Tíminn - 11.04.1973, Side 1
,/Hótel Loftleiðlr býður gestum
sfnum að velja á mllli 217 herbergja
með 434 rúmun — en gestum
standa lika Ibúðir til boða.
Allur búnaður miðast vlð strangar
kröfur vandlátra.
LOFTLEIÐAGESTUM LIOUR VEL.
WOTEL miEIÐIfí
Yfir 35 þúsund manns á
Suðurlandi árið 2000
1 gær var dimmt í lofti i Reykjavlk, og þokan hrislaöist um turninn á Haiigrlmskirkju á Skóiavöröuhæö
eins og fjallsgnipu. — Tímamynd: Gunnar.
200 manns vantar
í vinnu í Olafsvík
en ekkert húsnæði er þar aflögu
KJ—Reykjavik. —
Lagður hefur verið fram
i bókarformi fyrsti hluti
Suðurlandsáætlunar,
sem fjallar um þróun at-
vinnulifs og opinberrar
þjónustu á Suðurlandi á
næstu árum. Er i þessari
mikiu áætlun gerð itar-
leg úttekt á velflestum
málum i Suðurlands-
kjördæmi, og á grund-
velii þessarar úttektar
er ætiunin að gera annan
hluta Suðurlandsáætlun-
ar, sem myndi þá fjalla
um einstakar fram-
kvæmdir á Suðurlandi,
hvernig þær verða
fjármagnaðar, i hvaða
röð ráðizt verður i
framkvæmdir — og
kannski siðast en ekki
sizt hvað verður gert á
vegum rikis og sveitar-
félaga þar á næstu ár-
um.
Suðurlandsáætlun er
unnin i samræmi við
þingsályktunartillögu
sem samþykkt var á
Alþingi i mai 1972, en áð-
ur hafði aðalfundur
Samtaka sveitarfélaga i
Suðurlandskjördæmi
samþykkt samskonar
tillögu.
Gert er ráð fyrir að i
Suðurlandskjördæmi
verði 21 þúsund ibúar
árið 1980 og 35 þúsund
ibúar árið 2000.
Þeir sem hafa unnið að þessari
áætlun eru Samtök sveitarfélaga i
Suðurlandskjördæmi i samr. við
Framkvæmdastofnun ríkisins, en
framkvæmdaaðilar við verkið
hafa verið framkvæmdastjóri
samtakanna, Sigurfinnur
Sigurðsson hagfræðingur, ásamt
Hagvangi h.f., Verkfræðistofu
Guðmundar G. Þórarinssonar.
Vegagerð rikisins, námsstj.
Suðuriands Valgarði Runólfssyni
og Gesti Ólafssyni skipulagsfræð-
ingi.
Alls er fyrri hluti Suðurlands-
áætlunar um 360 siður og þvi eng-
inn vegur að gera áætluninni
nákvæm skil hér, en öllum odd-
vitum á Suðurlandi hefur verið
send áætlunin, og um hana vqður
m.a. fjallað á aðalfundi Samtaka
sveitarfélaga i Suðurlandskjör-
dæmi, sem haldinn verður i Ar-
nesi i Gnúpverjahreppi á laugar-
daginn. 1 sambandi við gerð
áætlunarinnar, voru haldnir fjór-
ir fundir á Suðurlandi og einn i
Vestmannaeyjum, til að fá fram
sjónarmið sveitarstjórnarmanna.
Ætlunin var að hafa sérstakan
Frh. á bls. 15
ÞÓ Reykjavik. — Afli hjá bátum,
sem róa af Snæfellsnesi hefur
verið sæmilegur I vetur, og hefur
það leitt til þess, aö fólk hefur
orðiö að vinna i fiski i þessum
verðstöðvum frá þvi snemma á
morgnana fram á rauða nótt. t
Ólafsvik er talið, aö það vanti aö
minnsta kosti 200 manns I vinnu
en þar er unnið alla daga vikunn-
ar, og hafa menn þvi Iftinn tima
til að gera sér dagamun þar.
Sömu sögu er að segja frá öðrum
verstöðvum á Snæfellsnesi eins
og Hellissandi.
