Tíminn - 24.10.1972, Page 9

Tíminn - 24.10.1972, Page 9
Þriðjudagur 24 október 1972 Otgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þór-: arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson; 'Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaðs Timáns).| Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnar^krif-i stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, sfmar 18300-18306; Skrifstofur i Bankastræti 7 — afgreiöslusfmi 12323 — auglýs - ingasimi 19523. Aðrar skrifstofurrsimi 18300.. Askriftargjalá 225 krónur á mánuði innan lands, i láusasölu 15 krónur ein' takið. Blaðaprent h.f. íslendingar láta ekki bugast Sennilega vita brezkir verkalýðsleiðtogar ekki, hvað þeir eru að gera, þegar þeir leggja bann á innflutning islenzkra vara til Bret- lands. Þeir eru með þessum hætti að reyna að þvinga fámenna og fátæka þjóð, sem býr i einu harðbýlasta landi veraldar, til þess að gera nauðungarsamning um að eyðileggja helzta afkomugrundvöll sinn. Þessa hefði mátt vænta af gömlum brezkum nýlendurkúgUrum á 18. öld; en ekki af brezkum verkalýðsleiðtogum á 20. öidinni. Eina afsökunin, sem brezkir verkalýðsleið- togar geta haft, er sú, að þeir gera sér þetta ekki ljóst. Þeir hafa ekki kynnt sér siðustu niðurstöður fiskifræðinga, sem telja fiskstofna á Norður-Atlantshafi ofveidda og leggja þvi til að veiðarnar verði minnkaðar um helming meðan fiskstofnarnir eru að ná sér aftur. Brezku verkalýðsleiðtogarnir hafa bersýnilega ekki heldur aflað sér upplýsinga um, hvernig þorskafli íslendinga hefur farið minnkandi að undanförnu og hversu örlagarikur þáttur hann er i afkomu þjóðarinnar. Þeir hafa bersýnilega ekki heldur aflað sér upplýsinga um þá réttar- þróun, sem er að gerast i heiminum, og gleggst hefur komið i ljós i hafsbotnsnefnd Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt tillögum þeirra þjóða, sem skemmst ganga, t.d. Bandarikjanna, hefðu Islendingar skýlausan forgangsrétt til fiskveiða á landgrunninu, þegar nauðsynlegt er að takmarka veiðarnar, eins og nú er óhjákvæmilegt. Allt þetta virðist hulið brezku verkalýðsleið- togunum. Þeir annaðhvort hirða ekki um stað- reyndir eða loka augunum fyrir þeim. A.m.k. er ekki til önnur afsökun á framferði þeirra, ef þeir eru þá eitthvað annars sinnis en brezku nýlendukúgararnir á 18. öld. Vissulega áttu Islendingar ekki von á þessum viðbrögðum, þvi að slika sanngirni hafa þeir sýnt. Ástand fiskimiðanna við ísland er nú þannig, eins og Hannibal Valdimarsson sagði á dögunum, að raunverulega geta íslendingar ekki samið um neinar undanþágur. Þó hafa þeir boðið,að riflegar undanþágur yrðu veittar þeim brezkum skipum, sem hér hafa stundað veiðar og eru minni en 800 smál. Undir þetta falla allir þeir togarar Breta, sem erfiðast eiga að sækja á djúpmið. Svarið við þessu sanngjarna tilboði íslendinga er hafn- bann og hótanir um valdbeitingu brezka flotans. Bretar þekkja íslendinga illa, ef þeir halda að þetta sé leiðin til að beygja þá. Ef Islendingar verða neyddir til að velja um það tvennt að fórna lifsafkomu sinni eða að hætta viðskiptum við Breta, þá er ótvirætt hvert val þeirra verður. Þó að brezkir verka- lýðsleiðtogar liti réttilega stórt á sig og þjóð sina, þá eru Bretar ekki eina þjóðin, sem hægt er að verzla við. Það hefur verið trú Islendinga, að vestrænar þjóðir væru komnar á það stig, að þær gætu jafnað ágreiningsmál sin með samningum. En brezkir togaraeigendur og vissir verkalýðs- leiðtogar vilja hins vegar kúga íslendinga. Is- lendingar verða að reynast menn til að mæta þvi. TÍMINN 9 Kristján ingólfsson kennari: Framtíð vinstri afla Undanfarin misseri hefur mikið veið rætt og ritað um sameiningu vinstri flokkanna i landinu. i siðustu kosningum kom