Tíminn - 11.04.1973, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 11. april 1973.
TÍMINN
15
Suðurland
kafla um Vestmannaeyjar, en
honum var sleppt vegna þess
óvissuástands sem þar ríkir nú.
Samgöngumál
1 kaflanum um samgöngumál
eru helztu niðurstöður þær, að
hagkvæmast sé að ráöast i vega-
gerð með varanlegu slitlagi á
leiðunum Selfoss—Hvolsvöllur,
Selfoss—Eyrarbakki—Stokkseyri
og Hveragerði—-Þorlákshöfn. Alls
85 kilómetrar, sem áætlað er að
kosti tæplega 400 milljónir miðað
viö oliumalarlagningu. Þá er
komizt að þeirri niðurstöðu að
nauðsynlegt sé að endurbæta
malarveginum frá Hvolsvelli til
Klausturs, alls 169 km., og kosti
það 300 milljónir.
í átta kauptúnum á svæðinu
þarf að koma gatna og holræsa-
kerfi i svipað ástand og i Reykja-
vik og er áætlaður kostnaöur við
það 430 milljónir króna.
A blaðamannafundinum sem
haldinn var i gær vegna útkomu
Suðurlandsáætlunar i bókar-
formi, var upplýst að brú yfir
ölfusárósa og vegagerð vegna
hennar, myndi kosta um 210
milljónir og er það verk vel fram-
kvæmanlegt að mati fróðra
manna.
Hafnamál
1 Suðurlandsáætlun er fjallað
um hafnamál á Suðurlandi og
skýrt frá þvi að á Eyrarbakka og
Stokkseyri muni þurfa um 30-40
milljónir á hvorum stað til að
gera aðstöðuna þar „góða”, og að
fyrirhugaðar framkvæmdir i
Þorlákshöfn séu nauðsynlegar,
hvort sem gerð verði stórskipa-
höfn austan ölfusár i framtiðinni
eða ekki. Töluverður kafli fjallar
um hafnargerð við Dyrhólaey, og
er þar einkum borin saman
áætlun Vita- og hafnamálaskrif-
stofunnar um hafnargerð þar, og
svo hins vegar athugasemdir
Pálma Jóhannessonar verkfræð-
ings og áætlun hans um hafnar-
gerðina. í stuttu máli sagt, þá
hljóðar áætlun Vita- og hafnar-
málastofnunarinnar upp á 2.2
milljarða en áætlun Pálma upp á
1.4 milljarða. Auk þess álitur
Pálmi að gera megi fyrsta áfanga
hafnarinnar fyrir 250 milljónir
króna, og er þá aðeins miðað við
innri garða, en stofnunin miðar
viðaðfullgera þurfi höfnina strax
i fyrsta áfanga, svo hún komi að
gagni. Mismunurinn á heildar-
kostnaðaráætlunum Pálma og
stofnunarinnar liggur aðallega i
þvi að Pálmi gerir ráð fyrir að
gera höfnina samkvæmt norskum
stöðlum en stofnunin gerir ráð
fyrir að hafnargerðin verði eftir
bandariskum stöðlum.
Skólamál
ttarleg úttekt er gerð á
skólamálum i áætluninni og þar
kemur m.a. fram, að
heimavistarskólar eru 2-4 sinnum
dýrari en heimanakstur, en bæði
heimavistir og heimanakstur
hafa sina kosti og sina galla. T.d.
er ekki heppilegt að ung börn sitji
lengi á dag i bfl, og heldur er ekki
talið heppilegt að ung börn séu i
heimavist.
Bent er á hvort ekki sé hægt að
aka kennurunum til barnanna
eins og að aka börnunum til
kennaranna.
Landbúnaður
bandbúnaður er höfuðat-
vinnuvegur Suðurlandskjör-
dæmis, og unnu um 40% starf-
andi fólks við landbúnað árið
1970, en séu Vestmannaeyjar
undanskildar kemur i ljós að
54.4% af starfandi fólki i
Suðurlandskjördæmi vann við
landbúnaðarstörf það ár.
Enginn önnur atvinnugrein
nær tiu prósentum.
Þá segir i áætluninni: Þýðing
landbúnaðar á svæðinu er þannig
yfirgnæfandi og kemur raunar
einnig fram á samsetningu ann-
arra atvinnugreina. Stór hluti
iðnaðar á svæðinu er annað hvort
úrvinnsla landbúnaðarvara eða
starfsemi i þágu búreksturs.
Landbúnaðarvörur og það fólk
sem við landbúnað starfa hefur
auðljóslega grundvallarþýðingu
fyrir viðskipta- og þjónustugrein-
arnar".
