Tíminn - 12.09.1972, Side 19
Þriðjudagur 12. september 1972
TÍMINN
19
Framhald
af bls. 1.
lega hafa komið til að taka vatn,
oliu og vistir, enda búið að vera
úti frá þvi nokkrum dögum fyrir
útfærsluna.
Bretarnir dreifðir.
Eftir þvi að dæma, hvað brezku
togararnir fyrir norðan og vestan
eru stutt á hverjum stað, virðist
sem litið fiskiri sé hjá þeim. Á
föstudaginn var stærsti floti
brezku togaranna vestur af Kol-
beinsey að veiðum á og við 50
milna mörkin. Á sunnudaginn
aftur á móti voru flestir brezku
togararnir dreifðir út af Horni, og
taldi Landhelgisgæzlan alls 33
skip þar að veiðum. bá var einn
brezkur á Halanum, 2 út af Gerpi
og 4 út af Hvalbak. Sex brezkir
voru út af Barða. Allir þessir 46
brezku togarar voru að veiðum
innan 50 milnanna. Auk þess voru
5 á siglingu við Austurland.
Samkvæmt talningu Landhelg-
isgæzlunnar þá voru 23 vestur-
þýzkir togarar að veiðum við
landið á sunnudaginn, flestir á og
við 50 milna linuna suð-vestur af
Reykjanesi.
Nú þegar brezkir togarar
áræða ekki að fara til islenzkra
hafna, þrátt fyrir vélabilanir eða
sjúkleika og slys sjómanna, verða
þeir að vera sjálfum sér nógir, en
njóta ekki aðstoðar Islendinga.
Gott dæmi um þetta er, að á
sunnudaginn var brezki togarinn
Boston Explorer með systurskip
sitt Boston Attacker FD-169 i togi
á leiðinni til Englands. Alvarleg
bilun hafði orðið i kælikerfi aðal-
vélar um borði Attacker, og þrátt
fyrir itrekaðar tilraunir tókst
hvorki skipsmönnum á Attacker
né Explorer að gera við bilunina.
Varð þvi að ráði, að systurskipið
tæki Attacker i tog.
Hætt við
Framhald
af bls. 1.
hafði utan á virana, sleit þá niður
á tveim stöðum. Það sama gerð-
ist i illviðrinu i ágúst i fyrra. Við-
gerðarmenn unnu að þvi i gær að
tengja linurnar saman.
A Grimsstöðum á Fjöllum er
snjólagið orðið 20—30 sm þykkt á
jafnsléttu, en mikið hefur blásið i
skafla, sem eru allt að þvi mann-
hæðarháir. Ahyggjur bænda
vegna fjárins á afréttunum eru
þvi miklar sem skiljanlegt er.
Auk þeirrar hættu, að féð hafi
fennt, hafa hættur við læki og
vilpur stóraukizt.
Framhald
af 17. siðu.
leikið tæplega fjörutiu landsleiki
fyrir Pólland. 25 ára.
Leslaw CMIKIEWICZ, fram-
vörður, með tæpa tuttugu lands-
leiki og lék á ólympiuleikunum i
Miinchen. Hann er 24 ára, lágvax-
inn og mjög leikinn með knöttinn.
Ryszard BALCERZAK, 19 ára
framvörður, sem talinn er i hópi
efnilegustu leikmanna Póllands.
Framtiðar landsliðsmaöur.
Tadeusz CYPKA, tvitugur
framvörður, mjög leikinn, en
samt harður i návigum. Hár og
sterklega byggður.
Robert GADOCHA, aðalógn-
valdur liðsins. Mjög marksækinn
framherji, sem skoraði þrennu á
Ólympiuleikunum i Miinchen
gegn Kólombiu. Hann er þó lág-
vaxinn, en mjög fljótur, og hefur
leikið rúmlega þrjátiu landsleiki
fyrir Pólland. Hann er 26 ára að
aldri.
Jan PIESZKO, snöggur fram-
herji, en mjög lágvaxinn, talsvert
innan við 1,70 á sokkaleistunum.
Hann er þritugur að aldri — mjög
leikinn.
Tadeusz NOWAK.24 ára fram-
herji, sem var með i ólympiuliði
Póllands i Miinchen. Sterkur leik-
maður og leikinn.
Stefan BIALAS, hæsti maður
framlinunnar, sex fet á hæð, og 24
ára gamall. Leikinn og marksæk-
inn framherji.
