Tíminn - 24.10.1972, Page 7
Þriðjudagur 24 október 1972
TÍMINN
7
VEIIÐANDI
IIEIMSMEISTARI?
Antoli Karpov er ungur
sovézkur stórmeistari, sem
varð i fjórða sæti á Sovét-
meistaramótinu árið 1971 og
vann þá marga framúr-
skarandi skákmenn.
Frammistaða hans á Alekhin-
mótinu i árslok 1971 var stór-
glæsileg, en þá var hann i
fyrsta sæti ásamt stór-
meistaranum Leonid Stein.
Margir þekktir skákmenn
tóku þátt i mótinu, þ.á.m.
Boris Spasski, sem þá var
heimsmeistari og fjórir fyrr-
verandi heimsmeistarar:
Vasily Smyslov, Mikhail Tal
og Tigran Petrosjan. Stuttu
siðar tók Anatoli Karpov þátt
i Hastings-mótinu, þar sem
hann sannaði aftur leikni sina,
er hann var efstur ásamt
Viktor Kortsnoj sem er lika
sovézkur stórmeistari.
Karpov er stefnufastur,
kann að einbeita sér og hefur
yfir að ráða hæfileika til að
meta getu sina. Þegar hann
var lOára bjó hann i Zlatoust,
sem er borg i Úralfjöllum. Þá
vann hann alla þátttakendur á
skákmóti skólabarna. Hann
varð skákmeistari fimmtán
ára. Mikhail Botvinnik fékk
áhuga fyrir honum og helgaði
þessum hæfa unglingi mikinn
tima og fyrirhöfn.
Sumariö 1969 varð Anatoli
Karpov heimsmeistari ung-
linga og um haustið sama ár
ávann hann sér réttindi al-
þjóðlegs stórmeistara í
Venesuela.
Nu stundar hann nám á
þriðja ári við viðskiptafræði-
deild háskólans i Leningrad
og gengur námið mjög vel.
Hann býr sig nú undir ný
skákmót með hjálp þjálfara
sins Semyon Furman.
Skáksérfræðingar lita á
hann sem einn af þeim, sem
kom til greina að keppa um
heimsmeistaratitilinn i fram-
tiðinni .
*
EIIAMLEIÐSLUAF-
KÖST VOLGUVERK-
SMIDJANNA HAFA
TVÖFALDAZT.
Lokið hefur verið við bygg-
ingu annars áfanga Volgu-
verksmiðjanna i borginni Tol-
jatti við Volgu. Nú hafa fram-
leiðsluafköst verksmiðjunnar
tvöfaldazt og framleiðir hún
440 þúsund fólksbifreiðar á
ári.
4
Það tók innan við ár að
byggja annan áfangann.
Flatarmál verksmiðjanna er
nú rúmlega hálf milljón fer-
metrar. Þar er komið fyrir
öllum tækjaútbúnaði, leiðslum
og færiböndum, sem eru sam-
tals 50 kilómetra og lengd.
Framleiðslan er mjög sjálf-
virk og nemur hún 750-800
bilum á dag. Bráðlega verður
hraði færibands nr. 2 aukinn
og mun þá framleiðslan
aukast að sama skapi. Nú er i
áætlun að byggja þriðja færi-
bandið og næsta ár ná Volgu-
verksmiðjurnar þeirri fram-
leiðslu, sem upphaflega var
gert ráð fyrir, þ.e. 660 þúsund
bilum á ári.
Á þessu ári var hafin fram-
leiðsla á nýrri tegund VAZ-
2103. Þessi tegund er full-
komnari, en „Sjiguli” teg-
undin. Hún verður 75 hestöfl
og getur náð 150 kilómetra
hraða á klst. Að ytra útliti
verður nýja tegundin fallegri
og útbúin meiri þægindum.
1 nágrenni verksmiðjunnar
ris upp stærðar borg, þar sem
iðnaðarmennirnir búa. 1
þessari nýju borg eru skólar,
*
barnaheimili, verzlunarmið-
stöðvar og heilsuverndar-
stöðvar.
Áætlað er að framleiðsla
fólksbila aukist um 250-280
prósent á niundu fimm ára
áætluninni. Bifreiðaverkstæði
verða fleiri og viðgerðar
þjónusta bætt. Bilavegir verða
byggðir og endurskipulagðir,
einkum i þorpum og nýjum
iðnaðarhéruðum.
Elskulegur eiginmaöur.
Þegar Gloria Judge, sem býr i
Detrou, sýndi manni sinum
dómsúrskurð þess efnis, að
hann ætti að hætta að lemja
hana, neyddi hann konuna, sem
er 24 ára, til að éta skjalið, sem
var 40x80 cm. löggiltur skjala-
pappir, og lúbarði hana svo á
eftir.
Fyrir það var hann dæmdur i 8
þúsund kr. sekt.
— Þér verðið að afsaka
heimsku mina, prófessor, en ég
hef ekki hugmynd um, hvernig
atómsprengja er búin til.
— Ilvcrnig gaztu vcrið tvo tima
að fylla saltbaukinn?
— Klskan, þú vcizt ekki hvað
það cr erfitt, að koma öllum
þcssum kornum niður um götin.
Undirskrift manns getur sagt
margt um manninn, mcira að
scgja stundum, livað hann heit-
ir.
— llins vcgar er hann ákaflcga
trygglyndur, og hlcypur ckki á
cftir öðru kvenfólki.
— Æ, manstu ekki, að við héld-
um að ég væri komin mcð Ilong-
kong fclnzuna?
— Ilcfur nokkur spurt um þitt
álil?
— Viljið þér gjöra svo vel, að
færa vður i aftursætið, frú.
— Ilvað pabbi og mamma
segja?
Þau verða alltaf himinlifandi
þcgar ég trúlofast.
— Þárna cru ltússarnir. Við
skulum ekki þykjast sjá þá.
Pétur og Kalli voru tviburar og
einu sinni á afmælisdaginn
þeirra, sagði móðirin:
— Þið eruð ekki alveg jafn
gamlir. Þú Kalli fæddist hálftima
á eftir Pétri. Hvað ertu þá
gamall.
— Ég er sex ára, svaraði Kalli.
— En þú Pétur?
— Hálfsjö liklega.
— Þú sagðist vera hætt við
Kristján, en ég sá ykkur dansa
saman á laugardaginn.
— Já, við komum okkur saman
um mánaðar uppsagnarfrest.
Litill snáði var að veiða flugur i
ibúðinni. Hann kom sigri
hrösandi til mömmu sinnar:
— Jæja, nú er ég búinn að ná
fimm, tveimur kvenflugum og
þremur karlflugum.
— Hvernig geturðu vitað það?
spurði móðirin.
— Nú tvær sátu á speglinum og
þrjár á flöskunni hans pabba.
DENNI
DÆMALAUSI
Hafðu það gott, á meðan ég er i
hurtu. Já, vertu viss, ég geri það.