Tíminn - 09.12.1972, Page 9
Laugardagur !t. desember 1972
TÍMINN
9
Útgefandi: Framsóknarflokkurínn
Wm Framkvæmdastjóri: Kristinn Kinnbogason. Ritstjórar: Þór-:j
arinn Þórarinsson (ábm.t. Jón Helgason, Tómas Karlsson,:
Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaðs Timans).;:
Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislasónu Ritstjórnarskrif-:
stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306.1
Skrifstofur i Bankastræti 7 — afgreiðsluslmi 12323 — auglýs :
ingasimi 19523. Aðrar skrifstofurtsimi 18300. Askriftargjald:
225 krónur á mánuði innan lands, i lausasölu 15 krónur ein-.
takið. Blaðaprent h.f. j
Fangelsismálin
Ólafur Jóhannesson, forsætis- og dómsmála-
ráðherra, hefur fylgt úr hlaði á Alþingi
stjórnarfrumvarpi um fangelsi og vinnuhæli.
Ólafur Jóhannesson sagði, að frumvarpinu
væri ætlað að ráða bót á þeim ágöllum, sem
verið hafa á framkvæmd refsimála hér á landi
og til að tryggja framkvæmd nýrrar
skipunar þessara mála er það nýmæli i frum-
varpinu varðandi fjármögnun, að veita skuli
árlega a.m.k. 15 milljónum króna til þess að
koma upp og fullgera þær stofnanir, sem laga-
frumvarpið fjallar um.
Ólafur sagði, að fangelsismálin hefðu verið
mjög gagnrýnd á undanförnum árum, en þótt
margt þyrfti að lagajværi ekki það ófremdar-
ástand i þessum málum og sumir vildu vera
láta. Ýmislegt hefði verið gert til úrbóta á
undanförnum árum. Mætti þar nefna, að Kvia-
bryggja hefði nú færzt i það horf að vera vinnu-
hæli fyrir afplánun refsifanga, og væri þar rúm
fyrir 15 fanga.
Lokið hefur verið við viðbyggingu við Litla-
Hraun og er nú rúm fyrir 52 fanga á Litla-
Hrauni. Hegningarhúsið rúmar 27 fanga.
Nú um áramótin verður fangelsið við Siðu-
múla i Reykjavik tekið i notkun, en áður var
það geymslustöð fyrir handtekna menn. 1 Siðu-
múla verður rúm fyrir 12 fanga.
Viða eru til fangaklefar til vistunar fyrir
handtekna menn og gæzluvarðhaldsfanga. I
nýju lögreglustöðinni i Reykjavik er t.d. rúm
fyrir 23 slika fanga.og að auki eru þar tveir
stórir hópklefar.
Deilt hefur verið á þann drátt, sem verið
hefur hér á landi á framkvæmd refsidóma.
Taldi Ólafur, að huga þyrfti vandlega að þvi
máli áður en menn kvæðu þar upp harða dóma
yfir ástandinu. Fangelsi hér á landi hafa þvi
miður aldrei verið til þess fallin að hafa
betrunaráhrif á menn,og væri raunarefamál
, hvort fangelsi væru til slikra áhrifa fallin.
Hins vegar er nauðsynlegt að hafa fangelsi i
landinu til að vista þá menn, sem nauðsynlegt
er að setja i slikar stofnanir, en á framkvæmd
þess hafa verið ýmsir ágallar, sem frum-
varpinu væri ætlað að ráða bót á.
Mikilvægast er, að unnt sé að koma upp
nauðsynlegri deildaskiptingu og tryggja^að að-
búnaður sé i samræmi við þarfir og hagi fanga.
Ætti þetta sérstaklega við um unga fanga svo
og geðveila fanga.
Frumvarp þetta gerir ráð fyrir, að rikið eigi
og reki öll fangelsi hér á landi, en ekki i sam-
vinnu við sveitarfélög eins og nú er. Frum-
varpið gerir að visu ráð fyrir rikisfangelsi, en
ekki að það verði ein stofnun,heldur fleiri og
verði þannig um nokkra áfanga að ræða.l
fyrsta áfanga er gert ráð fyrir þeim hluta rikis-
fangelsis, sem ætlaður er fyrir gæzluvarðhald,
kvennadeild og móttökudeild.
Miðað við að þessi fyrsti áfangi rúmaði 50
fanga,myndi hann kosta 70-90 milljónir króna.
í frumvarpinu er það nýmæli, að reka skal
sérstaka stofnun til að annast umsjón og eftirlit
með þeim, sem frestað er ákæru gegn, dæmdir
eru skilorðsbundið eða leystir úr fangelsi með
skilyrðum. Hér er um mjög mikilvægan þátt
refsimála að ræða, er úrslitum getur ráðið,
hvort tekst að gera afbrotamenn að nýtum
þjóðfélagsþegnum að nýju. -tk.
