Tíminn - 31.08.1971, Side 11
r
ÞBEÐJUDAGUR 31. ágúst 1971
Bændahöllin
Framhald af bls. 1
eru á baugi í landbúnaði og er
meginefni ræðu hans rakið á öðr-
um stað í blaðinu, en þar kom
fram, að ríkisstjórnin hefur ákveð
ið að láta endurskoða lögin um
Framleiðsluráð landbúnaðarins, í
samráði við samtök bænda. Að
ræðu ráðherra lokinni, hófust al-
mennar umræður, um skýrslu for-
manns, athuganir erindreka, reikn
inga sambandsins, atriði úr ræðu
ráðherra, og fleiri mál landbúnað-
arins. Stóðu þær umræður til kl.
5 síðd., en þá var skipað í nefndir
og fundi frestað vegna nefndar-
starfa til næsta dags. Kjörin var
sérstök laganefnd að þessu sinni,
til þess að gera drög að tillögum
um þau mál, sem sambandið vildi
einkum leggja áherzlu á, um end
urskoðun framleiðsluráðslaganna.
Nefndir rtörfuðu á laugardags-
kvöld og næsta morgun, en þá
héldu almennar umræður áfram,
og verða þær raktar að nokkru
síðar. Á fundi eftir hádegið ávarp
aði Kristján Thorlacius, formað-
ur Bandalags starfsmanna ríkis-
og bæja, fundinn, þakkaði boð
á hann, og flutti kveðjur samtaka
sinna. Hann kvað það góða venju
að meginstéttir þjóðfélagsins skipt
ust á fulltrúum á aðalfundum, og
menn hefðu ekki efni á að láta
nein tækifæri til kynningar og
samskilnings úr greipum sér
ganga. Eftir það hófst afgreiðsla
mála, og verður ýmissa þeirra
getið sérstaklega. Var fyrst tekið
fyrir álit laganefndar. Afgreiðsla
mála og umræður stóðu síðan
með hvíldum fram yfir miðnætti.
Um kvöldið ávarpaði Ásgeir
Bjarnason, formaður Búnaðarfé-
lags fslands, fundinn, og árnaði
honum allra heilla. Hann sagði
að báðar meginstofnanir landbún-
aðarins, Búnaaðrfélagið og Stétt-
arsamband bænda, ættu það sam-
eiginlegt, að þeim væri stjórnað
neðan frá, af kjörnum fulltrúum
bænda sjálfra og væri gildi þess
ómetanlegt. Samstarf milli þeirra
hefði ætíð verið með ágætum.
Meginauðlindir landbúnaðarins
væru þrjár: Moldin, og grasið,
sem úr henni yxi, fiskisæld í ám
og vötnum og jarðhitinn. Miklu
skipti fyrir þjóðina að bænda-
stéttinni tækist að varðveita, efla
og nýta þessi gæði og halda þeim
í sinni umsjá, en eftir þeim væri
nú fast sótt af ýmsum. Kvaðst
hann óska þess að bændum
mætti takast þetta.
Miklar umræ' r urðu að síð-
uctu, um stækkun Bændahallar-
innar, og Hótel Sögu, og verða
þær raktar síðar. Allsherjarnefnd
hafði lagt fram tillögu um að
stækkun væri samþykkt með
ákveðnum skilyrðum. M.a. þeim
að ekki kæmi til nýrrar skattlagn
ingar vegna hennar, og lánsfé
fengizt til byggingarinnar að
mestu leyti. Kaddir komu fram
um, að þar sem hér væri um
mikið fjárhagsatriði að ræða, sem
snerti alla bændastéttina, en
málið hefði ekki verið kynnt
henni sem skyldi, teldu fulltrúar
sér varla fært að kveða á um
málið nú, og var frávísunartillaga
samþykkt á þeim grundvelli með
24 atkvæðum gegn 20.
Kjöri aðalmanna í stjórn hefur
áður verið lýst, en varamenn voru
kjörr.ir: Ingimundur Ásgeirsson,
Gunnlaugur Finnsson, Sigurður
Líndal, Hermann Guðmundsson,
Jón Helgason og Sigsteinn Páls-
son. Endurskoðendur voru kjörn-
ir Einar Halldórsson og Hannes
Jónsson.
