Tíminn - 26.10.1971, Qupperneq 8
8
TMvllNN
ÞRIÐJUDAGUR 26. október 1971
Fram áf ram!
- Sigraði ÍBV í Bikarkeppni KSÍ 1:0 og
mætir Breiðablik í undanúrslitum
f annarri tilraun tókst Fram að
sigra ÍBV í Bikarkeppni KSÍ á
laugardaginn. Leikurinn fór fram
á Melavellinum, því a'ð þetta var
heimaleikur Fram, en um helgina
þar á undan náði Fram jafntefli
í Eyjum 1:1. — Veður til að
Davíð Krisfjánsson, markvörður ÍA
nær þarna að slá knöttinn í horn
með blá fingurgómunum, i leiknum
gegn Vikingi í undanúrslitum bikar-
keppninnar á sunnudaginn. Davíð
hafði í nógu að snúgast í leiknum,
enda dundi skothríð Víkinganna á
marki hans naer látlaust.
Vélbyssuskothríð Víkinganna
sendi Skagamenn úr bikarnum
Ungu ljónin úr Víking sýndu
Skagamiinnum í tvo heiinana í
undanúrslitaleikuum í Bikarkeppni
KSÍ á Melavellinum á sunnudag-
inn. Víkingarnir sigruðu í leikn-
urn 2:0 og liöfðu yfirburði á flest-
um sviðum knattspyrnunnar gegn
giimlu meisturunuin af Skipaskaga.
Var sigur þeirra markalega séð
allt of lítill; því miðað við tæki-
færi hefði hann átt að vera a.m;k.
fjögur til fimm mörk, og hefðu
tölur cins og 5 eða 6:1 ekki verið
fjarri lagi, því að þeir áttu ein 4
skot í þverslá og hvert öðru betra
opið tækifæri.
Skagamenn léku undan vindi í
fyrri hálfleik en það var þeim til
lítils hagnaðar. Víkingarnir tóku
leikinn fljótlega í sfnar hendur.
Þeir voru fljótari á boltann, gáfu
engan frið til að sýna neinar kúnst
ir í kringura hann, og þegar þéir
voru með hann sjálfir létu þeir
hann ganga hratt á milli sín,
Tveir voru með 12 rétta og 53
með 11 rétta á síðasta getrauna-
seðli. „Potturinn“ var um 460 þús.
krónur og fá 12 réttir um 160
þúsund, en 11 réttir fá um 2500
krónur hver.
Letiár SS. oktáber 1971 | 1 X 2 mjis"
Chelsea — Southnmpton 1 13 - 0
Derby — Arscnal 1 2 - 1
TpsM'ich — Stoke 1 2 - 1
Ixtcds — Everton \ 1 3a 2 z
Iiiverpool — Hmldcrsfld' 1 - O - /
Man. City —Shcff. TJtd. 1
Newcastle — Mnn. TJtd. 2 0 -1'
Totbeöham — Nott’m F. I ■ 6 -11
W3A. — Leicester 2 0 -1»
TVœt Ham — Wolves 1 i - 0
. HuH’ —- BuAiley 1» i - z
Bhckpool — Q.r.'tt. x! i -l!
skiptu þvert yfir völlinn, og kom
vörn Skagamanna með því hvað
eftir annað í opna skjöldu.
Eins og fyrr voru þeir ófeimnir
við að skjóta á markið og má segja
að þeir hafi haldið uppi hálfgerðri
vélbyssuskothríð á það nær allan
leikinn.
Þeir komust að márki hvað eftir
annað, en þar bjargaði stór og
myndarlegur þollur Skagamönnum
oft og iðulega. Knötturinn stöð-
vaðist í honum og var mik-
ill buslugangur þegar leikmenn-
irnir hoppuðu í pollinn og spörk-
uðu í allar áttir. Ef pollurinn bjarg
aði ekki, þá gerði þversláin eða
Davíð Kristjánsson. markvörður ÍA
það. En Davíð var sá eini sem ein-
hver töggur var í hjá þessu
fræga liði.
