Tíminn - 19.05.1973, Qupperneq 5

Tíminn - 19.05.1973, Qupperneq 5
Laugardagur 19. mai 1973 TÍMINN 5 Linsur fyrir litblinda Bandariskir augnlæknar telja, að þeir hafi nú fundiö ráð til þess að lækna sumar tegundir litblindu, og þá sérstaklega þegar fólk getur ekki greint á milli rauða og græna litarins. Gerðar hafa verið tilraunir með að fláta fólk fá rauða linsu fyrir annað augað, og hefur það þá átt mun auðveldara með að greina litina rétt. Hefur fólkið, sem tilraunirnar hafa verið gerðar á, sagt, að með þvi að nota linsuna hafi það farið að sjá liti, sem það hafði aldrei séð áður og vissi þvi ekki að væru til. Maður nokkur, sem ekki fékk vinnu, sem hann hafði sótt um, vegna litblindunnar, hefur nú fengið vinnuna eftir að hann fekk linsuna. Og það sem meira er, vinkona hans hefur hætt að rifast við hann yfir þvi, hvað hann sé smekklaus i litavali. Rafmagn frá sólinni Rafmagn á heimilum fram- tiðarinnar getur átt eftir að koma i gegnum þak húsanna, þannig að sólfrumur breyti sólarljósinu i rafmagn. Dr. Charles Backus, við Arizoná rikisháskólann segir, að enn sem komið er, sé þetta of kostn- aðarsamt, en þessar frumur eru nú framleiddar og notaðar á gervihnöttum og geimförum. Dr. Backus telur þó, að farið væri að framleiða þær á almennum markaði og fyrir almenning myndi fjöldafram- leiðsla leiða til einföldunar þeirra, og þá um leið yrðu þær ódýrari, og hver sem er gæti veitt sér að nota þessa tegund rafmagns. ☆ Aumingja vesalings pabbi Börn i Bandarikjunum voru fengin til þess að svara spurn- ingunni, hvað það væri að vera faðir. Þau svöruðu um hæl: — Það er sá, sem aflar mikilla eninga i góðri atvinnu, og innig kom svar eins og — Að ira að heiman á hverjum degi g koma aftur með höfuðverk. hnn drengur, sem spurður var essarar spurningar, sagðist kki vilja vera faðir vegna þess, -að þá verður maður að fara i innuna á hverjum degi og á völdin verður maður að rass- kella börnin og hlusta á þau ráta. 011 börnin, sem spurð oru, voru á aldrinum 10 og 11 ra. ☆ Fólk, sem hefur mikið dálæti á forngripum getur nú fengið 15. aldar klukku til þess að hengja upp á vegg hjá sér. Auðvitað ér þetta ekki upprunalega klukka, heldur nýtilbúinn forngripur. ☆ Það mundi liklega enginn hafa ráð á að kaupa hana, ef hún væri ☆ Áfengi og afbrot Yfir 50% allra ofdrykkjumanna i Sviþjóð eru þar á sakaskrá, en aðeins 1% bindindismanna. Þá hefur komiö i ljós, að 60% alls fangelsisrýmis i Sviþjóð er setið af fólki, sem þangað er komið vegna áfengisneyzlu. i raun og veru frá fimmtándu öld. Þetta eru eins konar riddaraklukkur, og hafa þær verið til sölu undanfariö fyrir ekki svo slæmt verð. Klukkurn- ar eru nákvæm eftirliking sams konar klukkna, sem hingað til hafa einungis verið geymdar á söfnum i Þýzkalandi og i köstul- um og höllum, sem hafa verið gerðað söfnum. Hér á myndinni sjáið þið eina slika klukku, en hún slær á hverri klukkustund. A henni eru 20 litlar figúrur úr pjátri og einnig má sjá þarna riddara, sem snýst i hring. 'Þá ☆ OQ Sonur Dýrlingsins kominn af stað Snemma beygist krókur að þvi, sem verða vill, og það sannast greinilega á Don Juan næstu kynslóðar, hinum sjö ára gamla Geoffrey Moore, syni Dýrlings- ins Roger Moore, sem brátt verður þekktastur undir nafninu James Bond, af leik sinum i mynd um þann höfðingja. Þið sjáið Geoffrey Moore hér á myndinni, og stúlkan sem er að kyssa kinn hans, eða kannski bara að hvisla i eyra honum heitir Joanna Ege, og er fjögurra ára gömuí. Móöir hennar er ekki siður þekkt en Roger Moore, hún er norska kynbomban Julie Ege. má geta þess.að hægt er aö fá þessar klukkur i sérstaklega útbúnum kössum fyrir þá, sem hafa gaman af að dunda viö að setja þær saman sjálfir, og heldur stúlkan á myndinni á hluta úr klukku, en á boröinu er kassi sem i eru geymdir hinir ýmsu hlutar klukkunnar. ☆ Dýr eiginkona Dean Martin gifti sig i april og kona hans kostaði hann 800 millj. ef trúa má þvi sem sagt er. Það er 30 ára aldursmunur á Dean Martin sem nú er 55 ára og brúöi hans, Cathy Hawn, en hún er aðeins 25 ára gömul. Þau ætl- uðu að gifta sig i aprillok, eða i byrjun mai, svo við verðum að reikna með að þau séu orðin hjón núna, þótt ekki hafi fengizt af þvi neinar ákveðnar fréttir siðustu dagana. Þá hefur Dean keypt sig lausan frá fyrri konu sinni frú Jeanne, og það á hafa kostað hann 800 milljónir króna, — dálaglegur skildingur það.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.