Tíminn - 29.03.1973, Side 11
Fimmtudagur 29. marz 1973.
n
Umsjón: Alfreð Þorsteinssonj
Vítaspyrna færði Keflvík-
ingum þýðingarmikil stig
Sigruðu Fram í meistarakeppninni í gærkvöldi með 1:0
LEIKMENN Keflavíkur og Fram
voru ekki öfundsveröir aö leika
viö þær aöstæöur, sem voru á
Melavellinum i gærkvöldi, þegar
þeir mættust i meistarakeppni
KSÍ. Völlurinn var eitt leöjuhaf og
mjög erfitt fyrir þá aö fóta sig,
auk þess sem hráslagalcgt veröur
hlýjaöi hvorki þeim né áhorf-
endum. Sem sé leiöinda knatt-
spyrnuveöur. Og þá helzt þaö
venjulega f hendur, aö knatt-
spyrnan er fátækleg.
Það er skemmst frá þvi að
segja, að Keflavikingar sigruðu i
leiknum i gærkvöldi meö 1 marki
gegn engu. Eina mark leiksins
var skorað á 36. minútu fyrri hálf-
leiks úr vitaspyrnu, sem Steinar
Jóhannsson framkvæmdi af
öryggi. Dómari leiksins, Einar
Hjartarsson, dæmdi réttilega
vitaspyrnu á Martein Geirsson,
sem brá Grétari Magnússyni
rétt utan við markteig.
Fyrri hálfleikur var tiltölulega
jafn, en i siðari hálfleik voru Kefl-
vikingar greinilega sterkari
aðilinn. Þeir virtust hafa meiri
áhuga á leiknum en Islandsmeist-
arar Fram og voru vejulega
fljótari á knöttinn. Þeir áttu mun
hættulegri tækifæri i siðari hálf-
leik en Fram og hefðu þess vegna
getað unnið leikinn með meiri
mun.
Það væri algerlega út i hött að
spá fyrir um knattspyrnuna 1973
með þvi að miða við fyrstu leiki
meistarakeppninnar. Að öllum
likindum má þó búast við að lið
Keflavikur, Fram og Vestmanna-
eyja verði i eldlinunni á sumri
komanda. Keflvikingar hafa náð
góðu forskoti i meistarakeppn-
inni, og enn sem fyrr, er það
baráttuviljinn, sem fleytir þeim
áfram. Guðni Kjartansson,
Grétar Magnússon og Karl Her-
mannsson sýndu ágætan leik í
gærkvöldi og sömuleiöis Steinar
Jóhannsson. Þessir leikmenn
gefa aldrei eftir. En þrátt fyrir
talsverða hörku, verður ekki sagt
um Keflavikurliðið, aö það hafi
leikið grófa knattspyrnu i gær-
kvöldi. Vinni Keflavik Vest-
mannaeyjar i siðari umferð
keppninnar, tryggir liðið sér
sigur i henni.
Það var litill meistarabragur
yfirFram i gærkvöldi, og kannski
engin furða, þegar á það er litið,
að liðið saknar margra sinna
beztu leikmanna frá þvi i fyrra.
Þannig vantaði Þorberg Atlason,
Asgeir Eliasson, Kristinn
Jörundsson og Elmar Geirsson.
Munar um minna. Að visu hefur
Fram fengið Guðgeir Leifsson i
sinar raðir og gerði hann sitt til
aö halda spili gangandi hjá
Fram. En það nægði ekki. Þá
virðist Fram-vörnin vera ákaf-
lega óörugg og sjaldan hefur
Baldur Scheving misst kantmann
jafn oft inn fyrir sig og i leiknum i
gærkvöldi.
Dómari var Einar Hjartarson
og dæmdi ágætlega en hins vegar
var annar linuvörðurinn, Halldór
Backmann, ekki alltaf með á
nótunum.
DAVE MACKAY... á
leikum hjá Swindon.
%
Frá keppninni aö Laugarvatni.
ARSENAL HELDUR AFRAM
SIGURGÖNGU SINNI
Mackay óvinsælasti maðurinn hjó óhangendum Swindon.
Dregið í Evrópukeppninni
ÞRÍR leikir voru leiknir I ensku
1. deildinni á þriöjudagskvöldiö.
Arsenal heldur áfram sigurgöngu
sinni, liðið vann Crystal Palace
1:0 á Highbury. Stoke fór af
hættusvæðinu, meö þvl aö vinna
Coventry 2:1. Lundúnaliöið
Chelsea heimsótti Manchester á
þriðjudagskvöldiö og sigraöi þar
City 1:0.
