Tíminn - 24.10.1972, Page 19
Þriðjudagur 24 október 1972
TÍMINN
19
Fjárlogaræða^1?.
fjárveitinganefndar og alþingis-
manna yfirleitt mun auðveldara
en áður hefur verið. Leitazt er við
að haga svo fjárveitingum til
framkvæmda, að þær nýtist sem
bezt, þannig að annað tveggja ná-
ist, að ljúka viðkomandi fram-
kvæmdum alveg eða ná við þær
ákveðnum áföngum, sem koma
viðkomandi framkvæmd i gagnið.
Þá er gert ráð fyrir þvi, nú við
þessa fjárlagaafgreiðslu, að jafn-
hliða geti verið afgreidd fram-
kvæmdaáætlun fyrir árið 1973.
Áætlað er að leggja fram-
kvæmdaáætlunina sem fyrst
fram á háttvirta Alþingi. Útgjöld
frumvarpsins eru við það miðuð,
að kaupgreiðsluvisitala haldist i
117stigum útárið 1973. En tillit er
tekið til þeirrar 7% grunnkaups-
hækkunar, sem verður 1. marz
n.k. Ennfremur er annar kosnað-
ur við það miðaður, að um 13%
hækkun hefur orðið á visitöluvöru
og þjónustu frá gerð siðustu fjár-
laga.
Frumvarpið hækkar frá siðustu
fjárlögum um 3 miljarða 318,3
millj. kr. eða 20,1%. Séu markað-
ir tekjustofnar dregnir frá, er
hækkunin 3 miljarða 44 millj. kr.
eða 21,3%.
Orsakir hækkananna.
Rek ég þá helztu orsakir
hækkananna:
1 fyrsta lagi hækkar fjárlaga-
frumvarpið vegna launaútgjalda
um 990 millj. kr. Þetta er fyrsta
heila árið, sem launahækkanir
samkvæmt kjarasamningum frá
1970 koma allar fram. Til viðbót-
ar þessu kemur svo 7% hækkun
grunnlauna hjá rikisstarfsmönn-
um frá 1 marz á næsta ári. Frá
þessu má draga 263 millj. kr.,
sem eru útgjaldaaukningin á
launalið vegna lögreglumanna,
sem áður hafa þegið laun frá
sveitarfélögum. Nú greiðir rikis-
sjóður lögreglumönnum að öllu
leyti. 1 öðru lagi hækka útgjöld
verulega til almanna trygginga.
Framlag til þeirra hækkar um 734
millj. kr. Er þar haldið áfram á
þeirri braut, er mörkuð var i
fyrra með þvi að tryggja lág-
markslaun til aldraðra og öryrkja
og með hækkun á bótum 1. júli s.l.
Niðurgreiðslur á vöruverði
hækka um 374 millj. kr. og er þá
miðað við að halda þeim að mestu
óbreyttum eins og þær voru fyrir
setningu bráðabirgðalaganna um
verðstöðvun i sumar, en þeim
lögum er ætlað að gilda til næstu
áramóta. Hins vegar er ekki gert
ráð fyrir útgjöldum i þessu fjár-
lagafrumvarpi, til að halda
áfram þeim niðurgreiðslum, sem
komið var á i tengslum við bráða-
birgðalögin. Fé til þeirra ráðstaf-
ana var fengið með niðurskurði á
útgjöldum rikissjóðs á þessu ári,
m.a. á framkvæmdaliðum, eins
og ég hef þegar gert grein fyrir.
Nú hafa þær fjárveitingar hins
vegar verið teknar upp aftur. Það
verður þvi á valdi Alþingis, ef
fjármagna á efnahagsaðgerðir
með svipuðum hætti á næsta ári
og nú er gert.
Nefnd vinnur nú að athugun á
ástandi efnahagsmálanna. Gert
er ráð fyrir, að ákvarðanir verði
teknar um efnahagsaðgerðir,
þegar tillögur nefndarinnar um
valkosti i þeim liggja fyrir. Þvi
þótti ekki rétt að taka tillögur þar
að lútandi i fjárlagafrumvarpið
nú.
