Tíminn - 26.10.1971, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 23. október 1971
TÍMINN
11
Örtröð við
veitingahúsðn
Þriðjudagsgrein
Framhald af bls. 7.
skólans, að hann standi ávallt
opinn fyrir ferskum mennta-
straumum og stuðli að því, að
þeir berist út til þjóðlífsins í
heild. Og sú krafa um hagnýt
efni verður gerð, að háskólinn
skili þjóðfélaginu hæfu starfs-
fólki, sem hlotið hefur sér-
menntun til þess að sinna
ýmsum vandamestu nauðsynja
störfum í þjóðfélaginu. Síðast
en ekki sízt verður sú almenna
krafa gerð til háskólans, að
hann sé „lagaður eftir þörfum
þjóðarinnar" á hverjum tíma
og því sé starfsemi hans í
öllum grundvallaratriðum mið-
uð við íslenzkar þjóðfélagsað-
stæður, menningu og atvinnu-
líf. Ég efa ekki, að forráða-
menn háskólans vilja fyrir sitt
leyti stuðla að því að full-
nægja sanngjörnum kröfum
Um starfsemi og verksvið hins
íslenzka háskóla. Og lánist Há-
skóla íslands að verða við þess
um meginkröfum, þá þarf ckki
að efast um góðvild í hans
garð af hálfu almennings til
sjávar og sveita og þeirra, sem
með völd fara í landinu hverju
sinni.
Akureyri, 25. okt. 1971.
Fram - ÍBV
Framhald af bls. 8.
liðið. Vörnin var góð hjá Fram
og þar var hvergi veikur hlekk-
ur. Ómar Arason kom vel út úr
stöðu vinstri bakvarðar og Sigur-
bergur og Marteinn voru drjúgir
á miðjunni. Sigurbergur tók öll
skallaeinvigi gegn Haraldi „gull-
skalla" Júlíussyni, og vildu menn
færa honum sæmdarheitið „gull-
skalli“ að leikslokum. Það lætur
Haraldur áreiðanlega eftir, því
honum er mikið í nöp við þessa
nafnbót. Jón Pétursson og Ásgeir
Elíasson voru traustir á miðjunni,
en heldur höfðu framlínumenn
Fram sig lítið í frammi.
Hjá Eyjamönnum var útlitið
dökkt í þessum leik. Vörnin var
hörmuleg og framlínan bitlaus
án Sævars Tryggvasonar. Sá eini
sem reyndi að leika knattspyrnu
var Kristján Sigurgeirsson, en
hann var tekinn útaf í síðari hálf-
leik, ög var það umdeild skipting
hjá Viktor Helgasyni þjálfara
ÍBV, og alls ekki til að bæta lið-
ið. — klp.
Utanríkisráðherra
Framl’-l'l af bls. 1
Svarið við því er það, að með
vaxandi umsvifum í stjórnarráði
og því, að þrír flokkar hafa nú
samstöðu um forstöðu ríkisstjórn-
ar, þá hefur í vaxandi mæli verið
tekin upp sú vinnutilhögun, að
svona samstarfsnefndir fjölluðu
um einstaka málaflokka. Hvort
fyrrverandi ríkistjórn hefur haft
það fyrirkomulag á sínum verkum
eða ekki, skal ósagt látið, en er-
lendis þekkist þetta mjög víða,
að ráðherranefndir, undirnefndir
eða hvað á að kalla það, sam-
starfshópar, séu kvaddir til þess
að skoða tiltekna málaflokka, og
sú er eina ástæðan fyrir þessum
samstarfshóp, sem þarna liefur
verið settur á laggirnar.“
Jóhann Hafstein sagði, að sér
hefði verið ókunnugt um að slík-
ar nefndir hefðu verið settar á
laggimar erlendis. Þingmaðurinn
kvaðst vilja vekja athygli á þvf,
að tveir fyrrverandi ritstjórar
Þjóðviljans ættu sæti í néfndinni.
Að lokum kvaðst hann ekki vilja
segja meira um þetta mál nú, en
um það yrði meira fjallað „áður
en yfir lyki“.
