spurði Papadopoulos forsætisráðherra, — hinn raun- verulega húsbónda á heimilinu —, hvort Moskvumenn reyndu að hvetja Grikki til hlutleysis, og hann svaraði: „Að mínu viti eru það Banda ríkjamenn en ekki Rússar, sem sýna viðleitni í þá átt. Rússar hafa ekki gert minnstu tilraun til þess enn sem komið er. Þeir hafa aldrei Þorað að fara fram á við okkur að breyta um stefnu. Gríska ríkisstjóm- in biður ekki um vopn frá Bandaríkjunum til þess að breiða út stjómmálaskoðanir sínar, heldur aðeins til að vera við því búin að standa við skuldbindingar sínar gagnvart Atlantshafsbandalaginu." SOVÉTRÍKIN og kommún- istaríkin í Austur-Evrópu hafa kurteisleg og jafnvel vinsam- leg samskipti við ríkisstjórn- ina í Aþenu. Þau hafa hér sendiherra, en það gera fæst hinna vestrænu ríkja, og þau láta sendinefndir sínar snúa sér beint til ríkisstjórnarinnar, en síður til Constantíns kon- ungs. Þetta eykur á sjálfstraust hershöfðingjanna, sem virðast ekk áfjá*:- í að kalla kon- unginn heim. Greinilegt er, að Moskvumenn em hlynntari þessari ríkisstjórn en þeirri, sem með völdin fór á undan henni, og telja hana sj álfstæð- ari í afstöðu. En þrátt fyrir þetta em yfirlýstar kenningar grísku ríkisstjómarinnar í ein- dreginni andstöðu við komm- únista. Geonge Georgalas er eúm af stjórnmálahugsuðum rikis- stjómarinnar, en hann er fyrr- verandi kommúnisti, sem sner- ist heiftarlega gegn kenning- um Marx. En þrátt fyrir yfir- lýsta stefnu sína hefur gríska ríkisstjómin snurðulaust og áferðargott stjómmálasam- band bæði við Sovétríkin og fylgisríki þeirra og „villutrú- arstjómimar" í Júgóslavíu, Rúmenfu og Albaníu. UTANRÍKISRÁÐHERRA grísku stjómarinnar ræddi um daginn við stjómmálamenn frá Búlgaríu, Rúmenfu og Júgó slavíu. Stjórnmálasamband hef ur fyrir skömmu verið komið á við Albaníu, en því var slitið árið 1939. Grikkir era sam- mála ráðamönnum allra þess- ara ríkja um „að virða frið- helgi landamæra" á Balkan- skaga. Moskvustjórnir. lætur hægri hönd sína halda góðu stjóm- málasambandi við ríkisstjórn- ina í Aþenu. Hún stendur að einu leyti betur að vígi en stjórnir Vesturlanda, þar sem hún þarf ekki að eiga í höggi við hömlulaus viðhorf þings eða þjóðar, sem torvelda stjórnmálasambandið með því að krefjast umbóta á grísku stjórnarfari. Hitt er svo annað mál, að Moskvustjórnin lætur vinstri hönd sína rækja eina af höfuð- reglum stjórnmálasamskipt- anna: Hafðu ávallt gott sam- band við þá, sem em í stjóra- arandstöðu. Bandarískum stjómmálaerindrekum er stundum legið á hálsi fyrir að vanrækja þetta og hafa ófull- nægjandi stjómmálasamband við ofgnótt afdankaðra stjóm- málamanna, bæði heima í Grikklandi og í útlegð, sem all ir vildu ná völdum að nýju. Rússar gera sér þó ekki mikið ómak á þessu sviði, heldur seilast þeir lengra niður, allt til neðanjarðarhreyfingarinnar í Grikklandi. STJÓRNIN í Kreml lætur sendimenn sina ræða í kurt- eisi og vinsemd við fulltrúa grisku rikisstjómarinnar, en 75 kommúnistaflokkar annarra landa fylgja boðum yfirlýsing- ar, sem gefin var út í Moskvu fyrir tveimur áram og nefn- ist: „Yfirlýsing um samstöðu með kommúnistum og lýðræð- issinnum, sem berjast gegn hemaðarstjóm fasista og ein- ræðissinna í Grikklandi.“ Viðskipti milli Grikklands og kommúnistaríkjanna hafa aukizt síðan skjal þetta var birt. Ráðstjómarríkin njóta meira að segja beztu kjara í Grikklandi. En 75 kommúnista flokkar magna áróður sinn og efla leynisamtökin. Eins og sakir standa verða fá hryðjuverk í Grikklandi rakin til kommúnista. Þeir telja hina réttu stund ekki upp runna og láta því hinni , lýðræðissinnuðu stjórnarand- 9 stöðu eftir það umstang, sem enn hefur engan árangur bor- ið. Þeir einbeita sér hins veg- ar að því að grafa niður í undirstöðu þeirra samtaka öfgasinnaðra vistrimanna, sem Framhald á 11. síðu. —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.