Tíminn - 09.12.1972, Blaðsíða 5
Laugardagur !t. desember I!)72
TÍMINN
5
• •
MJOG HEFUR FJOLGAÐ A
ATVINNULEYSISSKRÁ
- Bannið við skelveiðunum hefur áhrif víðar en við Breiðafjörð
Erl—Reykjavik.
Um siðustu mánaðamót töldust
atvinnulausir á landinu alls 519,
og hafði i nóvembermánuði fjölg-
að úr 130 um mánaðamótin okt-
nóv.
Viðast hvar hefur atvinnulaus-
um á skrá aðeins fjölgað litillega,
en á 10 stöðum er um geysilega
fjölgun að ræða, og eru það þeir
staðir, sem nær öll aukningin
liggur hjá. Aðeins á einum stað,
Hofsósi, hefur atvinnulausum
Asi í Bæ
^ • / •• I A ■ •
Sjor, ol og astir —
Ási í Bæ á kreiki
Erl-Reykjavik.
Sjór, öl og ástir nefnist ný bók
eftir Ása i bæ, sem nýkomin er á
markaðinn frá Iðunni. Við
fengum höfund til að lita inn til
okkar og eiga örstutt spjall um
bókina.
— Þetta eru eiginlega ekki
smásögur, heldur fremur
frásagnir, segir Ási, um leið og
hann tyllir sér niður. — Ég hef
skrifað þetta á lengri tima, fyrst i
landlegum, á meðan ég var á
sjónum, en mest eftir að ég kom i
land. Frásagnirnar i bókinni eru
alls 10, þar af er ein smásaga,
sem hlaut verðlaun
Samvinnunni fyrir einum 10 ár-
um. Hún heitir Kjördagur, og er
sú eina, sem ekki er beint tengd
sjónum, ölinu og ástunum. Hinar
gerast allar við sjó, i verstöð, sem
ekki er nein sérstök.
— Þetta er fjórða bókin, sem út
kemur eftir mig, heldur Ási
áfram. Fyrst kom Breytileg átt
svo skrifaði ég Sá lilær bezt,
þegar ég fór á hausinn. Einu sinni
brá ég mér lika til Grænlands og
skrifaði um það bókina:
Granninn i vestri, sem kom út i
fyrra. — Siðustu tvö árin hef ég
annars aðallega fengizt við að æfa
mig á trélöpp. Það er mikil vinna,
en ekki arðbær áð sama skapi,
segir þessi lifsglaði fyrrverandi
sjómaður, sem skrifar svo lipur-
lega og af þekkingu sinni um
sjóinn og það lif, sem hrærist við
hann. I bókinni gefur hann
lesendum hlutdeild i þvi lifi, sem
hann þekkir bezt.
Árni Elvar hefur teiknað
myndir i bókina Það eru lipurt
dregnar myndir, sem falla vel að
efninu, og prýða mjög þessa
annars læsilegu bók.
fækkað, svo nokkru nemi, eða úr
25 i 16. Á tveimur öðrum stöðum
hefur fækkað um einn.
Það.sem einkum vekur athygli,
er, að á allmörgum stöðum, þar
sem enginn var skráður 31. okt,
eru nú margir á skrá. Þvi hafði
blaðið samband við fréttaritara
sina á þessum stöðum til að vita,
hverju þetta skyndilega stökk
sætti.
Það fór, svo sem flesta grunar,
e.t.v. að slæmar gæftir og tregur
a'fli á mestan þáttinn i aukning-
unni, en eins virðist bannið við
skelfiskveiðum á Breiðafirði hafa
haft mikil áhrif viðar en á Snæ-
fellsnesi.
1 Grundarfirði voru 15 konur á
skrá 30. nóv. en engin 31. okt. Þar
er nú engin skelfisk- eða rækju-
vinnsla i gangi.og stafar atvinnu-
leysi kvennanna af þvi. Bregður
þeim vafalaust nokkuð i brún, þvi
að um uppgripatekjur mun hafa
verið að ræða hjá þeim á meðan
skelin barst á land. Aftur á móti
er ekki til atvinnuleysi karla þar,
og vantar frekar menn til starfa.
Miklar byggingaframkvæmdir
standa þar yfir, og er m.a. verið
að stækka og lagfæra öll þrjú
fyrstihús staðarins.
t Stykkishólmi voru 18 konur og
3 karlar «kráð atvinnulaus. Þar
eru orsakirnar hinar sömu og i
Grundarfirði, en auk þess hefur
ekkert aflazt af fiski, svo að vinna
i frystihúsinu liggur niðri. Þar er
og litið um byggingar, en margir
hafa atvinnu i skipasmiðastöð-
inni. Ástandið þar gæti þvi orðið
alvarlegt, ef ekki finnast ein-
hverjar ráðstafanir til bóta og
illa aflast á vetrarvertið.
Á Stokkseyri og Eyrarbakka
voru skráðir 25 og 29 atvinnulaus-
ir. Það er engin nýlunda, en það,
Kenndu varnir gegn flugvéla
.ránum á Keflavíkurflugvelli-
Klp-Reykjavik
Nú í vikunni var haldið
umfangsmikið námskeið fyrir
tollvcrði og lögregluuþjóna á
Keflavikurflugvelli, i vörnun
gegn flugvélaránum og sprengju-
tilræöum i flugvélum. Voru það
tvcir sérfræðingar frá Bandarikj-
unuin, McMullen og Halligan,
sem leiðbeindu á námskeiðinu, en
þaö sóttu um 60 manns. Voru
flestir þátttakenda lögreglu-
þjónar og tollverðir, en einnig
menn frá flugfélögum, alinanna-
vörnum og einnig nokkrir Banda-
rikjanienn af Keflavikurflugvclli.
