Tíminn - 19.05.1973, Page 21
Laugardagur 19. mai 1973
TÍMINN
21
RICKY BRUCH OG
DANEK TIL REYKJA-
VlKUR
FRI hefur boðið Ricky
Bruch heimsmethafa í
kringlukasti og Ludvig
Danek, Tékkóslóvakíu,
oly mpíumeistara, á
Reykjavíkurleiki í frjáls-
um íþróttum sem fram
fara 9. og 10. júlf n.k. Ekki
er vitað hvort þeir þiggja
boðið, en við verðum að
vona það í lengstu lög.
Einnig er búizt við, að sovézkir
og danskir iþróttamenn keppi á
mótinu, sem ætti að verða hið
veglegasta.
Aðalviðburður sumarsins hér
heima verður Evrópubikar-
keppnin i tugþraut og fimmtar-
þraut kvenna. Eftirtalin lönd
keppa: Danmörk, Holland,
Belgia, Frakkland, Bretland, Ir-
land og tsland. Fjórir keppendur
eru i hvorri grein frá hverri þjóð,
en þrir reiknast til stiga. Belgiu-
menn senda aðeins keppendur i
tugþrautina. Margir heimsfrægir
iþróttamenn og konur eru vænt-
anlegir til Reykjavikur til þessar-
ar keppni, en frægust er sennilega
olympiumeistarinn Mary Peters
frá N.-lrlandi, sem setti heims-
met i fimmtarþraut i Miinchen.
Þá koma og einir 3-4 tugþrautar-
menn, sem náð hafa um 8000 stig-
um, t.d. Peter Gabbett, Bret-
landi, Schmidt Jensen, Dan-
mörku, Freddie Herbrand, Belgiu
o.fl. Þriggja manna yfirdóm-
nefnd frá Evrópusambandinu
kemur til Reykjavikur i sam-
bandi við keppnina, en formaður
hennar er Dr. Georg Czerwinski,
form. austur-þýzka Frjáls-
iþróttasambandsins.
Dagana 9.-10. júli verða haldnir
Reykjavikurleikar, en
Frjálsiþróttasambandið stefnir
að þvi að slikir leikir verði árviss
atburður og það er von núverandi
stj. FRl,aðávallt verði reynt
að vanda mjög til mótsins og fá
fræga útlenda kappa á mótið. Boð
var sent til allra Evrópulanda, en
þvi miður hefur aðeins komið já-
kvætt svar frá einu landi, Sovét-
rikjunum, en þaðan koma tveir
keppendur. Þvi miður vitum við
ekki enn hverjir það verða. Þetta
boð, sem við sendum til Evrópu-
landanna og raunar Bandarikj-
anna einnig, var þannig byggt
upp, að FRl bauð fritt uppihald og
dagpeninga i samræmi við reglur
IAAF, en sambönd og félög kepp-
enda urðu að greiða ferðir. Auk
sovézku keppendanna standa
vonir til að 4-5danskir keppendur
komi. Allstór hópur danskra
frjálsiþróttamanna er væntanleg-
ur hingað 11. júli eða daginn eftir
Reykjavikurleikana, en sterkar
likur eru á þvi, að 4-5 beztu menn-
irnir komi það timanlega, að þeir
geti tekið þátt i Reykjavikurleik-
unum.
Loks var ákveðið, á stjórnar-
fundi FRl nýlega, að bjóða þeim
Ricky Bruch heimsmethafa i
kringlukasti og Ludvig Danek
Tékkóslóvakiu, olympiumeistara
til keppninnar, og er vonandi, að
þeir þiggi boöið, en úr þvi fæst
skorið bráðlega. Sambandið
bauðst til að greiða ferðir þeirra.
Frjálsiþróttalandslið karla og
kvenna tekur þátt i Evrópubikar-
keppni (undanrásum), sem fara
fram 30. júni og 1. júli. Stúlkurnar
keppa á Lyngby Stadion i ná-
grenni Kaupmannahafnar, en
karlarnir á Heysel-leikvanginum
i Brussel, en á þeim leikvangi
unnu islenzkir iþróttamenn ein
sin mestu afrek. A EM 1950, sem
þar fór fram hlutu Huseby og
Torfi EM-titla og örn Clausen
silfur i tugþraut. Auk þess komust
landarnir i úrslit i nokkrum
greinum.
Tugþrautarlandslið okkar
keppir við Spán og Bretland i
Framhald á bls. 23
RICKY BRUCII......sést hcr kasta kringlunni s.l. sumar á Laugardals-
vellinum.
Evrópubikarkeppni, EM unglinga o.fl.
d dagskrd frjdlsíþróttafólksins í sumar
,,Það hefur stundum andað
kalt af iþróttasiðum Timans
til knattspyrnuliðs U.M.F.
Breiðabliks. Sérstaklega
hefur þetta verið áberandi,
eftir að liðið hóf að leika i 1.
deild.
