Tíminn - 09.12.1972, Blaðsíða 14

Tíminn - 09.12.1972, Blaðsíða 14
14 TÍMINN l.augardagur !). desember l!>72 og heyktist niður i sætið, linurnar, sem áður höföu verið svo greini- legar, leystust upp. Hún leit kviðafull á hann eins og hún hefði lesið hugsanir hans. Hún er hraðlygin, hugsaði hann, en það eru ekki venjulegar lygar. Meira vissi hann ekki um það nú. t>að var eins og hugsanir hans væru komnar i harðan hnút. Hann gat alls ekki hugsað rökrétt lengur. Hann gekk fram á brúnina og skyggndist niður i gilið. Dalurinn var liflaus og litlaus fyrir utan nokkra hrægamma, sem sveimuðu yfir bleikum, sviðnum palmunum beint fyrir neðan, þar sem hann stóð. Þar var engan reyk og engan eld að sjá. ,,Það er engin leiö að komast niður,” sagði Tuesday. Hann brosti, geislandi af gleði. Ennþá i vafa gekk Paterson með drengnum alveg fram á brúnina, tuttugu til þrjátiu metra frá bilnum. „Kemur þú auga á nokkuð”? ,,Nei, þau eru dáin”. „Sérðu nokkurn eld?” ,,EcH' Nei, ekki vott”. Paterson hélt höndunum eins og sjónauka fyrir augunum og horfði lengi niður. Sólin stakk hann i augun, og hann fór að sjá stjör-nur. Horfi maður nógu lengi, hugsaði hann, gæti maður séð hinar furðu- legustu ofsjónir. ,,Þú verður hér á verði, þangað til ég kem til baka”. ,,Já,en það er vita gagnslaust, herra Paterson”. ,,Eg kem aftur eftir svo sem hálftima. Þú verður hér og gætir að, hvort nokkur reykur séí”. „Reykur, herra Paterson?” svaraði drengurinn. „Fyrst þau eru dáin, geta þau ekki kveikt bál”. „Vertu hér á verði eins og ég segi. Ertu viss um, að ekki sé unnt að komast niður?” „Já, herra Palson! En það er enginn á lifi þarna, og það verður held- ur enginn reykur.” „Vertu hér og hafðu augun hjá þér.” Drengurinn bað með áhyggjufullu bænarbrosi um, að verða ekki skil- inn eftir á þessum stað. Ef til vill æki Paterson nú burtu og kæmi aldrei framar til baka. Það var sem i hann væri rekinn hnifur við þá tilhugs- un, og kaldur hrollur hrislaðist niður bakið á honum. Andartak stirðn- aði hann upp, en ennþá var þó skugginn af brosinu á vörum hans. t skil- yrðislausri hlýðni og án þess að segja eitt einasta orð, stóð hann graf- kyrr, meðan hann velti fyrir sér, hvað fyrir gæti komið. Siðan lagði Paterson af stað i áttina til þorpsins. Tuesday stóð og horfði á eftir bilnum. Það glampaði nokkrum sinnum á hann, áður en hann hvarf i rykmökkinn á veginum. Tuesday l'annst sem hann sæi bil- inn nú i siðasta sinn. Framundan var kröpp bugða á veginum og rykskýið, sem huldi Paterson og hilinn, hvarf á bak við klettasnös. Lengi hélt rykið áfram að íalla yfir drenginn eins og gulleit snjókoma. Loks var þó allt rykið l'alliðog brennandi sólskinið nautsin aftur til fulls. Tæpum hálflima siðar, þegar Paterson kom til baka, fann hann drenginn liggjandi á maganum á brekkubrúninni. Hann lá þarna stifur af spenningi eins og skytta i veiðihug. Steinþegjandi benti hann hægt og hátiðlega niður i sindrandi hita- móðuna i dalnum, og Paterson, sem löngu hafði gelið upp alla von um, að nokkuð kæmi i 1 jós, kraup undrandi niður til að sjá sem nákvæmast i áttina, sem drengurinn benti i. „Sérðu eitthvað?” „Já, herra Patson,” svaraði drengurinn,” sjáið sjálfur þarna niður.” 