Tíminn - 01.10.1971, Qupperneq 7

Tíminn - 01.10.1971, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 1. október 1971 —T Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvœmdastjórl: Kristján Benediktsson Rttstjórar: Þórartnn Þórarlnsaon (áb) Jón Helgason. Indriðl G. Þorstelnsson og Tómas Karisson Auglýsingastjóri: StelngrimnT Gislason Rit. etjórnarskrifstofur 1 Edduhúslnu. stmar 18300 — 18306 Skrif- etofur Bamkastræti 7. — AfgreiOslustml 12323. Auglýsingasiml: 19523. AOrar slcrifstofur slmi 18300. AskrtftargjaW kT 193,00 á mánuSi lnnanlands. 1 lausasölu kr. 12,00 eint. — Prentsm. Edda bl. Ræða Einars hjá S.Þ. Einar Ágústsson, utanríkisráðherra, ávarpaði Alls- herjarþing Sameinuðu þjóðanna síðdegis á miðvikudag. f ræðu sinni skýrði ráðherrann utanríkisstefnu hinnar nýju ríkisstjórnar á íslandi og afstöðu hennar til stærstu mála, en meginefni ræðu hans fjallaði um hafréttar-, landhelgis- og fiskveiðimál. Einar minnti á þá þróun, sem nú ætti Sér stað um lögsögu yfir fiskveiðum strandríkja. í stað þess úrelta kerfis, sem búið hefði verið við og miðaðist fyrst og fremst við hagsmuni þeirra ríkja, sem stunda vilja fiskveiðar sem næst ströndum annarra ríkja, hefðu nú raunhæfari sjónarmið rutt sér til rúms. í ört vaxandi mæli væri það nú viðurkennt að fiskimiðin undan ströndum sé hluti af auðlindum strandríkisins innan sanngjarnrar fjarlægðar frá ströndum miðað við aðstæður. Verkefnið væri nú að ganga úr skugga um kröfur og þarfir hinna ýmsu ríkja á þessu sviði varð- andi forgangssvæði, fiskveiðimörk og vemdarsvæði. í framhaldi af þessu sagði Einar Ágústsson m.a.: „Ríkisstjórn íslands er þess fullviss að þetta raunhæfa kerfi njóti nú þegar stuðnings samfélags þjóðanna og vinnur nú að ,útfærslu fiskveiðitakmarkanna við ísland í samræmi við þessi sjónarmið, þannig að lögsagan mið- ist við endimörk landgrunns íslands. Þau mörk eru í samræmi við eðli málsins og mundu t.d. á 400 metra dýpi miðast við 50—70 mílur frá ströndum. Landgrunn- ið, eða stöpull sá, sem landið hvílir á, fylgir í útlínum sínum lögun landsins sjálfs. Á þessum neðansjávarstöll- um eru hin ákjósanlegustu skilyrði fyrir hrygningar- stöðvar og uppeldisstöðvar fyrir fiskistofnana og afkoma íslenzku þjóðarinnar byggist á vemdun og hagnýtingu þeirra. Þetta umhverfi er óaðskiljanlegur hluti af auð- lindum landsins. Vissulega er það rétt, að efnahagsleg afkoma íslenzku þjóðarinnar hefur alltaf byggzt á fisk- veiðum. Landið sjálft er hrjóstrugt — þar em engir skóg- ar né málmar í jörðu — og flytja verður inn flestar lífsnauðsynjar og gjalda fyrir þær með útflutningi sjávar- afurða, sem hafa verið um það bil 90% af heildarút- flutningnum. Fiskimiðin em algjört skilyrði fyrir af- komu landsmanna. Án þeirra mundi laridið ekki hafa tr^rð byggilegt. Það er engu líkara en að forsjónin hafi ætlað sér að bæta fyrir hrjóstmgleika landsins sjálfs með því að umlykja það auðugum fiskimiðum. Að því er ísland varðar er landgrunnshafið hinn eðlilegi mæli- kvarði fyrir fiskveiðitakmörkin og ríkisstjóm íslands hefur tilkynnt að hún muni