Tíminn - 09.12.1972, Page 19
I.augardagur ‘I. desember lí)72
TlMI.W
19
Tillaga Kristjáns Benediktssonar og Alberts Guðmundssonarsamþykktí borgarstjórn:
ÞÖ-Reykjavík.
Borgarstjórn Reykjavikur,
samþykkti á fundi i fyrradag með
samhljóða atkvæðum tillögu frá
þeim Kristjáni Benediktssyni og
Albert Guðmundssyni, sem gerir
ráð fyrir, að lóðahafar gangi frá
lóðum sinum og komi þeim i við-
unandi ástand.
Kristján Benediktsson gerði
grein fyrir tillögunni og sagði
m. a.: Borgarstjórn telur nauð-
synlegt, að allt verði gert, sem
unnt er til að lóðahafa gangi frá
lóðum sinum og komi þeim i við-
unandi ástand, en útlit lóða hefur
mikla þýðingu fyrir útlit borgar-
innar i heild. 1 þvi sambandi
bendir borgarstjórn á eftirfar-
andi:
1. Að aukinn verði áróður og
eftirrekstur við lóðahafa um að
þeir flýti frágangi lóða sinna.
2. Borgaryfirvöld auki þá starf-
semi sina að hreinsa á kostnað
lóðahafa lausa skúra og annað
rusl á einstökum lóðum, þar sem
slikt er látið safnazt l'yrir af lóða-
höfum.
3. Borgarráð setji reglur um þá
fyrirgreiðslu, sem ýmis borgar-
fyritæki hafa veitt einstökum
lóðarhöfum, i formi greiðslu-
frests vegna úttektar á vörum frá
borgarfyrirtækjum, sem notaðar
hafa verið við lóðafrágang, t.d.
malbiks, gangstéttarhellna og
pipna.
ÆTLAR BORGARSTJORNAR-
MEIRIHLUTINN AÐ SELJA
EIMSKIP HAFNARBÚÐIR?
ÞÓ-Reykjavik
Nokkrar umræður urðu á
borgarstjórnarfundi i fyrradag
vegna tillögu frá þeim Steinunni
Finnbogadóttur Kristjáni Bene-
diktssyni og Björgvin Guðmunds-
syni um rekstur Hafnarbúða.
t tillögu þremenninganna segir
m.a.: ,,Að borgarstjórn Reykja-
vikur átelji harðlega, að Hafnar-
búðir, þessi myndarlega þriggja
hæða bygging i eigu borgarinnar
skuli hafa staðið auð og nær
Séra Pétur
Framhald
af bls. 11
þjónusta.en ekkert siðgæði. Ég
held slikt hjálpi okkur ósköp litið
áleiðis til að fá nokkurri fnll-
komnun. Þar fyrir er ég ci að
gera iitið úr þvi, að trúin á rétt
láta stjórn tilverunnar og að
menn uppskeri svo sem þeir sái,
sættir margan við lifið og leiðir
huga ýmsra á hollari brautir en
e.t.v. væri ella. En allt siðgæði
verður að byggjast á ræktun til-
finninga og kenndalifs, þeim
þroska, að vilja ekki gera það,
sem veldur ógæfu og leiðindum,
löngun til að verða þvi að liði, sem
gerir mannlifið betra og bjartara.
Hitt er svo annað mál, að trúin
á verndandi mátt yfir sér og
möguleika til að njóta hjálpar
hans hefur alltaf haft sin áhrif
eins og trúin á forsjón og fram-
haldslif hefur eflaust gefið mörg-
um styrk og æðruleysi.
Mér finnst sr. Pétur leggja sig
óþarflega fram i þvi að reyna að
sanna ýmis grundvallaratriði
trúarlifsins, það eru t.d. haldlaus
rök fyrir framhaldslifi, að lifið
væri tilgangslaus og óréttlátur
óskapnaður annars. Hver getur
fullyrt.að svo sé ekki? Við sjáum
ekki fyrir fyrri enda lifsins.og þá
er sjálfsagt eðlilegast, að við sjá-
um ekki fyrir hinn endann heldur.
Það leysir enga gátu, þó við segj-
um,að guð hafi skapað heiminn.
Við erum jafn fjarri þvi að vita
um upphafið. Og ef við segjum, að
guð hafi alltaf verið til, er það
ekkert svar um upphaf lifs og
tilveru, það er bezt að þekkja tak-
mörk þess, sem við vitum, og láta
þá trúna taka við, vitandi það, að
hún er trú, en ekki sönnuð visindi.