1 Hann benti af mikilli nákvæmni með visifingri á stað niðri i miðjum bambusskóginum. „Þarna, herra Patson," sagði hann, „sjáið þér!” Hann brosti upp til Patersons. „Bál, eða hvað?" 14. kafli. Frú Betteson hafði ekki hugkvæmst að kveikja bál, fyrr en komið var undir kvöld. Hún var að hugsa um Tuesday og hversu oft hún hafði horft á hann kveikja bál, þegar hún allt i einu mundi eftir þessu. Hún var farin að hugsa um Paterson og majór Brain, ungfrú Alison, Burmastúlkuna og bróður hennar, sem hún i huganum kallaði engla- barnið. Þau hlutu að vera einhvers staðar þarna uppi á veginum, þvi að varla hafði nokkuð komið fyrir þau. Þar til þá hafði hún haft svo margt annað um að hugsa. Inni i bilnum lágu Portman, Betteson og frú Mc- Nairn látin. Ilún hafði breitt teppin, sem lágu á bilgólfinu, og hvita, kin- verska silkisjalið, sem frú McNairn sveipaði yfir sig til að verjast ryk- inu, yfir þau. Sjalið var eins og rykið á litinn og vefnaðurinn liktist einnig fingerðu, duftkenndu rykinu — svó finir og grannir voru þræðirnir. Á dauðastundinni hafði frú McNarin baðað út höndunum i ör- væntingu, hún hafði fálmað upp i loftið og náð taki á rúllutjaldinu fyrir afturglugganum. Siðustu loftköstin og höggin höfðu reynzt ferköntuðu bótunum i handarkrikum hennar ofraun, þar voru nú bæði rifur og saumsprettur. Dauðastriðið og skelfingin voru ekki sýnileg á andliti hennar, heldur á þvi, hvernig handleggirnir spenntust upp, i örvita gripi fingranna i rúllutjaldið og rytjulegum hártjásunum i handakrik- um hennar, sem komu nú svo berlega i ljós. Augun voru lukt og á and- litinu var mildur og dálitið þreytulegur, en vingjarnlegur svipur, sem frú Betteson minntist aldrei að hafa séð á frú McNairn i lifanda lifi. 1 framsætinu lágu Portman og Betteson. Á dauðastundinni höfðu þeir báðir gripið i stýrið, og þaö hafði klemmt þá, þegar það gekk inn i bil- inn. Þeir sátu þarna eins og i skrúfstykki og útilokað að hreyfa þá, frú Betteson hætti fljótlega öllum tilraunum i þá átt. Hið eina, sem hún gat gert, var að hylja þá. Teppið, sem hún breiddi yfir þá, var skreytt með drekamynstri, stórum, tibetönskum drekum i æpandi gulum og græn- um litum með isaumaðar rauðar klær. Hvert einast skipti,sem frú Betteson þurfti að fara að bilnum, blöstu þessir litskrúðugu drekar við henni. Það var eins og þeir væru að krafsa með rauðu klónum i ólögu- legt hrúgaldið, sem limlestu likin tvö undir teppinu mynduðu. Og i hvert skipti forðaðist hún að hugsa um, hvað undir drekunum var. Hún hafði reynt að loka gluggunum tveim, sem upp sneru, en út- búnaðurinn hafði eitthvað bilað, og handföngin bognað, svo að hún gat ekki lokað alveg. Eftir varð um það bil fimm sentimetra rifa á hvorum glugga. P'rú Betteson vissi bara alltof vel, hvernig likin kæmu til með að lita út, áður en langt um liði. í farangursrými bilsins voru kassarnir með matvælunum, vissi hún. En hlerinn, sem var fyrir farangursrýminu, hafði skekkzt, svo að hann var blýfastur, og hún gat ekki opnað. Þegar hún hafði bisað við hann um stund, var hún orðin kófsveitt og ákvað þess vegna að fresta frekari tilraunum til næsta dags, eða að miimsta kosti til kvölds. Inni i bilnum fann hún brúsa með 10 litrum af vatni. Hún hafði munað eftir honum, þegar hún breiddi yfir frú McNairn, vegna þess að frú McNairn hafði hvað eftir annað kvartað yfir þvi á leiðinni, að brúsinn rækist i fótlegg- inn á sér hvertsinn,sem bíllinn hossaðist. En Portman hafði svarað þvi Lárétt 1) Mannsnafn. 