Tíminn - 12.09.1972, Qupperneq 1

Tíminn - 12.09.1972, Qupperneq 1
IGNISI FRYSTIKISTUR RAFIÐJAN SÍMI: 19294 -/ RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Símar 18395 & 86500 #■ KJ—Reykjavík. Þeir fengu smáhvíld af sjónum um helgina, varöskipsmenn á Ægi, þvi aö á laugardaginn kom varöskipið til Reykjavikur, og hélt aftur á miðin i gær. Það voru óvenju margir, sem fylgdust meö flaggskipi Landhelgisgæziunnar, er þaö sigldi út úr höfninni i gær, og skipinu fylgdu áreiðanlega góðar óskir. „Nú taka þeir einhvern”, varð einum góðborgaranum aö oröi, er hann horfði á eftir Ægi, þar sem hann klauf svo til sléttan hafflöt- inn á Sundunum. Hingaö mun varðskipiö aöal- Framhald á bls. 19 Ægir lætur úr höfn á nýjan leik. ÆGIR AFTUR A Stp—Reykjavik. Illskuveður með fannkomu og veðurofsa gekk yfir Norðaustur- land i vikunni sem leiö, og stóð það upp undir 6 daga sums staöar. Fjallvegir iokuðust og tók fyrir jörð að mestu. Menn eru nú sem óðast að fara i göngur, en sums staðar hefur orðið að fresta þeim sökum veðurs. t gær haföi birt til fyrir noröan og var komin þiða. Unnið er nú aö þvi aö opna helztu fjallvegi, en Möðrudalsöræfi voru rudd á sunnudaginn. Um miöjan dag i gær, var enn ekki búið að ryöja Vopnafjarðar- og Hellisheiði, en fært var norður fyrir Strandir. Axarfjaröarheiöi var einnig ófær. I Vopnafirði hafði snjóaö alveg niöur i byggö og tekið fyrir beit, bæði vegna snjóa og bleytu. Aætlaö er, aö fara i göngur á mið- vikudaginn, og eru bændur mjög uggandi um aö fennt hafi fé. — 1 Reykjahliö átti að rétta i dag, en þvi hefur verið frestaö, þar sem ekki hafði veriö fært i göngur. 1 viðtali i gær sagði Pétur Jónsson i Reynihliö, að óvist væri, hvort farið yrði i göngur i dag vegna bleytu og þungrar færðar, en ann- ars væri komið nokkuð gott HÆTT VIÐ, AÐ FE HAFI FENNT NORÐAUSTANLANDS veður. Sagöi hann, að mikil hætta væri á þvi, að eitthvað hefði fennt af fé. Fé hefur mikið sótt niður i byggð siðustu daga og hefur þaö verið réttað. Rafmagnið fór af i Mývatnssveit á sunnudagsnótt, er blautur snjórinn, sem hlaðizt Framhald á bls. 19 ISLENZK HANDRIT I SÆNSKUM SÖFNUM AFMÆLISGJÖF 1974 Sænskur fræðimaöur, Olof Tandberg, hefur borið fram þá tillögu i Sydsvenska dagblaöinu, að Svíar heiðri Islendinga á ellefu hundruð ára afmæli lslands- byggðar mcð þvi aö færa þeim að gjöf islenzk handrit, sem varð- vcitt eru i sænskum söfnum. — Mér kemur þetta á óvart, sagði Jónas Kristjánsson, for- stöðumaður handritastofnunar- innar, þegar Timinn átti tal við hann, en að sjálfsögöu lizt mér vel á hugmyndina. Það eru ekki svo fá handrit is- lenzk, sem varðveitt eru i Sviþjóö — sem næst þrjú hundruð i kon- unglegu bókhlöðunni i Stokkhólmi og upp undir hundraö i Uppsölum. Ætli það geti ekki látiö nærri, að af þessu séu um sextiu skinn- handrit, ef öll brot eru talin, og sum þessara handrita eru stór- merk. Þar nefni ég til hómiliubókina islenzku, sem er elzta handritið, sem varðveitzt hefur, skrifuö um 1200, Uppsala-Eddu, eitt þriggja Eddu-skinnhandrita, Olafs sögu helga og Bergsbók svokallaöa, sem i eru konungasögur. Maður drukknar í Bolungavíkurhöfn Krjúl-Bolungavik. A laugardag var fannst lik af manni á miöjum aldri utarlega i höfninni i Bolungavik. Reyndist það vera af reykviskum manni, sem verið hefur matsveinn á vél- bátnum Hugrúnu um eins árs skeið — Jóni Snæland. Jóns haföi ekki verið saknað og þess vegna engin leit gerð að hon- um. Mun hann hafa verið á dans- leik i kauptúninu á föstudags- kvöldið, og þykir sennilegt, að hann hafi fallið niður milli skips og bryggju á leið út i bát sinn. Jón Snæland var þriggja barna faðir. MIÐUNUM I 't .v\v.w.VAW.w.,AmvAV.v.w.sv.,.v/.,AVAW.vw.w.,.m\mw.m,.w.v.,AV//Jv/A,.v/.v.v.mwm; Rauðsokkótt kvíga í fegurð-J arsamkeppni á Akranesi j Auöhumla er fræg i fornum trúfræðum og Búkolla í þjóð- sögum af nýrra tagi. Perla Fáfnisdóttir Blesasonar er nú- tiöarkviga, sem sennilega kemst á varir fieiri manna en aðrar nautkindur islenzkar næstu vikurnar. Það lá sem sé við borð, að hún yrði komin fegurðardrottning á íeguröar- samkeppni kvenkynsins