Tíminn - 12.09.1972, Page 7
Þriftjudagur 12. september 1972
TÍMINN
7
Heimsmet i
smáskrift
Það er hægt að vera heims-
meistari i fleiri greinum en skák
og iþróttum. Nýlega var slegið
heimsmetið i smáskrift.
— Hvað er smáskrift?
Það er að skrifa smátt, litla
stafi, en samt læsilega. Nú-
verandi heimsmeistari er þýzk
kona Veronika Seider, i Stutt-
gart. Heimsmet hennar er 327
þúsund stafir á eitt og sama
póstkortið. Skriftin er ólesandi
með berum augum, og reyndar
er ekki hægt að lesa hana nema
með hjálp smásjár.
Fyrsta heimsmetið átti þýzk-
ur stúdent. Árið 1928, tókst hon-
um að rita 28 þúsund stafi á
póstkort. Siðar sló brezkur
verkfræðingur þaö met glæsi-
lega og skrifaði 45 þúsund stafi á
póstkort. Það met stóð ekki
lengi, þvi Ungverjinn Lajos
Ehmann gerði sér litið fyrir og
ritaði 160 þúsund stafiá póstkort.
En hvað er það á móti nýja
heimsmetinu? Þess má geta að
ekki má svindla 'og nota stór
póstkort undir skriftina, þau
verða að vera af þeirri venju-
legu stærð, sem við þekkjum
bezt og sendum heim frá
Mallorca.
Ef einhverjum finnst litið til
koma, ætti hann bara að reyna
að skrifa nokkur hundruð
þúsund stafi á bakhlið á póst-
korti, jafnvel þótt hann noti
stóru sortina.
Hver
erfir auðinn
Fyrir nokkru lézt i flugslysi i
Bandarikjunum ungur maður
að nafni Lance Rewentlov og
þótt- sumum hann hafa lifað
furðu lengi sé tekið tillit til þess,
hve gálauslega hann hefur farið
með lif sitt. Lance þessi hefur
um árabil tekið þátt i glannaleg-
ustu kappaksturskeppnum i
heimi, og oft teflt á tæpasta
vaðið á þvi sviði sem öðrum.
Lance er sonur auðkonunnar
Barböru Hutton og einkaerfingi
ótölulegra fjármuna. En það
hefur hann ætið látið sér i léttu
rúmi liggja og ekkert sinnt
fyrirtækjum fjölskyldunnar, en
ekið kappakstursbilum og flogið
sportvélum. Hann hefur verið
kvæntur tveim kvikmyndaleik-
konum. og fékk hin fyrri þeirra
skilnað frá honum vegna ,,and-
legrar grimmdar". Grimmdin
var sú, að eiginmaðurinn sinnti
kappakstursbilum sinum betur
en eiginkonunni.
Þegar Lance varð myndugur
fékk hann litlar 26 millj. dollara
til einkaafnota, til að hafa eitt
hvað til að lifa á þangað til móö-
ir hans gæfi upp öndina, en svo
fór að hún lifir soninn.
Er ekkert liklegra en að ungur
Spánverji verði aðalerfingi.
Hann heitir Angel Teruel, og er
12 árum yngri en Lance. Piltur-
inn kvæntist nefnilega Barböru
Hutton. sem nú er sextug, ekki
alls fyrir löngu. Er hann sjöundi
eiginmaður hennar, svo að vel
má vera að hún eigi eftir að
skilja við nautabanann og gift-
íyrir fyrrverandi eiginmönnum
sinum, enda hefur hún af nógu
að taka.
Á stóru myndinni er Lance i ein-
um af kappakstursbilunum sin-
um. Á tveim þeim minni ásamt
eiginkonum sinum, og siöan
mynd af Barböru Hutton og
hinum 24 ára gamla eiginmanni
hennar.
ast nokkrum sinnum enn.Meöal
fyrirrennara Spánverjans unga
eru danski greifinn Reventlow,
sem er faðir Lance. Gary Grant
og diplomatinn og kvennagull
ið Rubirosa. sem lézt af völdum
slyss fyrir nokkrum árum.
Það hefur verið álitinn góður
bisniss að giftast Barböru
Hutton. þvi hún hefur séð vel
Hafið þér aldrei séð fótbrot-
inn mann áður, eða hvað?
Úr skólastil: — Pabbi minn er
stórkostlegur. Hann getur klifið
hæstu fjöll. synt yfir mestu fljót.
barizt við villidýr i frumskóg-
unum. handsamað glæpamenn,
riðið trylltum hestum og frelsað
ungar stúlkur frá eldspúandi
drekum. En aðallega lætur hann
sér nægja að fara út með rusla-
fötuna...
— Hefurðu séð ungu hjónin,
sem eru flutt i húsið á móti. Þau
eru svo hamingjusöm. Hann
kyssir hana á tröppunum á
hverjum morgni, áður en hann
fer i vinnuna. Hvers vegna gerir
þú það aldrei?
— Ég væri svo sem alveg til i
það. en ég þekki manneskjuna
ekki nokkurn skapaðan hlut.
Maður hringdi til dýraverzl-
unarinnar og pantaði 5000 kakka-
lakka.
— Ég skal reyna að útvega þá,
svaraði dýrasalinn. En má ég
spyrja, hvð þér ætlið aö gera við
þá?
— Jú, ég er að flytja á föstu-
daginn. og i leigusamningnum
stendur. að ég eigi að skila ibúð-
inni i sama ástandi og ég tók við
henni.
I
DENNI
DÆMALAUSI
llún var búin til á italiu alveg eins
og ég.