Þá hækkar framlag til vega-
framkvæmda um 120 millj. kr. og
er það i samræmi við siðustu
vegaáætlun. Útflutningsuppbætur
hækka um 110 millj. kr. Framlag
til lánasjóðs islenzkra náms-
manna hækkar um 83 millj. kr. og
er þá gert ráð fyrir að mæta
þeirri fjölgun, sem verður i hópi
námsmanna. 1 öðru lagi, erlendri
verðhækkun og þeim viðbótarút-
gjöldum, sem lögð voru á sjóðinn
með löggjöf frá siðasta Alþingi.
Hins vegar er ekki tekið með i
þennan útreikning, hækkun á inn-
lendum framfærslukosnaði, en
við meðferð fjárlagafrumvarps-
ins hjá háttvirtu Alþingi, mun það
verða gert og þeirri fjárhæð þá
bætt við. En ástæðan til þess að
það var ekki gert, þegar fjárlaga-
frumvarpið var samið, var m.a.
sú, að ekki bar saman útreikningi
sjóðsins á verðlagsbreytingunni
og þeirri reglu, sem Hagsýslan
fylgdi við undirbúning fjárlaga-
frumvarpsins. Lögin um Lána-
sjóð islenzkra námsmanna verða
tekin til endurskoðunar nú á
þessu hausti.
Hækkun á framlagi til bygging-
ar barna- og gagnfræðaskóla er 79
millj. kr. Ný löggjöf var sett á sið-
asta þingi um aðstöðujöfnuð ungs
fólks til náms og hækkar framlag
vegna hennar úr 25 i 50 millj. kr.
Er þá gert ráð fyrir, að lögin komi
til fullra framkvæmda á 3 árum.
Sett var löggjöf um Sölustofnun
lagmetisiðnaðarins og er veitt til
hennar 25 millj. kr. i þessu fjár-
lagafrumvarpi. 25 millj. kr. eru
veittar vegna reksturshalla tog-
aranna á yfirstandandi ári. Auk
þess, sem nú hefur verið talið eru
ýmsar breytingar og hækkanir,
vegna aukins reksturskostnaðar,
aukins viðhalds og hækkana á
gjaldfærðum stofnkostnaði, sem
samtals nema um 240 millj. kr.
Rekstrarafgangur er sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpinu nú
580 millj. kr., en greiðsluafgangur
um 104 milljónir.
Með þessum sundurliðunum hef
ég gert grein fyrir einstökum
þáttum i rekstursreikningi fjár-
lagafrumvarpsins er til hækkun-
ar horfa, en skal nú i ræðu minni
hér á eftir ræða nánar um fjár-
lagafrumvarpið og einstaka þætti
þess.
Sundurliðun
heildarútgjalda.
Launagreiðslur samkvæmt
frumvarpinu eru 4 milljarðar 359
millj. kr. eða 21% af heildarút-
gjaldaliðum. Onnur rekstrargjöld
eru 1 milljarður 38 millj. kr. eða
5,2%. Til viðhaldskostnaðar er
varið 514 millj. kr. eða 2,6% og til
vaxtagreiðslna 330 millj. kr. eða
1,6%. Gjaldfærður stofnkostnaður
samkvæmt frumvarpinu, er 1
milljarður 460 millj. kr. eða 7,3%.
Til fyrirtækja i B-hluta er varið 8
milljörðum 843 millj. kr. eða 44%.
Til sveitarfélaga 633 millj. kr. eða
3,1%. Til fyrirtækja og atvinnu-
vega 2 milljörðum 508 millj. kr.
eða 12,5% og til einstaklinga,
heimila og samtaka 397 millj. kr.
eða 2%.
Til nánari glöggvunar og
sundurliðunar vil ég nefna, að til
Háskóla Islands er varið á þessu
fjárlagafrumvarpi i heild 256,7
millj. kr. og er hækkunin 33,7%.
Til menntaskólanna er varið 257,5
millj. kr. og er hækkunin þar
16,3%. Til kennaraskólanna er
varið 110,054 millj. kr., hækkunin
er 38,7%. Til iðnskólanna er varið
89,3 millj. kr., hækkun 25,8%.