ERLENT YFIRLIT
Erfið stjórnarmyndun
hjá Júlionu drottningu
Veitir katólski flokkurinn vinstri stjórn hlutleysi?
Júliana llollandsdrottning
JULIANA Hollandsdrottn-
ing vinnur nú að myndun
nýrrar rikisstjórnar og þykir
sennilegt, að það muni ganga
erfiðlega. Ástæðan er sú, að
eftir kosningarnar, sem fóru
fram i siðastliðinni viku, eru
þingflokkar ekki færri en 14,
en þingmenn eru alls 150.
Ástæðan til þess, hve margir
þingflokkarnir eru, er sú, að
hlutfallskosningar eru i Hol-
landi, og er landið eitt kjör-
dæmi. Flokkur þarf þvi oft
ekki að fá meira en 0.7-0,9%
atkvæða til þess að fá þing-
mann kjörinn. Þetta veldur
þvi, hve flokkarnir eru margir,
og flokkaskipun óljósari en
ella af þessum ástæðum.
Þrátt fyrir þennan flokka-
fjölda hefur þó mátt marka
öllu greinilegri flokkaskipun
en áður. Langt til hægri er
Frelsis- og lýðræðisflokkur-
inn, sem oftast er talinn til
frjálslyndu flokkanna og
gengur yfirleitt undir nafninu
Frjálslyndi flokkurinn, þegar
rætt er um hollenzk stjórnmál
i blöðum utan Hollands. Þá
koma þrir kristilegir flokkar,
Katólski flokkurinn og tveir
flokkar mótmælenda, sem
helzt má telja hægri sinnaða
miðflokka. Katólski flokkur-
inn er stærstur þeirra og hefur
löngum verið mestu ráðandi i
rikisstjórninni. Fjórði kristi-
legi flokkurinn telur sig vinstri
flokk. Auk hans eru til vinstri,
Verkamannaflokkurinn,
Kommúnistaflokkurinn og
Róttæki flokkurinn, sem er
litill flokkur. Þessum flokkum
eru svo til viðbótar margir
smá-flokkar, sem hafa alls
konar sérsjónarmið.
ÞINGKOSNINGAR fóru
fram á siðastliðnu ári.og var
eftir langt þóf að þeim loknum
mynduð rikisstjórn fimm
flokka. Rikisstjðrn þessi var
talin stjórn hægri flokka og
miðflokka, en flokkarnir, sem
tóku þátt i henni, voru Frjáls-
lyndi flokkurinn, Katólski
flokkurinn, tveir flokkar mót-
mælenda, Sögulegi kristilegi
flokkurinn og Andbyltingar-
flokkurinn og flokkur
lýðræðissinnaðra jafnaðar-
manna, sem er klofningur úr
Verkamannaflokknum. Stjórn
þessara flokka hafði samtals
82 þingmenn að baki sér.
Siðastl. sumar reis upp
ágreiningur innan hennar,
sem leiddi til þess, að flokkur
lýðræðisjafnaðarmanna, sem
hafði 8 þingmenn, hætti stuðn-
ingi við hana. Stjórnin hafði þá
misst meirihluta sinn á þingi
og ákvað þvi að efna til þing-
kosninga, enda þótt ekki væri
nema 1 1/2 ár liðið frá siðustu
kosningum.
ÚRSLIT þessara kosninga,
sem fram fóru miðvikudaginn
i slðustu viku, urðu þau, að
stjórnarflokkarnir fimm urðu
fyrir talsverðu áfalli. Þeir
fengu ekki samanlagt nema 76
þingmenn i stað 82 áður, og
hafa þvi ekki nema tveggja
þingsæta meirihluta á þingi.
Það getur þvi orðið miklum
erfiðleikum bundið, að þeir
myndi stjórn að nýju. Mest
varð tapið hjá Katólska
flokknum, sem missti átta
þingsæti og fékk nú ekki nema
27 i stað 35 áður. Þetta er
flokknum enn meira áfall,
þegar tillit er tekið til þess, að
hann tapaði einnig i þingkosn-
ingunum 1971, en fram tjl
þeirra hafði hann verið stærsti
flokkur landsins, en þá náði
Verkamannaflokkurinn þvi
sæti. Minni flokkur mótmæl-
enda, Sögulegi kristilegi
flokkurinn missti þrjú þing-
sæti og iekk nú aðeins 7 þing
menn. Stærri flokkur mótmæl-
enda, Andbyltingarflokkur-
inn, bætti hins vegar við sig
einu þingsæti og fékk nú 14
þingmenn. Flokkur lýð-
ræðisjafnaðarmanna tapaði
tveimur þingsætum og hefur
nú 6þingmenn. Það bætti hins
vegar nokkuð upp tap þessara
flokka, að Frjálslyndi flokkur-
inn varð mesti sigurvegari
kosninganna. Hann bætti við
sig 6 þingsætum og hefur nú 22
þingmenn.