Honum tókst að halda markinu
hreinu, en sjájfur var hann eins,
í fyrri hálfleik, en í síðari hálf-
leiknum varð hann að horfa tvisv-
ar á eftir knettirium í netið.
Fyrra markið kom á 20. mín. og
var það glæsilega unnið mapk.
Guðgeir Leifsson, sem var bezti
maður vallarins, fékk knöttinn rétt
við miðju og lék með hann í
átt að marki. Miðja vegu sendi
hann á Gunnar Gunnarsson, sem
lék skemmtilega á Jón Gunnlaugs-
son og skaut þrumuskoti á markið.
Var skotið svo fast að Davíð náði
rétt að kasta sér í áttina að knett-
inum, en hann var farinn fram hjá,
honum þegar hann fór af stað.
Skömmu síðar jöfnuðu Skaga-
menn, en Hannes Þ. Sigurðsson,
sem var vel staðsettur, dæmdi það
mark af vegna brots Eyleifs Haf-
stcinssonar skömmu áður en skor-
að var. Við þetta mótlæti hljóp
kapp í Skagamenn og þeir náðu
sæmil. kafla en hann lognaðist
útaf þegar Víkingar skoruðu aftur.
Það mark kom á 31. mín. Eirík-
ur Þorsteinsson skallaði að marki
en Davíð varði með því að slá
knöttinn frá. Hrökk hann fyrir
fætur Páls Björgvinssonar, sem
Þegar skaut að marki. Var knött-
urinn á leið i netið þegar einn
varnarmaður IA kom fæti fyrir
hann, en hann gerði ekki betur en
að senda hann upp undir þver-
slána og í netið.
Eins og fyrr segir var sigur
Víkings sízt of stór. Þeir léku
knattspyrnu eins og maður vill sjá
hana — yfirvegað spii, nákvæmar
sendingar, hraði, skotkraftur og
gleði. Ef fleiri lið gætu leikið
eins og Víkingur gerði þarna, er
enginn vafi á að völlurinn yrði vel
sóttur af áhorfendum.
Guðgeir Leifsson var tvímæla-
laust bezti maður vallarinns. Jafn-
vel haltur, eins og hann var lengst
af í síðari hálfleik, bar hann af
móth’erjum sínum, og þá ekki að-
eins í knattmeðferð og skothörku,
heldur og í útsjónasemi og tilfinn-
ingu fyrir því rótta.
Ekki er hægt að .segj’á að neinn
hafi átt slakan leik í Víkingsliðinu.
Þeir báru af mótherjunum á öllum
sviðum og skyggðu á nöfn eins og
Páll Björgvinsson, Guðgeir Leifs-
son, Eiríkur Þorsteinsson, Bjarni
Gunnarsson, Gunnar Gunnarsson,
Jón Ólafsson, þó nokkrir séu nefnd
ir á þekkt nöfn. s.s. Jón Alfreðss.,
Björn Lárusson, Þröst Stefáns-
son, Eyleif Hafsteinsson og
Matthías Hallgrimsson. Maður tók
varla eftir því að sumir af þessum
mönnum væru með, eins og t.d.
Matthías, sem varla sást, fyrr en
dómarinn bókaði hann undir lok
leiksins.
Þeir einu, sem eitthvað bar á
vor-u Benedikt Valtýsson, Davíð
Kristjánsson og Jón Gunnlaugsson.
Aðrir voru hvorki fugl né fiskur.
Dómari leiksins var Hannes Þ.
