Tíminn - 24.10.1972, Síða 15

Tíminn - 24.10.1972, Síða 15
Þriftjudagur 24 október 1!)72 TÍMINN 15 Umsjón Alfreð Þorsteinsson: Heimsmeistarakeppni stúdenta í handknattleik: íslenzka liðið valið nú í vikunni — kemst beint í 16-liða úrslitin, sem fara fram í Svíþjóð íslenzka stúdentaliðið, sem tekur þátt i Heims- meistarkeppni stúdenta i handknattleik sem fer fram i Sviþjóð um ára- mótin n.k. verður valið fljótiega og mun liðið æfa nokkrar æfingar saman aður en það heldur til Sviþjóðar. Áætlað er að hafa nokkrar æfingar i mánuði og æfa svo dag- lega rétt fyrir utan- förina, en það verður farið til Sviþjóðar i lok desember og leikið dag- ana 28. des. - 5. jan. 1973. t förinni verða að öllum likum, fjórtán leikmenn, þjálfari, fara- stjóri og dómari. öll lið, sem taka þátt i keppninni, verða að útvega einn millirikjadómara. Það verður íþróttafélag Stúdenta sem sér um islenzka liðið. — Það getur orðið nokkuð sterkt, þar sem margir góðir leikmenn eru t.d. i Háskólanum. Nöfn eins og Birgir Finnbogason, FH Geir Thor- steinsson, IR, Ólafur Jónsson Val, Einar Magnússon, Viking, Jónas Magnússon, FH, Björn Jóhannes- son, Ármann, Arni Indriðason, Gróttu, Bjarni Jónsson, Arhus KFUM og Jón Hjaltalin, Lugi, svo eitthverjir séu nefndir. tslenzka liðið átti upphaflega að leika i undankeppni, þar sem liðið átti að leika gegn Belgiu og Luxemborg. En þar sem nokkur lönd hættu við þátttöku, komst ts- land beint i 16-liða úrslitin. Mjög sterk lið taka þátt i keppninni og eru austanjárntjaldsþjóðirnar, með m jög góð lið, þar sem margir af landsliðsmönnum landanna, eru háskólamenn. Islenzka liðið getur orðið nokkuð sterkt og það getur náð langt i keppninni. SOS Ilinn margreyndi landsliðsmaður úr Viking, Einar Magnússon, sést hér i landsleik gegn Bandarikjamönnum. Einar er einn af leikmönnun- um sem leikur með islenzka stúdcntaliðinu i Sviþjóð. KR-liðið varði Bikarkeppni KKÍ: Bikarmeistaratitilinn — sigraði Islandsmeisfarana IR 85:80 KR-liðið varði Bikarmeistara- titilinn á sunnudagskvöldið, þegar það sigraði iR i spennandi úrslitaleik i iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. Kolbeinn Pálsson, átti mjög góðan leik fyrir KR og var bann eins og fyrri daginn, potturinn og pannan i leik KR- liðsins. Það sást greinilega á leik KR. að KR-liðið verður illsigrandi i vetur — þó að leikmenn liðsins liafi ekki verið sérstaklega hittnir á körfuna, þá áltu þeir ekki i erfiðleikum meðaðsigra ungt IR- lið. tR-liðið tók forustuna, snemma i leiknum og voru yfir fyrstu 13. min af leiknum, en þá fóru KR- ingarnir af stað og jöfnuðu. Þegar El'tir að hafa séð öll Reykja- vikurliðin i meistaraflokki kvenna i handknattleik leika — getur maður ekki lokað augunum fyrir þvi, að kvennahandknatt- lcikur er ckki nærri þvi eins góður nú i dag, eins og hann var fyrir nokkrum árum. Ungar og cfni- legar stúikur, sem þóttu mjög góðar fyrir einu til tvcimur árum, cru staðnaðar og verða vist aldrei annað en efnilegac. Tveir leikir voru leiknir i meistaraflokki kvenna á sunnudaginn og sigraði þá Framliðið Viking og Valur átti ekki i vandræðum með KR- liðið.Báðir leikirnir, voru litið skemmtilegir, þar sem yfirburðir sigurliðanna, voru miklir. Fyrri leikurinn var á milli Fram og Vikings. t þeim leik kom fyrsta markið á fimmtu min. og var það Arnþrúður Karlsdóttir, sem það gerði. Siðan bættu Framstúlkurnar