Tíminn - 19.04.1973, Page 17
Fimmtudagur 19. apríl 1973.
TÍMINN
17
— Frdsögn
sjónarvotts, þegar
eldfjallið Mont
Pelee sprakk og
grandaði fjörutíu
þúsund
manneskjum
d hdlfri annarri
sekúndu
sjá, enda þótt loftiö virtist
þungbúið, og það rauk upp úr
Pelee.
Reykjarbólstrarnir stigu útfrá
öllum hliðum fjallsins, efst og
neðst. Það var engan eld að sjá,
aðeins þessi feikn af reyk.
Þegar við 'Sigldum inn á
höfnina, heyrðum við hringt til
messu. Roddan hafi ekki fyrr
varpað akkerum en fulltrúi
s k i pafé1ags i ns , Joseph
Plissoneau, kom um borð. Það
sem hann sagði, hlýtur að hafa
fengið á Freemann, skipstjóra.
Ibúar St. Pierre voru skelfingu
lostnir. Allar búðir voru lokaðar
og Plissoneau var þess fullviss,
að fjallið væri að þvi komið að
gjósa, og að gosið gæti hafizt þá
og þegar.
Skipstjórinn heldur nú áfram
sögu sinni:
— Við ræddum ástandiö, og á
meöan við töluðumst við, féll hvit
aska yfir okkur. Mitt i öllu þessu
hófst gosið i Mont Pelee og batt
enda á samræður okkar. Það
kvað við brestur og skjálfti reið
yfir. Þá var eins og fjallið hæfist
upp á eldsúlum og rifnaði I tvennt
frá rótum að tindi. Það gaus upp
eldáúla og feiknarlegt svart
reykský.
Nú gerðist allt i einni svipan.
Eldurinn gaus út frá sprungum
og rifum og steyptist niður fjalls-
hliðarnar i áttina að hinum
dauðadæmda bæ. Skriöan
„hertók” St. Pierre, huldi
göturnar á andartaki og brunaði
niður að skipunum i höfninni.
Flaumurinn æddi beint i áttina að
Roddam.
Freemann gizkaði á, að það
hafi tekið hraunið um það bil
niutiu sekúndur að flæða niður
fjallið, drepa ibúa bæjarins,
fjörutiu þúsund að tölu, og ná
niður að höfninni. Það var myrkt
sem af nóttu.
Nálega klukkan 7.45 rifnaði
Mont Pelee, heldur Freemann
áfram. Ég hafði litið á fjalls-
tindinn, eimmitt á þvi andartaki,
og var viss um, að ekki liði á
löngu, áður en gosið hæfist.
Það var aðeins um eitt að ræða:
Framhald á bls. 19
Joseph Sadtout, morðinginn, og
sá eini, sem iifði af hamfarirnar.
Þannig leit St. Pierre út áður en eldgosið varö,
óskaferðir
úrvals
1973
MALLORKAFERÐIR MALLORKAFERÐIR
Þotuflug með Flugfélagi Islands. UM LONDON
2. maí ... 15. maí ... .. 13 dagar .. 10 dagar 15 daga ferðir, má framlengja. 1 nótt í LONDON,
27. júlí ... .. 22 dagar 29. maí 31. júlí
17. ágúst... .. 15 dagar 12. júní 14. ágúst
31. ágúst... .. 15 dagar 26. júní 21. ágúst
14. sept. ... .. 15 dagar 3. júlí 28. ágúst
28. sept. ... .. 22 dagar 10. júlf 4. sept.
19. okt. ... ..15 dagar 17. júlí 18. sept.
Ferðaáætlun m/s Gullfoss 1973
Frá Reykjavík .............15/6... 25/6... 6/7... 16/7... 27/7... 6/8... 17/8.. .27/8... 7/9
Til og fiá Leith .........18/6... 28/6... 9/7... 19/7... 30/7... 9/8... 20/8.. .30/8... 10/9
Til og frá Kaupmannahöfn .20/6... 30/6... 11/7... 21/7... 1/8... 11/8... 22/8... 1/9... 12/9
Til og fra Leith ..........22/6... 2/7... 13/7... 23/7... 3/8... 13/8... 24/8... 3/9... 14/9
Til Reykjavíkur ............25/6... 5/6... 16/7... 26/7... 6/8... 16/8... 27/8... 6/9... 17/9
Biðjið um bæklinginn um Gullfossferðimar.
SKEMMTIFERÐIR
24. apríl
Vorferð I. 17 daga
CORK
SAN SEBASTIAN
JERSEY-GLASGOW
29. maí
Vorferð III. 16 daga
ISAFJ. — TRONDHEIM
BERGEN — STAVANGER
TÖNSBERG — TORSHAVN
11. maí
Vorferð II. 17 daga
TORSHAVN
K.HÖFN — HAMBORG
AMSTERDAM — LEITH
18. september
Haustferð 18 daga
DUBLIN -- ROTTERDAM
HAMBORG — K.HÖFN
LEITH
Allir farseðlar, hótelpantanir.
Mikið Orval ódýrra einstaklingsferða til Evrópu.
ödýrar 8 daga Lundúnaferðir, hálfsmánaðarlega.
Leitið upplýsinga um Kaupmannahafnarferðir.
Kanaríeyjaferðir frá nóvember til maí.
FERÐASKR/FSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900