Tíminn - 05.10.1972, Blaðsíða 16

Tíminn - 05.10.1972, Blaðsíða 16
Lögregluþjónar og verkfræöingar þinguöu um umferöarskipulagiö á nýju gatnamótunum i gærdag. Vegurinn undir brúna er hægra megin. K.v. Guttormur l>ormar yfirverkfræöingur, Óskar ólason yfirlögregluþjónn, ólafur Guðmundsson verkfræöingur, mótorhjólalögreglumaöur og Sverrir Guömundsson aðstoöaryfirlögregluþjónn. (Tfmamynd Gunnar) YFIR OG UNDIR I NÆSTU VIKU — þegar gatnamót Miklubrautar og Reykjanesbrautar verða tekin í notkun KJ — Reykjavík. i næstu viku veröa ein mestu gatnamót i Iteykjavik opnuö til umferöar, cn hér er um aö ræöa gatnamót Suöurlandsbrautar og Kcykjancsbrautar, viö Klliðaár. Mörgum kann að koma undar- lega fyrir sjónir að gatan undir brúna heitir Reykjanesbraut, en það stafar af þvi að i framtiðinni á þarna að verða aðalleiðin frá Reykjavik og suður á Reykjanes. 1 dag er aðeins búið að ganga frá hluta brautarinnar, eða þeim kafla sem tengir Breiðholtið við aðra hluta borgarinnar. Þegar þessi nýju gatnamót verða tekin i notkun leggst Skeiðvallarvegur niður, og þar með hin slæmu vegamót hans við Vesturlandsveg. Þá má gera ráð fyrir að umferö minnki um önnur gatnamót Miklubrautar, en aðal- straumurinn til og frá Breiðholti, og reyndar til og frá öðrum hverfum, mun fara um þessi gatnamót. T.d. mun umferð frá Sundahöfn og i Ártúnshöfða fara undir brúna, og upp á Vestur- landsveg, svo dæmi sé nefnt. Kleppsvegur liggur að norðan undir brúna, en þá tekur Reykja- nesbraut við. Má þvi búast við,að umferð um Kleppsveg aukist að mun með tilkomu hinna nýju gatnamóta. Vegna brúarinnar yfir gatnamótin á umferð um Miklubraut að verða mun öruggari á þessum slóðum, og ganga betur fyrir sig. 1 gær voru ráðamenn umferðarmála i Reykjavik aö skoða hin nýju gatnamót, en þá var verið að leggja siðustu hönd á malbikun, og búið að mála nokkuð af varúðar og leiöbeininga linum. Þá er búið að setja upp nær öll leiðbeiningaskilti, með nöfnum borgarhluta og aðalum- ferðaræða. Aftur á móti á eftir að setja upp sjálf umferðarmerkin, og einnig er eftir að setja upp alla lýsingu við gatnamótin. Umferðarskipulagið virðist vera frekar einfalt þarna, en þess ber að geta að gatnamótin eru ekki komin i endanlegt horf, þar sem nokkrar hliðarbrautir vantar. En þrátt fyrir að þær vantar, þá eru ekki horfur á neinu „Kópavogsæfintýri” þarna inn við Elliðaár, og með réttri kynningarstarfsemi ætti enginn að þurfa að villast þarna, eins og enn mun gerast i nágranna- bænum. íslendingar efstir í B-flokki í Skoplje NTB-Skoplje íslenzku skákmennirnir á Olympiumótinu i Skoplje halda sinu striki i B-flokki. Þeir unnu sveit Indónésiu með 3 vinningum gegn 1, og eru þar með efstir i B- flokki með 19 1/2 vinning. Næstir Islendingum i B-flokki eru Eng- lendingar meö 19 vinninga, Kanadamenn eru með 18 1/2 og Norðmenn i fjórða sæfi með 18 vinninga. NTB fréttastofan norska segir að almennt se Islendingum eða Englendingum spáð sigri i B- flokki og fréttastofan segir enn- fremur, að það verði erfitt fyrir Norðmenn að halda fjórða sætinu, þar sem þeir eigi eftir að tefla við Islendinga og Englendinga. Júgóslavar eru enn efstir i A- flokki með 21 vinning, Ungverjar eru með 19 vinninga og Rússar eru með 18 vinninga en almennt var álitið að Rússar myndu sigra örugglega i A-flokki, en þeim hefur ekki gengið eins vel og spáð var i fyrstu. Elliðavogur Sundahöfn Börkur tefst f Noregi Stór og mikil leiöbciningaskilti eru viöa viö nýju gatnamótin, eins og hér sést, þar sem vísaö er á Sundahöfn og Breiöholt, sem er i baksýn. ÞÓ-Reykjavik. Sem kunnugt er, þá er Sildar- vinnslan i Neskaupstað búin að festa kaup á 1012 lesta fiskiskipi i Noregi. Skipið átti að leggja af staðtil heimsiglingar nú um helg- ina, og var áhöfn skipsins komin út til að sækja það. Þegar verið var að reynslu- keyra skipið s.l. laugardag bilaði Jörgensen í embætti í dag — viðurkenna Danir nú A-Þýzkaland? NTB— Kaupmannahöín Anker Jörgensen gengur á fund Danadrottningar nú fyrir hádegi og tekur þar méö formlega við hinu nýja embætti sinu sem for- sætisráðherra Danmerkur. Landsstjórn jafnaðarmanna- flokksins samþykkti einróma á fundi i gær valið á Jörgensen sem eftirmanns Krags. A blaðamannafundi eftir land- stjórnarfundinn, sagði Krag, að stjórnin hefði sett Erling Dinesen sem formann flokksins. Dinesen lýsti þó yfir þvi, að hann yrði ekki i kjöri til formanns á næsta ári. Anker Jörgensen kvaðst heldur ekki myndu