Tíminn - 25.03.1972, Page 5
Laugardagur 25. marz .1972.
TÍMINN
5
| Erkiengillinn
Þaö er ekki á hverjum degi, sem
myndir birtast af hásettum
stjórnmálamönnum i gerfi
erkiengilsins. Hér er þó ein slik
mynd. Þetta er Edward Heath,
forsætisráöherra Englands, og
er myndin tekin er hann kom i
fyrsta sinn fram opinberlega.
Það var á skólaleiksýningu árið
1932, er hann fór með hlutverk
erkiengilsins á leiksýningu i
gamla skólanum hans Rams-
gate i Kent i Englandi. Þá begar
var Heath hátt fyir alla aðra
hafinn, hann var erkiengillinn á
meðan félagar hans voru bara
venjulegir englar.
Bara venjuleg
sk jalataska
Sveit sprengjusérfræðinga var
kölluð á vettvang, þegar skjala
taska fannst standandi upp við
vegg á bilastæði lögreglu-
stöðvarinnar i Vestur-Los
Angeles nyrir nokkru. Sér-
fræðingarnir skáru eitt hornið
af töskunni með mestu var-
færni, þar sem þeir héldu, að
hér væri um að ræða hættulega
sprengju. I þvi þeir voru að
ljúka verkinu kom Lawrence
Walsh lögregluforingi aðvif-
andi, og spurði hvort nokkur
hefði séð skjalatöskuna sina,
sem hann hefði gleymt á bila-
stæðinu.
☆
Borgarstjórinn nær
óþekktur
Borgarstjóri New York borgar,
John V. Lindsay hefur lagt
mikið kapp á að auglýsa sjálfan
sig um öll Bandarikin vegna--
fyrirhugaðra forsetakosninga,
en hann er sagöur hafa
nokkurn áhuga á að krækja
i forsetastólinn. Hann
hefur gengið svo langt i þessari
auglýsingastarfsemi, að hans
eigin kjósendur i New York eru
hættir að þekkja hann. Nýlega
átti Lindsay að mæta sem vitni
fyrir rétti við dómstól i New
York. —Hvert er nafn yðar,
spurði starfsmaður réttarins.
John Lindsey sagði til sin, en
maðurinn náði ekki nafninu i
fyrstu. —John hvað, sagði hann
og Lindsey þurfti að endurtaka
nafn sitt nokrum sinnum, áður
en starfsmaðurinn hafði náð þvi
réttu.
Kominn í náðina á ný.
Munið þið ettir nneykslismálinu
mikla i Englandi, þegar John
Profumo hermálaráðherra varð
að segja af sér vegna sambands
hans við ungar stúlkur, sem
ekki höfðu nægilega gott mann-
orð? Flestir hefðu liklega
haldið, að Profumo ætti ekki
aftur eftir að fá tækifæri til þess
að heilsa drottningu sinni, en
það hefur þó gerzt. Þessi mynd
var tekin af þeim nýlega, þegar
opnað var svokallað Attlee
House i London. Þar var
Profumo staddur og að sjálf-
sögðu drottningin lika. Hún
heilsaði fyrrverandi ráðherra
sinum með virktum, og ekkert
gaf til kynna að hún myndi eftir
hreykslismálinu. Reyndar mun
John Profumo hafa fengið aftur
virðingu fólks i Englandi. Þegar
hann dró sig til baka eftir
hneykslið, fyrirgaf konan hans
honum strax. Hún er Valerie
Hobson, fyrrum þekkt leikkona.
Profumo byrjaði fljótlega að
helga sig félagsmálum og hefur
unnið að þeim af miklu kappi
siðan. Meðal annars hefur hann
lagt mikiö af mörkum fyrir
fyrrverandi og núverandi
alkóhólista i Englandi. Það var
einmitt i þvi hlutverki sem
hann var meðai stofnenda
Attlee hússins.
1000 Eiffel-turnar
Bing Crosby hefur nú sungið i 45
ár. Enskt blað gerði það að
gamni sinu i tilefni af þessu, aö
reikna út, hversu margar
grammófónplötur þessi heims-
frægi söngvari hefur selt. Út-
koman hljóðaði upp á rúmlega
300 milljónir plata, og sé
reiknað meö, að hver plata sé 1
mm á þykkt gæti meður reist
1000 súlur, sem hver um sig væri
jafnhá Eiffelturninum.
—Sæll, elskan. Það komu nokkrir
vinir þvinir og kenndu mér aö
spila póker!
t Islandssögutima i Austurbæjar-
skólanum nýlega, spuröi ken-
narinn einn drenginn, hver hefði
numið land k Eyjafirði. Sá, sem
spurður vat, haföi ekki svar á
reiðum höndum og sessunautur-
inn ætlaði að gefa honum smá
bendingu. —Óli feiti, hvislaði
hann, og ætlaðist til, að þá myndi
hinn eftir Helga Magra. Það varð
þvi mikill hlátur i skólastofunni,
þegar hann rétti brosandi upp
hendina og sagði. —Já nú man ég
það. Hann hét Óli feiti!
t eldhúsinu á nýstofnaða
heimilinu: -Æ fjárinn sjálfur,
þarna lokaðist matreiðslubókin
og ég, sem hafði ekki hugmynd
um, hvað ég var að búa til'.j
—Ég ætla að kaupa bókina
„Hvernig maður nær i mann”
sagði litil stúlka, sem kom inn i
bókabúð.
Afgreiðslustúlkunni þótti sú
litla vafalaust heldur ung til að
lesa slikt og spurði, hvort hún
vildi ekki einhverja aðra bók.
—Hún á ekki að vera handa mér,
svaraði sú stutta. —Ég ætla að
gefa pabba hana i afmælisgjöf.
Hann er lögregluþjónn.
Frú Málfriður var úti að ganga
með syni sinum, þegar þau mættu
frú Jósefinu.
—En hvað hann Kiddi er orðinn
stór, sagði Jósefina.
—Hann , sem var svo litill, þegar
hann var minni.
Petra gamla varð 100 ára um
daginn og eins og venja er við slík
tækifæri, fór blaðamaður heim
sókn til hennar.
—100 ára er heilmikið, sagði
hann. —Hvernig stendur nú á
þvi, að þú ert orðin 100 ára?
—Ja, i fyrsta lagi er ég fædd 1872,
svaraði sú gamla.
Ef þér finnst börnin þin ekki nógu
dugleg viö námið, þá mundu, að
heimska getur verið ættgeng.
DENNI
DÆAAALAUSI
Þegar við spilum þetta meö þess-
um hraða, hljómar það eins og
þegar ég er'að toga i hárið á henni
Margréti.