Valur - KR
Framhald af bls. 10
ir Gísla), var einnig ágætur, en
var óheppinn með skot sín. KR-
inga vantaði að þessu sinni þá
Ævar Sigurðsson, sem meiddist
illa í síðasta leik, ög verður að
öllum líkindum frá í nokkrar
vikur, Emil Karlsson, sem ekki
mætti til leiksins og Karl Jóhanns
son, sem nú í fyrsta sinn á rétt
20 ára keppnisferli missti af leik
vegna meiðsla. Munar um minna
en þessa mepn fyrir KR-liðið,
sem er nú nógu slakt fyrir.
—klp.—
Þór - KR
Framhald af bls. 9
leiksins að skora ekki eina ein-
ustu körfu.
KR-ingar voru sterkir undir körf
unni — tóku nær öll fráköst —
og fengu stundum tvö og þrjú
tækifæri til að skjóta í sama upp-
hlaupinu. Þetta gerði gæfumuninn
því að ef Þórsararnir hefðu verið
ákveðnari undir körfunni hefðu
þeir sigrað eins létt og drekka
vatn.
Dómarar leiksins voru Hörður
Túliníus og Arnar Einarsson frá
Vestmannaeyjum, en sá síðar-
nefndi dæmdi þarna sinn fyrsta
stórleik í körfuknattleik. Dæmdu
þeir vel, höfðu góða stjórn á leikn
um og voru strangir eins og frek
ast var unnt.
\ víðavangi
af bls 3 f
ert lært og engu gleymt. Þeir
reka enn kalda-stríðs-pólitík.
Þeir meira að segja færasl sí-
fellt í aukana og krefjast þéss
að íslendjpgar skeri sig alger-
lega frá bandamönnum okkár'
í Nato og við leggjumst ein-
dregið gegn viðleitni þeirra til
bættrar sambúðar við þjóðir
Austur-Evrópu með því að
slíta með öllu stjórnmálasam-
bandi og viðskipíum við Aust-
ur-Evrópuþjóðir á næstu ár-
um! Er furða þótt ritstjórar
Mbl. skrifi hatramlcga gegn
Einari Ágústssyni, utanríkisráð
herra, þcssa dagana og gcgn
þcirri utanríkisstefnu íslenzku
ríkisstjórnarinnar að stuðla að
bættri sambúð austurs og vest
urs, þegar stefna yfirboðara
þeirra og \innuveitenda er
þessi? — TK
Albert
Framhald af bls. 2
huguð sé bætt þjónusta við hverf-
in frá því sem nú er.
Það er því berlegt, að við áður-
greindar umræður í borgarstjórn
var beitt beinni fölsun í því augna
miði að fá borgarfulltrúa til að
vísa málinu til stjórnar SVR í
stað þess að afgreiða það á fund-
inum.
Það þarf naumast að fara um
það mörgum orðum, hve alvarleg
ur hlutur það er að beita slíkum
ósannindum í mál- og tillöguflutn-
ingi, sem þarna var gert.
Það verður að játast, að í þessu
tilviki vöruðum við okkur ekki á
því, að verið væri að blekkja okk-
ur í tillöguflutningi og munum
við að sjálfsögðu reyna að læra
af því.
En almenningur mætti einnig
draga af því nokkurn lærdóm.
hvernig borgarstjórnaríhaldið beit
ir hinum ósvífnustu ráðum til að
koma í veg fyrir að siálfsögð
þjónusta við borgarana sé aukin
Adda Bára Sigfúsdóttir
slgn.
Sigurjón Pétursson
sign.
F.Í.B.
Framhald af bls. 2
Þegar menn höfðu talað út um
ágreiningsmiálin, tók fundarstjór-
inn Björn Pétursson frá Akra-
nesi fyrir aðalmálið — eða kosn-
ingarnar. Fjórir voru kosnir í að-
alstjóm í stað þeirra þriggja sem
sagt höfðu af sér, en einn gaf að
vísu kost á sér aftur, og var það
Guðmundur Jóhannsson póstfull-
trúi. Náði hann kjöri ^g auk þess
Kjartan J. Jóhannsson héraðslækn
ir í Kópavogi, Pétur Maack Þor-
steinsson bifvélavirkjameistari
Kópavogi og Haukur Pétursson
verkfræðingur. Haukur var kjör-
inn til tveggja ára, en hinir til
eins árs. Fyrir í aðalstjóminni
var Guðmar Magnússon verzlunar
maður.
