Tíminn - 19.05.1973, Blaðsíða 2

Tíminn - 19.05.1973, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Laugardagur 19. mai 1973 NOTKUN negldra HJOLBARÐA ER OHEIMIL EFTIR Samkvæmt breytingu á reglugerð um gerð og búnað ökutækja er óheimilt að aka á negldum hjólbörðum á timabilinu frá 1. mai til 15. október ár hvert. Breytingin gengur i gildi 20. mai 1973. Vinsamlegast SKIPTIÐ STRAX um hjól- barða og stuðlið þannig að lægri viðhalds- kostnaði gatna og bifreiða. Hjólbarðar eiga að vera gallalausir og raufir i slitfleti þeirra a.m.k. 1 mm á dýpt. Hjól- barðar á sama öxli eiga að vera af sömu stærð og gerð. Ef bifreið, sem er innan við 3500 kg að leyfðri heildarþyngd, er ekki búin sömu gerð hjólbarða á framöxli og afturöxli skal þeim þá komið fyrir sem hér segir: FRAMÖXULL Hjólbaröar: m/skáböndum (diagonal) Hjólbarðar: m/skáböndum og beltum Iljólbarðar: m/skáböndum AFTURÖXULL Hjólbarðar: m/þverböndum (radial) IIjólbörðum m/þverböndum lljólbarðar m/skáböndum og beltum. Umferðarrað Gatnamálastjórinn i Reykjavik. Auglýsingastofa Tímans er i * Aðalstræti 7 GIIOUIIT Símar ^95"23 & 26'500 Benedikt frá Hofteigi: „Drepinn einu ÞAÐ kom nokkuð nýstárlega fyr- ir augu þjóðarinnar, er það var orðin staðreynd, að Eyjafjarðar- sýsla var komin með sýslumörk sin vestur að Jökulsá i „eystrum dölum” i Skagafirði, eins og sagt er um þetta land áður, sem ekki er gott að vita hvað kann að heita, nú þegar eitthvað er orðið ruglað um „eystrum dali i Skagafirði” i Ábæjarsókn. Þessi nýju sýslumörk koma innan úr Hæstarétti á tslandi og þvi verk islenzkra lögfræðinga. Hvernig gat á þessu staðið? Þeir, sem þekktu, þó ekki sé nema is- lenzka þjóðlifshætti, gátu ekki fellt sig við slikan dóm. Það er heldur ekkert nýtt fyrirbrigði, að dómar geti verið rangir, en það er þá allajafna fyrir misheppnaða vörn i viðkomandi máli. Það reyndar tekur ekki til neinna dóma, að slikt skuli gerast, að Eyfirðingar finni nú upp á þvi, eftir meira en 10 alda lög i landi, að Abæjarsókn i eystrum dölum sé ekki i Skagafirði innan sinna marka, sem eru fjallgarður og miðhálendi landsins. > Slikir landshættir hafa verið byggðaskipan sem lög, frá upp- hafi. Ef eitthvað annað hefur skil- ið lögdæmi og sýslur ilandinu,þá eru það ár frá upptökum til ósa. Nú er þessi nýja skipan eðlilega farin að taka á taugar manna, og hefur greindur og ritfær bóndi, Björn Egilsson á Sveinsstöðum i Tungusveit, gengið fram fyrir skjöldu Skagfirðinga með grein i Timanum 4. april s.l. Móti honum ritar i sama blað, Angantýr H. Hjálmarsson, sennilega úr Eyja- firði, er fyrr virðist hafa komið við þetta mál á þeirra vegum. Frændur kváðust þessir menn vera, en mjög ferst þeim ólikt i þessu máli, Björn kann ekki við dóminn, sem striðir á móti landsháttum og margra alda venju, en Angantýr likt og hælist um þetta nýja landnám Eyfirð- inga. Hvorugur flytur þau rök, er hér skera úr máli, og eru glögg, sem fyrir hendi eru, og er'. Skag- firðingum vorkunn, þótt þeir þætt ust ekki þurfa mikið fram að leggja i máli, sem hér var reist. Báðir minnast þó á þau rök, sem sýnilega hafa stangazt fyrir dóminum og önnur mátt lúta, þar sem þau ótvirætt sýnast að fullu PIPULAGNIR Stilli liitakerfi — Lagfæri j'ömul hita- kerl’i Set upp hreinlætis- tæki — llitaveitu- tengingar Skipti liita — Set á kerfift I)anfoss-ofn- ventla SÍMi 71388 rOAMER URIN eru höggþétt og vatnsheld Roamer-úrin eru óskagjöf hvers fermingarbarns ÉG MÆLI MEÐ ÞEIMI Helgi Júlíusson úrsmiður AKRANESI gilda, enda reyndist það fyrir undirrétti. Angantýr