Tíminn - 25.03.1973, Síða 31
Sunnudagur 25. marz. 1973
TÍMINN
31
Guðm. P. Valgeirsson:
„Hefðaraðall
í verkfalli"
ÞANN 16. þ.m. skrifaöi Þ. Th. all-
skarpa grein i dagblaöiö Visi
undir þessari fyrirsögn, þar sem
hann lýsir orsökum dýrtiðarflóös
þess, sem nú flæöir yfir þjóöina
og afleiöingum þess á hag og af-
komu lægst launuðu stétta
þjóöfélagsins til verri lifskjara,
en er um leiö vatn á myllu þeirra,
sem betur eru launaöir og eykur
tekjur þeirra og laun þvi meira,
sem þeir eru hærri i launa-
stiganum. 1 greinni bendir Þor-
steinn réttilega á að þjóðartekjur
séu það miklar, aö auövelt sé aö
láta alla hafa nóg laun til góörar
afkomu og þó verði samt talsvert
eftir til aö láta „bolabiti”
þjóöfélagsins bitast um.
Grein Þorsteins er hreinskilin
og tekur tæpitungulaust á þessu
vandamáli, dýrtiðarflóöinu.
Hún er áreitnislaus til manna
og flokka og þvi hlutlægari en
maður á að venjast um þær
greinar, sem maður sér um þessi
mál i blöðum stjórnarand-
stöðunnar, núverandi. Hún lýsir
þvi vel, hverjir græða mest á vax-
andi dýrtið og sihækkandi launa-
töxtum, sé annars ekki gætt.Hann
lætur það hreinskilnislega uppi að
hinn svokallaða verkalýðsum-
hyggja, sem oft er höfð á oddinum
sé dulbúin aðferð til að gera hlut
þeirra hæstlaunuðu stærri en
hann er, á kostnað þeirra, sem
lægst eru launaðir.
Mér finnst þessi grein Þor-
steins fullrar athygli verð, og get
tekiö undir margt af þvl, sem
hann segir um þessi mál. Ég vildi
þvi hvetja menn til að lesa
greinina og meta þaö, sem
greinarhöfundur segir þar I ljósi
þeirra atburða, sem hafa verið að
gerast hjá þingi og stjórn I dýr-
tiðarmálunum nú að undanförnu,
og eru enn að gerast.
Núverandi stjórn hefur á þvl
þingi, sem nú situr, gert
virðingarveröar tilraunir til að
setja hömlur á vaxandi dýrtið.
Þær tillögur hafa ekki náð fram
að ganga og þvi hefur það dýr-
tiðarflóö, sem Þorsteinn dæmir
svo harðlega skollið yfir þjóðina
með sinum illu afleiðingum fyrir
láglaunafólk með stórar fjöl-
skyldur. Þaö dylst engum, að
ef þær tillögur hefðu náð fram að
ganga heföi verö algengustu
neyzluvara almennings ekki
hækkað eins og nú er oröið.
Það þyrfti engum aö koma á
óvart, þó að núverandi stjórnar-
andstaða beggja ihaldsflokkanna,
Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins, legðisteindregið gegn
fyrirhuguðum ráðstöfunum
stjórnarinnar. Hitt vekur meiri
furðu, að innan stjórnarliðsins
skuli finnast þeir menn og það I
ábyrgðarstööum verkalýðs-
hreyfingarinnar, sem stuðla að
þvi óréttlæti, sem Þ. Th. lýsir i
grein sinni og er að minum dómi
rétt lýst. Þeir verkalýðsforingjar
virðast vera búnir að gleyma
þeim sannindum, sem Haraldur
Guðmundsson fyrrv. alþingis-
maður orðaði forðum á einfaldan
og auðskilinn hátt: ,,Að verð-
bólgan gerir þá riku rikari og þá
fátæku fátækari.” — Þennan
sannleika ættu þessir menn að
rifja upp og festa sér I minni og I
ljósi þeirrar staðreyndar endur-
meta afstöðu sina til þessara
mála. Þessir menn voru kosnir til
að verja hagsmuni þeirra, sem
minnst hafa borið úr býtum, en
bera þó hita og þunga þeirrar
undirstööu, sem velmegun
þjóðarinnar byggist á, um það
bindanst þeir lika I stjórnarsátt-
málanum. Um leið og ég þakka
Þ. Th. greinina, sem ég tel vera
gott innlegg I þessi mál, vil ég
benda honum á að enn betur hefði
hann gert, ef hann beitti áhrifum
sinum á þá menn, sem standa að
Skólatúnsheimilið
i Mosfellssveit, óskar að ráða strax stúlku
til afleysinga i eldhúsi og þvottahúsi.