í Framleiðsluráð voru kjörnir
Bjarni Halldórsson, Páll Diðriks-
son, Vilhjálmur Hjálmarss .. og
Ólafur Andrésson.
Gunnar Guðbjartsson, formað-
ur Stéttarsambands bænda, sleit
síðan fundi. Þakkaði mönnum
mikil og góð störf á skömmum
tíma, unnin af miklum áhuga og
óskaði fundarmönnum góðrar
heimferðar.
Árdegis í dag, mánudag, fóru
fundarmenn snöggva ferð austur
í Lón, en síðdegis vestur á Mýrar
og Suðursveit, þar sem Búnaðar-
félag Austur-Skaftfellinga bauð
til kaffisamsætis.
Erlend skip
Framhald af bls. 1
talningu á crlendum veiðiskipum í
síðustu viku, reyndust erlendu
veiðiskipin vera 102. Héldu tog-
ararnir sig mest út af Hvalbak
og fyrir Norður og Vesturlandi.
Veiðiskipin voru frá 5 þjóðum, og
þar af voru 53 brezkir togarar, 43
V-Þýzkir, 4 belgískir, 1 rússnesk-
ur og 1 færeyskur handfærabátur.
Ráðstefna
Framhald af bls. 1
Strong, hefur verið mjög dug-
legur við að sannfæra þróunar-
löndin um, að þau geti haft mik-
ið gagn af að sitja ráðstefnuna.
Um hlut Islands í ráðstefn-
unni er það að segja, að Þar er
aðalmálið mengun sjávar og
verður fjallað um það á grund-
velli Norræns samstarfs. ís-
lendingar munu ekki leggja
fram neinar ákveðnar tillögur,
en fylgja fast eftir jákvæðum
tillögum, sem fram kunna að
verða lagðar um mengun sjávar.
Á fundinum, sem haldinn
verður í Reykjavík nú 2. og 3.
september, munu fulltrúar ut-
anríkisráðuneyta Norðurlanda
ræða um, hvað sé að gerast í
umhverfismálum á alþjóðavett-
vangi. Svíar munu þar skýra
frá undirbúningi ráðstefnunnar,
Danir munu skýra frá starfi
O.E.C.D. að mengunarmálum og
Norðmenn og íslendingar frá
því sem gerzt hefur í mengun-
armálum sjávar.
700 þinga
Framhald af bls. 2.
um. og Garði, en þingið verður
háð í Austurbæjarbíói. Efnt verð
ur til sérstakrar skemmtunar í
Háskólabíói á sunnudagskvöldið.
Þeirrar skemmtunar er getið á
öðrum stað í blaðinu.
Kerlingafjöll
Framhald af bls. 3.
lendinga, og má því segja að
þessi starfsemi í Kerlingarfjöll-
um yfir sumarmánuðina sé í
nokkuð öðrum flokki, en t.d.
sumarhótel, þar sem útlendingar
eru tíðastir gestir.
Eigendur Skíðaákólans eru nú
átta. Auk þeirra Jakobs, Magnúsar
og Valdimars, sem að framan eru
nefndir, eru þeir Sigurður Guð-
mundsson, Eiríkur Haraldsson,
Jónas Kjerúlf, Þorvarður Örnólfs-
son og Einar Eyfells, eigendur.
íbróttir
Framhald af bls. 8.
Notfærðu FH-ingar sér þá að
leika einum manni fleiri og breytti
Geir Hallstcinsson stöðunni í
14:12 fyrir FH — var hann þá
búinn að skora öll mörkin fyrir
FH í hálfleiknum, sex að tölu.
Þessi „þáttur“ Geirs varð til þess,
að 'FH vann leikinn — honum
tókst alltaf að jafna, og með
tvcim síðustu mörkunum kom
TÍMINN
hann FIí yfir. Á þessum tíma átti
Hjalti Einarsson í markinu einnig
frábæran leik og varði oft meist-
aralega. Ólafur Einarsson bætti
15. marki FH við stuttu síðar og
voru þá tvær mínútur eftir.