Legia, Varsjá, hefur alltaf getið
sér orð fyrir frábæra leikni leik-
manna sinna, nýtizkulega knatt-
spyrnu, og sjálfsaga leikmanna
er viðbrugðið. Þeir eru drengir
góðir i leik, en gefa þó ekki eftir i
heiðarlegri baráttu.
Mesta morðmál í
sögu Bandaríkjanna
Washington-(NTB)
Mesta fjöldamorðmál I banda-
riskri sakamáiasögu er hafið i
Fairfield i Kaliforniu, þar sem
hinn 40 ára gamii Juan Wallejo
Corona er ákærður fyrir að hafa
myrt 25 hvita landbúnaðarverka-
menn. Fregnir um likfundi i
ávaxtaörkunum við bæinn Yba
City birtust fyrst fyrir næstum 16
mánuðum, og eftir 10 daga gröft
höfðu fundizt 25 lik.
Mönnunum hefur öllum verið
misþyrmt og drepnir með frum-
stæðum vopnum. Höfðu þeir verið
grafnir i hinum frjósama jarð-
vegi meðfram ánni Feather Riv-
er.
Fórnardýrin voru menn, sem
litt höfðu komizt áfram i lifinu.
Þetta voru miðaldra hvitir menn,
flökkumenn, alkóhólistar, án fjöl-
skyldu og vina. Þeir vörðu tima
sinum á skitugum börum i Yba
City og biðu eftir tækifæri til þess
að fá lausavinnu við uppskeruna.
Corona, virtur bisnissmaður,
sem hvorki reykti né drakk, hafði
sem starfa að útvega verkamenn
i vinnu við vinberja- og ferskju-
uppskeruna i Sacramentodal.
Meðan verið var að grafa upp lik-
in, var Corona handtekinn. Hann
hélt þvi statt og stöðugt fram, aö
hann væri saklaus, en lögreglu-
stjórinn á staðnum lagði fram
heilmikið af sönnunum gegn hon-
um. — Ég er viss um, að við höf-
um tekið manninn, sem ber
ábyrgða á þessum grimmilegu
morðum.
Seinna hefur komið i ljós, að
rannsóknirnar höfðu verið mjög
svo vafasamar, og rikir nú mikil
óvissa um það, hvort sækjendum i
málinu takist ab sanna sekt Cor-
ona.
Mótmæiaveikföll
á N-írlandi
— verður Belfast myrkvuð?
Belfast-(NTB-Reuter)
Yfir 200 starfsmenn við orkuver
i Belfast fóru i verkfall i gær til að
mótmæla þvi, að brezkir fali-
hlifarhermenn standa á verði yfir
þeim. Tvö orkuver voru stöðvuð,
og verkfallsmennirnir hafa hótað
að myrkva aila borgina. íbúunum
hefur verið fyrirskipað að nota
sem minnst rafmagn.
Þriöji hermaðurinn, sem var i
brezka herbilnum, er var
sprengdur i loft upp á sunnudag-
inn, lézt á sjúkrahúsi i gær. Tveir
hermenn fórust, þegar billinn
sprakk. Hafa nú alls 557 manns
farizt af völdum óeirðanna i
Norður-lrlandi, siðan þær byrj-
uðu fyrir þrem árum. Meira en
Fyrsta bílslysið
í þrjátíu ár
60% af fórnarlömbunum hafa
fallið i ár.
Mótmælaverkfallið við orku-
verið skeði samtimis greftrun
tveggja mótmælenda, sem voru
skotnir til bana i óeirðunum milli
öfgaarms mótmælenda og
brezkra herm. I Shankill Road
á þriðjudaginn. Verkfalls-
mennirnir 200 hafa ekki upplýst,
hve lengi verkfallið muni standa,
en þeir vilja fá heimavarnarher-
menn i stað brezku fallhlifarher-
mannanna.
Æðstu stjórnmálamenn ka-
þólskra á Norður-lrlandi mæta i
dag til fundar við Edwar Heath til
þess aö reyna að binda endi á
fangelsun manna, sem grunaðir
eru um, að tilheyra irska lýö-
veldishernum. Kaþólikkarnir
munu flytja Heath tilkynningu
um, að þeir muni ekki taka þátt i
fyrirhuguöum viðræðum margra
stjórnmálaflokka, fyrr en 250
fangar hafa verið látnir lausir.
Þjóðleikhúsið:
Sýningar hefjast á laugardag
Fyrsta sýning á nýbyrjuðu leik-
ári hjá Þjóðleikhúsinu verður n.k.
laugardag þann 16. september.