á Akranesi á sunnudagskvöldið. Sumir gefa jafnvel I skyn, að það séu rangindi ein, að hún hreppti ekki titilinn. Forsaga þessa máls er sú, að undanfarin ár hefur fólk héðan úr Reykjavik haft með höndum fegurðarsamkeppni úti um allt land, þar sem stúlkur hafa verið valdar fegurðardrottningar sins lög- sagnarumdæmis. I ár keyptu tveir menn „réttinn” af þessu fólki, þetta árið, að sögn á hálfa milljón króna, og hafa þeir verið i förum siðustu daga meö feguröarsamkeppni sina. 1 sparnaðarskyni hafa þeir þó enga dómnefnd á sinum snær- um, heldur skera sjálfir úr, þegar úrskurðar er þörf. Perla Fáfnisdóttir kemur til sögunnar A sunnudagskvöldið var samkoma af þessu tagi haldin i Hótel Akranesi. Kom þar all- margt manna, um hálft annað hundrað, og aðgangur seldur á þrjú hundruð og fimmtiu krónur (þriðjungur þess fer i skemmtanaskatt). En þó að friða kynið skartaði þar mikl- um blóma, gekk fremur tregt að fá stúlkur til þess að taka þátt i samkeppninni. Að lokum uröu þær þó þrjár, er létu til leiðast að stiga upp á pallinn. Aftur á móti birtist þar fyrir dyrum úti keppandi, sem ekki hafði verið gert ráð fyrir: Það var Perla Fáfnisdóttir Blesa- sonar. Nærvera hennar átti einnig sinn aðdraganda. Á sunnudaginn komu um tuttugu konur úr Reykjavik, allt rauð- sokkur, upp á Akranes og boð- uðu þar til fundar, sem stóð i þrjár klukkustundir. Aö þvi loknu snæddu aðkomukonurn- ar i gistihúsinu, en héldu siðan inn að Galtalæk til fundar við Sæmund bónda Helgason, eig- '.■.■.v.v.v.v.v.v.v.v anda Perlu. Óku þær meö kviguna út á Akranes, og komu þangað á tiunda klukku- timanum. Rauðsokkur með rauðsokkótta kvígu Meðal kvennanna úr Reykjavik voru þær Vilborg Harðardóttir kennari og Svava Jakobsdóttir rithöfund- ur, er báðar standa framar- lega i hreyfingu rauðsokka. — Þetta er afskaplega falleg kviga, sögðu þær, er Timinn sneri sér til þeirra — hvit meö rauða fætur. Með öörum orö- um rauðsokka eins og við. Við staðnæmdust með hana á gangstéttinni utan við gisti- húsið, settum á hana silfur- kórónu og bundum um hálsinn á henni borða, sem á var letr- að: Miss Young Iceland. Og svo vorum við meö ýmsar áletranir, til dæmis: „Allir á veiðar: Músaveiðar, gæsa- veiðar, héraveiðar, stúlkna- veiðar”. Og svo lika: „Veljið sjálfir til aö spara". Það var orðið rokkið, þvi að þetta var svo seint á kvöldi, en þarna dreif að fólk eins og gef- ur að skilja, og sumt af þvi kom út úr húsinu. Eftir svo sem hálftima héldum við burt og skiluðum kvigunni heim til sin. Brjóstmál eöa brjóst- gæði og „mjaltavélin Ópus" — Ég held nú varla, að Perla hafi verið nærri þvi að sigra, sagöi Óli Ólason, gistihússtjóri á Akranesi. En atkvæði fékk hún — það er alveg hárrétt. Ég sá ekkert athugavert við þetta, nema þá aö vera með kálfinn innan um hálffulla unglinga, þó svo þær stæðu vörð um hann. Svo hef ég hérna spurninga- lista, sem rauðsokkurnar út- býttu, til minja um kvöldið. Það er uppkast að skoðana könnun. Þar er i fyrsta lagi spurt, hvað eigi að vera þyng- st á metunum i svona sam- keppni: Brjóstmál eða brjóst- gæði, mjaðmamál eöa mann- kostir, þyngd eða þolinmæði, ’■ fegurð eða félagsþroski. 1 öðru ■J er um það spurt, hvað freisti •. fólks til þess að íáta sýna sig svona: Gróðavon, menntavon, ■’ frægðarvon eða hégómagirnd. 1 þriðja lagi er um það spurt, i ■! hvers þágu þetta sé gert: !■ Sýningargripanna, þjóð- \ félagsins, þeirra sem !■ skemmta eöa skemmtana- iðnaðarins. Fjórða og siðasta !■ spurningin var um það, hvert ml ágóðinn rynni: Til stúlknanna, !■ sem sýna sig, til þeirra, sem ■! horfa á, til mjaltavélarinnar !■ Ópus eða i landhelgissjóð. ■! Allar rauðsokkur ;■ hinar prúðustu ;! — Þetta fór allt friðsamlega J. fram, sagði lögreglumaður sá ■; á Akranesi, er fyrir svörum ;■ varð, þegar álits lögreglunnar ■!! var leitað. Rauðsokkurnar ;■ voru mjög prúðar og háttvisar ■; og létu ekki á sig fá, þó að keppandi þeirra fengi ekki aö ■; ganga i salinn. Og kvigan rauðsokkótta var til sannrar fyrirmyndar i allri hegðun. ;■ W.V.V.W.V.V.V.VAWJAÍ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.