Tíminn - 24.10.1972, Blaðsíða 14

Tíminn - 24.10.1972, Blaðsíða 14
14 TÍMINN Þriðjudagur 24 október 1972 Merek Vance var eini maðurinn, sem ég gat talað við, án þess að ótt- ast samræðuefnið. t návist hans þurfti ég ekki sifellt að vera að rifja upp sárindi orðinna atvika, sem héðan af varð ekki um þokað. Sérhver ný prófun leiddi i ljós, að heyrn min var óðum aö glæðast. Ég var tekin að heyra tal fólks, þótt eigi greini .ég orð i samhengi nema ég fylgdist lika með varahreyfingum þess. Ég var stödd i lækningastofunni daginn, sem mestar óeirðirnar urðu við verksmiðjuhliðið, þegar hljóðmerki lögreglubifreiðanna kváðu allt i einu við og skothriðin hófst handan árinnar. Okkur varð litið hvoru á annað, þvi að nú vissum við, að það, sem við höfðum lengi óttazt, hafði gerzt. Hann lagði frá sér dæluna og þreif tösku sina. Hann mælti ekki orð frá vörum, en ég sá, að hann bætti i hana sárabindum, áður en hann snaraðist út. ,,Þú ert að fara þangað”, sagði ég. „Lofaðu mér að fara með þér”. En hann hristi aðeins höfuöið, og ég varð að hlýða. Ég horfði á eftir honum. Hann hljóp niður stiginn og settist inn i bifreið sina og ók á brott. Ég varð eftir, einmana og til einskis nýt, þegar á reyndi. Eg mun hafa beðið i margar klukkustundir, og ekki veit ég, hve oft ég gekk milli stóls og glugga. Rökkrið seig yfir, og götuljósin voru tendr- uö, en samt beið ég og kveikti ekki einu sinni á borðlampanum. Þeir voru hættir að skjóta handan árinnar, og ég hlustaði sljóvum eyrum á þögnina. „Hvað? Ertu hér enn?” Vance gekk beint á mig i myrkrinu. Hann kveikti i skyndi. Ég sá, aðandlit hans var illa leikið. Á annarri kinninni var stór, blá skráma. „Þetta er ekkert”, sagði hann, þegar hann tók eftir augnaráði minu. „Ég varð fyrir smáhnjaski, er varð ætlað einhverjum öðrum. Ég hel'ði átt að vera i hvitum slopp, svo að ég væri dálitið læknislegri”. Hann reyndi að brosa, en brosið var dapurlegt. „Það urðu óeirðir, og þátttak- an var almenn — ekki vantaði það. Verkfallsmenn réðust á verka- mannahóp, sem kom úr verksmiðjunum, og hervörðurinn ætlaði að hrinda árásinni. Þá þyrptist mannfjöldinn úndir eins að, og hermenn- irnir gripu til skotvopnanna. Þeir skutu reyndar mest upp i loftið, en nokkrir verkfallsmenn urðu þó fyrir kúlum, og fjölmargir hlutu meiðsl og áverka af kylfum og hnefahöggum og grjótkasti. Við höfðum ei séð fyrir endann á þessu, þvi miður”. Það var satt. Ég vissi það þá, og ég sé það þó enn betur nú, þegar Friðarpipuverksmiðjurnar hafa verið lokaðar i sex mánuði og helftin af verkafólkinu er flúin til annarra borga. Verksm.flauturnar eru alveg hættar að hljóma kvölds og morgna. Engan reyk leggur upp úr reykháfunum, og engar vélar eru á hreyfingu innan múrsteinsveggj- anna. Ain streymir óhindruð undir brýrnar. Flóðgáttirnar standa opn- ar, þvi að nú erekki lengur þörf á orkunni. Ég ætla mér ekki þá dul að segja, hverjum hrunið i Blairsborg var að kenna. Wallace l'rændi og framkvæmdastjórnin halda þvi fram, að verkamönnunum sé um að kenna. Aðrir, sem þeim eru hlynntir, telja að öllu hefði verið borgið, ef gengið hefði verið að réttarkröfum þeim, sem félag þeirra gerði. Enn aðrir yppta öxlum og segja, að