Tíminn - 19.05.1973, Side 8
8
TÍMINN
Laugardagur 19. maí 1973
Suðurhlið Ileildar i Klettagörðum. Þar veröa engar dyr heldur verður eingöngu gengið inn i húsiö að noröanverðu. Suðurhliðin er skreytt
lágmyndum, sem Sigurjón ólafsson, myndhöggvari hefur gert. —Timamynd — Róbert.
19 heildverzlanir undir einu þaki
A FÖSTUDAGINN fór fram
vigsla mikillar byggingar, sem
stendur við Klettagarða 1-15, i
næsta nágrenni Sundahafnar. Að
þessari byggingu standa 19 heild-
sölufyrirtæki i Reykjavík og
munu öll hafa þarna aðstöðu og
starfssemi.
í vigsluræðu sinni sagði
stjórnarformaður Heildar h.f, að
hugmynd að slikri samvinnu is-
lenzkra heildverzlana hefði lengi
verið á döfinni, en hún hefði orðið
1 TILEFNI af greinum, sem birzt
hafa opinberlega, og varöa
skýrslu viðskiptafr.nema um
samvinnuhreyfinguna, vill fram-
kvæmdanefnd ráðstefnunnar
taka fram eftirfarandi, til að
forða frá frekari misskilningi
Dagana 10.-11. marz s.l. gekkst
Félag viðskiptafræðinema við
Háskóla tslands fyrir ráðstefnu á
Akureyri um samvinnu-
hreyfinguna. Markmið ráð-
stefnunnar var annars vegar að
auka kynni viðskiptafræðinema
af samvinnuhreyfingunni og at-
vinnurekstri hennar, og hins
vegar að vera vettvangur
skoðanaskipta meðal þátttak-
enda.
Til þess að auðvelda að þessum
markmiðum yrði náð, var
ákveöið að semja skyldi skýrslu.
Hlutverk skýrslunnar var fyrst og
fremst það aö vera þáttur i
undirbúningi viðskiptafræðinema
sjálfra og i annan stað að vera
umræðugrundvöllur fyrir
ráðstefnuna. Ef ætlun okkar hefði
verið sú að gera heildarúttekt á
samvinnuhreyfingunni, hefðum
við staðið öðruvisi að verki t.d.
að veruleika eftir óslóarför heild-
sala sumarið 1970.
Byrjað var á byggingarfram-
kvæmdum sumarið 1971 og hér er
ekki um neina smáræðis bygg-
ingu að ræða. Hún er 42 þúsund
rúmmetrar að stærð. Margs kon-
ar nýjungum var beitt viö bygg-
ingu hússins og kostnaður við
byggingu hvers rúmmetra i
byggingunni er aðeins hluti af
þvi, sem gangverð er nú á rúm-
metra i slikum verzlunarhúsum.
samið skýsluna að ráðstefnu
lokinni og eytt meira en þessum
tæpu tveim nánuðum af okkar
námstima i gerð skýrslunnar.
Vegna þess að skýrslunni var
aldrei ætlað það hlutverk að
spegla álit viðskiptafræðinema
sem heild á samvinnuhreyfing-
unni, var hún aldrei ritskoöuð eöa
samræmd með tilliti til efnis.
Akveðin var skipting efnis i
undirkafla sem hver var siðan
saminn af 2-3 viöskiptafræðinem-
um og voru þeir algjörlega á
ábyrgð höfunda. Skýrslan var
aldrei ætluð til almennrar
dreifingar.
Nú bregöur svo vií^að höfundar
tveggja undirkafla skýrslunnar,
birta sina kafla i Morgunblaðinu
5. og 6. april s.l. Fjölluðu
greinarnar um skattlagningu og
fjármagnsuppbyggingu sam-
vinnufyrirtækja. Framkvæmda-
nefnd ráöstefnunnar gerði ath.
semd i sama blaði (6. april), sem
itrekaði að umræddar greinar
væru einungis álit höfunda.
t viðtali við Erlend Einarsson
forstjóra SIS, sem birtist i
Arkitektar að húsinu voru þeir
Guðmundur Kristinn Guðmunds-
son og Ólafur Sigurðsson.