gefa út nýjar reglur í sam- ræmi við þessi sjónarmið fyrir 1. september 1972. Ríkisstjórn íslands er þeirrar skoðunar að nauðsyn- legt sé að vemda þessa lífshagsmuni án tafar. Það er ljóst að hvenær sem er getur hátæknivæddum fiskiflota þjóða, sem fiskveiðar stunda á fjarlægum miðuin, orðið beint í vaxandi mæli á íslandsmið. Þessir flotar hafa nú um skeið haft uppgripa afla í Barentshafi. Fiskveiðar þar eru nú ekki eins arðvænlegar og áður og nú beinist at- hyglin að íslandsmiðum. Og háþróuð fiskveiðitækni og aflaafköst risavaxinna verksmiðjutogara með rafeinda- útbúnaði gæti gert óbætanlegt tjón á íslandsmiðum. Þess má geta í þessu sambandi, að þær þrjár þjóðir sem méstra hagsmuna hafa að gæta á Barentshafi hafa nú um skeið reynt að koma á eins konar kvótakerfi á því svæði, en eftir því sem bezt er vitað hefur sú viðleitni ekki borið árangur. Hvað sem því líður höfum við ekki efni á að láta reka á reiðanum og það er einlæg von okkar að sendinefndir annarra þjóða hér á þingi muni skoða aðgerðir okkar í því ljósi.“ — TK TIMINN f ERLENT YFIRLIT Sænska velferðarríkið glímir við atvinnuleysi og samdrátt — en verzlunarjöfnuðurinn hefur sjaldan verið hagstæðari ÉF LITIÐ ER á tölur uin verzlunarviSskipti SvíþjóSar við önnur lönd, myndu senni- lega ýmsir freistast til að álykta, að efnahagsástandið væri þar í betra lagi. Verzlun- arjöfnuðurinn hefur um langt skeið ekki verið hagstæðari en á þessu ári. Útflutningurinn hefur stórlega aukizt og inn- flutningurinn minnkað tals- vert. Einkum hefur útflutning- urinn til Bandaríkjanna aukizt og t.d. hlutfallslega miklu meira en til Efta-landanna. En segja má, að þetta sé eina bjarta hliðin á efnahags- málum Svía um þessar mund- ir. f reynd býr sænskt efna- hagslíf nú við meira kreppu- ástand en dæmi eru um síðan fyrir síðari heimsstyrjöldina. Viðskipti innanlands hafa dreg izt saman og á það þátt í því, að innflutningurinn hefur far- ið minnkandi eins og áður er sagt. Mörg fyrirtæki, sem framleiða fyrir innlendan markað, hafa orðið að draga saman seglin, ýmist að fækka við sig fólH eða hætta ái’veg. Þetta hefur leitt til meira at- vinnuleysis en Svíar hafa búið við um langt skeið. í síðastl. mánuði voru skráðir 107 þús. atvinnuleysingjar f Svíþjóð. SAMDRÁTTURINN, sem hefur orðið í viðskiptum og er helzta undirrót atvinnuleysis- ins, stafar af mörgum ástæð- um. Verðlagið hefur hækkað meira en kaupgjaldið og hafa þó orðið mjög verulegar kaup- hækkanir á undanförnum miss- erum. Skattar hafa hækkað verulega og dregið úr kaup- mætti hjá almenningi. Á árun- um 1967—69 varð mikill halli á greiðslujöfnuðinum við út- lönd, einkum á árinu 1969, og greip ríkisstjórnin því til ýtmissa víðtækra samdráttarráð stafana. Þær hafa borið þann árangur, að hagstæður greiðslu jöfnuður við útlönd hefur náðst, en hins vegar hafa þær ótvírætt orðið til að lama iðn- aðinn, einkum þann hluta hans, sem framleiðir fyrir inn- lenda markaðinn og samdrátt ur kaupgetunnar hefur eink- nm bitnað á. RÍKISSTJÓRNIN hefur nú ákveðið rð mæta þessum vanda með því m.a. að veita auknu fjármagni