Þá hefjast sýningar aftur á Sjálf-
stæðu fólki, en leikurinn var
sýndur 21 á siðasta leikári og allt-
af fyrir fullu húsi. Hlutverka
skipan er óbreytt aö öðru leyti en
þvi að nú leikur Erlingur Gislason
hlutverk Ingólfs Arnarsonar
Jónssonar i stað Gunnars Ey-
jólfssonar.. Þjóðleikhúsið frum-
flutti, sem kunnugt er, Sjálfstætt
fólk i tilefni af 70 ára afmæli Hall-
dórs Laxness og var leikurinn
frumsýndur þann 23. april s.l.
Sagan er færö i leikform af höf-
undi og Baldvin Halldórssyni, en
Baldvin er einnig leikstjóri verks-
ins. Aðalhlutverkið er leikiö af
Róbert Arnfinnssyni.
Leikurinn mun á næstunni
koma út hjá bókaútgáfu Helga-
fells undir nafninu, Bjartur i
Sumarhúsum og blómið.
Myndin er af Arna Tryggvasyni
og Guðrúnu Alfreðsdóttur i hlut-
verkum sinum i leiknum.
Enn veitzt að ísraelsmönnum
Krjúl — Bolungavik.
Sibdegis á laugardaginn varð 1
bifreiðarslys i Bolungavik.
Þriggja ára drengur lærbrotnaði
og hlaut auk þess sennilega ein-
hver meiðsli innvortis.
Það er i frásögur færandi, aö
ekki hefur orðið umferðarslys i'
Bolungavik, svo að nafn sé gef-
andi i siðast liðin þrjátiu ár, en þá
varð öldruð kona fyrir bil og lær-
brotnaði einnig. I Bolungavik eru
götur sumar þröngar en umferð
mikil og vaxandi, og má þetta
heita fágætlega vel sloppið.
Slys í Hörgárdal
Klukkan hálftvö, aðfaranótt
sunnudagsins tiunda sept. varð
það slys skammt frá Melum i
Hörgárdal, að bill fór þar út af
veginum. Tvennt var i bilnum, og
meiddist hvort tveggja. Farþeg-
inn, sem var stúlka, meiddist i
andliti. Mun hún hafa nefbrotnað
og auk þess misst tennur, en ann-
ars voru meiðsl hennar ekki fv'l-
könnuð, þegar blaðið hafði s?
band vib lögregluna á Ak ,.
Okumaður bifreiðarinnar am
varkarlmaður, meiddist lika eit(-
hvað, en fékk að fara '■’eim að lok-
inni læknisrannsókn.
BrUssel-(NTB-UPI/Reuter)
Lögreglan i BrUssel sendi í gær
út lýsingu á 29 ára gömlum
Marakkóbúa i tengslum við
morðtilraun á tsraeismanni, sem
cr ritari í sendiráði ísraels I bæn-
um. Skotið var á israelsmanninn
og hann alvarlega særður á
sunnudagskvöld. Maðurinn, sem
lögreglan lýsir eftir, heitir Hass-
an Ben Allah Ben Salah Joudat og
er fæddur I Casablanca 1943.
Fingraför þessa manns passa ná-
kvæmlega við fingraför Araba
nokkurs, sem áður hafði skotið ts-
raelsmann að nafni Ophir Zacok i
BrUssel.
Þessir atburöir hafa vakið
mikla reiði i ísrael og var þó ekki
við bætandi. Ræddi rikisstjórnin
málið á fundi i gær.
Sýrlendingur og tveir vestur-
þýzkir vinstri-öfgamenn voru
handteknir á sunnudagskvöld á
flugvellinum, er þeir voru að
reyna að komast úr landi.
Oryggisgæzla hefur verið efld
mjög á vestur-þýzkum flugvöll-
um, siöan morðin i Mifnchen voru
framin fyrir viku. Þremenn
ingarnir sem handteknir voru,
eru grunaðir um að standa i sam-
bandi við skæruliðaflokkinn, sem
stóð að baki morðunum. Þjóð-
verjarnir voru seinna látnir laus-
ir.
F/iA FLUGFE.L.ÆGÍ1VU
Skrif stof ustú Ika
í Glasgow
Skrifstofustúlka óskast til starfa á skrif-
stofu félagsins i Glasgow. Ráðningartimi
frá 1. janúar 1973.
Góð ensku og vélritunarkunnátta nauð-
synleg. Umsóknareyðublöðum, sem fást á
skrifstofum félagsins, sé skilað til starfs-
mannahalds fyrir 20. sept. n.k.
Flugfélag íslands h.f.
Hugsum
áöurenviö
hendum ^
Auglýsingastofa Tímans er í Bankastræti 1
19523 ^18300