Tíminn - 19.04.1973, Page 9

Tíminn - 19.04.1973, Page 9
Fimmtudagur 19. april 1973. TÍMINN 9 einstaklingum er varla fært að Eitt af nýjustu verkum Asgerðar Búadóttur. taka þátt i sýningunum. Settust sjálfir við vefinn „En þrátt fyrir allt finnst'mér myndvefnaður aldrei hafa staðið eins sjálfstætt og hann gerir núna”, segir Asgerður Búadóttir. „Það held ég að sé fyrst og fremst vegna þess að listamennirnir hafa setzt sjálfir við vefstólinn og komizt i snertingu við efnið”. Pólverjar og Tékkar hafa blásið nýju lifi i nútima mynd- vefnað. Þeir vinna sjálfir verk sin og eru i sambandi við efnið, sem þeir nota, hvort sem það er ull, nælon, hampur, eða eitthvað annað, en hið margvislegasta efni er haft til myndvefnaðar nú á dögum. I Póllandi og Tékkóslóvakiu er búið mjög vel að myndvefnaðar- fólki. Þar situr ekki hver i sinu horni og vefur, heldur hefur rikið sétt á stofn tilraunavefstofur. Og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. örvandi að fá verkefni Við vikjum að þvi við Asgerði hvort farið sé að verða vart hvatningar frá opinberri hálfu eða gerðar séu pantanir á mynd- vefnaði hér á landi. Það kemur á daginn að slikt er nánast ekki til og ekki annað að gera fyrir myndvefnaðarfólk en að vinna að. sinum hugmyndum eitt og óstutt i þeirri von að úr rætist i framtið- inni. En kannski er lika að rofa til hér. Fyrsta verkefnið, sem Ásgerður fékk var teppi, sem nú hangir i Norræna húsinu Hafði hún að öllu leyti frjálsar hendur og mátti sjálf kjósa, hvaða vegg verk hennar skyldi prýða. Or þessu varð Stormharpan, sem hangir i fundarherbergi hússins, teppi ofið undir áhrifum af þeim stiþsem Norræna húsið er byggt i Annað teppi i svipuðum litum, brúnum, rauðum og hvitum og einnig úr ull og hrosshári hangir i stofunni þar sem við sitjum með Asgerði. Það á að fara i nýbyggt hús þeirra Þórunnar Jóhanns- dóttur og Vladimirs Ashkenazy. Þau sáu teppið i Norræna húsinu og voru ekki sein að biðja Ásgerði að vefa fyrir sig, henni væri alveg frjálst hvernig það yrði. Þetta verk hefur verið á ýmsum sýningum m.a. á norrænu vefnaðarsýningunni i Sviþjóð i haust. „Þetta er svo gott fólk”, segir Asgerður, „að það var gaman að vinna fyrir þau. Og það er alltaf mikil hvatning að fá verkefni, þótt oft sé litið um þau og ekki annað að gera en að halda sinu striki einn i sinu horni”. Aldrei fengið góða hugmynd yfir pottunum Asgerður hefur fyrst og fremst helgað starfskrafta sina vefnaðinum ásamt heimilis- Dóttur sina, Þórunni, kallar Asgerður sitt bezta verk. Hér er sú fjögra ára meö dætrum sinum .Iii'a \ artldur.'' Þelta leppi Asgerftar er I Langholtsútibúi Landsbankans. störfum og fjölskyldu. Hún hefur oft verið beðin um að kenna, en alltaf komið sér hjá þvi og ekki viljað taka að sér þriðja starfið. „Ég held að hitt sé lika nauðsynlegt og vona að eitthvað af þvi, sem maður er að vinna komi til skila á annan hátt”, segir hún. „Stundum eru listamenn spurðir hvernig gangi að samræma listgrein þeirra einu eða öðru starfi, sem þeir hafa sér til lifsframfæris”, segir Asgerður. „Ég get eiginlega ekki hugsað mér að neitt fari betur með vefnaðinum en heimilis- störfin. Með þeim hef ég meiri tima tilað vefa (þo aldrei nógan) en með einhverju öðru. Ef ég hef átt góðan dag og getað unnið ótrufluð, finnst mér ágætt að stússast i matseld. En ég tek það fram.að ég hef aldrei fengið góða hugmynd yfir matarpottunum”. —SJ Texti: Sólveig Jónsdóttir Myndir: Róbert Ágústsson í\*.S.Í

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.