Ekki er atgangurinn eins mikill
i verstöðvunum við suður-
ströndina, en ef einhver hrota
kemur þar, þá má búast við, að
margt fólk vanti til vinnu. I fy.rra
kom aldrei nein aflahrota hjá
Þorlákshafnar- og Grindavikur-
bátum, en hún kom hins vegar i
hitteðfyrra um 10. april og stóð
fram i mai.
Nú biða menn spenntir i þess-
um útgerðarstöðum eftir páska-
hrotunni og segja reyndar að hún
verði að koma, þvi afli hafi verið
svo tregur.
Jafet Sigurðsson i ólafsvik
sagði, að þar vantaði mjög margt
fólk til vinnu. Allir, sem vettlingi
gætu valdið stæðu i vinnu fram á
nótt, og unnið væri frá þvi
klukkan átta á morgnana til
klukkan eitt um nóttina, jafnt um
helgar sem virka daga. Um
helgar hafa skólakrakkar hlaupið
undir bagga, en það hrekkur
hvergi til.
Það er rætt um að hingað þurfi
að flytjast 100-150 fjölskyldur,
sagði Jafet, en hér er mikill hús-
næðisskortur. Til að leysa
brýnustu þörfina hafa frysti-
húsið, saltfiskverkunin og út-
gerðarmenn hér á staðnum
stofnað með sér hlutafélag til að
byggja stóra og mikla verbúð.
Þessi verbúð, sem verður 900 fer-
metrar að flatarmáli, verður búin
40 tveggja manna herbergjum og
fljótlega verður hafizt handa við
að reisa hana.
Afli Ólafsvikurbáta hefur verið
mjög þokkalegur siðustu daga og
i fyrradag voru bátarnir með
þetta 10-20 lestir, sem verður aö
teljast góður meðalafli. Aflahæsti
Ólafsvikurbáturinn er nú Lárus
Sveinsson með i kringum 660
lestir.
Stórhækkað
verð á
grósleppu-
hrognum
VERÐ grásleppuhrogna
hefur hækkað til mikilla
muna, og verður það vart
undir þrettán þúsund krón-
um á 105 kilógramma tunnu.
t fyrra var það niu þúsund,
svo að hækkunin nemur fast
að fjörutíu af hundraði.
Framan af veiðitimanum
fylla hrogn úr hundrað grá-
sleppum eina tunnu, og geta
jafnvel gert betur, þar sem
hún er væn.
Grásleppuveiðar eru mjög
stundaðar, þar sem hrogn-
kelsagengd er mest, og ekki
fjarri lagi, að út séu fluttar
framt að fimmtiu þúsund
smálestir grásleppuhrogna á
ári, mest til Frakklands og
Austur-Þýzkalands. A
seinni árum hefur verið lögð
vaxandi áherzla á vöru-
vöndun, enda hér mikil
verðmæti i húfi, og myndu þó
margfaldast, ef hrognin
væru lögð niður i dósir hér
innan lands.
Grásleppuveiðarnar eru
mikil búbót viða á Ströndum,
Tjönnesi og viö Eyjafjörð,
svo að nokkrir staðir séu
nefndir, þar sem mikið
kveður að þeim, og sums
staðar er farið að stunda
þessar veiðar á mun stærri
bátum en áður hefur verið
gert og veiða hrognkelsin á
meira dýpi, áður en þau
skriöa upp i þarann.
Félag
aldraða
undirbýr
stórfram*
kvæmdir
Félag aldraðra og eftirlauna-
þega hefur sótt um lóðir undir tvö
fjölbýlishús i hverfi þvi sem
skipulagt verður á Eiöisgranda.
Svar við umsókninni hefur enn
ekki borizt og þvi ekki enn verið
ákveðið hve stór fjölbýlishúsin
verða. Félagiö var stofnað fyrir
nokkru og verður framhalds-
stofnfundur haldinn eftir páska.
Auðunn Hermannsson, formaður
félagsins, sagði blaðinu, að þegar
__________Frh. á bls. 15
Bæjarstjórinn
á Seyðisfirði
segir af sér
TK-Reykjavik. — A fundi I bæjar-
stjórn Seyðisfjarðar I fyrradag
baðst Guðmundur Karl Jónsson
bæjarstjóri lausnar frá starfi sinu
með 6 mánaöa uppsagnarfresti.
Enginn ágreiningur er milli
liæjarstjórnar og bæjarstjórans,
og segir Guðmundur upp starfi
sinu af persónulegum ástæðum og
að eigin ósk.