Tíminn - 19.05.1973, Side 6
6
TÍMINN
Laugardagur 19. mal 1973
Röntgendeild Landspítalans
Vegna breytinga og lagfæringa á húsnæöi Röntgendcildar
Landspitalans, verður inngangur og innkeyrsla til
deildarinnar frá Eiriksgötu, meöan á lagfæringum
stendur.
Breytingin gildir frá og með mánudeginum 21. mai 1973.
Skrifstofa rikisspitalanna.
Menntamálaráðuneytið
Auglýsing um
lágmarkseinkunn
á unglingaprófi
Menntamála ráðuneytið hefur ákveðið
að fella úr gildi fyrirmæli um lág-
markseinkunn i skriflegri islenzku og
reikningi á ungligaprófi, samanber bréf
ráðuneytisins þar að lútandi, dags. 20.
mai 1958.
Sama regla og áður gildir um meðaleinkunn, þ.e. að til
þess að standast unglingapróf þurfa nemendur að hafa
4.00 eða hærra i meðaleinkunn allra greina.
xnntntincti«
Menntamálaráðuneytið,
16. mai 1973.
LAUS STAÐA
Lektorsstaða i reikningshaldi og endur-
skoðun i viðskiptadeild Háskóla íslands
er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknum með ýtarlegum upplýsingum um násferil
og störf skal komið til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 16. júni n.k.
*SSf
Sumaráætlun Flugfélags íslands:
200 FLUGTÖK OG
LENDINGAR Á VIKU
SUMARAÆTLUN Flugfélags Is-
lands innanlandsflugs, sem gekk i
gildi 1. mai s.l. er sú umfangs-
mesta i sögu félagsins til þessa.
Félagið hefur nú til umráða fjór-
ar Fokker Friendship skrúfuþot-
ur til þessara flugferða ásamt
Grænlandsflugi og Færeyjaflugi.
Flug hefst alla daga kl. 8 að
morgni og siðustu flugferðir frá
Reykjavik verða kl. 21. Flugferð-
um miili staða innanlands fjölgar
nú i áföngum, en þegar sumar-
áætlunin er að fullu gengin i gildi
verður ferðum hagað, sem hér
segir:
Frá Reykjavik til Akureyrar
verða 27 ferðir á viku, þ.e. 4 ferðir
alla daga nema miðvikudaga, þá
eru þrjár ferðir. Til Vestmanna-
eyja verða 17 ferðir vikul., tvær
ferðir alla daga og þrjár ferðir á
mánudögum, föstudögum og
laugardögum. Til Egilsstaöa
verða fjórtán ferðir vikulega þ.e.
tvær ferðir alla daga. Til
Isafjaröar verða tiu ferðir á viku,
tvær ferðir á miðvikud., föstud.,
og laugard. Til Hafnar i Horna-
firöi, verða niu ferðir vikulega.
Þar af tvær ferðir á þriðjudögum
og sunnudögum. Til Sauöárkróks
verður flogið'á mánudögum, mið-
vikudögum, föstudögum og
laugardögum, til Patrcksfjaröar
á mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum. Flug til Fagurhóis-
mýrar verður á þriðjudögum og
sunnudögum Til Húsavikur verð-
ur flogið á mánudögum miðviku-
dögum og föstudögum og til
Kaufarhafnar og Þórshafnar á
mánudögum og fimmtudögum.
Flug til Norðfjarðar verður á
þriðjudögum og laugardögum,
flug til Þingeyrar á mánudögum
og föstudögum. Þá verða fiug-
ferðir milli Akureyrar og Egils-
staðafram og aftur á þriðjudög-
um og föstudögum.
Auknir
ferðamöguleikar
í sambandi við ofangreindar
flugferðir verða ferðir með
áætlunarbifreiðum frá flugvöll-
unum til nærliggjandi byggðar-
laga, svo sem verið hefur á
undanförnum árum.