Sigurðsson, og dæmdi hann leikinn
óaðfinnanlega í alla staði, þó
kannski mætti segja að hann væri
helzt til of smámunasamur á'köfl
um. —klp—
Ólafur Þorsteinsson lokar augunum og grettir sig ógurlega þegar Hann
skallar knöttinn að marki Skagamanna í leiknum á sunnudag. Hann skor-
aSi ekki í leiknum en skaut tvisvar í þverslá. (Tímamynd Gunnar)
lcika knattspyriiu var heldnr óhag
stætt á laugardaginn. Strekkings-
vindur var og kalt, og stóð vind-
urinn á annað markið. Það máttí
því búast við élnstefnu nndan
vindi, eins og oftast þegar leikið
er í roki, en sú varð ekki raunin.
Eyjaskeggjar léku undan vindi
í fyrri hálfleik, og þó þeir væru
meira með knöttinn á vallarhelm-
ingi Fram, sköpuðu þeir sér sára-
fá tækifæri til að skora. Það var
aðeins tvívegis í hálfleiknum að
menn gripu andann á Iofti þegar
knötturinn komst alla leið að
marki Fram.
í fyrra skiptið var það fyrst
í leiknum þegar há sending í átt
að marki kom niður í mikinn
poll fyrir framan markið og spýtt
ist knötturlnn úr honum með
feiknahraða í átt að markinu. En
Þorbergur var vel á verði og lét
ekki pollinn plata sig og náði
hann að handsama knöttinn á síð-
asta augnabliki. f síðara skiptið
var það skot frá Emi Óskarssyni,
sem stefndi í annað markhomið,
en þá bjargaði Þorbergur með því
að setjast ofan á knöttinn á mark-
línunni.
Framararnir létu þennan hálí-
leik yfirvegað og „taktískt". Þeir
léku þéttan varnarleik og mynd-
uðu múr, sem Eyjaskeggjum tókst
ékki að brjóta niður. Þeir koma
að lokuöum dyrum og er leið á
leikinn fóru þeir að missa áhug-
ann og Fram tók yfirhöndina með
sitt fjölmenna lið á miðjunni.
í síðari hálfleik fór ekki á milli
mála hvort liðið væri betra. Þá
tóku Framarar að sækja undan
vindinum og sköpuðu sér sæmi-
leg tækifæi-i. Við þetta misstu
þeir nokkuð af tökunum á miðj-
unni og fengu nú Eyjamenn meira
svigrúm. Tómas Pálsson átti td.
skalla rétt yfir og í annað skipti
varði Þorbergur vel á siðustu
stundu.
Framarar voru samt öllu að-
gangsharðari víð markið, enda
var leiðin þangað nokkuð greið-
fær. Varnarleikur Eyjamanna var
nefnilega allur í molum — vinstri
vængurinn eins og vængjahurð
og á miðjunni skallaði Friðfinnur
nær alla bolta aftur fyrir sig.
Á 5. mín. leiksins skoruðu Fram
arar mark, sem dómari leiksins,
Óli Ólsen, dæmdi löglegt, enda
var hann í góðri aðstöðu til að
sjá það. Samt dæmdi hann það
af, eftir að hafa ráðfært sig við
línuvörðinn, sem var enn lengra
frá „brotsvæðinu" og var þetta
heldur veikt hjá Óla.
Þegar 15 mín. voru til leiks-
loka gerði Fram út um leikinn.
Þá fékk Kristinn Jörundsson
knöttinn á vítateig og sendi hann
með góðu skoti efst í markið, án
þess að Páli Pálmasyni tækist að
koma vörnum við. Hefur hann
sjálfsagt ekki búist við skoti frá
Kristni af þessu færi, því hann
hefur hingað til verið beztur rétt
við marklínuna.
Menn biðu í ofvæni eftir því
að Eyjamenn jöfnuðu. En flestir
önduðu léttar þegar leiknum
lauk, því áhugi1 manna var tak-
markaður f.vrir því að hanga 30
mín. í viðbót í kuldanum á Mcla-
veliinum til að horfa á jafn litla
knattspyrnu og þarna var sýnd.
Fram átti skilið að fara með
sigurinn af hólmi, þvi liðið lék
betur og var frískara en Eyja-
Framhald á 11. sfðu.