Tíminn - 29.03.1973, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 29. marz 1973.
TÍMINN
5
I-koraur
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir .smíðaðar eftir beiðni.
GLUGGASMIÐJAN
Síðumúla 12 - Sími 38220
- k. --
Námskeíð á vegum
Búnaðarfélagsins
Arleg ráöstefna BúnaOarfélags
tslands fyrir ráOunauta og aOra
starfsmenn i iandbúnaOi hófst I
Bændahöllinni mánudaginn 26.
marz. Asgier Bjarnason, for-
maOur félagsins setti ráOstefnuna
meö ræOu, en Agnar Guönason og
Sveinn Hallgrimsson stjórna
fundum. Þátttakendur eru um
100.
Tilgangur hinnar árlegu ráö-
stefnu Búnaöarfélags Islands er
að kynna starfsmönnum
búnaðarsamtakanna nýjungar,
innlendar og erlendar, rann-
sóknastarfsemi, skýra frá
reynslu i starfi og samræma
starfstilhögun i leiðbeininga-
þjónustunni. Nýtur búnaðarfélag
islands i þessu efni aðstoðar
annarra stofnana land-
búnaðarins, svo sem Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins og til-
raunastöðvanna, Rannsóknar-
stofu Norðurlands, bændaskól-
anna og Byggingarstofnunar
landbúnaðarins.
Að þessu sinni er búnaðarhag-
færði aðalviðfangsefni ráðstefn-
unnar. Verða flutt erindi um
búreikninga, fjárfestingu i land-
búnaði, hinar ýmsu búgreinar frá
hagfræðilegu sjónarmiöi og
áætlana-gerð i landbúnaði. Þá
verður rætt um leiðbeiningaþjón-
ustu, þróun búvlruframleiðslu og
neyzlu, landbúnaðarstefnu, gras-
kögglaframleiðslu og skýrslu-
gerðir.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru
um 20oghenni lýkur á laugardag.
VIPPU - BliSKÚRSHURÐIN
BfLALEIGA
CAR RENTAL
TP 21190 21188
Velkominn
Smári
Þeir sem ætla að fá sér sjónvarpstæki, fagna
allir Smára, því nú geta þeir fengið sér
Nordmende Smára sjónvarpstæki.
Sjónvarpstækin frá Nordmende eru með
smárum í stað lampa.
Það þarf ekki að fjölyrða um leiðindin,
óþægindin og kostnaðinn, sem bilaður
sjónvarpslampi veldur.
Þeir, sem fá sér Nordmende sjónvarpstæki,
þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að
lamparnir bili, einfaldlega vegna þess að
þeir eru ekki í tækinu, heldur transistorar
eða smárar.
Slík tæknibylting skapar áhyggjuleysi árum,
jafnvel áratugum saman. Þess vegna
fagna allir komu þeirra.
Nordmende sjónvarpstækin eru þýzk
úrvalsvara, tæknilega fullkomin og mjög
formfögur, þau eru fáanleg í mismunandi
litum og með viðaráferð.
Verð:
12 tommu frá kr. 19.500 20 tommu frá kr. 30.000—33.000
17 tommu frá kr. 28.000 24 tommu frá kr. 31.000—44.000
Við bjóðum þér að koma og skoða úrvalið.
Ljóðalestur og kennsla
í veggskreytingum
ÞÓ, Reykjavik. — Myndlista- og
handíðaskóli tslands hefur I sam-
vinnu viö Norræna húsiO fengiö
hingaö til lands kennara f vegg-
myndadeild danska Listaháskól-
ans. Heitir hann Jörgen Bruun
Hansen, og mun halda námskeiö i
tæknilegri gerö veggmynda úr
mósaik og steinsteypu. Er nám-
skeiö þetta einkum ætlaö starf-
andi listamönnum og listnemum.
Námskeiðið verður haldið i
húsakynnum Myndlista- og hand-
iðaskólans að Skipholti 1 og
stendur yfir i tvær vikur, eða frá
30. marz til 18. april.
Bruun Hansen, sem einnig er
kunnur, sem ljóðskáld, mun eink-
um veita leiðbeiningar um út-
færslu á mósaikmyndum, notkun
steinsteypu til myndmótunar, um
áferð á litaðri og ólitaðri stein-
steypu og notkun bindimeðala og
limtegunda fyrir steinsteypu.
A meðan námskeiðið stendur
yfir verður myndmótunarstofa
skólans opin alla daga frá klukk-
an 15-21, en kennarinn verður
sjálfur viö milli 17 og 19 mánu-
daga, þriöjudaga, miðvikudaga
og fimmtudaga. Efnis- og þátt-
tökugjald er krónur 1000, sem
greiðist i upphafi námskeiðsins.
Bruun Hansen mun einnig
Trúlofunar-
HRINGIR
halda fyrirlestur með skugga-
myndum fimmtudaginn 5. april
klukkan 20.30 i húsnæði Arki-
tektafélags Islands, að Lauga-
vegi 26. Þann fyrirlestur nefnir
hann „Kunsten i hverdagen og
arkitekturen”.
Eins og fyrr segir þá er
listamaðurinn einnig kunnur sem
ljóðskáld, og á næst komandi
laugardag 31. marz mun Hansen
ásamt Ólafi Hauki Simonarsyni
lesa upp eigin ljóð i fundarsal
Norræna hússins klukkan 16.30 >
Helga Hjörvar les einnig nokkur
ljóð hans i islenzkri þýðingu.
Jörgen Bruun Hansen er múr-
ari að mennt, en frá þvi 1962 hefur
hann veið ráðunautur i vegg-
myndadeild danska listaháskól-
ans, og einnig hefur hann gefið út
sex ljóöabækur.
Jörgen Bruun Hansen.
Fljót afgreiðsla
Sent i póstkröfu
GUÐMUNDUR
ÞORSTEINSSON <<g
gullsmiður
S' Bankastræti 12
KLAPPARSTÍG — VIÐ NÓATÚN
OG AKUREYRI.