Tvær síðustu mín. tóku Hauk-
ar mikinn fjörkipp — en of seint.
Sigurður Jóakimsson, lagaði stöð-
una í 15:13, rétt á eftir fengu þeir
víti, sem Stefán Jónsson tók —
skaut hann í gegnum klofið á
Hjalta — knötturinn hrökk upp
undir slá og niður á marklínuna.
Ef Stefán hefði skorað þarna, er
ómögulegt að segja hvemig leik-
urinn hefði farið.
Nú byrjuðu Haukar að leika
maður á mann og náðu knettin-
um. — Gils Stefánsson tók sig
þá til og hrifsaði til sín knöttinn
og hélt honum föstum í fanginu.
Kostaði það slagsmál við að reyna
að ná knettinum af honum, en
hann lét það ekkert á sig fá, enda
vanur slíku. Til að fá knöttinn aft
ur í leik þurfti að vfsa Gils út
af og voru þá eftir 1—2 sek. og
sigur FH 15:13 í höfn eftir ævin-
týralegar tafir Gils.
FH-ingar eru greinilega ekki
komnir f æfingu — sést það á
því, hvað þeir beita kröftunum
mikið og lumbra þeir hiklaust
á mótherjum, sem nálgast vörn-
ina hjá þeim. Geir og Hjalti bera
af í liðinu og rís liðið og fellur
með þeim.
Hjá Haukum er það áberandi,
hvað ungu leikmennirnir eru treg
ir til að reyna eitthvað sjálfir —
treysta þeir algjörlega á þá eldri.
Stefán var þeirra bezti maður að
vanda — en á óvart kom Viðar
Símonarson, fyrir daufan leik,
skoraði hann ekki mark í leikn-
um.
Mörk FH: Geir 7, Ólafur 3,
Kristján Stefánsson 3, Þórður
Sverrisson og Birgir Bjömsson
eitt hvor.
Mörk Ilauka: Stefán Jónsson 7,
Sigurður 3, Hafsteinn Geirsson,
Sturla og Sigurgeir Marteinsson
eitt hvor.
Dómarar voru Sveinn Krist-
jánsson og Björn Kristjánsson.
S.O.S.
Sjávarafurðir
Framhald af bls. 2.
skinna, 1.3%, afurðir ullar-
vinnslu, 1.2%, og afurðir kísil-
gúrverksmiðjunnar, 1,0%. Aðr-
ar iðnaðarvörur námu 0.5% aif
heildarútflutningnum.
Það sem af er þessu ári er
útflutningur sjávarafurða
stærri hluti heildarútflutnings
en í fyrra, og sömuleiðis land-
búnaðarafurðir, en hlutur iðn-
aðarvara er nokkru minni en á
sama tíma í fyrra.
Á víðavangi
Framhald af bls. 3.
flóknum, tekur forsætisráð-
hcr/a í slíkri þriggja flokka
samstjórn ekki af skarið í öllum
smáatriðum og segir fyrir fram
til um það í viðtölum við fjöl-
miðia, hvernig ríkistjórn hans
ætli að leysa tiltekin málefni,
áður en athugun trúnaðar-
manna stjórnarinnar á málum
er lokið og áður en málin hafa
svo mikið sem verið tekin til
umræðu í samsteypustjórninni.
Ef það er hins vegar slík fram
koma gagnvart samstarfsaðilum
í ríkistjórninni sem Mbl. ætl-
ast til af forsætisráðherra, má
það bíða lengi eftir henni.