Húsmæðraskóla 42,8 millj. kr. og
er hækkunin 14,7%. Til héraðs-
skóla er varið 104,8 millj. kr. og er
hækkunin 11,6%. Til barna- og
gagnfræðaskólastigsins er varið 1
miljarð 794,7 millj. kr. og er
hækkunin 26,8%. Og til búnaðar-
skóla 48,8 millj. kr. og er hækkun-
in 13,1%. Til annarra skóla svo
sem Tækniskólans og Stýri-
mannaskólans og Fiskiðnskólans
er varið i heild 67,5 millj. kr. og
hækkar það um 45,8%.
Um önnur framlög er þetta að
segjaað framlög til Lánasjóðs is-
lenzkra námsmanna eru 273
millj. kr. og hækka um 43,7%. Til
að jafna námsaðstöðu ungs fólks
úr dreifbýlinu er varið 50 millj.
kr. og er hækkunin 100%. Til
Náttúruverndarráðs og Þjóð-
garða er varið 21.3 millj. kr. og er
það 416% hækkun frá fyrri fjár-
lögum. Uppbætur á útfluttar
landbúnaðarafurðir eru áætlaðar
433 millj. kr. og er hækkun um
34%. Til Framleiðnisjóðs land-
búnaðarins er áætlað 30 millj. kr.
er það hækkun upp á 36.4%. Til
Hafrannsóknarstofnunarinnar er
varið 119,3 millj. kr. og er hækkun
um 26.3%. Til að mæta rekstrar-
halla á togurunum á árinu 1972 er
varið 25 millj. kr. en fjárveiting
var ekki nema á heimildargrein
til þeirra á yfirstandandi fjárlög-
um.
Afgreiðslubann
Framhald af bls. 1.
sem Eimskipafélaginu barst
skeyti þess efnis, að Dettifoss
fengi ekki afgreiðslu i Felixstowe.
Umboðsmenn Eimskips gáfu
einnig þær upplýsingar, að sömu
sögu væri að segja frá Weston
Point. Má þvi segja að algert af-
greiöslubann sé komið á islenzk
skip og vörur, sem koma frá Is-
landi og á vörum, sem þangað
eiga að fara.
Eimskipafélag Islands hefur
verið með vikulegar ferðir til
Felixstowe, en þar hafa skip Eí
alltaf verið á þriðjudögum. Til
Weston Point hefur verið siglt
hálfsmánaðarlega Skip Eim-
skipafélagsins hafa mest flutt út
sjávarafurðir til þessara staða.
Hjörtur Hjartar, framkvæmda-
stjóri Skipadeildar SIS sagði, að
þeir hjá SIS biðu rólegir og ætluðu
að sjá hver framvinda mála yrði.
Eitt skipa SIS, Arnarfell, á að
koma við i Hull i fyrstu viku
nóvember. Annars hefur það oft
komið fyrir á undanförnum ár-
um, að islenzk skip hafa orðið að
hætta við að fara inn á brezkar
hafnir. Þá hefur ástæðan verið sú,
að Bretar hafa verið að slást inn-
byrðist út af launamálum, en ekki
við lslendinga.
Við spurðum Kristján Ragnars-
son, framkvæmdastjóra Llú, að
þvi, hvort hann væri hræddur um
að islenzku sildveiðibátarnir i
Norðursjó fengju ekki þjónustu i
Leirvik á Hjaltlandi vegna af-
greiðslubannsins.
Kristján var ekki trúaður á, að
afgreiðslubannið myndi ná til
Leirvikur, þar sem afgreiðslu-
bannið væri aðeins i stóru hafnar
borgunum. Islenzku sildveiði-
skipin hafa fengið ýmis konar
þjónustu i Leirvik, eins og t.d.
vistir, vatn, oliu, hafnaraðstöðu
og alls konar viðgerðarþjónustu
hafa sfldveiðiskipin einnig fengið
þar.