til iðnaðarins og ýmissa framkvæmda, eða sem nemur um þremur milljörðum sænskra króna samanlagt. Vafalaust mun þetta örva at- vinnulífið. Þó telja ýmsir að þetta muni vart reynast full- nægjandi til að vinna bug á atvinnuleysinu. Þeir byggja þetta m.a. á því, að ýms fyrir- tæki séu orðin rög við að leggja út í stórframkvæmdir og því verði fjárfesting þeirra ekki eins mikil á næsta ári og vera þyrfti til þess að sigrast Vinmir Palme bug 6 erflðlelkwmnn? á samdrættinum, sem orðið hef ur síðustu misserin. Þá hefur samdrátturinn haft þau áhrif, að mörg fyrirtæki kappkosta nú aukna hagræðingu og fækka við sig starfsfólki á þann hátt. Þannig vofir nú yfir mörgu iðnverkafólki að missa atvinnuna af þessum ástæðum. ATVINNUHORFUR eru því allt annað en góðar í Svíþjóð um þessar mundir. Þó eru þær taldar langverstar hjá háskóla- gengnu fólki. Talið er að nú sé háskólalært fólk um 115 þús. i Svíþjóð og er atvinnu- leysi sagt hlutfallslega meira hjá því en öðrum stéttum. En horfur eru ískyggilegar vegna þess, að þessu fólki fjölgar nú ört. Reiknað er með því. að tala þess verði orðin yfir 280 þús. í lok áratugsins eða um 1980. Árið 1980 er jafnframt reiknað með því, samkvæmt þeirri þróun, sem nú er, að um helmingur háskólalærðra manna hefur hlotið menntun sína £ hugvísindalegum grein- um, en að óbreyttum ástæðum muni ekki verða nein tilsvar- andi aukning á starfsmöguleik- um fyrir fólk með þessa mennt un. Þetta er talið með örðugri verkefnum, sem Svíar þurfa að glíma við á hinum nýbyrjaða áratug. AF HÁLFU ríkisstjórnar- innar og stuðningsmanna henn ar er því haldið fram, að beir efnahagserfiðleikar, sem nú er fengizt við, séu aðeins stundar- fyrirbrigði og ástandið muni strax lagast á næsta ári. Þegar sjáist ýms batamerki. Aðrir eru svartsýnni. Sennilega mun það sjást strax á fyrra helmingi næsta árs, hvorir hafa rétt fyrir sér. . Það hálfgerða kreppuástand, sem hefur rikt í Svíþjóð síð ustu misserin, hefur ótvírætt leitt í ljós, að svokölluð vel- ferðarþjóðfélög hafa sínar veiku hliðar. T.d. hafa átök á vinnumarkaðinum orðið mikil síðustu misseri, en góður vinnufriður hafði þá haldizt um áratugi. Óánægja hefur auk izt vegna þess hve háir skatt- amir eru orðnir, en talið er að skattar og tryggingagjöld nemi orðið 43% af þjóðartekjunum. Meira þykir bera á lífsleiða og almennu áhugaleysi en oft áður. Þrátt fyrir þetta, er áreiðanlega hverfandi lítill áhugi á því í Svíþjóð að hverfa frá velferðarríkinu, heldur meiningarmunur um það, hvort stefnt skuli að hrað ari eða hægari þróun í þeim efnum. Þeir útlendingar, sem hafa fylgzt með Svíum á und- anförnum áratugum, trúa því yfirleitt, iað sænska þjóðin muni sigrast á þeim vandamál- um, sem nú er glfmt við. Vafalftið verður því veitt at- hygli víða um heim, hvemig Svfar bregðast við vandanum, þvf að eftir síðari heimsstyrj- öldina hafa fá smáríki dregið að sér meiri athygli en Sví- þjóð, og margir leiðtogar ný- frjálsu þjóðanna hafa litið til Svíþjóðar sem sérstakrar fyrir- myndar. Þ.Þ. Baútœs

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.