Auðvitað veit Mbl. að slík
vinnubrögð forsætisráðherrans
myndi leiða til upplausnar
stjórnarinnar og kannski er
það óskhyggja Mbl. sem ræður
þessum ofstækisskrifum. Það
er vandasamt að vera oddviti
í þriggja flokka ríkisstjórn, þeg
ar leita þarf málamiðlunar og
samninga í ýmsum efnum, því
að það er ekkert reynt að
dylja það, að þessir þrír flokk-
ar hafa ekki sömu skoðanir á
málum í öllum efnum. For-
sætisráðherra hefur einmitt
sýnt að hann viðhefur þá var-
kárni, sem forsætisráðherra er
nauðsynleg við þessar aðstæð-
ur og þess vegna nýtur hann
trausts samstarfsmanna, sem
er miklu mikilvægara en aur-
kast Mbl. — TK
íþróttir
Framhald af bls. 8.
inn í það skiptið og tókst Sigurði
að handsama boltann eftir þessa
stórhættu.
Rétt fyrir leikslok átti sér stað
leiðinlegur atburður. Birgir Ein-
arsson sparkaði í Sigurð Jónsson,
að því er virtist algerlega að
ástæðulausu. Birgi var vísað af
leikvelli fyrir þetta og verður
líklega dæmdur í keppnisbann.
Eftir þennan sigur eru Keflvík-
ingar efstir í deildinni með 19
stig, en Vestmannaeyingar fylgja
fast á eftir með 18 stig. Þessi tvö
lið eru nú þau einu, sem möguleika
hafa á fslandsmeistartitlinum, Þau
eiga bæði eftir einn leik, ÍBK við
KR á sunnudag og ÍBV við Breiða-
blik á laugardag.
íþróttir
Framhald af bls. 10
Gömlu kempurnar Hallgrímur
og Þorsteinn háðu harða baráttu
um annað sætið, sem lauk með
sigri þess síðarnefnda. Erlendur
vann bezta afrek mótsins skv.
stigatöflu, en hann er ekki eins
góður og búast mætti við.
Sleggjukast:
Erlendur Valdimarsson, ÍR, 52,84
Óskar Sigurpálsson, Á, 44,73
Þórður B. Sigurðson, KR, 41,01
Guðm. Jóhannesson, HSH, 35,98
Hafsteinn Jóhanness. UMSK 32,44
Stangarstökk:
Valbjörn Þorláksson, Á, 4,30
Guðm. Jóhannesson, HSH, 4.15
Elías Sveinsson, ÍR, 3,50
Árni Þorsteinsson, KR, 3,20
Karl West, UMSK, 3,20
Skemmtileg keppni milli Val-
bjarnar og Guðmundar, en kemp
an Valbjörn sigraði og stökk jafn
hátt og hann hefur hæst stokkið
í sumar, þó að hann hefði keppt
í sex einstaklingsgreinum og
tveimur boðhlaupum yfir helgina.
Vel gert, Valbjörn. Guðmundur
er í framför og stekkur skemmti-
lega. Hann hefur aðeins einu
sinni stokkið háerra í sumar, en
það var á Meistaramótinu, er
hann stökk 4,25 m.
Þrístökk:
Karl Stefánsson, UMSK, 14.61
Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, 14,12
Borgþór Magnússon, KR, 13,88
Guðm. Jónsson, HSK, 12,94
Jóhann Hjörleifssor, HSH, 12,85
Ágúst Schram, Á, 12,54
Karl tryggði sér sigurinn í
fyrsta stökki og er öruggur með
14,50 til 14,60 m. Friðrik Þór er
ekki eins sprækur og á meistara
mótinu, er sennilega keppnis-
þreyttur.
1000 m. boðhlaup:
Sveit KR, 2:02,6 mín.
Sveit HSK 2:07,5 mín.
Sveit UMSK 2:08,3 mín.
Sveit ÍR 2:09,2 mín.
Sveit Árm., 2:12,8 mín.
KVENNAGREINAR:
100 m. grindahlaup:
Kristín Björnsd. UMSK, 16.8
Lára Sveinsdóttir, Á, 18,2
Unnur Stefánsdóttir, HSK, 19,2
Ragnhildur Jónsdóttir, ÍR, 19,2
Emelía Sigurðardóttir, KR, 21,9
200 m. hlaup:
Sigrún Sveinsdóttir, Á, 28,0
Jensey Sigurðardóttir, UMSK 28,3
Lilja Guðmundsdóttir, ÍR, 29,0
Anna Kristjánsdóttir, KR, 29,5
Þórdís Rúnarsdóttir, HSK, 29,9
Þóra Guðmundsdóttir, HSH, 30,8
Sigrún vann, en hlaupið var sér
staklega spennandi.