5) Illæri. 7 Fugl,- 0) Gimald,- 11) Hita. 12) Kusk.- 13) Bók.-.- 15) Tog. 16) Rugga. 18) Hlaðar. Lóðrétt. 1) Orðljót,- 2) Mánuður.- 3 Hætta,- 4) Oskur,- 6) Kefli.- 8 Strákur,- 10) Fæða,- 14 Islam.- 15) Brún - 17) Fæddi. X Ráðning á gátu nr. 1279 Lárétt 1) Hendur,- 5) Air,- 7) Næm. 9) Rel'.- 11) DR,- 12) II,- 13) UUU.- 15) Uni,- 16) Móri,- 18) Blóðug,- Lóðrétt I) Hundur - 2) Nám,- 3) DI,- 4) Urr,- 6) Efling,- 8) Æru,- 10) Ein,- 14) Uml,- 15) Urð,- 17) óó,- Visindamaður af þeir honum jörðinni var boðinn sem l'anga, og Laugardagur 9. desember 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13,00 óskalög sjúklinga Kristin Sveinbjörnsdóttir kynnir. 14.40 islenzkt mál.Dr. Jakob Benediktsson flytur þáttinn. 15.00 Stúdió 3,Jökull Jakobs- son stjórnar blönduðum þætti. 16.00 Fréttir 16.15 Veðurfregnir. Stanz Arni Þór Eymundsson og Pétur Sveinbjarnarson sjá um þáttinn. 16.45 A bókamarkaðinum 17.40 útvarpssaga barnanna: „Sagan hans Iljaila litla" eftir Stefán Jónsson. Gisli Halldórsson leikari les (21) 18.00 Létt lög. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Frcttir. Tilkynningar. 19.20 Við og fjölmiðlarnir Einar Karl Haraldsson fréttamaður sér um þáttinn. 19.40 Bækur og bókmenntir. Rætt um „Járnblómið”, nýja skáldsögu Guðmundar Danielssonar. 20.00 IIIjómplöturabb Þor- steins Hannessonar 20.55 Framhaldsleikritið „Landsins lukka" eftir Gunnar M. Magnúss Áttundi þáttur „Milli leigu- liðans og kóngsins”. Leik- stjóri: Brynja Benedikts- dóttir. 21.40 Gömlu dansarnir. Karl Groenstedt og harmoniku- hljómsveit hans leika. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. 23.55 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. llliill Laugardagur 9. desember 1972 17.00 Þýzka i sjónvarpi3. og 4. þáttur kennslumynda- flokksins Guten Tag. 17.30 Skákkennsla. Kennari Friðrik olafsson. 18.00 Þingvikan . Þáttur um störf Alþingis. Umsjónar- menn Björn Teitsson og Björn Þorsteinsson. 18.30 iþróttir, Umsjónar- maður ómar Ragnarsson. Illé 20.00 Fréttir ' 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 lleimurinn minn.Banda- riskur gamanmynda- flokkur, byggður á teikningum og sögum eftir James Thurber. Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir. 20.50 Kviildstund i sjónvarps- sal Ágúst Atlason, Helgi Pétursson og ólafur Þórðarson taka á móti gestum. Meðal þeirra, sem fram koma i þættinum eru Guðmundur Haukur Jóns- son, Sverrir Guðjónsson, Karl Sighvatsson. Gunnar Þórðarson. Haukur Mortens og Þuriður Sigurðardóttir. 21.20 \ ströndinni (On the Beach) Bandarisk biómynd byggð á sögu eftir Nevil Shute. Leikstjóri Stanley Kramer. Aaðalhlutverk Ava Gardner. Gregory Peck og Fred Astaire. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. Myndin, sem gerð er árið 1960. lýsir þvi ástandi. er orðið gæti af- leiöing kjarnorkustyrj- aldar. Heimsstyrjöld hefur geisað. Meginhluti jarðar- innar hefur verið lagður í rúst og lifDþar tortimt með kjarnorkusprengjum. 1 Ástraliu er þó allt enn með eðlilegum hætti, en eftir nokkra mánuði munu stað- vindar snúast og bera geislavirkt ryk og banvæna úrkomu suður á bóginn. 23.30 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.