við fjórum mörkum, áður en Vikingsliðið skoraði, — en mark Vikingsliðs- ins skoraði Guðrún Helgadóttir, úr vítakasti. Þá skoraði Oddný Sigsteinsdóttir, fyrirFram 6:1 og siðasta mark leiksins, skoraði Þórdis Magnúsdóttir, fyrir Viking. fyrri hálfleiknum lauk var KR- liðið búið að ná forustu 42:38. t siðari hálfleik fór allt að ganga hjá KR-liðinu og það náði góðri forustu. tR-ingar söxuðu for- skotið undir lokin, en það dugði ekki, KR sigurinn var staðreynd. KR-liðið er alltaf skemmtilegt lið og þegar þvi tekst vel upp, er það óstöðvandi. Kolbeinn var bezti maður leiksins, en liðið er nokkuð jafnt og reyndir leikmenn eru i hverju rúmi. ÍR-liðið er nokkuð úngt og kraftlitið. Beztur hjá tR var Kristinn Jörundsson. Það háði tR-liðinu mikið, að Agnar Friðriksson, lékk snemma i leiknum fjórar villur og fór út af i siðari hálfleik, með fimm villur. Framliðið lék þokkalega vörn og áttu sterkar Framstúlkur ekki i erfiðleikum með Vikingsliðið, sem lék frekar lélegan hand- knattleik. Það vantar allan kraft i liðið og sóknin hjá þvi, er ekki nógu ógnandi. Framliðið lék mun betri sóknarleik og langskyttur liðsins, þær Oddný Sigsteinsdóttir og Arnþrúður, áttu ekki i erfið- leikum, með að finna glufur i Vikingsvörninni. Arnþrúður, sem er nú mun betri, heldur en i fyrra, skoraði tvö mörk, en Oddný, sem er alltaf hættuleg langskytta, skoraði fjögur. Valur og KR, mættust i siðari leiknum, en i honum var nær ein- stefna að KR-markinu. Niu sinnum lá knötturinn i netinu. KR-stúlkurnar skoruðu tvö mörk i leiknum og var annað skorað úr vitakasti. Valsliðið leikur þokka- legan handknattleik og er það hreyfanlegt, en kannski með of einhæfar leikkonur, sem skjóta allt af sömu fjölunum. KR- stúlkurnar leika nokkuð skemmtilegan handknattleik, en ekki nógu árangursrikan. Knötturinn gengur vel á milli stúlknanna — það er ekki nóg þvi að það er ekki hægt að vinna leik, ef aldrei er skotið á markið. Dómarar leiksins voru þeir Ólafur Thorlacius og Hörður Thulinius. Það má segja, að Hörður hafi dæmt leikinn einn, að mestu. Luxemborg vann lslenzka unglingalandsliðið i knattspyrnu, sem var almennt spáð sigri gegn Luxemburg, mátti bita i það súra epli að tapa i leiknum i Luxemburg 1:2. Það voru Luxemburgarpiltarnir, sem voru fyrri til að skora i leiknum sem fram fór i Esch. 1 siðari hálf- leik bættu þeir svo við öðru marki, en rétt fyrir lok leiksins skoraði Ásgeir Sigurvinsson, eina mark tslands. Leikurinn var lið- ur i undankeppni Evrópu- keppninnar i knattspyrnu unglinga. Liðin mætast aftur og veröur þá leikið hér á landi. ★ ★ Vals bridge í kvöld t kvöld íer Iram Bridge-keppni hjá knattspyrnufélaginu Valur og hefst keppnin kl. 20.00 i félags- heimilinu við Hliðarenda. Allir Valsmenn eru hvattir til að mæta og vera með frá byrjun. ★ ★ Vannst á 10 rétta Nú er búið að fara yfir get- raunaseðlana og kom þá i ljós, að fjórir miðar voru með 10 rétta leiki, sem dugði til sigurs og er vinningsupphæðin 77,500 kr. 56 voru með 9 rétta og er auka- vinningurinn 2.300 kr. A þessu sést, að það hafa ekki verið get- spakir þátttakendur, því að það er afar sjaldgæft, að hæsti vinningurinn vinnist á lO rétta. Af þessum fjórum, sem voru með 10 rétta, voru tvær konur. Kvennahandknatt- leikur í öldudal — lítið nýtt sást þegar Fram vann Víking 6:2 og Valur KR 9:2

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.