Námskeiö þetta stóð yfir i tvo
daga. Þar lýstu séríræðingar
helztu aðferðum sem beitt er i
Bandarikjunum gegn flugvéla-
ránum, og útskýrðu fyrir
mönnum varnir gegn þeim, svo
og aðferðir við sprengjuleit i flug-
vélum.
Björn Ingvarsson lögreglustjóri
á Keflavikurflugvelli boðaði
blaðamenn á fund á fimmtudag-
inn og sagði þar frá námskeiðinu.
Hann gat þess, að búið væri að
setja uppi i Flugstöðvar-
byggingunni leitartæki til að
auðvelda löggæzlum. að finna
vopn á farþegum. Einnig að i
sambandi við námskeiðið, hefðu
varnarliösmenn sýnt algengustu
sprengjur og sprengjuefni, sem
notað væri um þessar mundir.
Björn sagði, að sérfræðingarnir
hefðu haldið erindi, sýnt kvik
mynd, og annað á námskeiðinu.
Einnig hefðu þeir farið með þátt-
takendur út i flugvélar frá Loft-
léiðum og FI, sem þarna hefðu
verið, og sýnt þeim helztu felu-
staði i þessum flugvélategundum.
Hefði það verið mjög fróðlegt og
lærdómsrikt fyrir starfsfólkið,
sem aldrei vissi hvenær til kasta
þess kæmi i sambandi við svona
mál.
FERSKIR AVEXTIR
Nútímafólk borðar meira
og meira af ferskum á-
vöxtum. Holl og góð fæða,
fyrir börnin, fyrir alla.
Ferskir ávextir eru mjög
viðkvæmir, en nútímatækni
í flutningum og
SAMVINNA
í innkaupum tryggja mestu
mögulega fjöl breytni og
gæði, hjá okkur.
h
sem olli að enginn var á skrá þar i
októberlok, er flutningur á skel-
fiski vestan frá Breiðafirði til
beggja þessara staða. Þá
flutninga hefðu þó vetrarveðrin
komið til með að stöðva, og er þvi
ekki hægt að rekja atvinnuleysið
beint til bannsins við skelfisk-
veiðunum. Þetta atvinnuleysi
mun þó hverfa um leið og gefur á
sjó og eitthvað aflast. Á Eyrar-
bakka er nú unnið að endurbótum
á frystihúsinu.
1 Vestmannaeyjum voru 43 á
skrá og hafði íjölgað um helming
i mánuðinum. Þar munu orsak-
irnar einkum vera slæmar gæftir
og tregur afli.
Slikt hið sama má segja um
orsakirnar fyrir atvinnuleysinu á
Vopnafirði, en þar er það lang-
mest á landinu, 75 skráðir. Þar
eru litlar úrbótavonir fyrr en með
komu nýs skuttogara frá Japan,
sem væntanlegur er i marzlok.
Frá Vopnafirði er nú enginn stór
bátur gerður út, og ekkert hefur
gefið á sjó fyrir litlu bátana.
Dalvikingar höfðu 24 á atvinnu-
leysisskrá. Þar eru orsakirnar
enn hinar sömu, gæftaleysi og
aflatregða. Dalvikingar missa
annan togbát sinn um áramótin
og mun þá ástandið versna enn til
muna. Engar úrbótaleiðir eru enn
fundnar, og' virðist þvi sá staður
ætla að lenda einna verst út úr
vetrinum, ásaml Vopnafirði,
Sauðárkróki, þar sem 46 'voru
skráðir, og Olafsfirði, þar sem 54
voru á skrá, en þar var enginn
um mánaðamótin áður. Allar
þessar tölur mun mega rekja til
litils afla, og sannast bezt með
þeim, hversu háðir við erum
veðrinu. Þá voru i Hafnarfirði
skráðir atvinnulausir 42, þar af 39
konur. Mun orsakanna þar vera
og að leita i minni umsvifum i
fiskiðnaði.
Sunnan- og vestanlands mun
þetta atvinnuleysi að mestu tima-
bundið og hverfa um leið og afli
glæðist og gæftir batna, (ef það þá
verður), en austan og norðan-
lands verður að finna einhver ráð
lil úrbóta.
Það vekur athygli, að á Skaga-
strönd er aðeins ein kona al-
vinnulaus, og 12 manns á Siglu-
firði, en þessir staðir höfðu fyrir
skömmu flesta atvinnulausa inn-
an sinna vébanda. Þar hefur þvi
greinilega verið unnið ötullega að
viðreisn atvinnulifsins.
Ævintýragetraun
Samvinnubankans 5.
BJÖSSI BAUKUR
FRÁ BANGSALANDI
Getið þið fundið
í hvaða ævintýri
Bjössi Baukur er
nú? — Nú eru all-
ar 5 getraunamyndirnar komnar. Skrifið nú allar
lausnirnar númeraðar 1—5 á blað og merkið
blaðið með nafni ykkar og heimilisfangi. Stingið
því síðan í umslag merktu: „Ævintýragetraun
Samvinnubankans" og sendið Samvinnubank-
anum, Bankastræti 7, Reykjavík, eða einhverju
útibúa hans, fyrir 20. desember n. k. — 100 vinn-
ingar verða dregnir út.