Þeir fimmmenningarnir, sem
vísað var út af fundinum á laug-
ardaginn voru á fulltrúalista þeim
er ógiltur var á Akureyrarþing-
inu. Munu þeir hafa ákveðið að
leita réttar síns í ,máli þessu, og
eftir ábendingu félagsmálaráðu-
neytisins munu þeir æskja þess
að miál þetta verði tekið fyrir í
Borgardómi. Er þá jafnvel við-
búið að halda verði annað auka-
þing, falli úrskurður þeim í hag.
GRÆNLANDS-
VAKAÍ
KÚPAVOGI
Norræna félagið í Kópavogi efn
ir til.Grænlandsvöku í félagsheim-
ili Kópavógs, neðri sal, fimmtu-
daginn 28. þessa mánaðar kl. 20.30.
Frú Herdís Vigfúsdóttir mennta-
skólakennari, sýnir kvikmynd, sem
hún hefur sjálf tekið í Grænlands
byggðum og flytur með henni
■skýringar. Þá rabbar dr. Björn
Þorsteinsson, sagnfræðingur, um
Grænland að fomu og nýju. Hann
er manna fróðastur um þessa
næstu nágranna okkar, og hefur
sótt hcim Grænlendinga nú sam-
fleytt í tylft ára, og stjórnað þang
að ferðum. — Þau hafa meðferð-
is ýmsa muni, grænlenzka, sem
fróðlegt er að kynnast. — Fyrir-
spurnum munu þau svara, verði
þær frambornar og unnt reynist.
Kvenfélag Kópavogs annast
kaffiveitingar og hefur félagsvist
að vökunni lokinni.
ck á folald
ÞÓ-Reykjavík, mánudag.
Á sunnudag var lögreglunni á
Akranesi tilkynnt um, að dautt
folald lægi við þjóðveginn fyrir
utan bæinn. Lögreglan kannaði
strax málið og kom í ljós, að bíll
hafði ckið á folaldið og slasað
það svo mikið, að það drapst, Ekki
er vitað nema folaldið liafi átt í
löngu dauðastríði, því að ökumaður
inn liafði forðað sér án þess að
láta lögregluiia vita.
Fljótlega fannst bíll, sem var
mikið skemmdur og þegar lög-
reglan talaði við umráðamann bíls
ins, sem sjálfur hefur ekki bíl-
próf, sagði hann að félagi sinn
hefði ekið bílnum. Þegar félaginn
var svo yfirheyrður, sagði hann
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Hringt var £ lögregluna frá
allmörgum samkomustöðum í
Reykjavík sl. laugardagskvöld og
beðið uim aðstoð til að koma fólki,
sem hafði aðgöngumiða inn í hús-
in og sumum út úr þeim. En við
dyr allra veitingahúsanna var
þröng af fólki sem leitaði inn-
göngu löngu eftir að þau voru
fullsetin.
Flestum veitingahúsunum var
lokað kl. átta um kvöldið og mynd
aðist þá þröng við dymar. Það
er álit lgreglumanna, sem fengn-
ir voru til að rýmka til, að 200
til 300 manns hafi verið utan við
hvert hús, sem ekki var hleypt
inn. Hvað flest var utan við Röð-
ul, Hótel Borg, Glaumbæ, Sig;
tún, Tónabæ og Tjamarbúð. í
ÞÓ—Reykjavík, mánudag.
Tvö vinnuslys urðu á Akureyri
á laugardaginn. Hið fyrra gerðist
um kl. 11.50. Smiður, sem var að
vinna í Slippstöðinni, lenti með
fingur í hjólsög, svo að hann missti
framan af einum fingranna.
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Drukkinn ökumaður skemmdi
fjóra kyrrstæða bíla sl. laugardags
kvöld á Túngötunni. Hans eigin
bíll skemmdist mikið. Tveir far-
þegar voru í bíl hans og meiddust
lítilsháttar, en sjálfur hljóp hann
á brott og var handtekinn heima
hjá sér síðar um nóttina.
Bílarnir, sem ekið var á, skemmd
ust allir, en misjafnlega mikið.
Fyrst ók maðurinn á Skódabíl, sem
hentist á annan og síðgn á stein-
vegg, síðan slengdist hann utan í
annan bíl. Þá hentist hann yfir
götuna og utan í bíl þar.
Þrír farþegar voru í bílnum.
Þekktu þeir bílstjórann ekki neitt.
