Tíminn - 19.05.1973, Blaðsíða 20

Tíminn - 19.05.1973, Blaðsíða 20
20 TÍMINN Laugardagur 19. mai 1973 Schnellinger sést hér halda á Evrópubikar bikarhafa. Myndin var tekin 19í>8, en þá sigraði A.C. Milan einnig kcppnina. AC Milan fékk óskastart. . . . . . skoraði mark eftir aðeins 3 mín. gegn Leeds. Markið tryggði félaginu Evrópu- meistaratitil bikarhafa LEIKMENN A.C. Milan fengu heldur betur óskastart i úrslita- leik Evrópukeppni bikarhafa, er fór l'ram i Saloniki I Grikk laudi á miðvikudagskvöldið. t>eir skoruðu mark strax á 3 min. leiksins. I>að var Chiarugi, sem skoraði beint úr aukaspyrnu. Hann tók hana rétt fyrir utan viteteig, — leikmenn Leeds, stilltu sér upp i varnarvegg. Chiarugi skaut snúningsbolta fram hjá varnarvegg Lceds. Har- way markvörður kastaði sér, en náði ekki að verja knöttinn. Hann rétt kom við hann með fingur- gómunum — sló hann i stöng og inn. Chile vann CHILE sigraði Perú 2:0, i ieik landanna, i undankeppni HM í knattspyrnu. Fyrri leik landanna lauk með sigri Perú 2:0 og þurfa liðin þvi að leika aukaieik um það, hvort liðið leiki gegn sigur- vegaranum i 9. riðli I Evrópu, um sæti i úrslita- keppninni i V-I>ýzkalandi 1974. Eftir markið fóru leikmenn A.C. Milan i vörn og V.-Þjóðverj- inn Schnellinger stjórnaði frá- bærum varnarleik liðsins, sem Leeds átti i erfiðleikum með að brjóta niður. Þau skot.sem komu að marki, bjargaði Cudicini oft ótrúlega. Undir lokin sóttu leik- menn Leeds nær stöðugt, og um 45. þús. áhorfendur, sem sáu leik- inn, voru á bandi Leeds. Undir lokin kom fyrir atvik, sem áhorf- endum likaði ekki. Rivera braut illa á Norman Hunter. Hinn skap- stjóri Hunter missti stjórn á skapi sinu og réðist á Rivera. Stöðva þurfti leikinn og dómarinn, sem var griskur, rak tvo leikmenn út af. Þá Hunter og Salnoani. Áhorf- endur þustu inn á völlinn og það þurfti að kalla á lögreglu til að skerast i leikinn. Dómari leiksins, dæmdi hann mjög illa og er sagt að hann hafi skemmt leikinn. Hann dæmdi að minnsta kosti þrjár vitaspyrnur af Leeds — en það var brotið illi- lega á leikmönnum Leeds inn i vitateig. Ahorfendur bauluðu á leikmenn A.C. Milan, þegar þeir tóku á móti verðlaununum, en hylltu Framhald á bls. 23 Hér á myndinni sjást leikmenn A.C. Milan vera aö þrasa I dómara, sem heldur á gula kortinu. Fyrirliðinn Rivera stendur fyrir framan dómarann, en leikmaður nr. 7 er Salnoani, sem var visað af leikvelli I leiknum gegn Leeds. Sigruðu 3 : 0 ú Wembley. Alan Ball sýndi stórleik, varnarmenn Wales réðu ekki við hann Englendingar sönnuðu það i vik- unni, að þegar þeir eru i „stuði”. eru þeir illsigrandi i knattspyrnu. Þeir léku gegn Wales á Wembley og unnu með yfirburðum 3:0 og hefði sigurinn getað orðið stærri. Enska liðiö með Alan Ball sem bezta mann, hafði algjöra yfir- burði. Hann lék mjög vel og skap- aði oft hættu með góðum kross- boltum fyrir mark Wales. Markakóngarnir þrir, Chann- on, Chivers og Clark, i framlinu enska liðsins, áttu stórgóðan leik og ógnuðu hvað eftir annað með hraða sinum. Chivers skoraði fyrsta mark leiksins á 24. min. Siðan bætti fyrrverandi félagi hans hjá Southampton, Channon, marki við og þriðja markið skor- aði Martin Peters. Enska liðið var þannig skipað: Shilton (Leicester), Storey (Arsenal), Hughes (Liverpool), McFarland (Derby), Moore (West Ham), BaM (Arsenal), Bell (Man. City), Peters (Tottenham), Channon (Southampton), Chivers (Totten- ham) og Clarke (Leeds). Bobby Moore lék sinn 102 landsleik, og bendir allt til að hann slái lands- leikjamet Bobby Charlton (106 leikir). Chivers skorar nú mark I hvcrjum Iandsleik. Óvæntur sigur N. íra gegn Skotum Jennings markvörður sýndi fróbæra markvörzlu Norður-trar komu heldur betur á óvart, þegar þcim tókst að sigra Skota á Hampden Park i Glasgow á miðvikudagskvöldið 2:1. Þeir léku vel i fyrri hálfleik og skoruðu strax mark á 4. min. Það var Martin O'Neill sem skoraði, eftir fyrirgjöf frá Trevor Anderson. Anderson, hinn ungi leikmaður Manchester United, var aftur á ferðinni á 17 min. Þá skoraði hann gott mark, og leit út fyrir að N-lr- ar mundu kafsigla Skota. Skotar sóttu mun meira i siðari hálfleik, en þeir áttu i erfiðleikum með Terry Neil (Hull City), sem lék sinn 58 landsleik (N-trskt lands- leikjamet). Það var ekki fyrr en rétt fyrir leikslok, að Skotum tókst að koma knettinum fram hjá Pat Jennings, markverði, en hann varði frábærlega i leiknum. Ken Daglich, Celtic, skoraði markið. STAÐAN Staðan er nú þessi I brezku meistarakeppninni i knattspyrnu landsliða. England 2 2 0 0 5:1 4 Skotland 2 1 0 1 3:2 2 N-lrland 2 1 0 1 3:3 2 Wales 2 0 0 2 0:5 0 Tveir leikir verða leiknir i dag, þá mætast England—Skotland og N-trland—Wales Pat Jennings, sýndi stórleik gegn Skotum. Austur-Þjóðverjar unnu AUSTUR-ÞJÓÐVERJAR sigruðu Ungverjaland i vináttulandsleik i knatt- spyrnu. Leikurinn fór fram i A-Þýzkalandi á miðvikudags- kvöldið og lauk með 2:1 sigri A.-Þjóðverja. A.-Þjóðverjar hafa verið að sækja i sig veðrið i knatt- spyrnu, á undanförnum árum, og eru miklir möguleikar á þvi, að liðið komist i úrslit HM i knattspyrnu. En þeir leika i sama riðli og Rúmenia, Albania og Finnland i undan- keppninni og standa þar bezt að vigi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.