Sumaráætlun Flugfélags ís-
lands er sett upp fyrst og fremst
með þarfir islenzkra viðskipta-
vina i huga. Siðan er unnið að þvi
að fá hina erlendu ferðamenn,
sem hingað sækja, svo og ferða-
skrifstofurnar til þess að aðlaga
sig þessum ferðum. A þann hátt
er leitazt við að fá hina erlendu
gesti til þess að nýta þessar ferðir
og hjálpa þannig til þess að halda
uppi örum flugsamgóngum milli
staða innanlands.
Vert er að vekja athygli á þvi,
að eins dags ferðir frá Reykjavik
til margra staða á landinu eru nú
mögul. i mörg ár hafa erlend-
ir gestir, sem hér hafa skamma
viðdvöl, átt þess kost að fljúga til
Akureyrar, ferðast til Mvyatns og
aftur til Akureyrar og Reykjavik-
ur, samdægurs. Þessi leið er fjöl-
farin og Flugfélag Islands hefur
upp á siðkastið i vaxandi mæli
beint slikum farþegum til ann-
arra staða jafnframt, svo sem til
Hornafjarðar, Fagurhólsmýrar
til Egilsstaða og til Isafjarðar og
Húsavikur. Þá hefur einnig verið
unnið að þvi áð beina farþegum til
Sauðárkróks og þaðan til Siglu-
fjarðar. Stefnt hefur verið að þvi,
að erlendir ferðamenn nýti flug-
ferðir og þær ferðir með
áætlunarbilum, sem settir hafa
verið upp til flugvalla og nær-
liggjandi byggðarlaga, i stað þess
að setja upp ferðir fyrir erlendu
ferðamennina sérstaklega. A
siðari árum hefur vaxandi fjöldi
Islendinga einnig notfært sér þá
möguleika, sem flugið og fram-
haldsferðalag i langferðabilum
viðs vegar um land hefur upp á að
bjóða.
82. skólaslit
Stýrimannaskólans
STÝ RIMANNASKÓLANUM i
Reykjavik var sagt upp hinn 12.
mai i 82 sinn. Viðstaddur var
ráðuneytisstjóri menntamála-
ráðuneytisins, Birgir Thorlacius.
kona hans, og margir fleiri gestir,
þeirra á meðal margir eldri nem-
endur skólans.
1 upphafi minntist skólastjóri
þeirra eldri nemenda skólans,
sem látizt höfðu á sl. vetri, og
annarra sjómanna, en þetta var
óvenjumikill slysavetur.
Þá gaf skólastjóri stutt yfirlit
yfir starfsemi skólans á liðnum
vetri, og gat þess jafnframt, að
skipuð hefði verið 7 manna skóla-
nefnd samkvæmt nýjum lögum
frá 1972. 1 henni eiga sæti:
Kristján Aðalsteinsson, skip-
stjóri, formaður, Guðmundur
Kjærnested, skipherra: Páll
Guðmundsson, skipstjóri,
Gunnar Hafsteinsson, lög-
fræðingur, Jón Magnússon, lög-
fræðingur og auk þeirra 2
nemendur skólans skipaðir til
eins árs, þeir Halldór Halldórsson
og Olafur örn Gunnarsson.
Skólastjóri ræddi nokkuð þá
tiðu skipstapa, sem orðið höfðu á
sl. vetri og brýndi fyrir verðandi
skipstjórnarmönnum að sýna
fyllstu árvekni og aðgæzlu, og
treysta ekki um of á siglinga- og
öryggistæki, þó fullkomin séu. I
þessu fælist ekki gagnrýni á
tækin sem slik, en skipstjórnar-
maðurinn,sem að baki þeim stæði
væri þó sá, sem mestu varðaði.
Þá ræddi hann hinn mikla
skort, sem væri á mönnum með
full skipstjórnarréttindi og ráð til
úrlausnar á þeim vanda, en taldi
þó að ekki komi til greina að
slaka á núverandi námskröfum.
Einnig minntist skólastjóri á
útfærslu fiskveiðilandhelginnar
og taldi að hún væri okkur svo
brýn að ekki mætti gefa eftir, þó
sjálfsagt væri að reyna að finna
friðsamlega lausn, ef þessi væri
kostur.