Heildverzlanirnar 19, sem
mynda Heild h.f. eru þessar:
Agúst Armann h.f., Andrés
Guðnason, Björgvin Schram,
Edda h.f., G. Einarsson & Co h.f.,
G.S. Júliusson, Gevafoto h.f.,
Gisli Jónsson & Co h:.f., Jóhann
Rönning h.f., K. Þorsteinsson &
Co h.f., K. Þorvaldsson & Co,
Kristinn Bergþórsson, Jóhann
Timanum 15. mai s.l., ræðir Er-
lendur um skattakafla
skýrslunnar og gagnrýnir
fullyrðingar höfunda (Kristjáns
Aðalsteinssonar og Magnúsar
Hreggviðssonar).Við viljum ekki
leggja mat á deiluefni þetta en
hörmum að hvergi komi fram
annað en þessi kafli sé álit og
vinna allra viðskiptafræðinema
við Háskóla Islands og að eigi sé
tekið tillit til i hvaöa tilgangi hann
sé saminn.
Við viljum að lokum þakka hin-
um fjölmörgu samvinnu-
mönnum, sem aðstoðuðu okkur
viðvikjandi ráðstefnuna. Nutum
við einstakrar vinsemdar og
hjálpsemi. Það er samdóma álit
þátttakenda úr hópi viðskipta-
fræðinema, að megintilgangi ráð-
stefnunnar hafi verið náð og þau
kynni af samvinnuhreyfingunni,
sem fengust þar, hafi vel verið
þess erfiðis virði, sem i undir-
búningnum fólst.
Framkvæmdarnefnd ráðstefnu
F.V.F.N.
ólafsson & Co h.f., Ólafur Gisla-
son & Co h.f., S. Óskarsson & Co,
Sveinn Helgason h.f., Snyrtivörur
h.f, Vogue h.f., V.H. Vilhjálms-
son.
Franska
byltingin
II. bindi
KOMIÐ er út siðara bindi
Frönsku byltingarinnar eftir
Albert Mathiez i þýðingu Lofts
Guttormssonar sagnfræðings.
Skiptist það i tvo meginkafla, sem
nefnast Rikisstjórn Girondina og
ógnarstjórnin.
Nokkrar myndir eru fremst i
bókinni, sem er 359 bls. prentuð
hjá Setbergi, gefin út af Máli og
menningu, bókband annaðist
Setberg. —SJ
Ferðastyrkir til
Bandaríkjanna
MENNTASTOFNUN Bandarikj-
anna á Islandi (Fulbright-stofn-
unin) tilkynnir að hún muni veita
ferðastyrki Islendingum, er feng-
ið hafa inngöngu i háskóla eða
aðrar æðri menntastofnanir i
Bandarikjunum til framhalds-
náms á námsárinu 1973-74: Styrk-
ir þessir munu nægja fyrir ferða-
kostnaði frá Reykjavik til þeirrar
borgar, sem næst er viðkomandi
háskóla og heim aftur.
Umsækjendur um styrki þessa
verða að vera islenzkir rikis-
borgarar og hafa lokið háskóla-
prófi, annaðhvort hér á landi eða
annars staðar utan Bandarikj-
anna. Með umsóknum skulu
fylgja afrit af skilrikjum fyrir
þvi, að umsækjanda hafi verið
veitt innganga i háskóla eða æðri
menntastofnun i Bandarikjunum.
Einnig þarf umsækjandi að geta
sýnt, að hann geti staðið straum
af kostnaði við nám sitt, og dvöl
ytra, og sýna heilbrigðisvottorð.
Umsóknareyðublöð eru afhent
á skrifstofu Menntastofnunarinn-
ar Nesvegi 16, Reykjavik, sem er
opin frá 1-6 e.h. alla virka daga
nema laugardaga. Umsóknirnar
skulu sendar i pósthólf stofnunar-
innar nr. 7133, Reykjavik, fyrir
31. mai 1973.
Fundur her-
stöðvaand-
stæðinga á
þriðjudag
Herstöðvaandstæðingar á Suður-
nesjum efna til almenns fundar
um brottför hersins nk. þriðju-
dagskvöld 22. mai i Ungmenna-
félagshúsinu i Keflavik. og hefst
hann kl. 8,30.