Fólkið, sem voru hjón og stúlka
með þeim, voru á Laugavegi og
og drap það
það satt, að hann hefði ekið, en
umráðamaður bílsins hefði ætlað
að láta lögregluna vita um atburð-
inn.
Lögreglunni fannst framburður
piltanna grunsamlegur, og við frek
ari yfirheyrslur kom í ljós, að
pilturinn, sem er umráðamaður
bílsins, hafði sjálfur ekið, en þar
sem hann er próflaus og var að
auki undir áhrifum áfengis, sem
hann viðurkenndi fyrir lögregl-
unni,' þá hafði hann farið heim
til kunningja síns um nóttina og
fengið hann til að segja lögregl-
unni, að hann hefði ekið bílnum.
Þá hafði hann fengið aðra kunn-
ingja sína til að draga bílinn heim
til vinar síns um nóttina, og
jafnframt til að segja sömu sög-
una um hver ökumaðurinn væri.
Þórskaffi voru allir miðar upp-
seldir fyrir kl. níu. Hótel Saga
auglýsti í laugardagsblöðunum, að
öll borð væru upppöntuð á laug-
ardagskvöld.
Veitingahúsin í Reykjavík taka
samanlagt um 6 þúsund manns.
Ekki er ólíklegt, að eitthvað
færri gestum hafi verið hleypt
inn í húsin vegna þeirrar fréttar
að næsta laugardagskvöld á und-
an taldi lögreglan 700 manns
meira út úr Glaumbæ, en leyfi-
legt er að hleypa inn í það hús.
Hafa veitingamenn ætlað að hafa
vaðið fyrir neðan sig ef ske kynni
að lögreglan stæði við dymar og
teldi gesti út undir lokun.
í Reykjavík voru 11 drukknir
ökumenn handteknir yfir helgina
og í Hafnarfirði 3.
Seinna slysið varð svo um kl.
15.50. Þá féll verkamaður, sem
var að vinna uppi á vinnupöllum á
Haga á Óseyri féll fram af Þeim
og lenti hann niður á bakið. Við
fallið, sem var 3 til 4 metrar mun
maðurinn eitthvað hafa skaddazt
á baki.
reyndu að stöðva leigubíla, sem
ekki tókst. Stansaði maður þessi
hjá fólkinu og bauðst til að aka
því. Bað fólkið manninn að aka
að tilteknu veitingahúsi og tók
hann því vel. Þegar komið var á
móts við veitingahúsið stoppaði
bílstjórinn ekki, eins og óskað
hafði verið eftir en hélt áfram og
ók á miklum hraða upp Túngötu
með farþegana. En ökuferðin varð
ekki löng því hann lenti í árekstr-
unum vestarlega á Túngötunni.
Þegar bíllinn var óökufær eftir
árekstrana hljóp sá drukkni burtu,
en farþegarnir voru fluttir á sly:a-
varðstofuna.
Stal jijófurinn?
Farþegi á Herjólfi, sem var að
koma frá Vestmannaeyjum í gær,
fann hvergi jakkann sinn þegar
hann ætlaði að klæðast í gær-
morgun. Var jakkinn gjörsamlega
horfinn úr klefa hans, en í vös-
unum var veski hans með um 4
þús. kr. og persónuskilríkjum.
Maðurinn tilkynnti skipstjóra
jakkahvarfið og var rannsóknar-
lögreglan beðin að vera til taks
til að athuga máli þegar skipið
lagði að bryggju í Reykjavík. Fóru
lögreglumenn um borð og gerðu
leit í farangri farþeganna til að
finna veskið, en það fannst ekki
né heldur jakkinn.
Þegar leitin hafði staðið yfir
um stund :om drukkinn farþegi
að máli við lgregluna og sagði
að vel gæti verið að hann hefði
tekið jakkann, en væri ekki alveg
viss. Hann hafi verið svo fullur
um nóttina að hann mundi ekki
eftir að hafa tekið jakkann, en
taldi það samt líklegt og að hann
hafi þá kastað honum fyrir borð.
Vitað var að maðurinn var á rápi
um skipið um nóttina. Tók sá
drukkni að sér að bæta hinum
tjónið.
Fuilur og réttindalaus piltur
Tvö vinnuslys á Akureyri
Drukkinn bílstjóri
skemmdi 4 bíla