Athugasemd
Fyrirsögnin á grein minni,
,,Þar sem að þögnin talar..” sem
birtist i Timanum sunnudaginn
22. okt. siðast liðinn, er tekin úr
eftirmála Guðmundar skálds
Böðvarssonar, við siðara bindið
af Saltkorn i mold. Ég lét þvi
fyrirsögnina að sjálfsögðu vera á
milli gæsalappa, en einhverra
hluta vegna hafa þær dottið niður
i prentverkinu.
Ég vil biðja Guðmund Böðvars-
son afsökunar á þessu, þótt ég
gæti að visu ekki að þvi gert. Mér
fannst þessi ljóðlina Guðmundar
eiga sérlega vel við það efni, sem
ég var að skrifa um, en vissulega
datt mér aldrei i hug að fara
ófrjálsri hendi um ljóð hans.
-VS.
Ólafsvik
Hjólbarðaviðgerðir - Hjólbarðasala
Bridgestone hjólbarðar með og án snjó-
nagla.
Iljólbarðaverkstæði
Marteins Karlssonar, Ólafsvik.
Framhaldsaðalfundur
Vélstjórafélags islands verður haldinn að
Hóteí Sögu, sunnudaginn29. október kl. 14.
Stjórnin
Sölu- og sýningarsalur
28 fyrirtækja
Vöruskrá
Gluggar
Svalahurðir
Eiuangrunargler
Miðstöðvarofnar
Rafmangsþilofnar
Inuihurðir
Útihurðir
Bvlgjuhurðir
•Bilskúrshurðir
Viðarþiljur
Loftklæðning
Einangrunarplast
Hreinlætistæki
Blöndunartæki
Polyureþan-einangrun
Byggingapanilar
Frysti & Kæliklefar
llilaveitulagnir
Eldhúsinnréttingar
Fataskápar
Sólbekkir
Elshúsborð
Eldhússlólar
Skólaborð
Stólar
Gluggakappar
Gluggatjaldabrautir
Gluggatjöld
Kæliskápar
Frystiskápar
Þvolta vclar
Uppþvottavélar
Eldavélar
Eldavélasett
Frystikistur
Eldþúsviftur
Hitunardúnkar
llandrið
Dælur
Lofthreinsitæki
Vinnuhlifar
Gólfdúkar
Veggklæðning
Teppaflisar
Teppi
Eldvarnarhruðir
Málmhurðir
Eldvarnarplötur
Þakrennur
Þakkilir
Loftventlar
Silicone
utan húsmálning
Þakjárn
Þakpappi
Stey pustyrktarjárn
Sauniur
Múrhúðunarnet
Tiin bur
Pipur
Nótavir
Bindivir
Þak-þétliefni
Hleðslusteinar
Milliveggjasteinar
Gangstéttarhellur
IÐNVERK HF.
ALHLIDA BYGGINGAÞ3ÓNUSTA |
Engin álagning.
Aðeins þjónusta.
NORÐURVERI
v/Laugaveg & Nóatún
Pósthólf 5266
Símar 25945 & 25930
Rafeindavirkjar
Óskum eftir að ráða rafeindavirkja til
starfa á mæla- og rafeindaverkstæði voru
% Straumsvik.
Til greina koma útvarpsvirkjar, radio-
simvirkjar eða aðrir með tilsvarandi
menntun. Æskileg er, að viðkomandi hafi
sem viðtækasta reynslu á sviði nútima
rafeindatækni.
Ráðning nú þegar eða eftir samkomulagi.
Þeim, er eiga eldri umsóknir hjá fyrirtækinu er bent á að
hafa samband við starfsmanna stjóra.
Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar, Austurstræti, Reykjavik og bókabúð Oli-
vers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar til tslenzka Álfélagsins h.f. sem
fyrst og eigi siðar en 31. október 1972 i pósthólf 244,
Hafnarfirði.
islen/.ka Álfélagið h.f.
Straumsvik
E
HURDA-
PUMPUR
í MIKLU URVALI
PÓSTSENDUAA
Málning & Járnvörur
Laugavegi 23 — Simar 11295 & 12876 —Reykjavík