Spá um ibúafjölda
Aftast i Suðurlandsáætluninni
er spáð um ibúaf jölda árin 1980 og
2000. 1 spánni kemur fram að
ibúafjöldi i sveitunum mun hald-
ast svo til óbreyttur, en þéttbýlis-
staðirnir munu vaxa ört. Árið
1970 voru rúmlega átján þúsund
ibúar i Suðurlandskjördæmi, en
árið 1980 er áætlað að ibúarnir
verði orðnir 21 þúsund og árið
2.000 verði þeir orðnir 35 þúsund. 1
þessari spá er reiknað með
áframhaldandi byggð i Eyjum og
þróun byggðar þar.
Harmleikur
A blaðamannafundinum voru
þeir Jón Eiríksson oddviti Vorsa-
bæ, Skeiðum Árn. ölver Karlsson
bóndi Þjórsártúni, formaður
Samtaka sveitarfélaga i Suður-
landskjördæmi, sr. Ingimar
Ingimarsson oddviti i Vik, Sigur-
finnur Sigurðsson hagfræðingur
framkvæmdastjóri samtakanna
og Asmundur Stefánsson þjóð-
hagfræðingur hjá Hagvangi h.f.
Upplýst var á fundinum, að
þegar Suðurlandsáætlun hefur
verið fullunnin muni hún kosta
hátt i þrjár milljónir króna. Að
sögn Sigurfinns Sigurðssonar hef-
ur þáttur Framkvæmda-
stofnunarinnar við kostnaðarhlið
áætlunarinnar verið „dálitill
harmleikur”, þar sem stofnunin
hefur neitað að taka þátt i kostn-
aði við gerð áætlunarinnar, og af-
staða til framhaldsvinnu við
verkið er neikvæð. Þá sögðu
Sunnlendingarnir að Suðurland
væri mjög afskipt hvað varðaði
stjórn og framkvæmdaráð
Framkvæmdastofnunarinnar,
þvi þar væri enginn Sunnlending-
ur og gætti þvi vissrar tortryggni
i garð stofnunarinnar frá Sam-
tökum sveitarfélaga á Suöur-
landi.
Phnom Pen
dag að allt flug nefndarmanna
með þyrlum hefði verið stöövað
um sinn vegna þess að þyrla var
skotin niður á laugardag og niu
manns létu lifið. Úr nefndinni
berast einnig þær fregnir að
þyrluflug, en það er mjög mikil-
vægur liður i eftirlitinu með
vopnahlénu, verði ekki hafið á ný
fyrr en Þjóðfrelsishreyfingin
tryggi að ekki verði skotið á
bvrlurnar.
Sameiginleg nefnd striösaðila,
skipuð fulltrúum Þjóðfrelsis-
hreyfingar og Suöur-Vietnam,
hélt fund á þriðjudag. Umræður,
eru sagðar vera i strandi vegna
harðra bardaga við Tong le chan
herstöðina 80 km norðan Saigon.
Vöruverð
ir ibúðaeigendur hefðu staðið i
sliku málaþrasi i þrjú ár án
árangurs enn sem komið væri.
Siðan spurði þingmaðurinn,
hvort ráðherra væri umboðsmað-
ur Framkvæmdanefndarinnar
eða fólksins i landinu. Afstaða
hans væri óábyrg. Hann skildi
ekki hlutverk sitt sem ráðherra
og færi með íhaldssjónarmið hvað
réttindi neytenda snerti, enda
ætti hann heima i flokki ihalds-
manna.
Hannibal Valdimarsson kvað
það alrangt, að hann hefði gerst
verjandi annars aðila málsins.
Hann hefði enga aðstöðu til að
dæma um málið, en hefði viljað
láta allar upplýsingar koma
fram. Hins vegar væri augljóst,
að ef Bjarni Guðnason keypti ibúð
sem siðar reyndist gölluð, þá
myndi hann ekki koma til Alþing-
is með mál sitt. Skipti þar engu
máli þótt um þrjátiu Bjarna
Guðnasyni væri að ræða.
Loks taldi ráðherra, að ef þing-
maðurinn væri að reyna að koma
höggi á sig vegna þessa máls, þá
væri það bæði vindhögg og klám-
högg, þvi hann hefði ekki komið
nálægt þessu máli sem ráðherra
og það þvi honum óviðkomandi
sem slikum.
Bjarni Guönason taldi, að þar
sem rikissjóður væri i raun
meginbyggingaraðili, og félags-
málaráðuneytið eftirlitsaðili fyrir
hönd rikissjóðs, þá væri eðlilegt
að ráðuneytið léti slika athugun
sem hann gerði tillögu um fara
fram. Um það gildi allt öðru máli
en þegar einstaklingur seldi öðr-
um einstakling ibúð.
