Tíminn - 06.03.1973, Page 13
Þriðjudagur 6. marz, 1973.
TIMINN
13
Ýmsir hafa haft orð á þvi við
blaðið að undanförnu, að illa
sæmi, að Færeyingarnir, sem fór-
ust með Sjöstjörnunni, og fjöl-
skyldur þeirra og vandamenn
gleymist, þegar fé er safnað af
meiri gjafmildi en áður eru dæmi
um. Einnig þeir voru á leið hingað
til lands til þess að leggja okkur
rtiu
JÓN loftsson.hr
Hringbraut 121 10 6Ó0
SPONAPLÖTl'R X-25 mm
PLASTH. SPÓNAPLÖTUR
12—19 mm
HARDPLAST
IIÖRPLÖTUR 9-26 mm
IIAMPPI.ÖTUR 9-20 mm
KIRKI-GARON 16-25 mm
BEVKI-GABON 16-22 mm
KROSSVIDUR:
Birki 3-6 mm
Beyki 3-6 mm
Fura 4-12 mm
IIAROTKX með rakaheldu
limi 1/K" 4\9'
IIARÐVIDUR:
Kik. japönsk. amerlsk,
áströlsk.
Kevki, jiigóslavneskt,
danskt.
Teak
Afromosia
Mahognv
Iroko
Palisander
Oregon Pine
Ramin
Gullálmur
Abakki
liö i manneklunni, og þar sukku
bræður i djúpiö, er mennirnir á
Sjöstjörnunni fórust.
Þessi til áréttingar getur verið
bréf, sem blaðinu barst:
Herra ritstjóri.
Flestir virðast nú hafa gleymt
frændum okkar i Færeyjum, sem
fyrir skömmu studdu okkur bezt i
landhelgisdeilunni. Litiðeráþað
minnzt, að þeir hafa nú misst 6
sjómenn — flesta frá sama bæn-
um — á hinn hryllilegasta hátt á
leið til Islands, er Sjöstjarnan
fórst.
Náttúruhamfarirnar i Vest-
mannaeyjum mega ekki loka
augum okkar fyrir sorg og neyð
allra barnanna hér heima og i
Færeyjum, sem misst hafa feður
sina i náttúruhamförum, sem
venjulegri eru.
Blöðin ættu að hefja fjársöfnun
handa fjölskyldum Færeying-
anna, og sömuleiðis fjölskyldum
islenzku sjómannanna á
Sjöstjörnunni, og einnig handa
fjölskyldum þeirra, sem fórust
með m.b. Mariu. Hefjið söfnun
strax! Hérmeðfylgja kr. 1000.00 i
söfnunina.
— A.S.
Guojón
Styrkársson
hæstaréttarlögmaður
Aöalstræti 9
— Simi 1-83-54
Am. Ilnota
Birki I 1/2-3'
Wenge
SPÖNN:
PIPULAGNIR
Kik - Teak - Oregon
Pine - Kura - Gullálmur
Almur - Abakki - Beyki
Askur - Koto - Am.Hnota
Afromosia - Mahogny
Palisander - Wenge.
FVRIRLIGGJANDI
VÆNTANLEGT
OG
Nyjar birgðir teknar heim
vikulega.
VKRZLID ÞAR SKM CR-
VALID KR MKST OG
KJÖRIN' BKZT.
Stilli hitakerfi —
Lagfæri gömul hita-
kerfi
Set upp hreinlætis-
tæki — Hitaveitu-
tengingar
Skipti liita — Set á
kerfiö Danfoss-ofn-
ventla
SÍMI 36498
Grasrækt og fóðuröflun
eru mikilvægir þættir í
okkar landbúnaði
— sagði Ásgeir Bjarnason formaður
Búnaðarfélagsins við lok Búnaðarþings
Búnaðarþing 1973 lauk störfum
2. marz. 36 mál höföu verið lögð
fyrir þingið og 30 hlotið af-
greiðslu. A sfðasta fundi þingsins
afhenti Snæþór Sigurbjörnsson,
formaður Búnaðarsambands
Austurlands B úna ðar f éla gi
tslands uppstoppað höfuð af
fagurhyrndum hreindýrstarfi.
Minntist hann þess, að nú væru
liðlega 200 ár liðin frá innflutning
hreindýra til landsins. Þau hefðu
aðeins varöveitzt á Austurland
og væru nú pryöi landsfjórö
ungsins. Asgeir Bjarnason, for
maður Búnaöarfélags tsiands og
forseti þingsins þakkaöi hina
glæsilegu gjöf og þann hlýhug,
sem að baki byggi.
’ Sigmundur Sigurðsson, bóndi i
Langholti, flutti forseta Búnaðar-
þings þakkir fyrir góða þing-
stjórn og árnaði honum og fé-
laginu heilla. Þá sleit formaður
Búnaöarfélags Islands þinginu.