Langstökk:
HRafdís Ingimarsd. UMSK, 5.28
Sigrún Sveinsdóttir, Á, 5.12
Þuríður Jónsdóttir, HSK, 5,09
Fanney Óskarsdóttir, ÍR, 4,50
Elín Sigurjónsdóttir, HSH, 4.20
Emelía Sigurðardóttir, KR, 3.84
Gott langstökk, þrjár yfir 5 m„
en methafinn var öruggur sigur-
vegari.
Kringlukast:
Kristjana Guðmundsd., ÍR, 30.31
Arndís Björnsdóttir, UMSK, 26.72
Kristín Bjargmundsd. HSH, 26.51
Ingibjörg Einarsdóttir HSK, 24.07
Inga Karlsdóttir, Á, 23.33
Emelía Sigurðard., KR, 22.10
íþróttir
Framhald af bls. 9.
ur þófkenndur og áttu bæði lið-
in ágæt marktækifæri. Breiðablik '
fékk homspyrnu um miðjan hálf-
leikinn og tók Ólafur Friðriks.
hana, Guðmundur skallaði síðan
knöttinn fyrir fætur Hinriks, er
skoraði.þriðja mark Kópavogsbúa
í leiknum.
Það, sem eftir var leiksins,
sóttu Akurnesingar nær látlaust
og voru oft við það aö skora. T.d.
átti Teitur ágætt skot í stöng.1
U.þ.b. 5 mín. fyrir leikslok lék
Matthías á hvorki'meira né minna
en 6 varnarmenn Breiðabliks; og
skoraði jöfnunarmark Akurnes-
inga.
Liðin: Breiðablik er.nú,aftur á
uppleið eftir slæman kafla um
miðbik keppnistímabilsins. Bestu
menn liðsins í leiknum á sunnu-
daginn vora þeir Þór og Einar,
auk bakvarðanna, Steinþórs og
Magnúsar. — Akranes er , hins
vegar á niðurleið eftir ágætan
sprett fyrr í sumar. Matthías' var
nú bezti, maður liðsins, en aðrir
léku undir getu.
Guðmundur Haraldsson dæmdi
lcik'þennan ágætlega.
Griska stjórnin
Framhald af bls. 7.
til hafa verið í Grikklandi allt
síðan á dögum borgarastyrj-
aldarinnar. Þeir styðja einnig
við bakið á samtökum erlendis,
bæði samtökum yfirlýstra
kommúnista og samstarfshópa,
sem að standa menn, hlynntir
kommúnistum.
SAMTÖK grískra kommún-
ista hafa klofnað í stríðandi
fylkingar, en ýmislegt bendir
til, að Moskvumenn geri sér
vonir um að geta sameinað
þau að nýju. Boðorð Sovét-
manna er að láta lítið á sér
bera að svo stöddu, en sá tfmi
kann að renna upp, að Rússar
verði reiðubúnir að stuðla að
því, að einræði grísku hernað-
arsinnanna verði steypt af
stóli ef lientugt tækifæri býðst.
Hægri hönd Moskvumanna
lætur sem hún viti ekki, hvað
sú vinstri aðhefst. Og svo mik-
ið er víst, að stjórnin í Aþenu
segir ekki allan sannleikann
þegar hún segir: „Við eigum
aðeins í erfiðleikum með vini
okkar.“ Öflugustu andstæðing-
ar stjórnarinnar erlendis eru
sífellt að treysta samband sitt
við þá gríska stjórnmálamenn,
sem í stjórnarandstöðu eru, og
stjórnarandstæðingarnir, sem
þeir hafa hvað bezt samband
við, eru engu lýðræðissinnaðri
cn mennirnir, sem með völdin
fara og þeir hafa óaðfinnaw
leg opinber samskipti við.