verða i kjöri. Hann sagði að embætti forsætisráð- herra og flokksfomanns ættu að vera aöskilin. Krag skýrði frá þvi, að hann hefði frábeðið sér að taka þátt i nefndastörfum á þjóðþinginu og að hann myndi heldur ekki taka til máls. Er hann var spurður hvort ekki væri óalgengt, að þing- menn lýstu þvi yfir, að þeir vildu ekki vinna þingstörf, svaraði hann aðeins stuttlega: — jú. Leiðtogi A-þýzku verzlunar- nefndarinnar i Danmörku, Gerhard Lindner, sagði á blaða- mannafundi i gær, að vonazt væri nú til þess, að Danmörk viður- kenndi bráðlega Austur-Þýzka- land. Lindner minnti á, að Jörgensen hefði verið framá- maður i þeirri nefnd, sem vinnur að viðurkenningu A-Þýzkalands. WILSON SIGRAÐI vél skipsins alvarlega, og varð þvi ekkert úr heimsiglingunni að sinni. — A íslandi átti að rifa sildarbræðsluna, sem er i skipinu, úr þvi og siðan átti að fram- kvæma nauðsynlegar breytingar á þvi, annaðhvort hér heima eða erlendis. Jóhann K. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri útgerðar Sildar- vinnslunnar i Neskaupstað sagði i viðtali við blaðið, að nú væri ákveðið að sildarbræðslan yrði rifin úr skipinu i Noregi, og þar yrðu einnig framkvæmdar allar nauðsynlegar breytingar á þvi. Þessu verki á að verða lokið fyrir áramót, en skipið á að fara til loðnuveiða með nót og flottroll. — Búið er að gefa skipinu nafn. Hlaut það nafnið Börkur NK-122 Þegar Börkur verður kominn til landsins verður hann langstærsta skip Islands, sem útbúið er til nótaveiða. Það má t.d. bera stærð hans saman við togara eins og Sigurð og Mai, en þeir eru tæpar 1000 lestir að stærð. Jafnframt nótaveiðunum er gert ráð fyrir að Börkur stundi veiðar með flottroll. NTB-Blackpool. Harold Wilson, leiðtogi stjórnarandstöðunnar i Bretlandi náði i dag stuðningi verkamanna- flokksins við stefnu sina i markaðsmálunum og þar með er stórt skref stigið i átt að lausn þeirrar deilu, sem virtist ætla að kljúfa verkamannaflokkinn. Wilson lagði jafnvel stoou sina sem leiðtoga flokksins að veði, en honum tókst að fá mikinn meiri- hluta fulltrúa á landsþingi flokksins til að styðja lands- stjo'rnaryfirlýsingu, þar sem staðfest er, að stefna flokksins i markaðsmálunum sé óbreytt. Yfirlýsingin fjallar um, að raunar sé verkamannaflokkurinn hlynntur aðild Bretlands að EBE, en skilmálar þeir, sem ihalds- stjórnin setur, séu óhagstæðir og þess vegna verði að semja á nýjan leik. Tillaga frá vinstri armi flokksins, þar sem EBE-aðild var skily.rðislaust visað á bug, var felld. Hvalur 9 KJ—Reykjavik Stöðugt er unnið að þvi að búa Hval 9 undir landhelgisgæzlu, en engar meiriháttar breytingar verða þó gerðar á skipinu. Samt mun útlit skipsins breytast nokk- uð, frá þvi sem nú er, þvi land- heígisgæzlan hefur fengið heimild til að mála skipið grátt, en það er nú svart — brúnt og hvitt, eins og hinir hvalveiðibátarnir. * .........................' Fimmtudagur 5. október 1972. - Tilræði við Craig NTB-Belfast Tilraun var gerð i gær til að myrða William Craig, leiðtoga Vanguard-hreyfingarinnar á N- frlandi, sem eru samtök öfga- sinnaðra mótmælenda. Þremur skotum var skotið aö bil hans, eitt lenti i aftursætinu og tv.ö i rúður. Kona i bil viö hliöina skaut, en Craig sakaði ekki. öfgafyllri armur irska lýð- veldishersins, hefur áður sagt, að meðlimir sinir hafi fullt leyfi til að myrða félaga i Vanguard- William Craig hreyfingunni og Varnarhreyfingu Ulsters. Craig, sem er 47 ára, sagði um tilræðið, að þarna hefði einhver verið á ferðinni, sem langaði til að ástandið versnaði enn. Alls hafa verið framin 67 morð á N-írlandi, siðan i júli og hafa yfirvöld lofað 10 milljónum þeim, sem hjálpað gæti til að finna morðingjana. Þakka drengilegan stuðning Landssamband iðnaðarmanna hefur nýlega sent samtökum iðnaðarmanna i Færeyjum þakk- ir fyrir drengilegan stuðning þeirra við málstað Islendinga i landhelgismálinu með þvi að neita að vinna að viðgerðum i tog- urum, sem hafa stundað ólögleg- ar veiðar innan 50 milna land- helginnar. Bréfsnef til USA NTB-Washington Leonid Brésnef, leiðtogi sovézka kommúnistaflokksins hefur i hyggju að fara til Banda- rikjanna i heimsókn i vor, ef Nixon sigrar í forsetakosningun- um i næsta mánuði. Þegar Nixon fór til Moskvu i mai s.l. bauð hanrt Brésnef, Kosygin Gromyko og Podgorny að heimsækja Bandarikin. Áreiðan- legar heimildir telja, að aðeins Brésnef láti þó verða af ferðinni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.