Tíminn - 29.03.1973, Blaðsíða 4

Tíminn - 29.03.1973, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Fimmtudagur 29. marz 1973. fyrir bata, ef verst gegnir. Sú gamla skoðun almennings, aö nota áfengi sem inflúensu- meðal, er röng og hættuleg” segir i bæklingi eftir sænskan prófessor, Gunnar Löfström. „Esa svo gott sem gott kveða öl alda sonum. Því færra veit er fleira drekkur sins til geðs gumi.” Feit eru pelabörn Pelabörn eru mun liklegri til þess að verða feit, þegar þau eru orðin fullorðin, heldur en börn, sem hafa notið móður- mjólkurinnar i bernsku. Visindamenn við Sheffield há- skóla hafa kannað vigt 260 barna, sem fæðzt hafa á sjúkra- húsi i borginni og komizt að þeirri niðurstöðu, að við fæðingu var vigt þeirra allra nokkurn veginn það sem má teljast eðli- legt. En sex vikum siðar hafði orðið mikil breyting á sumum barnanna, og þau orðin allt of þung mörg hver. Kom þetta skýrast i ljós hjá 240 börnum, sem öll voru látin drekka mjólk úr pela^ en yfirvigtin var mun minnihjá þeim 20 börnum, sem fengu brjóstamjólk. Læknarnir sögðu, að eitt sem stuðlaði að þessari offitu, væri, að fólki fyndist börn oft sætari væru þau svolitið búttuð, með stórar kinnar, og feita handleggi og fætur og stóran maga,. Víða má nú festast Farið nú ekki að tala um, að hér hljóti kona að hafa verið við stýrið. Sannleikurinn er sá, að það var karlmaöur, og hann æstlaði sér ekki einu sinni að keyra inn i bilskúrinn, sem er undir húsinu og bak við bilinn. Hvernig honum tókst að koma bilnum svona þægilega fyrir, veit enginn, en þarna lenti billinn, hvað sem öðru liður. Og svo er það fallhlifarher- maðurinn að æfa sig. I Chile þykir það heldur leiðinlegt ef fallhlifastökkvurum tekst ekki að lenda þar, sem þeim er ætlað. Þessi hér á myndinni fékk meira að segja að sitja inni um hrið vegna þess að hann hafði valdið ibúum þessa hús óþægindum með þvi að lenda á þakbrúninni, og festast i þak- rennunni. Fangi konunnar Illa skriíaður bréfsnepill gægðist út undan dyrunum hjá Cesare Fiorentini, sem býr i Róm. A miðanum stóð: „Hjálp, kallið i lögregluna. Konan min heldur mér hér föngnum, og lemur mig til óbóta”. Nágranni Cesare sá miðann og hringdi þegar á lögregluna, sem kom strax á staðinn. Þegar hurðin hafði verið bortin upp fundu lög- regluþjónarnir Fiorentini ligg- jandi á gólfinu. Hann var með glóðarauga á báðum augum og andlitið var allt meira og minna i sárum eftir mikla barsmið, og hendurnar voru einnig skornar og sárar. Hann stundi upp ein- hverju næsta óskiljanlegu um hina 51 árs gömlu konu sina Angelu. Hún hafði haldið honum i ibúðinni i þrjá daga, sagði hann, og barið hann stranzlaust, og ásakað hann um að hafa verið sér ótrúr, en hann neitaði að það væri satt. Cesare var fluttur á sjúkrahús, og konan var tekin föst sökuð um mann- rán, og likamsmeiöingar og morðhótun. Innflúensa og áfengi „Neytið ekki áfengis, meðan þér eruð lasin! Það er gagns- laust á öllum stigum sjúkdóms- ins. Jafnvel magn.sem að yðar mati kann að vera hóflegt, get- ur haft alvarlegar afleiðingar i för með sér og komið i veg ^""^Tekur ekki lífið of alvarlega Glenda Allen er 21 árs gömul og býr i Englandi. Hún hefur óskaplega gaman af hryllings- myndum, en segist almennt ekki taka lifið of alvarlega, enda er þaö lika betra fyrir fólk, sem velur sér að sjá þess háttar kvikmyndir. Ekki virðast hryll- ingsmyndirnar heldur hafa haft áhrif á útlit hennar né svip. DENNI DÆMALAUSI Þú ert svo sætur. Ég er sko alls ekki sætur, og þú veizt þaö.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.