Upplýsingar frá kl. 10-14, mánudag og þriöjudag I slma
66249.
Aðalfundur
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands
verður haldinn i fundarsalnum i húsi
félagsins i Reykjavik, þriðjudaginn 15.
mai 1973 kl. 13.30.
DAGSKRÁ:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 13. gr. sam-
þykkta félagsins.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum
félagsins samkvæmt 15. grein sam-
þykktanna (ef tillögur koma fram).
3. önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða af-
hentir hluthöfum og umboðsmönnum hlut-
hafa á skrifstofu félagsins, Reykjavik
9.-11. mai.
Reykjavik, 23. marz 1973
Stjórnin.
þvi málgagni, sem hann birtir
gein sina i og skoðanabræður
þeirra. Það væri honum til meiri
sóma en hvetja konur til til-
gangslausra skemmdarverka,
eins og henn gerir I grein sinni. —
Slikt er stráksskapur.
Að lokum vil ég vara alþýðu
þessa lands við þeim mönnum,
sem ala á lægstu og þrengstu
sjónarmiðum þeirra, sem svo
aðeins nýtist til að gera þá ríku
rlkari og þá fátæku fátækari.
Reynið að kryfja málefni ykkar
til mergjar og gera ykkur raun-
verulega ljóst, hvað og hverjir
þjóna hagsmunum ykkar mest og
bezt, meö tilliti til þess er á eftir
kemur. Vikið þeim til hliðar sem
ekki fylla þau skilyrði. Standið
heilshugar að þeirri stjórn, sem
nú situr og setti sér það markmið,
aö vinna gegn dýrtíð og verðbólgu
og þar með hagsmunum ykkar.
Gleymið ekki 13 ára valdaferli
„Viðreisnarinnar” og hvernig
hagsmunir ykkar voru þar
tryggðir, þó nú sé margt sagt um
ást og umhyggju þeirra manna
fyrir kiörum ykkar.
iGeriöykkur: ljóst, hver áhrif
fall núverandi stjórnar mundi
hafa á framvindu ýmissa
þjóöþrifamála t.d. landhelgis-
málsins og þeirri hættu á að
samningurinn frá 1961 yrði
endurtekinn I nýju formi'
Hjúkrunarkonur
óskast til starfa við Kleppsspitalann, m.a.
við Flókadeild og einnig til sumaraf-
leysinga.
Upplýsingar veitir forstöðukonan, sími 38160.
Reykjavik, 21. marz 1973.
Skrifstofa rikisspitalanna.
Fóstra
óskast að dagheimili Kleppsspitalans.
Nánari upplýsingar veitir forstööukona Kleppsspltalans,
simi 38160.
Reykjavik 21. marz 1973
Skrifstofa rikisspitalanna.
endur
Auf’lýsuij'ar, si-m «*iga aó kuma i blaðinu á sunnudogum þurfa aft
bcrast fyrir kl. 1 á föstudögum.
Augl.stofa Tlmans er f Kankastræti 7. Slmar: 19523 - 18300.
Já«
• •• • • >c
Hjorio þio
SVÖ vol.
Reijiiið
YÍðsMptm
Símiimer
C90> 31400
Verksmiðjuafgreiðsla K E A
annast heildsöluafgreiðslu á
vörum frá framleiðsludeild-
um félagsins. Með einu sím-
tali getið þér pantað allt
það, sem þér óskið, af fjöl-
breytilegri framleiðslu þeirra,
landsþekktar úrvalsvörur, —
allt á einum stað:
Málningarvörur og hreinlæt-
isvörur frá Sjöfn, kjöt- og
niðursuðuvörur frá Kjötiðn-
aðarstöð KEA og hangikjöt
frá Reykhúsi KEA. Gula-
bandið og Elóru-smjörlíki,
Braga-kaffi og Santos-kaffi,
Flóru-sultur og safar, brauð-
vörur frá Brauðgerð KEA,
ostar og smjör frá Mjólkur-
samlagi KEA, allt eru þetta
þjóðkunnar og mjög eftir-
sóttar vörur, öruggar sölu-
vörur, marg-auglýstar í út-
varpi, sjónvarpi og blöðum.
Innkaupastjórar. Eitt símtal.
Fljót og örugg afgreiðsla.
Kynnið yður kjörin og reyn-
ið viðskiptin.
Síminner (96) 21400.
BRAUÐ GERÐ 0D fi REYK HÚS 1 1 SMJÖRLÍKIS GERÐ
U&IHJNMMKílfio
VERKSMIÐJUAFGREIÐSLA K-E-A AKUREYRI