viðskipta- kreppan hafði lengi verið að leggja hvert iðjuverið af öðru i auðn. En HÚSBYGGJENDUR - VERKTAKAR Kambstál: 8,10,12,16,20,22 og 25 m/m. Klippum og beygjum stál og járn eftir óskum viðskiptavina. STÁLBORG H.F. Smiðjuvegi 13, Kópavogi. Simi 42480. hvernig sem þvi er farið, komust Friðarpipuverksmiðjurnar i greiðslu- þrot, og ég hef heyrt orðróm um það, að þær muni brátt verða samein- aðar fyrirtækjum voldugs félags, sem ræður yfir eigi færri en tuggugu iðjuverum, þar sem vefnaðarvörur eru framleiddar. Hinn fjaður- skreytti Indóánahöfðingi og orðin „Friöarpipur — gæðin tryggð” er ekki lengur tákn arfgengs metnaðar og arfbundinna venja. Hann er á fleiri en einn hátt tákn hverfandi kynslóðar. Ég heyri nú orðið sjaldan minnzt á Jóa Kellý. En fyrir handan ána, i litlu skuggal. húsunum, þar sem þreyttar konur hengja þvott sinn til þerris á snúrur og biða þolinmóðar eftir matar- og kolaskammti sinum og langsoltnir verkfallsmenn vaka yfir hverju handarviki, sem kann að fást að gera, lifir minningin hans. Þar er þess minnzt, hvað hann var og hvað hann vildi i rauninni vera. í vitund minni mun hann alltaf verða einn af þessu fólki og ég get mæta vel hugsað mér, að hann standi enn, einn og ósýnilegur, verkallsvörð við mannlaus verksmiðjuhliðin. Við Merek Vance töluðum saman um Jóa Kellý, er við sáumst siðast, fyrir mörgum mánuðum. Það var seint á vori i New York, og við sátum saman i litlum garði, stutt frá sjúkrahúsinu, er hann hafði komið mér fyrir i, þar sem var verið að taka lækningaaðferð hans i notkun við hinn fullkomnustu skilyrði. Hann hafði talið mig á að fara þangað til rannsókna og framhaldslækninga, auk þess sem ég skyldi vera til að- stoðar við að koma þessari nýju stofnun á laggirnar. Lengi vel hafði ég þrjóskazt við að verða við óskum hans, en þar kom að lokum, að vilja- þrek hans varð þrákelkni minni yfirsterkari. Svo hafði ég farið til New York, er hann hvarf til nýrra starfa. Það fór eftir atvikum vel um Emmu frænku i umsjá Weeks læknis og Möngu, þóttsýnilegt væri, að fóturinn mundi aldrei verða henni að not- um. Beinið var gróið saman, en þess voru engar likur, að henni yrði fót- urinn þrautalaus né þjáll að beita. Hún hlýtur að verða hálfósjálf- bjarga, það sem eftir er ævinnar, og það veit hún sjálf. Við vitum það öll, þótt við forðumst að tala um það. Wallace frændi var þvi andvigur, að ég færi til New York en að lok- um varð hann þó að leggja sitt samþykki á það. Friðarpipuverin og ógæfan, er yfir þeim vofði, var hið eina, sem hann gat hugsað um þessa daga áður en þeim var lokað fyrir fullt og allt. En Manga Flynn studdi það mjög eindregið, að ég færi. Hún myndi, held ég, hafa tekið sópinn og rekið mig út á undan sér, ef ég hefði ætlað að hætta við ferð- ina á siðustu stundu. „Það er nóg búið að dynja yfir þig hér”, þusaði hún, þegar hún var að hjálpa mér til að búa um farangur minn. „Ekki þar fyrir: það er viðar andstreymi. En þú ert of ung til þess að verða að einhverju stofugagni hér. Það er nógur timi til þess, þegar þú ert orðin gömul og ldin, eins og ég, sem rétt dregst þetta áfram af vana”. Hún brosti beisklega um leið og hún sagði þetta, og ég varð þess vör, að hún forðaðist að lita á mig. Lárétt 1) Dansar,- 5) Fiskur,- 7) EIL- 9) Slys,- 11) úrskurð.