Tíminn - 12.09.1972, Qupperneq 6
TÍMINN
Þriöjudagur 12. september 1972
Norður-írsku
börnin á ferð
Norður-irsku börnin, sem
sluppu um stundar sakir úr ógn-
vekjandi umhverfi i heimkynnum
sinum, una hag sinum vel i
menntaskólaselinu austan fjalls.
Þar er friður og ró og milli hárra
fjalla, og hvergi neinn, sem liggur
i leyni.
Raunar hafa þau ekki haldið
svo mjög kyrru fyrir, þvi að
mörgu er að hyggja að og sitt-
hvað, sem þau vilja sjá og aðrir
vilja sýna þeim. Þau fóru austur i
menntaskólasel beint af flugvell-
inum. Þegar var farið með þau
upp á Þingvöll, að Laugarvatni,
Gullfossi og Geysi og i Skálholt .
Þetta var niu klukkustunda ferð,
og börnin ljómuðu af ánægju. Á
sunnudag i fyrri viku voru þau við
messu i Hveragerði hjá séra
Tómasi Guðmundssyni, en siðari
hluta dagsins léku drengir úr
hópnum knattspyrnu viö jafn-
aldra sina i Hveragerði.
Á mánudag brugðu börnin sér
til Reykjavikur til þess að skoða
höfuðborgina, kaupa minjagripi
og annað þess háttar. Flest eru
þau með myndavélar, og islenzkt
fyrirtæki gaf þeim hverju fyrir
sig tvær filmur. Mun það hafa
komið sér vel, þvi börnin eru ekki
fjáð.
Að sjálfsögðu munu börnin leita
kunningsskapar við jafnaldra
sina i Hveragerði, og er það einn
þáttur heimsóknarinnar, að þau
hitta stúlkur og drengi úr ný-
endurreistu skátafélagi Hver-
gerðinga og skemmta sér með
þeim.
Á fimmtudagskvöld höfðu irsku
börnin kvöldvöku fyrir ibúa
Hveragerðis. Þau skemmtu með
irskum þjóðdönsum og sungu irsk
þjóðlög, einnig tóku þau þátt i
leikjum með ungskátum i Hvera-
gerði.
Að viö hellinn á Laugarvatnsvöllum
Frá Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík
Innritun nýrra og eldri nemenda verður i
skólanum dagana 19. og 20. september.
Nauðsynlegt er að þeir sem hafa ekki þeg-
ar staðfest umsóknir, geri það þessa daga
eða aðrir geri það fyrir þá.
Námskeið i stærðfræði og islenzku fyrir þá
sem náðu ekki framhaldseinkunum upp úr
fyrsta bekk s.l. vor hefjast 15. september.
Þeir, sem ætla að reyna við inntökupróf
upp i fyrsta bekk, geta sótt þessi nám-
skeið.
Skólastjórinn.
liópurinn kominn aö Gullfossi.
'J
■
Nokkur barnanna viö Geysi
Auglýs
endur
Ath. að auglýsingar þurfa aö berast eigi slðar en kl. 2
daginn áöuren þær eiga að birtast. Þeir, sem óska eftir
aðstoð við auglýsingagerð þurfa að koma tneö texta
með 2ja daga fyrirvara.
Auglýsingastofa Tlmans er I Bankastræti 7
Slmar 19523 og 18300