Að þessu sinni luku 29
nemendur farmannaprófi 3. stigs
og 40 fiskimannaprófi 2. stigs.
Hæstu einkun á farmannaprófi
fékk Arni Sigurbjörnsson,
7,56, og hlaut hann verðlauna-
bikar Eimskipafélags lslands,
farmannabikarinn. Hæstu einkunn
á fiskimannaprófi fékk Rúnar
Sigurjónsson, 7,49, og hlaut hann
verðlaunabikar öldunnar, öldu-
bikarinn.
Hámarkseinkunn er 8
Bókaverðlaun úr verðlauna- og
styrktarsjóði Páls Halldórssonar,
fyrrverandi skólastjóra, hlutu
eftirtaldir nemendur, sem allir
höfðu fengið ágætiseinkunn f Arni
Sigurbjörnsson, Asmundur
Björnsson, Guðmundur Sverrir
Ölafsson, Hilmar J. Hauksson,
Jón Björgvinsson, Kristján
Halldórsson, Rúnar Sigurjónsson,
Þorsteinn Vilhelmsson og Ölver
Skúlason.
Skipstjórafélag Islarids veitti
Hafsteini Ómari Þorsteinssyni
bókaverðlaun fyrir hámarks-
einkunn í siglingareglum við far-
mannapróf.
Að lokinni ræðu skólastjóra tók
til máls Birgir Thorlacius, ráðu-
neytisstjóri. Ræddi hann nokkuð
skólamál almennt og þó einkum
verk- og tæknimenntun, sem hann
kvað hafa verið lögð of litil
áherzla á fram að þessu. Minntist
hann hússins, sem nú er i smiðum
við skólann og lét i ljós þá von að
með þvi mundi batna aðstaða til
tækjakennslu.
Af hálfu 20 ára nemenda
skólans taiaði Jón Kr. Gunnars-
son. Færðu þeir skólanum að gjöf
brjóstmynd i eir af Friðrik V.
Ólafssyni fyrrverandi skóla-
stjóra, sem Sigurjón Ölafsson
hafði gert. Dóttir Friðriks Þóra,
afhjúpaði listaverkið og þakkaði
gefendum fyrir hönd þeirra syst-
kina og annarra aðstandenda þá
virðingu, sem þeir sýndu minn-
ingu hans.
Guðmundur H. Oddsson og
kona hans færðu Verðlauna- og
styrktarsjóði Páls Halldórssonar
25 þúsund krónur i tilefni af 40
ára prófafmæli Guðmundar.
Bryndis Jónsdóttir, forstöðu-
kona sumarhótelsins i Sjómanna-
skólanum færði Stýrimanna-
skólanum málverk eftir Valgeir
Guðmundsson.
Skólastjóri þakkaði góðar
gjafir og hlýhug i garð skólans.
Þá þakkaði hann gestum kom-
una, kennurum samstarfið á liðnu
skólaári, nemendum árnaði hann
heilla og sagði skólanum slitið.
Að lokinni skólauppsögn var
sameiginleg kaffidrykkja i veit-
ingasal Sjómannaskólans, og
önnuðust félagskonur i Kven-
félagi Öldunnar framreiðslu.
Rakarastofa Austurbæjar
flytur í Sjónvarpshúsið
Rakarastofa Austurbæjar, sem lengi hefur verið til húsa I Heklu-
húsinu, Laugavegi 172, hefur fiutt starfsemi sina aðeins innar á
Laugaveginn, nánar tiltekið á Laugaveg 176, þar sem Sjónvarpið er
til húsa.
Eigendur rakarastofunnar, þeir Skúli Nielsen og Þorberg Ólafsson,
buðu blaðamöpnum að skoða hið nýja húsnæði stofunnar, sem er einkar
vistlegt. Auk þess, sem Skúli og Þorberg klippa og snvrta viðskiptavini
rakarastofunnar samkvæmt nýjustu tizku, hafa þeir á hoðstóium
ynisar snýrtivörur, sem stiiitar eru út á stofunni.