Nokkur frekari orðaskipti urðu,
en siðan var tillögunni visað til
nefndar.
Breiðholt
manna milliþinganefnd til þess
að:
1. Kanna þátt flutningskostnaðar
i mismunandi vöruveröi i land-
inu.
2. Skila áliti um, hvort tiltækt
væri aö jafna kostnað við vöru-
flutninga með stofnun og starf-
rækslu verðjöfnunarsjóðs, þannig
að verð á allri vöru verði hið
sama á öllum stöðum á landinu,
sem vöruflutningaskip sigla til og
flugvélar og vöruflutningabif-
reiðar halda uppi áætlunarferð-
um til.
3. Kanna, hver kostnaður væri af
rekstri sliks sjóðs og hver ætla
mætti að yrðu þjóðhagsleg áhrif
af starfrækslu hans.
4. Gera tillögur um bætt skipulag
vöruflutninga á sjó og landi og i
lofti. Skulu þá m.a. haföar i huga
breytingar á tilhögun flutninga
frá helztu viðskiptaborgum Is-
lendinga erlendis til hinna ýmsu
hafna á landinu.
Kostnaður við störf nefndarinn-
ar greiðist úr ríkissjóði.”
O (þróttir
út af þessu máli, var KSI. 1
svarbréfi KSI kemur fram, að
það véfengi rétt ÍSt til samn-
ingsgerða fyrir hönd sérsam-
bandanna. Er gefið fyllilega I
skyn, að KSI muni ekkert tillit
taka til gildandi samninga,
hvorki varðandi ,,2ja minútna
rétt” sjónvarpsins né annarra
atriða, sem samið hefur verið
um.
Búizt var við, að fulltrúi KSI
á sambandsráðsfundinum
myndi leggja fram nýjar til-
lögur i málinu, en það gerði
hann ekki.
Ekki er vitað, hvernig fram-
kvæmdastjórn ISl mun bregð-
astviö málinu. ISt er, eins og
kunnugt er, æðsti aðili iþrótta-
mála hérlendis, og ber stjórn
KSI að hlýta ákvörðunum ISt.
Er þetta ekki i fyrsta sinn,
sem stjórn KSI véfengir rétt
ISl. Fróðlegt verður að vita,
hvernig þessu sjónvarpsstriði
ISI og KSI lyktar.
O Útlönd
Þarna hefir einfaldlega mest
að segja sú staöreynd, að
Bandarlkjamenn verða að
auka mjög oliuinnflutning sinn
i framtiðinni og þeirri auknu
þörf verður tæplega fullnægt
nokkurs staðar annars staðar
en i löndunum fyrir botni Mið-
jarðarhafsins.
Jackson öldungadeildar-
tiingmanni er þetta mætavel
jóst. Hann er formaður innan
rikisnefndar öldungadeildar-
innar og gegnir þvi mikilvægu
hlutverki við mótun stefn-
unnar i orkumálum, enda
hefir hann hvatt eindregið til
þess, að Bandarikjamenn
fullnægi sjálfir þörfum sinum I
þessu efni eins og framast er
kostur. En Gyðingum og
Aröbum er báðum jafn ljóst,
að heita má tómt mál að tala
um slikt.
O Framkvæmdir
annarra þjóða, er óska eftir svari
tslendinga i hvaða formi hún
skuli veitt. Of litið kveður að
varanlegri uppbyggingu, sem
Vestmannaeyingar geti horfið að
og haldið hópinn. Vangaveltur um
framkvæmdir mega ekki dragast
á langinn og hraði þeirra fer
mikið eftir þeirri tækni og þvi
fjármagni, sem unnt er að leggja
til verksins-
Hér er um að ræða málefni,
sem Alþingi verður að láta til sin
taka, og hafði fyrr átt að vera.
Vonandi verður ekki stærilæti og
þjóörembingur i vegi fyrir þvi að
þiggja alla framboðna aðstoð,
hvaðan sem hún er boðin. Slikt
væri beinlinis ókurfeisi og gæti
haft margs konar óheillaáhrif á
viðskipti okkar og álit út á við.
1 landhelgismálinu hafa
tslendingar sýnt festu, sem er til
sóma.en það mál er óskylt eld-
gosinu i Heimaey og hafnar-
málum
3/4'73 Þórarinn Helgason
Dyrhólahöfn
væru um 300 manns komnir i
félagið eða æsktu þess að gerast
félagar. Þar með er ekki sagt að
allur sá hópur sæki þegar um
ibúðir á vegum félagsins.
