Tíminn - 24.10.1972, Síða 5
Þriðjudagur 24 október 1972
TÍMINN
5
Fundir Framsóknarmanna í Suðurlands-
Vesturlands- og Reykjaneskjördæmi
Framsóknarfélögin í eftirgreindum
til almennra stjórnmólafunda
byggðarlögum efna
sem hér segir:
AAætið tímanlega á fundina
Reykjanes-
kjördæmi
Suðurlands-
kjördæmi
Keflavik,
fimmtudaginn 2. nóv. kl. 20.30 i
Ungmennafél. húsinu.
Frummælendur: Björn Fr.
Björnsson, alþm., Bjarni Guð-
björnsson, alþm., og Baldur
Óskarsson, forstöðumaður.
Vik Mýrdal,
föstudaginn 3. nóvember kl. 21.00.
Ræðumenn: Asgeir Bjarnason,
alþm., Páll Þorsteinsson, alþm.
og Alfreð Þorsteinsson, blaða-
maður.
Ilvolsvelli,
föstudaginn 3. nóv. kl. 21.00.
Frummælendur: Stefán Val-
geirsson, alþm. og Friðgeir
Björnsson, lögfr.
Flúðum,
föstudaginn 3. nóv. kl. 21.00.
Frummælendur: Vilhjálmur
Hjálmarsson, alþm. og Jónas
Jónsson, ráðherraritari.
Selfossi, Tryggvaskála,
föstudaginn 3. nóv. kl. 21.00.
Frummælendur: Halldór E.
Sigurðsson, fjármálaráðherra og
dr. Ólafur R. Grimsson.
Þorlákshöfn,
föstudaginn 3. nóv. kl. 21.00.
Frummælendur: Ingvar Gisla-
son, alþm. og Tómas Árnason,
forstj.
Fólkvangi, Kjalarnesi,
laugardaginn 4. nóv. kl. 15.00.
Frummælendur: Jón Skafta-
son, alþm. og Guðmundur G.
Þórarinsson verkfr.
Frummælendur: Þórarinn
Þórarinsson alþm. og Kristján
Benediktsson, borgarfulltrúi.
Kópavogur,
1 Félagsheimilinu, laugardaginn
4. nóv. kl. 15.00.
Frummælendur: Ólafur
Jóhannesson, forsætisráðherra
og Elias Snæland Jónsson, blaða-
maður.
Hafnarfjörður,
Strandgötu 33, fimmtudaginn 2.
nóv. kl. 20.30.
Vestmannaeyjum,
Frummælendur: Eysteinn
Jónsson, forseti sameinaðs þings
og Steingrimur Hermannsson,
alþm.
Vesturlands
kjördæmi
Borgarnesi,
föstudaginn 3. nóv. kl. 21.00.
Frummælendur: Einar Agústs-
son, utanrikisráðherra og Þor-
steinn Geirsson, lögfr.
Lýsuhóii, Staðarsveit,
föstudaginn 3. nóv. kl. 21.00.
Frummælendur: Agúst
Þorvaldsson, alþm., og Helgi
Bergs, bankastjóri.
Búðardal,
laugardaginn 4. nóv. kl. 14.00.
Frummælendur: Björn Páls-
son, alþm. og Tómas Karlsson
ritstjóri.
Fjárlagafrumvarp
Framhald af bls. 1.
reksturinn yrði fyrir áföll-
um — svo sem að verulega drægi
úr þorskafla, eins og nú hefur átt
sér stað á þessu ári. Til viðbótar
hefur svo komið, að vegna
gengisbreytinga erlendis hefur
tilkostnaður við atvinnurekstur
hækkað og einnig hafa verið að
koma fram duldar verðhækkanir
frá verðstöðvunartimabili við-
reisnarstjórnarinnar. Kjara-
samningarnir leiddu svo óhjá-
kvæmilega til nokkurrar verð-
hækkunar innanlands.
Að þessu athuguðu þarf eng-
um að koma á óvart þótt við
nokkurn efnahagsvanda sé nú að
etja.
Fjármálaráðherra skýrði frá
þvi, að allt tekjuöflunarkerfi
rikissjóðs væru nú til endurskoð-
unar. Kvaðst hann ekki geta um
það sagt á þessu stigi, að hve
miklu leyti þættir úr þeirri endur-
skoðun gætu komið til afgreiðslu
á þessu þingi.
Samkvæmt lögum skal skatt-
visitala ákveðin i fjárlögum
hverju sinni. Hækkun visitölu
framfærslukostnaðar milli ár-
anna 1971 og 1972, er um 10%, sem
að öðru óbreyttu væri eðlileg við-
miðun við ákvörðun skattvisitölu.
Miðað við núverandi visitölu 100,
ætti skattvisitalan við álagningu
1973, þannig að ákvarðast 110.
Hins vegar tók rikisstjórnin þá
ákvörðun, að skattvisitalan
skyldi verða 128 stig. Þetta þýðir
raunverulega skattalækkun, þ.e.
minni skattbyrði einstaklinga, og
nemur lækkunin 730 milljónum
króna skv. gildandi kerfi. Ástæð-
an fyrir þvi, að tekjuskattur i
heild hækkar þrátt fyrir þetta
milli ára, er fyrst og fremst sú, að
gjaldendum fjölgar og auknar
eftirstöðvar eru frá þessu ári.
1 niðurlagi ræðu sinnar sagði
fjármálaráðherra, að það væri
félagsleg uppbygging, sem ein-
kenndi þetta fjárlagafrumvarp i
samræmi við þá stefnumörkun,
sem rikisstjórnin ákvað við
valdatöku sina og mun halda
áfram. Það er einmitt sú félags-
lega uppbygging, sem fólkið i
landinu þarf fyrst og fremst.
Fyrri hluti ræðu fjármálaráð-
herra er birtur I blaðinu i dag.
VEUUM ÍSLENZKT-
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
Norðursjórinn:
Selt fyrir 40 milljónir
ÞÓ-Reykjavik.
A timabilinu frá 16. til 21.
október seldu 30 islenzk sild-
veiðiskip i Danmörku og eitt i
Þýzkalandi samtals 2.155 af sild
fyrir 39.6 milljónir kr. Meðalverð-
ið var likt og undanfarnar vikur
og var það að þessu sinni kr.
19.07.
Hæstu heildarsöluna fékk Héb-
inn ÞH, en báturinn seldi 18. októ-
ber 111.3 lestir fyrir 2.3 millj. kr.
Loftur Baldvinsson EA seldi
einnig 111 lestir fyrir á þriðju
milljón og er Loftur Baldvinsson
þvi búinn að selja fyrir hátt á
tólftu milljón á 5 vikum.
Að þessu sinni var það Hrafn
Sveinbjarnarson GK, sem fékk
hæsta meðalverðið kr. 21.09.
Einn bátur, Helga Guðmunds-
dóttir BA, seldi 60 lestir af makril
i vikunni og meðalverðið var
rúmar röskar 16 krónur.
Auglýsicf
i
Támanum