Tíminn - 19.05.1973, Page 1
IGNIS
UPPÞVOTTAVÉLAR
SÍMI: 19294 SÍMI: 26660
-
Hálfnað
erverk
þá hafið er
<«.
I
I
I
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
.
I SOLBAÐI OG SUNDI
Á „GAAALA VERÐINU'
Sundlaugar Reykjavikur og útivistarsvæðið umhverfis þær yfirfylltist I
góða veðrinu i gær. Gunnar ljósmyndari Timans tók þessa mynd af
einum baðgesta, Guðrúnu að nafni,þegar sólin skein hvað heitast um
nónbilið.
Borgarstjórn samþykkti f fyrradag að heimila hækkun á gjaidi sund-
laugagesta og verður þaðá næstunni 30 kr. fyrir fullorðna, en kort fyrir
10 skipti hækkar i 210 kr.
Þessi hækkun er þó enn ekki komin til framkvæmda og en um sinn
geta menn spókað sig i góða veðrinu fyrir gamla verðið 25 kr. fyrir full-
orðna og 10 kr. fyrir börn.
Allt rólegt í
landhelginni
Landhelgisgæzlan varð ekki
vör við neina brezka togara
að veiðum innan 50 milna
markanna i gær. Úti fyrir
Austurlandi! og austanverðu
Suðurlandi var dimm þoka og
ekki hægtað fljúga yfir svæðið.
Fyrir austan voru tvö varð-
skip, og urðu þau hvergi vör
við togara að veiðum, og ekki
var að heyra, að Bretarnir
væru komnir inn fyrir aftur.
Ekki er gott að segja hvað
þeir ætlast fyrir. Samkvæmt
fréttum frá Bretlandi snéru
nær 40 togarar við, þegar
þeim var lofað herskipavernd
við veiðarnar og ákveðið að
senda eina freigátu til viö-
bótar á íslandsmið. Verða
herskipin þá þrjú hér við land
en þriðja freigátan á að koma
að landinu i dag, laugardag.
Ólafur Jóhannesson, forsætisróðherra:
Mótmælum
kröftuglega
— ef flotinn blandar sér
í deiluna
SENDIHERRA Breta i
Reykjavik gekk i gær á fund
Ólafs Jóhannessonar, forsætis-
ráðherra, og afhenti honum orð-
sendingu frá brezku stjórninni. í
orðsendingunni var vakin athygli
á yfirlýsingu frá togara-
eigendum. Yfirlýsingin er svo-
hljóðandi:
Togaraeigendur munu gera sitt
itrasta til að láta verulegan f jölda
togara hefja fljótlega aftur
veiðar á Islandsmiðum. Ef
frekari alvarlegir árekstrar
verða á úthafinu eins og til dæmis
ef skotið verður föstum skotum
eða aðrir árekstrar, sem stofna ■
i hættu lifi áhafna skipanna og
rikisstjórinn liti svo á að mót-
tekinni skýrslu yfirmanns eftir-
litsskipanna að flotaaðgerðir
væru réttmætar mundi hún hafa
fullan stuðning togaramanna til
að gera viðeigandi ráðstafanir.
Ólafur Jóhannesson sagði i
gærkvöldi, að á meðan herskipin
halda sig utan 50 milnanna sé út
af fyrir sig ekkert hægt við þvi að
segja, og á meðan þyrlurnar frá
herskipunum blanda sér ekki i
sjálfa deiluna né hafi bein afskipti
af henni sé heldur ekkert við þvi
að segja. En jafnskjótt og skipin
kæmu inn fyrir og flugvélarnar
færu að blanda sér i deiluna er
full ástæða til að mótmæla þvi
kröftuglega.
Vestur-þýzki sendiherrann
gekk einnig á fund forsætisráð-
herra i gær. óskaði hann eftir þvi
að ákveðinn verði dagur til við-
ræðna á ráðherrastigi milli
tslendinga og Vestur-Þjóðverja.
Verður tekin ákvörðun um það
atriði siðar.