- 13) Óhreinka.- 14) Skraf.- 16) Keyr,- 17) Hoppaði,- 19) Leift- ur,- Lóðrétt 1) Kjörinna,- 2) Féli- 3) Barði - 4) Óskerta,- 6) Tali.- 8) Fugl,- 10) Afreks,- 12) Snarl,- 15) Leikur,- 18) Þröng,- X Ráðning á gátu Nr. 1239 Lárétt l) Undrun,- 5) Don,- 7) Lá,- 9) Gnýr - 11) Ina,-13) Asa.- 14) Naga,- 16) TS,- 17) Tuðra,- 19) Barðar.- Lóðrétt 1) Ullina,- 2) DD,- 3) Rog,- 4) Unna.- 6) Hrasar,- 8) Ana,- 10) Ýstra,- 12) Agta,- 15) Aur,- 18) ÐÐ,- HVELL G E I R I D R E K I Þ RIÐJUDAGUR 24. október. 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréitir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Eftir hádegið. 14.30 Siðdegissagan „Draum ur um Ljósaland" eftir Þór- unni Elfu Magnúsdóttur. Höfundur les (6). 15.00 M iðdeg is tón 1 eika r. 16.00 Frétiir. 16.15 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. 16.25 Popphornið. 17.10 Framburðarkennsla i tengslum við bréfasknla ASÍ og SiS. Þýzka, spænska, esperanto. 17.40 Útvarpssaga barnanna: „Sagan af Hjalta litla” eftir Stefán Jónsson. Gisli Hall- dórsson leikari byrjar lest- urinn. 18.00 Létt lög. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Fréttaspegill. 19.35 Umhverfismál. 20.00 F"rá listahátið i Helsinki. Emil Gilels leikur á tónleik- um 4. sept. sl. a. Tvær pianósónötur eftir Beethov- en, i C-dúr op. 53 og A-dúr op. 101. b. „Svipmyndir” eftir Debussy. c. „Petrúshka” eftir Stravinsy. 21.15 Skyr og skyrgerð.Baldur Johnsen læknir flytur erindi. 21.40 iþróttir. Jón Ásgeirsson sér um þáttinn. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Tækni og visindi. Guðmundur Egg- ertsson prófessor og Páll Theódórsson eðlisfræðingur sjá um þáttinn. 22.35 Harmonikulög. 23.00 Á hljóöbergi.The James- town saga: Saga landnáms i Jamestown 1605 til 1620 i orðum landnemanna sjálfra. Philip L. Barbour tók saman efnið en Nigel Davenport o.fl. leikarar flytja. 23.50 Fréttir i stuttu máii. Dagskrárlok. þriðjudagur 24. október 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 Ashton-f jölskyldan Brezkur framhaldsmynda- flokkur. 26. þáttur. Talinn af. Þýðandi Heba Július- dóttir. Efni 25. þáttar. Faðir Edwins er látinn og Ashton- hjónin fara til Yorkshire til að ganga frá eigum hans. Þar ræða þau. saman og nálgast hvort annað á ný. Davið kemur heim i orlof og heimsækir Sheilu i von um sættir, en Colin er þar fyrir og Davið hraðar sér á brott. Tony Briggs er lika i or- lofi og vonkona hans með honum. Shefton vonast eftir að Tony kvænist henni og komi til starfa i prent- smiðjunni, en það virðist ó- sennilegt. Edwin fær stað- festingu á fréttunum um, að John sé á lifi, og tilkynnir Margréti það. 21.25 Nýjasta tækni og visindi. Skylab — rannsóknastöð i geimnum. Öryggi á vegum. Land varið ágangi sjávar. Umsjónarmaður örnólfur Thorlacius. 21.50 Fangelsin. Umræðuþáttur i umsjá Ólafs Ragnars Grimssonar. í sjónvarpssal verða, auk Ólafs Jóhannessonar, dómsmálaráðherra. lög- fræðingar, dómarar, sál- fræðingar fangaverðir og ýmsir aðrir, sem láta sig fangelsismál varða. Einnig verður rætt við nokkra fanga. 22.50 Dagskrárlok

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.