er svo mont- inn yfir sinum Hæstaréttarsigri, að hann hefði gott af þvi að fá annan, sem hlyti að fara á aðra lund. Hann gefur það upp, að það hafi verið gömul landamerkja- skrá Möðruvalla, sem þeim hafi að fullu dugað i þennan sigur, þar er hún teldi landamerki Möðru- valla vestur við Jökulsá i „eystr- um dölum” Skagafjarðar. Getur nokkur trúað þvi og haft fyrir satt, að landamerki Möðru- valla séu vestur við Jökulsá? Möðruvellir liggja austan ár i Eyjafirði framarlega, og landa- merki þeirrar jarðar eru i Eyja- firði austan ár. Hiklaust fara þau ekki yfir Eyjafjarðará, en itök gátu Möðruvellir átt i jarðir fyrir vestan ána. Nú gerist sú saga á Möðruvöll- um, að þar eru jafnan ofsarikir menn i búsetu á eigin eign, og eignast fjölda jarða, bæði nær sér og fjær. Einn af þeim, Loftur riki, er talinn hafa eignazt 80 bújarðir i landinu. Og hann eignast sjálf- sagt jarðirhimummeginvið Eyja- fjarðará, sem allar hafa sin ákveðnu landamerki, samkvæmt lögum i landi frá ómuna tið fram á þennan dag. Landamerki þeirra jarða heyra Möðruvöllum i engu til. Þessi sami Loftur átti Eiða i Fljótsdalshéraði og það er ekki að tala um það, að þar séu landa- merki Möðruvalla. Þar kemur að landsvæði i Skagafirði fyrir aust- an Jökulsá eystri, verður eign Möðruvallabónda, en það flytjast ekki landamerki Möðruvalla þangað fyrir þvi. Landsvæðið heitir Nýibær og kemur brátt i ljós,að hann hefur sin eigin landa- merki. Svona alþekkta lifshætti þjóðarinnar ættu engir dómar að geta raskað. Svona alþekkta sögu i landinu virðast engir Eyfirðing- ar þurfa að rengja. Loftur og kona hans deyja bæði 1432 og fjögur börn þeirra ganga til erfða i feikna auði. Eitt af þeim heitir Soffia og er þá barn að aldri, en giftist vart siðar en um 1440. Nú verður brátt gerningur um Nýjabæ, með sinum landamörk- um, svo landamerkjaskrá Möðru- valla er hreint falsskjal. Það ger- ist i Glaumbæ i Skagafirði 29. janúar 1464, að Þorleifur Árnason selur Sveini Guðmundssyni hálf- an Nýjabæ með tilteknum landamærum. Hljóðar bréfið svo á nútima stafsetningu: Það geri ég Þorleifur bóndi Árnason, góðum mönnum vitur- legt með þessu minu opna bréfi, að ég seldi Sveini Guðmundssyni til fullrar eignar hálfa jörðina Nýjabæ er liggur i Abæjar- kirkjusókn i eystrum dölum, með öllum þeim gögnum og gæðum sem greindri jörð fylgja og fylgt hafa að fornu og nýju með svoddan jarðeign. Að Tinná — og svo langt á fjöll fram, sem vötn draga, og ég varð fremst eigandi að o.s.frv. Þetta þykir Angantý ei jafn- góð landamerkjaskrá og Jals- skrá Möðruvalla. Kemur hér fram hjá Angantý i grein hans, vanvit og vanþekking. Hann ætti að vita, að öllum jörðum fylgja gildar landamerkjaskrár og það enn i dag, og enginn kaupir jörð án þess að þekkja þessa landa- merkjaskrá til fulls. Og svo vanvitugur getur Angantýr ekki verið, að gera ráð fyrir þvi, að Þorleifur sé að ljúga landamerkj- um til að gylla sina vöru, sem hann gefur i skyn. Slikir menn eiga ekki að tala um almenn eða söguleg mál. Jarðirnar giltu sin hundr. á landsvisu og hvert jarðarhundrað var borgað með 1. hundr. á lands- visu. og kom engin angantýsk refskák til mála i kaupum. En hver er svo þessi Þorleifur. Árna- son? Það er sonur Soffiu Loftsdóttur, riku, ungur og rikur bóndi i Glaumbæ. Sést nú, að Soffia hefur erft Nýjabæ með gildandi landamörkum, m.a. við Jökulsa, þar sem falsskrá telur Möðruvöllum landamerki. Hvaða lö^fræðingar eru það sem ekki þekkja það til róta.að öllum jörðum fyigir lögmæt landamerkjaskrá? • «rr sinni Hefur Soffia