Reiknað er með að félagsmenn
geti keypt ibúðir i sambýlishús-
unum, sem sérstaklega verða
teiknuð og smiöuð með þarfir
aldraðs fólks I huga. Samtökin
hafa eftir sem áöur ráðstöfunar-
rétt á ibúðunum, þannig, aö þær
veröi ekki siðar seldar einhverj-
um aðila, sem ekki fullnægir
þeim skilyrðum, sem sett verða
fyrir búsetu i húsunum.
I húsunum er gert ráð fyrir
tveggja og þriggja herbergja
ibúðum. Ibúarnir munu eiga kost
á einni heitri máltiö á dag i sam-
eiginlegu mötuneyti, þarna verð-
ur heildbrigöisþjónusta litil
sundlaug verður við húsin, nudd-
stofur, læknisaöst. og yfir-
leitt alla nauðsynlega þjónustu
fyrir aldrað fólk.
Ekki er enn búið að setja skýrar
reglur um hús þessi^og starf-
rækslu þeirra, en gera má ráð
fyrir að aldurstakmark ibúa þar
verði 50 ára og eldri. Verður
leitazt við að þeir sem þarna búa
verði sem sjálfstæðastir og eng-
um háðir ef þeir óska þess en hins
vegar veröi öll þjónusta og aöstoð
við lasburða og aldrað til reiðu
innan stofnunarinnar eftir þvi
sem við verður komið.
— OÓ.
gjöfin sem
gleður
allir kaupa
hringana hjá
Skólavörðustíg 2
Brezk flugvél
ferst í Sviss
Bern 10/4-NTB Brezk leiguflugvél
með 139 farþega um borð og niu
manna áhöfn hrapaði I morgun
nálægt bænum Solothurn i Sviss.
Flestir létu llfið. Talið er að 10-20
manns hafi komizt llfs af, allir ai-
varlega slasaðir. Flugvélin,
Turboprop Vanguard, kom niður
á hæð, sem þakin var 1 metra
þykkum snjó, er torveldaði
björgunarstarf.
Vélin fannst nokkrum stundum
eftir að slysið varö. Skyggni var
slæmt og snjókoma á slysstað.
Vélin var að koma frá Bristol með
Englendinga, sem ætluöu á
vefnaðarvörusýningu i Basel.
Þeir særðu voru fluttir i húsa-
skjól þar sem þeim var veitt að-
hlynning eftir föngum meðan
beðiö var eftir læknishjálp.
Að sögn loftferðaeftirlitsins á
Baselflugvelli flaug vélin svo lágt
að hún sást ekki á radar, en
skyggni var aðeins 600 metrar
þegar slysið varð.
o Víðivangur
frumvarp frá rikisstjórninni
um stuðning við sveitarfélög
til byggingar leiguhúsnæðis og
gerir frumvarpið ráð fyrir að
byggðar yerði 1000 leigufbúöir
á vcgum sveitarfélaga á næstu
5 árum. — TK.
r
i
j bekkir
til sölu. — Hagstætt verö.
Sendi I kröfu, ef óskað er.
j Upplýsingar aö óldugötu 33
^ slmi 1-94-07. ^
Bændur,
athugið
Ung hjón með barn á öðru ári
óska eftir atvinnu úti á landi,
helzt við landbúnað. Hringið
i sima 84984 eða 33254.
f|| ÚTBOÐ ||i
Tilboð óskast um sölu á rafmótorum fyrir dælur vegna
Hitaveitu Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent i skrifstofu vorri.
Tilboðin verða opnuð á sama stað 30. aprfl n.k. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvogi 3 — Sími 25800
Húseigendur — Umráðamenn fasteigna
Við önnumst samkvæmt tilboðum hvers konar þéttingar á
steinþökum og lekasprungum i veggjum. Höfum á liðnum árum
annast verkefni m.a. fyrir skólabyggingar, sjúkrahús, félags-
heimili, hótel, ásamt fyrir hundruð einstaklinga um allt land
Tökum verk hvar sem er á landinu. 10 ára ábyrgðarskirteini Skrifið
eða hringið eftir upplýsingum.
Verktakafélagið Tindur
Simi 40258 — Fósthólf 32 — Kópavogi.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
10. april 1973.
LAUS STAÐA
Staða fulltrúa i heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu er laus til um-
sóknar.
Umsóknarfrestur er til 10. mai 1973.
Umsækjendur skulu hafa lögfræði- eða viðskiptafræði-
menntun.
Umsóknir sendist ráðuneytinu.
mssmwmmÉmmmmssm