Þau efni, sem tekin eru til með
ferðar i þessu riti, eru yfirleitt al-
varlegrar umhugsunar verð. Þvi
er ekki nema gott að kynnast
skoðunum sr. Péturs áþeim, þó að
menn séu honum ekki að öllu leyti
sammála. Hann veit lika, að hann
er að tala um deilumál og vill.að
sumar þessar ritgerðir séu þátt
ur i baráttu.
Ég vil að lokum minnast á sið-
ustu ritgerð bókarinnar, Valla-
nes. Þar fjallar höfundur um bæ-
inn, sem var æskuheimiii hans og
siðar aðsetur, þegar hann fulltiða
maður gekk til prestsþjónustu.
Það er hugljúfur þokki yfir þeirri
ritgerð.
H.Kr.
ónotuð siðastliðin tvö ár, og
ályktar að taka beri húsið hið
allra fyrsta til afnota.
Borgarstjórn telji rétt og skylt,
að það verði framvegis notað i
þágu verkalýðshreyfingarinnar,
svo sem ráð var fyrir gert þegar
frá upphafi, en til þess að tryggja
það,er óhjákvæmilegt að Hafnar-
búðir haldist áfram i eigu borgar-
innar.
Borgarstjórnin leggi áherzlu á,
að hafin verði þar á ný fyrir-
greiðsla til handa sjómönnum og
verkamönnum og felur þvi
borgarstjórn borgarráði að stofn-
setja þar sjðmannastofu með
gistirými og matsölu fyrir verka-
menn og sjómenn.
Skal i þvi sambandi við siðar-
nefndu starfsemina könnuð hag-
kvæmni þess, að framleiða
máltiðir til flutnings á vinnustaði
hinna ýmsu starfshópa
borgarinnar.
Steinnunn Finnbogadóttir, sem
mælti fyrir tillögunni, sagði, að
þessi tillaga væri fram borin
vegna þess, að til umræðu hefði
komið hjá meirihluta borgar-
stjórnar, — ihaldinu — að selja
Eimskipafélagi Islands Hafnar-
búðir undir mötuneyti fyrir
verkamenn félagsins. Slikt væri
óhæfa og furðulegt væri, að
borgin skyldi ekki hafa rekið
Hafnarbúðir áfram, en sjó-
mannastofu gæti að finna i svo til
öllum höfnum hérlendis. Nefndi
Steinunn, að hún hefði lagt fram
lista með nöfnum 191 sjómanns,
þar sem skorað var á borgar-
stjórn að hefja rekstur Hafnar-
búða aftur.
Ólafur B. Thors taldi það næsta
tilgangslaust að vera með opna
.sjómannastofu i Reykjavik, vildi
hann helzt ekki ræða um að opna
Hafnarbúðir aftur til afnota-fyrir
sjómenn og taldi full eins gott að
láta Eimskip fá húsið.
Samþykkt var að visa tillögunni
til borgarráðs.
Jólafundur
einstæðra
foreldra
Jólafundur Félags einstæðra
foreldra veröur haldinn að Hótel
Esju, miðvikudagskvöldið 13.
des. og hefst klukkan 9 stundvis-
lega. Til skemmtunar verður
gamanþáttur leikaranna Árna
Tryggvasonar og Klemenz Jóns-
sonar, Sigrún Björnsdóttir syngur
viö undirleik Carls Billich, Nina
Björk Árnadóttir les jólaljóð, flutt
jólasaga, sýnt jólaföndur og fl. Þá
verður happdrætti með ágætum
vinningum og lukkupakkar með
sælgæti og leikföngum. Félögum
er bent á, að þeir mega taka
stálpuð börn sin með á fundinn.
Nýir félagar eru velkomnir. Kaffi
verður selt.
4. Borgarráð kanni itarlega
möguleika þess, að Bygginga-
sjóður borgarinnar eða sérstakur
sjóður, sem stolnaður kann að
verða i þessu skyni láni lóðahöf-
um fé til að ganga frá lóðum sin-
um, en um þá lánastarfsemi
verði settar sérstakar reglur.
Höfð verði hliðsjón af tillögu
Kristjáns Benediktssonar um
lóðasjóð, sem hann flutti i borgar-
stjórn 21. nóvember 1968.