40
SÍÐUR í DAG
VIÐBRÖGÐ
BREZKRA BLAÐA
BIs. 3.
BRÚÐHJÓN
MÁNAÐARINS
BIs. 9
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
ÁN ENDURGJALDS
Bls. 11.
BATNANDI MANNI
ER BEZT AÐ LIFA
Ritdómur um ljóða-
bók
Steinunnar Guð-
mundsdóttur
Bls. 12.
ÍÞRÓTTIR
Bls. 19, 20 og 21.
LESBÓK
Brezka stjórnin reiðubúin
að senda herskip inn fyrir
I GÆR skýrði brezka utanrikis-
ráðuneytið svo frá, að þyrlur frá
brezkum herskipum væru
byrjaðar að fljúga innan 50 mílna
markanna við Island. Er þetta i
fyrsta sinn,sem flotinn tekur þátt
i landhelgisdeilunni. Þyrlurnar
fljúga frá herskipum, sem eru
skammt utan við fiskveiðilög-
söguna.
I yfirlýsingu brezka utanrikis-
ráðuneytisins segir m.a., að um
40 brezkir togarar hafi þegar
snúið við áleiðis til veiðisvæðanna
við tsland sem þeir yfirgáfu i
fyrradag.
Brezka ,stjórnin hefur lýst sig
reiðubúna að senda herskip inn i
landhelgina ef islenzku varð-
skipin halda áfram að áreita
brezka togara að veiðum.
1 gær var haldinn blaðamanna-
fundur i brezka utanríkisráðu-
neytinu og þar var gerð grein
fyrir hinni nýju afstöðu brezku
stjórnarinnar. Þar kom fram að
Joseph Goddard, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra Breta,
hafi lofað forráðamönnum fisk ■
iðnaðarins þvi, að við ákveðnar
aðstæður myndi stjórnin senda
herskip inn fyrir 50 milna mörkin
til verndar brezkum togurum.
Meðal þess,sem nefnt var sem
næg ástæða fyrir afskiptum her-
skipa var eftirfarandi:
Ef islenzk varðskip gera eitt-
hvað sem stofnað gæti lifi
brezkra sjómanna i hættu. Ef ein-
hver sá atburður gerðist innan
fiskveiðimarkanna.sem að mati
brezku stjórnarinnar gæti réttlætt
afskipti herskipanna, og ef ein-
hver sá atburður yrði, sem brezki
fiskiðnaðurinn teldi að krefðist
afskipta herskipa.
Brezku togaraskipstjórarnir
heimtuðu i fyrradag herskipa-
vernd, þegar i stað, er þeir fóru
út úr landhelginni, og voru það
mótmæli skipstjóranna gegn
vilja togaraeigenda. Brezk
stjórnvöld töldu aðgerðirnar
styrkja stöðu tslendinga og var
málið rætt I skyndi við fulltrúa
fiskiðnaðarins. Árangur þeirra
viðræðna var eftirfarandi yfir-
lýsing:
Vegna stöðugrar áreitni
Islendinga, sem hefur komið i
Framhald á bls. 23
SVIAR
STYÐJA
OKKUR
HJ Uppsölum— Wichman, utanrikisráðherra
Sviþjóðar, lýsti þvi yfir í sænska þinginu i gær,
að Sviar teldu íslendinga hafa á réttu að
standa i landhelgisdeilunni, og myndu þar af
leiðandi styðja kröfur íslendinga i fiskveiði-
málum á hafréttarráðstefnunni i Chile.
Það er sérstök ástæða fyrir íslendinga að
fagna þessari yfirlýsingu sænska utanrikis-
ráðherrans, þvi þetta er i fyrsta sinn, sem
frændur vorir á Norðurlöndunum, að
Færeyingum undanskildum, lýsa yfir af-
dráttarlaust opinberum stuðningi við okkur
hvað snertir 50 milna fiskveiðilögsöguna.
Vonandi fylgja aðrar Norðurlandaþjóðir for-
dæmi Svia i þessu efni.