Við það tækifæri fórust honum orð
á þessa leið:
„Búnaðarþing er að ljúka
störfum. Það hefur staðið i 19
daga, frá 12. febr. til 2. marz,
haldið 19 fundi, afgreitt 30 mál af
36 málum, sem þinginu bárust.
Búnaðarþing gerði ályktanir i
mörgumþýðingarmiklum málum,
svo sem um bætta votheysgerð,
heykögglaverksmiðjur og inn-
lenda kjarnfóðurframleiðslu.
Grasræktin og fóðuröflunin eru
mikilvægir þættir i okkar land-
búnaði. Það er trú min og von, að
okkur takist i framtiðinni að
skapa meira öryggi i þessum
málum en veriö hefur. Enn-
fremur má nefna ályktanir um
bætta meðferö ullar, bætta um-
gengni á sveitabýlum, lánamál
landbúnaðarins, starfsemi bygg-
ingarfulltrúa i sveitum, banka-
mál almennt, búrekstraraðstöðu
hvers býlis i landinu, auknar til-
raunir i kartöflurækt, o.fl. Nefnd
skilaði áliti á reglugerö um út-
flutning hrossa, en hér er um að
ræða þýðingarmikið framtiðar-
Gleymið ekki
Færeyingunum
mál, þar sem islenzki hesturinn
er mjög eftirsóttur erlendis.
Milliþinganefnd skilaði áliti um
ferðamál og verður athugun þess
máls haldið áfram og unnið að
bættu skipulagi á þvi sviði i sam-
vinnu viö áhugamenn 1 þeim
málum. Þá fjallaði þingið um
nokkur lagafrumvörp frá Alþingi
s.s. um skóla, námu og jarðhita-
réttindi, fyrirhleðslur og lagfær-
ingar á árfarvegum, itölu, fisk-
eldi o.fl. Frumvörp til jarðlaga og
ábúöarlaga voru gaumgæfilega
athuguð á þinginu og afgreidd
litið eitt breytt. Hér er um þýð-
ingarmikil framtiðarmál að
ræöa, þar sem á lagasetningu
þessari byggist nýting landsins til
búrekstrar og annarra nauðsyn-
legra nota fyrir þjóðarheildina.
Þá vil ég þakka Búnaöarþings-
fulltrúum frábær störf og
umburðarlyndi i minn garö og
varaforsetum góða aöstoð. —
Skrifstofustjóra, ritara og skrif-
urum mjög nákvæm og góð störf.
Búnaðarmálastjóra, ráðunautum
og öllu starfsfólki Búnaðarfélags
Islands þakka ég ánægjulegt
samstarf og góða þjónustu svo og
öllum öörum, sem hafa gert sitt
bezta til þess aö greiða fyrir
störfum þingsins og sýnt þvi
margháttaöa vinsemd og virö-
ingu.
Aö lokum óska ég Búnaðar-
þingsfulltrúum góðrar heim-
feröar og heimkomu, bændastétt-
inni góðs gengis og þjóöinni allri
heilla og blessunar.
55. Búnaöarþingi er slitið.”
Símaskrdirí 1973
Miðvikudaginn 7. marz n.k. verður byrjað
að afhenda simaskrána fyrir árið 1973 til
simnotenda i Reykjavik.
Dagana 7. 8. og 9. marz, það er frá mið-
vikudegi til og með föstudegi, verður af-
greitt út á simanúmerin 10000 til 26999,
það eru simanúmer frá Miðbæjarstöðinni.
Dagana 12. til og með 16. marz verður
afgreitt út á simanúmer sem byrja á þrir,
átta og sjö, það eru simanúmer frá
Grensásstöðinni og nýju Breiðholtsstöð-
inni.
Símaskráin verður afgreitt I gömlu Lögreglustöðinni f
Pósthússtræti 3, daglega kl. 9-18, nema laugardaginn 10.
marz, kl. 9-12.
I Hafnaríirði veröur sfmaskráin afhent á slmstöðinni viö
Strandgötu þriöjudaginn 13. marz og miðvikudaginn 14.
marz. Þar verður afgreitt út á númer sem byrja á fimm.
1 Kópavogi verður símaskráin afhent á Póstafgreiðslunni,
Digranesvegi 9 miðvikudaginn 14. marz. Þar veröur af-
greitt út á slmanúmer sem byrja á tölustafnum fjórir.
Þeir slmnotendur, sem eiga rétt á 10 slmaskrám eöa
fleirum, fá skrárnar sendar heim. Heimsending þeirra
slmaskráa hefst ekki fyrr en mánudaginn 12. marz.
Athygli simnotenda skal vakin á þvi að
simaskráin 1973, gengur i gildi frá og með
laugardeginum 17. marz 1973.
Slmnotendur eru vinsamlega beönir að eyöileggja gömlu
slmaskrána frá 1972 vegna fjölda númerabreytinga, er
oröið hafa frá því aö hún var gefin út, enda er hún ekki
lengur I gildi.
Bæjarsiminn.