fram nýr stjórnmála- flokkur, Samtök frjálslyndra og vinstri manna, sem lýsti þvi yfir sem höfuöbaráttumáli að sameina bæri alla þá islendinga i einum stjórn- málaflokki, er aðhyllast HUGSJÓNIR JAFNAÐAR, SAMVINNU OG LÝÐRÆÐIS. A flokksþingi Framsóknar- flokksins skömmu fyrir sömu kosningar samþykkti einnig Framsóknarflokkurinn eftir- farandi: „F R A M S ÓK N A R - FLOKKURINN MUN A KOMANDI KJÖRTÍM ABILI VINNA AÐ ÞVt AÐ MÓTA SAMEIGINLEGT STJÓRN- MALAAFL ALLRA ÞEIRRA, SEM ADHYLLAST HUG- SJÓNIR JAFNAÐAR, SAM- VINNU OG LÝÐRÆÐIS”. Frá þvi á sl. hausti hafa nefndir frá vinstri flokkunum 4 ræðst við um þessi mál i um- boði flokkanna. Að sjálfsögðu er hér ekki um auðvelt mál að ræða. A.ffi.k. 3 þessara flokka, þ.e. Alþýðubandaíag, Aíþýðu- flokkur og Framsóknar- flokkur byggja á allþróaðri hefð hver og einn og hafa gegnum árin mótað sin eigin kenningarfræði, sem þeir grunndvalla baráttu sina á. Þannig er það ekkert leyndar- mál að Alþýðubandalagið byggir á fræðilegum sósia- lisma, Alþýðuflokkurinn á hægrisinnuðum sósialdemó- kratisma, meðan Fram- sóknarflokkurinn grund- vallast á félagshyggju og sam vinnustefnu. Samtök frjálslyndra og vinsti manna teija sig jafnaöarmannaflokk, þ.e. sósialdemókrata. A ýmsan hátt er hér um ólik sjónarmiðað ræöa, sem búast mætti við að ekki færu rétt vel saman i einum og sama flokknum, þegar til lengdar léti. Beisk reynsla En vissulega er reynslan beisk. Flokkur peninga- og auðhyggjumanna, Sjálf- stæðisflokkurinn lék af snilli á þetta sundraða vinstra lið, meðan sá flokkurátti foringja. Og þó litið fari fyrir þeim hjá ihaldinu i dag, þá getur það eignast nýjan spámann fyrr en varir, spámann sem léki á vinstri flokkana i landinu að hætti Ólafs Thors, eða Bjarna Benediktssonar, ef þeir stæðu jafn sundraöir og verið hefur til þessa. Það er þvi engin goðgá, þótt einlægu vinstra fólki verði á að spyrja: Er ekki bezt að sameina alla flokkana i eitt sterkt og voldugt bar- áttutæki islenzkrar alþýöu til sjávar og sveita? Og sé það haft i huga að á sl. 33 árum hefur ihaldið um 27 ára timaskeiö stjórnað landinu i samvinnu viö vinstri flokkana gömlu til skiptis, þá verður spurningin enn áleitnari. Benzín og vatn Ekki gengur billinn óhindrað lendi vatn i benzininu. A sama hátt eiga vinstri flokkarnir islenzku sin. séreinkenni „líkt og vatnið og hcnziniö, ýmist fræðileg, eða skipulagsleg, sem gætu eins vel orðið eðlilegu samstarfi til trafala, ef búa ætti um þá alla i einni flokkssæng. Hitt er ann- að, að margt sameinar þá, svo margt, að þeir eiga hiklaust að stjórna landinu saman, og láta ekki flokkslega singirni trufla þar samstarfið. Rlkisstjórn sú er f dag situr er prófsteinn i þessum efnum. Það má segja að hún hafi fæðzt nokkuð óvænt inn i þennan heim. Þvi skorti ýmislegt á að hún væri eins vel undir það búin að taka við stjórnartaumunum og skyldi. M.a. kom hún að innilokuðum upplýsingum um mörg veiga- mikil málefni, uppiýsingum sem fráfarandi stjórn hafði ekkert verið að flika framan i stjórnarandstöðuna. Og þó að örðugleikaisteðji að i dag, þá hafa örðugleikar steöjað áður, og ekki sizt á dögum fráfarandi stjórnar. Slikt þarf ekki að ryfja upp, það er mönnum i vei fersku minni. Núvcrandi rikisstjórn hefur þegar margt og mikið gert til gagns á 15 mánuðum og þó hún sé ekki enn búin að taka til i eldhúsinu eftir 12 ára Við- rcisn og dæmalausan við- skilnaö, þá mun henni efalaust takast að koma þar á reglu, fái hún til þess eðlilegan frið og tima. En kjörtimabilið er 4 ár, og nú væri eölilegt að vinstri flokkarnir4, Alþýðuflokkurinn mcðtalinn, settust niður og störfuðu að þvi með heppilegum vinnubrögöum aö byggja upp sameiginlega stcfnuskrá, sem yrði málefna- skrá áframhaldandi vinstri stjórnar að kosningum