Einnig voru leiknir leikir i 2. og
3. deild á þriðjudaginn og fóru
þeir þannig:
2. deild
Bristol - Aston Villa 3:0
Fulham-Luton 0:1
3. deild
Oldham - Chesterfield 3:0
Sunderland - Carlisle 2:1
Barátta á botninum i 1. deild-
inni ensku i knattspyrnu er ekki
siður spennandi, en baráttan á
toppinum. Það eru miklar likur
á, að það verði þrjú lið, sem
berjast um fallið i ár. Það eru
Crystal Palace, Norwich og Weat
Bromwich Albion. Staöan á botn-
inum er nú þessi:
C.Palace 34 7 11 16 34:44 25
Norwich "34 8 9 17 29:52 25
W.B.A. 24 7 9 18 29:51 23
Þessi lið eiga eftir að leika
eftirtalda leiki i deildinni:
CRYSTAL PALACE: (Heima)
Chelsea, Ipwich og Leicester.
(Oti) Sheff. Utd. Leeds, Norwich,
Man. Utd. og Man. City.
NORWICH: (Heima) Birming-
ham, Chelsea og C. Palace. (Úti)
Everton, Man. Utd. W.B.A.
Wolves og Stoke.
W.B.A.: (Heima) Leeds,
Leicester, Everton, Norwich og
Man. City. (Úti) Wolves, Stoke,
Liverpool og Birmingham.
ÞAKK ARLEIKUR:
Lundúnaliðið Chelsea
mun þakka hinum 27 ára
sóknarleikmanni sinum
Peter Houseman, frá-
bæran feril hjá félaginu
á næsta keppnistimabili.
Þá leikur hann sinn 300.
leik með Chelsea, en
Housemann byrjaði að
leika hjá félaginu 1962
og lék sinn fyrsta leik i
desember gegn Sheffield
United. Allur ágóðinn af
þakkarleiknum rennur i
vasa Peter Houseman.
Mackay á ekki sjö
dagana sæla:
Dave Mackay, framkvæmda-
stjóri Swindon er nú óvinsælasti
maðurinn hjá áhangendum
félagsins. En íiðið er nú í fall-
hættu i 2. deild. Astæöan fyrir
óvinsældum Mackay er, að hann
seldi átrúnaðargoðiö Don Rogers
til Crystal Palace á 150 þús. pund
og keypti i staöinn Tom Jenkins
frá Southampton á 50 þús. pund.
Jenkins þessi þykir ekki góður
knattspyrnumaður og hann nýtur
ekki vinsælda hjá áhangendum
Swindon.
Mackay er mjög þekktur knatt-
spyrnumaður i Englandi, hann
lék lengi sem fyrirliöi Totten-
ham og það var hann, sem gerði
Derby að einu bezta félagsliði i
ensku knattspyrnunni.
Jafntefli á Hampdon
Park:
Úrvalsliö úr ensku deildinni
gerði jafntefli gegn úrvalsliði úr
skozku deildinni 2:2 á Hampdon
Park i Glasgow á þriðjudags-
kvöldið. Enska liðið var þannig
skipað: Shilton (Leicester), Mills
(Ipwich), Nish (Derby), Kendall
(Everton), McFarland (Derby),
Moore (West Ham), Weller
(Leicester), Channon (Southam-
pton), Worthington (Leicester),
Richards (Wolves) og Bell (Man.
City).
Dregið i Evrópu-
keppninni:
Tottenham mætir Liverpool I
undanúrslitum UEFA-bikar-
keppninnar i knattspyrnu. Um
siöustu helgi var dregiö um þaö,
livaöa liö leika saman I Evrópu-
keppnunum þremur i knatt-
spyrnu. En i undanúrslitum eru
flest frægustu félagsliö Evrópu,
llollandi, Spáni, Englandi,
Vestur-Þýzkalandi, ítaliu, Tékkó-
slóvakiu og Júgóslaviu. Þessi liö
drógust saman
Evrópukeppni meistaraliöa:
Real Madrid (Spáni) - Ajax (Hol-
landi)
Derby (Englandi —
Juventus (Italiu)
Evrópukeppni bikarhafa:
Leeds (Englandi — Hajduk Split
(Júgóslaviu)
Startak Prag (Tékkóslóvakiu —
A.C. Milan
(ttalíu)
UEFA-bikarkeppnin:
Tottenham — Liverpool
Mönchengladbach (V-Þýzka-
landi) — Twente Entschede (Hol-
landi)
Spennandi keppni í Suðurlandsriðli
SUNNUDAGINN 25. marz fóru
fram aö Laugarvatni tveir leikir i
islandsmeistaramótinu i blaki.