KOSNINGARNAR urðu
vinstri flokkunum til nokkurs
ávinnings i heild. Þeir höfðu
áður 58 þingsæti, en hafa nú
63. Verkamannaflokkurinn
bætti við fjórum þingsætum og
hefur nú 43 þingsæti og er þvi
orðinn lang-stærsti þing-
flokkurinn. Róttæki kristilegi
flokkurinn, sem er klofningur
úr Katólska flokknum, vann
einnig mikið á. Hann fékk nú 7
þingsæti, en hafði aðeins 2
áður. Hins vegar varð flokkur
demókrata, sem kennir sig við
árið 1966, fyrir verulegu áfalli.
Hann missti 5 þingsæti og
hefur nú aðeins 2 þingmenn.
Þessir þrír flokkar voru búnir
að lýsa yfir þvi, að þeir myndu
mynda stjórn saman, ef þeir
fengju meirihluta. Þar sem
þeir bættu við sig samanlagt
fjórum þingsætum, en
stjórnarflokkarnir töpuðu 6
þingsætum, telja þeir sig nú
hafa rétt til stjórnarmynd-
unar. Fjórði vinstri flokkur-
inn, Kommúnistaflokkurinn,
bætti við sig einu þingsæti og
hefur nú 7 þingmenn.
Ótaldir eru svo fimm smá-
flokkar, sem fengu frá 0,9-
2.2% af heildaratkvæðamagn-
inu og hlutu eitt til þrjú þing-
sæti. Tveir þeirra hafa þrjú
þingsæti hvor, tveir þeirra tvö
þingsæti hvor.og einn hefur
aðeins eitt þingsæti. Samtals
hafa þeir þvi 11 þingsæti.
Ef sú regla yrði tekin upp i
Hollandi, að enginn flokkur
fengi þingsæti, nema hann
fengi 5% af heildaratkvæða-
magninu, hefðu þing-
flokkarnir ekki orðið nema
fjórir, þ.e. Verkamanna-
flokkurinn, Katólski flokkur-
inn, Andbyltingarflokkurinn
og Frjálslyndi flokkurinn.
Allir hinna fengu minna en 5%
af heildaratkvæðamagninu.
EINS OG LJÓST er af fram-
ansögðu, getur stjórnarmynd-
un orðið mjög eríið. Júliana
drottning glimir þvi við
vandasamt verkefni, þar sem
stjórnarmyndunin er. Nú eins
og oft áður getur oltið mikið á
afstöðu Katólska flokksins.
Mikill ágreiningur mun hins
vegar rikja innan hans, þar
sem hann hefur beðið stór-
fellda ósigra i undangengnum
kosningum. Innan flokksins á
sú skoðun vaxandi fylgi, að
hann eigi að taka upp sam-
vinnu við vinstri flokkana eða
a.m.k. veita minnihlutastjórn
þeirra hlutleysi og lofa henni
að reyna sig. Sennilega á sú
stefna þó enn meira fylgi
innan flokksins, að vinna beri
aðsameiningu allra kristilegu
flokkanna eða a.m.k. þeirra
þriggja, sem standa að frá-
farandi rikisstjórn, og mynda
einn kristilegan flokk
katólskra manna og mótmæl-
enda, likt og gert hefur verið i
Vestur-Þýzkalandi. Sá flokkur
myndi að likindum geta orðið
stærsti flokkur landsins.
Þessar fyrirætlanir stranda
m.a. á þvi, að frá gamalli tið
er öllu meira ósamkomulag
milli katólskra manna og mót-
mælenda i Hollandi en i
Vestur-Þýzkalandi. Um langt
skeið hafa trúarsamtök
kalólskra annars vegar og
samtök kalvinista hins vegar
haft mjög sterk áhrif i hol-
lenzku þjóðlifi og verið harðir
keppinautar. Þessi trúarsam-
tök hafa verið mjög öflug, t.d.
rekið skóla, spitala, útvarps-
og sjónvarpsstöðvar, Á siðari
árum hafa þau ekki túlkað
skoðanir sinar eins stranglega
og áður og horfið til aukins
frjálslyndis á ýmsum sviðum.
og hafa forvigismenn
katólskra manna jafnvel
gengið á undan i þeim efnum.
Meðal þeirra hefur jafnvel
borið öllu meira á vinstrisinn-
uðum hugmyndum en hjá kal-
vinistum.
—Þ.Þ.