Þá leggur borgarstjórn áherzlu
á, að borgarverkfræðingur og for-
stöðumenn hinna einstöku stofn-
ana á vegum borgarinnar kosti
kapps um, að snyrtilega sé gengið
frá þeim lóðum, sem borgin sjálf
eða fyrirtæki hennar hafa umráð
yfir.
Kristján sagði, þegar hann bar
tillöguna fram, að það væri ekki
nóg að rjúka upp til handa og fóta
rétt fyrir stórhátiðir eins og t.d.
17. júni og taka til á lóðum sinum.
Borgin þyrfti að vera snytileg allt
árið um kring, og lóðabafár
þyrftu að hafa visst aðhald.
Albert Guðmundsson tók einnig
til máls og sagðist hann leggja
áherzlu á þessa tillögu, að borgin
ætti að ganga á undan með góðu
fordæmi, m.a. þyrfti borgin að
koma upp lallegum gosbrunni, en
þeir væru alls staðar hin mesta
prýði.
Guðmundur G. Þórarinsson
sagði, að hann fagnaði þessari til-
lögu-hún væri bæði brýn og gagn-
leg. t þessu sambandi bar Guð-
mundur fram tillögu, sem gerir
ráð fyrir þvi, aö borgarverk-
fræðingur reyni að jafna þann
mismun, sem er viða á gatna-
gerðargjöldum i hinum einstöku
hverfum bæjarins. Var tillögu
Guðmundar visað til borgarráðs.
Lögreglan svo til flutt
Klp-Reyk javik.
Um siðustu helgi llutti
skrilslola lögreglustjóra úr
gömlu lögreglustööinui við
Póstluisstræti i nýju lög-
reglustöðina við llvcrfis-
gölu. Kr |)á lögreglan flutt
með allt sitt úr gömlu stöö-
inui nema Ijarskiptatækin,
sem þar verða til luisa ásanit
stjórneiulum l'ram til næsta
vors. en þá eiga ta'ki i nýju
Ijarskiptastöðina að vera
komin á sinn stað i lögreglu-
stöðinni við Ilverfisgötu. Þar
eru nii til luisa eftirtaldar
deildir og skrifstolur lög-
reglustjóraem bættisins.
Aðalstöðvar lögreglunnar
Almenn skrifstofa
Skrifstola l.ögreglustjóra.
Umferöardeild lögreglunnar.
Kvenlögreglan-
Slysa og rannsóknardeild
Fíknilyf jadeild-
ll' tlenti inga eftirlitið -
Fangageymslur-
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik fer
fram opinbert uppboö að Stórhöfða 3, Vöku-
porti, Ártúnshöfða, hér i borg, laugardag 16.
desember 1972, kl. 13.30 og verða þar seldar
eftirtaldar bifreiðir:
R 368 R 2214 R 41,r)4 R 5881 R 6801 R 7099 R 7178
R 8696 R 9577 R 10352 R 11854 R 13049 R 13911 R 16464
R 16572 R 17956 R 20198 R 21118 R 21641 R 21539 R 21989
R 22545 R 23867 R 24058 R 24402 R 24645 R 24805 R 25273
R 25339 R 25856 R 27302 A 2109 ennfremur traktorsgrafa
John Deer.
Ennlremur verða á sama stað og tima eftir
kröfu lollstjórans, lögmanna, banka og stofn-
ana seldar eltirtaldar bifreiðir:
R 2313 R 4550 R 5953 R 8201 R 9007 R 9595 R 10321
R 10693 R 11697 II 12788 R 13541 R 13807 II 14090 R 15038
R 15885 E 16436 II 16815 R 17184 R 17213 R 17272 R 17296
R 18008 R 18144 II 18737 R 19586 R 20497 R 20937 R 21212
R 22545 R 22660 R 23471 R 23642 Ii 25190 R 25526 R 25856
R 25956 R 26926 Ii 26984 R 27302 R 27790 R 28441 R 28987
R 31701 G 4671 L 1036 Y 948 Y 1398 Y 2041
Ennlremur Honda bil'hjól, bifhjól skrás. R 11967, og jarðýta,
Caterpillar.
Greiðsla við hamarshögg
Ávisanir ekki teknar gildar
samþykki uppboðshaldara
nema. með
liorgarfógetaembættið i Iieykjavik
fyrir göómt mat
$ UÖTIDHADARSTÍD SAHBAHDSHS
BORGARYFIRVÖLD AÐST0ÐI
FÓLK VIÐ FRÁGANG LÓÐA