Annars vegar áttust við ung-
mennafélagið íslendingur, sem
skipað er skólasveinum bænda-
skólans að Hvanneyri, og hins
vegar ungm.fél. Laugdæla, sem
mestmegnis er skipaö kennur-
um skólanna aö Laugarvatni.
Hinn leikurinn var inilli Í.S. og
Umf. Hvatar, en lið Hvatar er
eingöngu skipað nemendum úr
Menntaskólanum að Laugar-
vatni.
Dregið var um, hvor leikurinn
skyldi háður fyrst, og kom upp
hlutur bænda og kennara.
Þess má geta, að leikir þessir
voru siðustu leikirnir i Suður-
landsriðli, og fyrir þennan leik
var kunnugt, að hvorki bændur né
kennarar áttu möguleika að ná
upp úr riðlinum og setti það mark
á leikinn. Gætti þar litils baráttu-
vilja, — sérstaklega af hálfu
bænda. Það setti einnig sinn svip
á leikinn, að kennara vantaði sinn
bezta mann, Anton Bjarnason, en
við stöðu hans tók Jason Ivarsson
(nr. 12), nemandi við mennta-
skólann og skilaði hann sinu er-
fiða hlutverki með prýði.
Til að byrja með var leikurinn
nokkuð jafn og skiptust liðin á um
að leiða með einu til tveimur stig-
um, en undir lok fyrri hrinunnar
tóku kennarar sig á og unnu verð-
skuldað 15:13.
Siðari hrinan var algjör ein-
stefna af hálfu kennara og lauk
Henni með yfirburðasigri þeirra
15:4. Var Jason þeirra drýgstur
við skorunina með velheppnuðum
„smöshum” sinum, og má segja,
að hann hafi verið maðurinn á
bak við sigur kennaranna. Páll
Ólafsson (kennari), sem gengið
hefur næst Antoni að getu i liði
kennara, náði aldrei að sýna sitt
rétta andlit i þessum leik. Allan
brodd* vantaði i leik bænda, en
segja má að Jón Sigurðsson (nr.
10) hafi verið þeirra skástur.
Dómarar i þessum leik voru
Halldór og Guðmundur úr liði l.S.
og dæmdu þeir fremur slælega.
I.S.—Hvöt.
ALLT fram til þessa höfðu áhorf-
endur haft fremur hljótt um sig,
enda eðlilegt, þar sem þessi leik-
ur var jafnframt þvi að vera úr-
slitaleikur i Suðuriandsriðli, leik-
ur milli þeirra liða, er borið hafa
höfuð og herðar yfir önnur lið i
riðlinum hvað varðar leiktækni
og boltameðferð, enda hafa bæði
liðin á að skipa mjög svo jafngóð-
um leikmönnum.
Hvatarmenn unnu hlutkestið og
byrjuðu með boltann og riðu strax
á vaðið með fyrsta stigið eftir
stórgóða uppgjöf Páls ólafssonar
(nemanda) við dynjandi húrra-
hróp áhorfenda. Framan af hrin-
unni var leikurinn mjög jafn, en
smám saman náði lið Hvatar
undirtökunum, enda stúdentar
mjög taugaóstyrkir og áttu áhorf-
endur eflaust sinn þátt i þvi. Hrin-
unni lauk svo með öruggum sigri
Hvatar 15:8. Stúdentar mættu
mun ákveðnari til leiks i annarri
hrinu og náðu strax f jögurra stiga
forustu, sem nægði þeim til sig-
urs, þótt svo liti út um tima, að
Hvatarmönnum myndi takast að
jafna, en hrinunni lauk 15:13 fyrir
t.S. og var hin skemmtilegasta og
vel leikin af beggja hálfu.
Þriðja hrinan var að mestu ein-
stefna af hálfu Í.S. Lið Hvatar var
gjörsamlega i molum, og má það
teljast næsta undarlegt, miðað
við ágæta frammistöðu liðsins i
hrinunum á undan. Stúdentar
sýndu hins vegar frábæran leik og
voru greinilega búnir að jafna sig
i taugaóstyrknum og sigruðu
þessa hrinu með yfirburðum 15:2.
Beztu menn t.S. voru þeir Þór
(nr. 10) með óverjandi „smösh”,
Torfi Rúnar (nr. 9), sem átti mjög
góðar sendingar á „smashara”
Hvatar og er sivinnandi og
traustur leikmaður. Einnig átti
Már Túlinius (nr. 11) góðan leik.
Dómarar voru Páll Ólafsson
umf. Laugdæla og Guðmundur
Ólafsson nemandi i tþróttakenn-
araskólanum og dæmdu þeir af
festu.