Tíminn - 07.01.1972, Side 5

Tíminn - 07.01.1972, Side 5
SKANDINAVISMI. Dagskrá þessarar viku hefst eiginlega á dansi í samkvæmis- fötum. Þótt dans sé nú með dauf- legra sjónvarpsefni, fer kannski vel á þessu, því nú hefst hið mikla danstímabil, þegar hver fimm manna liópur heldur árshátíð. Annars eru á dagskrá höfundar eins og Strindberg og Ibsen. Að vísu er Hedda Gabler á ferð í annað sinn, þótt maður voni í lengstu lög að þetta þýði ekki að hún sé orðin einskonar fast við- liald sjónvarpsins. Þá verður tal- að um þorsk á þriðjudaginn. Hann er sá fslenzkur þegn, sem alltof sjaldan fær að njóta reisnar sinn- ar, síðan hann var rifinn saltaður og sólþurrkaður úr skjaldarmerki landsins. Og enn drýgja þeir dag- skrána á þriðjudaginn með frönsku kennslu. Á miðvikudaginn kemur merkilegur þáttur um samskipti manns og hests, en samneyti við hesta hefur aldrei spillt nokkrum manni, og næsti þáttur er um líf fiskimanna. Miðvikudeginum lýk- ur svo með bandarískri stríðs- mynd. Þá er komið æskilegt mót- vægi við þann skandinavisma, sem ræður húsum fyrrihluta vik- unnar. JAFNVEL STEINBECK. Nýr brezkur sakamálaflokkur hefst á föstudaginn, og einnig nýr gamanmyndaflokkur, sem nefnist Skýjum ofar. Hann byrjar á laug- ardag. Þá verður sýnd mynd eftii sögunni Kátir voru karlar eftir Steinbeck. Hún er afbi'agð. Verð- ur ekki sagt annað, þegar á heild- ina er litið, að sjónvarpið gangi nokkuð hresst á móti nýju ári, enda tjaldar það þremur stór- ckáldum á einni viku. IGÞ. □

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.