Eftirtaldir menn flytja ræður á
fundinum: Gunnlaugur Stefáns-
son formaður Æskulýðssambands
tslands, Karl Sigurbergsson
bæjarfulltrúi, Ólafur Ragnar
Grimsson lektor.
Fundurinn er öllum opinn.
Allir í fiski á
Stöðvarfirði
og
Breiðdalsvík
BK—Stöðvarfirði. — Hvalbákur
kom hingað i gær úr fyrstu veiði-
ferð sinni með 110 lestir eftir sjö
daga útivist. Aflinn er unnin á
Stöðvarfirði og Breiðdalsvik.
Þeim hluta hans, sem unninn er á
Breiðdalsvik, er ekið þangað. Er
gert ráð fyrir að Hvalbakur landi
á þessum stöðum til skiptis, en
hann er sameign beggja byggðar-
laganna.
Skipstjóri á Hvalbak er Einar
Asgeirsson. Hann lét vel af skip-
inu og er ánægður með það eftir
fyrstu veiðiferðina.
Allir, sem vettlingi geta valdið,
eru nú að starfi við fiskvinnsluna.
Skólinn hér er hættur i vor og
unglingarnir komnir i vinnu. Er
óhætt að segja, að allir, sem kæra
sig um að vin'na, eru nú við fisk-
vinnslu, og er sömu sögu að segja
á Breiðdalsvík.
Tveir nýir
sóknar-
prestar
PRESTKOSNING fór fram i
Vallanesprestakalli í Múla-
prófastdæmi ,13. mai s.l. Atkvæði
voru talin á skrifstofu biskups i
dag. Umsækjandi um presta-
kallið var einn, sr. Gunnar
Kristjánsson, settur sóknar-
prestur þar. A kjörskrá voru 621,
þar af kusu 331. Umsækjandi
hlaut 329 atkvæði, 2 seðlar voru
auðir. Kosningin var lögmæt.
S.l. sunnudag fór fram prest-
kosning í ólafsfjarðarprestakalli.
Umsækjandi var einn, séra Úlfar
Guðmundsson, settur sóknar-
prestur þar. Talning atkvæða fór
fram á biskupsskrifstofunni i
gær. A kjörskrá voru 607, atkvæði
greiddu 432. Umsækjandi hlaut
430 atkvæði, einn seðill var auður
og annar ógildur. Kosningin var
lögmæt.
Bæjarfógetinn
á Akranesi
biðst lausnar
FORSETI Islands hefur hinn 16.
þ.m. samkvæmt tillögu dóms-
málaráðherra veitt bæjarfóget-
anum á Akranesi, Jónasi Thor-
oddsen, lausn frá embætti, að eig-
in ósk.
Dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
ið, 18. mai 1973.
r
Arnað heílla
HARALDUR M. Sigurðsson
framkvæmdastjóri skrifstofu
framsóknarmanna á Akureyri er
fimmtugur i dag. Hans verður
nánar getið i Islendingaþáttum.
Timinn og Framsóknarflokkur-
inn færa honum beztu árnaðar-
óskir i tilefni af afmælinu og inni-
legustu þakkir fyrir vel unnin
störf i þágu þessara aðila.
A fimmtudaginn afhentu forráðamenn Ford-umboðsins, Sveins Egilssonar, aðalvinninginn i happa-
drættinu, sem haldið var isambandi við Bilasýninguna. Var vinningurinn nýr Ford bíll og hlaut hann 21
árs gainall húsgagnabólstraranemi.Jón Sigurðsson, Grettisgötu 73, Reykjavik. Hér á þessari mynd af-
hendir sölustjóri Ford-umboðsins, Jóhannes Astvaldsson Jóni lyklana aö bilnum. Með þeim eru á mynd-
inni 3 menn úr sýninganefnd Bilasýningarinnar þeir Matthias Guðmundsson, Guðmundur Þórðarson og
Þórir Jónsson. (Tímamynd: Róbert)
Samvinnuhreyfingin
Skýrsla viðskiptafræðinema