Tíminn - 05.10.1972, Blaðsíða 5

Tíminn - 05.10.1972, Blaðsíða 5
Kimmtudagur 5. október 1972. TÍMINN 5 10 Skákmaður af hugsjón Bent Larsen, sem Danir segja, að sé næstbezti skákmaður i heimi, á eftir Bobby Fischer, er i Bandarikjunum um þessar mundir og tekur þar þátt i nokkrum skákmótum. Hann segist búast við að þéna um 12 þúsund dollara fyrir tafl- mennsku sina á þessu ári. — Ef til vill þéna ég minna á að tefla, segir Larsen, en að starfa við verkfræði, en skákin gefur mér frjálsari hendur. ☆ Kciknidæmi Þegar Ringo Starr var 16 ára gamall ákvað hann að verða rikur og fann upp einfalda að- ferð til þess arna. Hann sagðist hafa ætlað að skrifa Frank Sinatra, Gary Grant, Paul Getty og Onassis og biðja þá um að lána sér eina milljón dollara hver. Hann ætlaði að lofa að eyða engu af peningunum, heldur setja þá i banka og skila þeim eftir eitt ár, en fá sjálfur að halda vöxtunum. — En það tók mig heilt ár, sagði Ringo, að komast að þvi, að þeir lifðu einmitt á rentun- um. rOOQ, Tengdafaðir stjúpsonar síns Tvenn pör tengdust sterkum böndum i Englandi. Johan nokkur Colborn, 46 ára gamall ekkjumaður, kvæntist æskuvin- konu sinni Ednu Tiller, sem var orðin ekkja. Hún á 21 árs gamlan son, Derride sem varð ástfanginn af Jackoline, dóttur Colborns, sem endurgalt ást stjúpsonar föður sins, og þau giftust. Þar með er Edna orðin tengdamóðir stúpdóttur sinnar, og Colborn tengdafaðir stjúp- sonar sins. Þegar hjónaböndin fara að bera ávöxt og börnin fæðast geta lesendur spreytt sig á ,,hver er hvers og hvur er hvurs.” ☆ Atvinnuklækir Dómari i Amsterdam úrskurðaði að það væri ekki saknæmt fyrir gleðikonu, að sýna á sér þá likamshluta, sem yfirleitt eru huldir, á almanna- færi og hún hafði verið kærö fyrir. — Þetta tilheyrir atvinnu hennar, úrskurðaði dómarinn. Ilinn fullkomni glæpur Svisslendingurinn Marcel Carron átti hjákonu, sem hann vildi kvænas^en gallinn var sá, að hann var kvæntur annarri og átti tvö börn i hjónabandinu. Þvi datt honum i hug aö losa sig viö fjölskylduna á einu bretti og kvænast hjákonunni. Carron hugsaöi ráö sitt og kom þvi siðar i framkvæmd. Hann var lögregluþjónn að at- vinnu og þóttist geta framið glæp án þess að upp kæmist. Hann ók meö fjölskyldu sina upp fjallaveg i ölpunum og á krappri beyju i snarbrattri hlið, sveigði hann bilnum út af veginum og kastaði sér út. Billinn hrapaði 100 metra. Börn hans tvö, fimm ára og tveggja ára fórust, en eiginkonan Carmella, liföi af, þótt ótrúlegt kunni að viröast. En samt sem áður virtist sem ódæðið mundi ekki komast upp, þvi konan missti minnið. En einn góðan veðurdag mundi hún allt i einu hvað skeð hafði og lék ekki nokkur vafi á að maðurinn hafði ekið bilnum viljandi fram af hengifluginu. Hún sagði lög- reglunni frá og maðurinn var handtekinn og játaði hann glæpinn. Hann afplánar nú lifstiöar- fangelsi og hvorki eiginkonan né hjákonan vilja sjá hann framar. Kjölgunarvandamálið enn Visindamenn i Bandarikjunum vonast til að geta komizt fyrir eitt mesta fjölgunarvandamál sem hrjáir mannkynið, dýralif og jurtalif i heiminum, en það er ofsaleg fjölgun á rottum. Verið er að gera tilraunir á búgarði einum i Oklahoma, sem búizt er við að gefi góða raun. Sautján stæðilegar karlrottur, sem aldar hafa verið á rann- sóknarstofu, voru vanaðar, en eru færar um að lifa miklu ástarlifi. Þessum tilraunadýrum var dreift meðal 600 rotta á kjúklingabúgarði. Arangurinn sem vonast er eftir er sá, að kvenrotturnar sækist fremur eftir þessum 17 ástþyrstu, heldur en hinum vesalingunum sem fyrir eru og að stofnin eyðist. Heppnist tilraunin verður hægt að nota aðferðina á þeim landsvæðum, sem rottuplágan er hvað mest. HERAGI Susan Struck er hjúkrunar- kona i bandariska flughernum og liðsforingi að nafnbót. Fyrir tveim árum varð hún barns- hafandi og þar sem konan var ogerógift, þótti flughernum til- tæki liðsforingjans óviður- kvæmilegt. Samkvæmt her- lögum átti hún um tvo kosti að velja, að láta eyða fóstrinu, og þá með lagalegum rétti, eða verða leyst frá herþjónustu með sæmd, sem þýðir að ekki átti að reka hana úr hernum, sem þykir mikill mannorðshnekkir i þeim löndum, sem burðast með svokallaðar landvarnir. En Susan neitaði hvoru- tveggja. Þar sem hún er ka- þólskrar trúar, sagðist hún ekki láta eyða fóstrinu og samkvæmt landslögum væri fóstureyðing ólögleg, hvaö sem herlög kvæðu á um. Málstappiö hefur staðið yfir i tvö ár, og er nú málið fyrir Hæstarétti Bandarikjanna i Washington, sem er æðsti dómstóll rikjasam- bandsins, og úrskurði hans verður ekki áfrýjaö. Barn Susan, sem er stúlka, er nú kjörbarn kunningja hennar. OENNI DÆMALAUSI Þú lest aldeilis hratt i kvöld pabbi, af hvaða mynd ertu að missa i sjónvarpinu?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.