loknum. Væri að þvi gengiö af heiluin hug væru þau vinnu- brögö mjög skynsamleg og mætti búast við mun jákæ-eoðari og raunsæari árangri, en ef gera á stjórnar- sáttmála rétt eftir kosningar mcðan kosningageirarnir syngja enn i höndum manna. Undirstaðan sé réttleg fundin Vilji vinstri flokkar félags- lega sameiningu þá skyldi vei grundað. Fátt yröi meiri óvinafögnuður, en sameining sem endaði með sprengingu eftir stuttan leik. Hversu yrði þá farið samvinnu þeirra afla eftir á á öðrum sviöum? Þvi skal á það bent aö auk samstöðu um málefnalega stefnuskrá sem hér var vikið að er flcira til, svo sem kosn- ingasamvinna af ýmsu tagi, allt til þess kerfis, sem brezki Verkamannaflokkurinn bygg- ir á, en hann samanstendur af mörgum stjórnmáiasamtök- um, hagsmunasamtökum og a.m.k. tveimur sjálfstæðum stjórnmálaflokkum. En fyrst og siðast eru það málefnin sjálf, sameiginlegt takmark og viljinn til að berj- ast sameiginlega að þvi, sem úr sker. Að sameinast um gjána Tveir vinstri flokkanna, Al- þýðuflokkur og Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna hafa þegar boðað landslýð, að þeir hyggi á sameiningu sin i milli. Landsfundur SFV og flokks- þing Alþýðuflokksins hafa i haust gert samþykktir er að þvi lúta, þrátt fyrir mótstöðu- arma i báöum flokkunum. Er af samþykktum þeirra að sjá, að nú verði endanlega sezt á rökstóla og reynt að ná samkomulagi. Ýmisíegt virð- ist þó óráðið i þeim efnum, og verður ekki annað séð, en hér séum hreina pólitiska biðskák að ræða, þar eð annar aðilinn situr i rikisstjórn, heilshugar, en hinn hefur rekið stjórnar- andstöðu eftir fremsta megni. Viljinn til sameiningar byggist hins vegar á tilfinn- ingunni fyrir sameiginlegri fræðilegri undirstöðu, jafnaðarstefnunni. En fræðilega undirstöðu má ekki skilja á þann hátt, að hún sé einhver alvis draumaráðn- ingabók, sem gefi á svip- stundu svör viö öllum stjórn- málalegum atriðum. Nýlega gekk hinn gamli og voidugi Norski Verkamanna- flokkur i gegnuin hrikalega eldraun, og óvfst er hversu liann kemur út úr henni. Hann skiptist sem sé upp I tvær fylk- ingarog þær aðskildi óbrúanl. gjá. önnur fylkingin vildi að Noregur gengi i Efnahags- bandalagiö, en hin ekki. Sigur þeirra siðarnefndu olli þvi að rikisstjórn Verkamanna- flokksins varð að segja af sér. Þegar úrslit voru ljós sendi formaður Samtaka frjáls- lyndra og vinstrimanna á Is- landi i nafni samtaka sinna sigurvegurunum norsku bróðurlegar fagnaðarkveðjur, en formaður Alþýðuflokksins islenzka úthellti tárum i flokksblaði sinu yfir sömu úrslitum, sem honum fundust vcra hræðilegur sigur aftur- haldsafla. Eitthvað virðist skorta á málefnalega samstöðu þess- ara aðila. Af ró og skynsemi. Ég benti I upphafi á flokks- þingssamþykkt Framsóknar- flokksins um „að móta sam- ciginlcgt stjórn má laafl” vinstri manna. Fram- kvæmdastjórn flokksins kaus á sinum tima nefnd til að fjalla um þessi mál. Hún hefur tekið þátt i viðræðum viö hina vinstri flokkana. Formaður hennar er sá þingmaður flokksins, sem mesta stjórn- málareynslu hefur að baki, Eysteinn Jónsson. Fram- sóknarflokkurinn mun áreið- anlega ekki láta sitt eftir liggja til að treysta möguleik- ana á þvi að félagshyggjufólk- ið i landinu fái stjórnaö þjóð- félaginu á komandi tímum. En bezt er að athuga allar leiðir af ró og skynsemi, vit- andi það að tilfiningarnar ein- ar leysa engan vanda. Einmitt þcssvegna m.a. ber okkur Framsóknarmönnum að sjá um, að um þessi mál verði cðlilega skoöanamyndun I flokknum. Og hún verður að mótast af raunsærri hlutlægni og af hreinskilinni einurð. Hvernig sem alit fer skulum við sýna það og sanna, að við metum málefnin og afstöðuna til þeirra öðru meir. ÞRIÐJUDAGSGREININ Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.