Loftsdóttir ekki rétta landamerkjaskrá, þegar henni er afhentur Nýibær, og svikur hún Þorleif son sinn i af- hendingu jarðarinnar i hans hendur? Er Þorleifur að beita Svein Guðmundsson brögðum i sölunni? Og kemur það svo nokkurs staðar fram að Möðru- vellingar eigi eftirleiðis nema þá hálfan Nýjabæ? Siðan gerist það sama árið, 17. des., að Sveinn Guðmundsson selst Hólastóli arfsali að hálfum Nýjabæ og miklum fémunum i lausafé, með þeim sama rétti og hann keypti hann af Þorleifi. Ger- ir Angantýr þessi ráð fyrir svik- um i þessari höndlun á jörðinni þetta ár? Og geri þessi sami mað- ur ráð fyrir þvi, að Hólastóll haldi ekki landamerkjaskrám sinum i gildi? Að dómi Angantýs gildir ekki þetta lögfesta algenga heimildargildi jarða á móti skrá, sem telur landamerki Möðruvalla við Jökulsá eystri i Skagafirði! Nýibær er i Abæjarsókn i Skaga firði. Hvenær liefir hann talizt til Möðruvallasóknar i Eyjafirði? Þótt Angantýr sé rogginn, ætti hann að skilja það, að jafnvel dómar geta breytzt i þessu landi. Þótt Angantýr sé ekki vel fróður, ætti hann að hafa hugmynd um það, hversu fast biskupsstólarnir héldu á jarðeignum sinum, og 1570, þegar Guðbrandur er að taka við biskupsembætti á Hól- um, er hann að athuga ýmsar gerðir fyrirrennara sinna, um jarðeignir stólsins, einkum ólafs Hjaltasonar og Jóns Arasonar. Þá höfðu verið gerð makaskipti á Nýjabæ (öllum?) og Saurum á Skagaströnd. Öllu sliku braski með jarðeignir stólsins riftar Guðbrandur. En um 1488 telur Goðdalakirkja sig eiga Abæ og Nýjabæ, en það er einungis i efni, að Hólastóll styrk- ir Goðdalasókn með litils háttar fjárframlagi frá Ábæjarsókn, og i jarðabók Árna og Páls á Hólastóll allan Nýjabæ og segir, að jörðinni fylgi svokallaður Nýjabæjar- afréttur og þyrfti Angantýr að læra afréttarfræði á Islandi i staðinn fyrir hræ-hlakk yfir furðu dómum. 1 þvi efni ætla ég að birta eftir- farandi, öllum til leiðinda, úr grein Angantýs 8. mai s.l. „Um þátt Eyfirðinga að nýta landið getur Björn ekki i sinni grein. Ég held^að það væri ekki að segja undan og ofan af (sic). Varla get ég álitið Björn svo fáfróðan, að hann hafi ekki vitað þetta, en væri nú svo, þrátt fyrir allt, gæti hon- um dottið i hug að rengja orð min( (sic) þá get ég frætt hann um það, að ég hef i höndum ótal skjöl, sem sanna mitt mál, og það er ekki nema sjálfsagt að birta þau opin- berlega (Eru skjöl birt leyni- lega?) eftir þörfum, ef hann ósk- ar þess”. Ég skora á Angantý að láta þessi (ótal skjöl) kom i ljós, þvi ég þykist viss um að i lögum, sögu, rökum og islenzku máli kæmi upp nýtt hugtak, sem héti angantýska. Hlýtur eitt af þess- um skjölum að sýna það, að Möðruvellir hafi landamerki við Jökulsá eystri, eftir að Hólastóll er búinn að eignast jörðina með fornum ummerkjum á jólum 1464 að hálfu! Hver notað hefir hinn helming á þessari afmörkuðu bújörð, kemur málinu ekkert við, en stutt mun það hafa verið eftir að Hólastóll eignaðist alla jörð- ina. Það sem hér er ódrepandi sann- leikur, er að landsvæðið allt i jökla fram. tilheyrir jörðinni Nýjabæ i Abæjarsókn i Skaga- fjarðarsýslu. Að reyna að hnekkja þvi, er angantýska. Við höfum nú þegar eina, og hún er sú, að lögleg landamerki hafi ekki fylgt jörðum á Islandi frá upphafi laga i landinu! En Skagfirðingar þurfa hvorugu að una, dómi þessum né angantýsku i neinni mynd. Enda þótt að Angantýr ótal músum brynni. Rétturinn er hjá drottni dýr. drepinn einu sinni. Reykjavik 10. mai 1973. BenediktGislason frá Hofteigi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.