1 upphafi keppnistimabils-
ins hefur liðið verið dæmt til
að falla, og ekki hafa þeir,
sem skrifa gagnrýni um lið-
ið, látið sitt eftir liggja að
þessir dómar stæðust. Ef lið-
ið hefur unnið leik, hefur það
verið fyrir einskæra heppni,
eða þá að liðið hefur dregið
mótherjann niður á hið sama
lága knattspyrnusvið, sem
þeir sjálfir eru á, að mati
blaðsins.
Ég man ekki til þess, að
hafa á siðum þessa blaðs,
fyrr né siðar, séð frásögn af
góðum leik hjá liðinu. Enda
kannske ekki ástæða til. Ég
læt öðrum eftir að dæma það.
Hitt er öllu athyglisverð-
ara, þegar blaðið leyfir sér
aö birta upplogna frétt um
leik I.A. og Breiðabliks, sem
fram fór á Akranesi siðast-
liðinn laugardag. Með stóru
letri er fyrirsögnin: „Verður
lið Breiðabliks sett i keppnis-
bann?”. Siðan er itarleg frá-
sögn um það, hvernig
Breiðabliksmenn gátu ekki
sætt sig við úrskurð dómara
leiksins og gengu loks allir af
leikvelli i mótmælaskyni.
Siðan veltir greinarhöfundur
vöngum yfir þvi, hvern enda
þetta fái. Málið fari fyrir
knattspyrnudómstóla og
sennilegasta niðurstaöa
verði sú að lið Breiðabliks
verði dæmt i keppnisbann.
Helzt má skilja á greininni,
að nú sé loksins komið að þvi
að Breiðablik fái makleg
málagjöld.
Daginn eftir birtist smá-
grein á iþróttasiðu blaðsins,
þar sem segir, að áreiðan-
legar heimildir hafi ekki ver-
ið eins áreiðanlegar og ráð
var fyrir gert. Ekki eitt ein-
asta afsökunarorð til leik-
manna Breiðabliks vegna
þessara mistaka.
Það mætti ætla, að um-
sjónarmaður iþróttasiðu
Timans, sem sjálfur er for-
maður eins stærsta knatt-
spyrnufélags landsins, sæi
sóma sinn i þvi, að þær frétt-
ir, sem birtar eru á iþrótta-
siðunni hafi a.m.k. einhverj-
ar staðreyndir við að styðj-
ast.
Lið Breiðabliks hefur verið
svo lánsamt, að fá ætið hinn
bezta vitnisburð um prúð-
mennnsku og drengilega
framkomu, bæði utan vallar
og innan. Svona æsifregn
kemur þvi eins og hnefahögg
i andiit þessara drengja, sem
við erfiðar aðstæður og oft
skilningsleysi yfirvalda á
gildi iþróttanna, hafa lagt
mjög hart að sér við æfingar
og kappleiki. Hitt, að biðjast
ekki afsökunar á þessum
rangfærslum, er liklega bara
venjulegur dónaskapur.
Virðingarfyllst,
Jóhann Baldurs”
Athugasemd
íþróttasiöa Timans þakkar
Jóhanni Baldurs hógvært bréf.
iþróttasiöunni þykir leitt, ef
aðdáendum Breiöabliks hefur
fundizt anda köldu i garð
félagsins hér á siðunni, en trú-
lega eru ekki allir sömu
skoðunar og Jóhann, hvað þaö
snertir. llins vegar er íþrótta-
siðan samnvála greinar-
höfundi um það, að lið Breiöa-
bliks hafi ætið fengið góðan
vitnisburð um prúðmennsku
og drengilega framkomu.
Þess vegna kom fregnin frá
Akranesi okkur á óvart. Og
sem betur fer, reyndist hún
röng. —alf
JAKVÆÐ STEFNUBREYTING
ASTÆÐA er til að hrósa stjórn
KSÍ fyrir sveigjanleika i
landsliðsmálum. I fljótu
bragði virðist það skyn-
samlegt, eins og málum er
háttað nú, að draga verulega
úr æfingum og æfingaleikjum
landsliðsins. Félögin hafa
góðum þjálfurum á að skipa
um þessar mundir, bæði inn-
lendum og erlendum, og
leikjaprógramm ið er það
strangt, að naumast er
nokkur timi aflögu til land-
sliðsæfinga.
En þótt landsliðsæfingar
falli niður, þýðir það ekki, að
landsliðsmennirnir fái enga
æfingu. Hana fá þeir hjá félög-
unum undir stjórn þjálfar-
anna. Og þegar nær dregur
landsleikjum, taka við lands-
liðsæfingar undir forustu mjög
hæfra manna, sem miða að
þvi að auka tæknikunnáttu,
auk þess, sem leikaðferðir
verða kynntar.
1 þessum dálkum hefur
stjórn KSI verið hvött til að
fara inn á þessa braut fyrr,
ekki vegna þess, að þetta sé
eina rétta leiðin við undir-
búning landsliðs, heldur vegna
þess, að nú eru ekki sömu skil-
yrði fyrir hendi og voru 1968,
pegar vetrarleikirnir voru
teknir upp. A þessum árum
var fyllsta nauðsyn að taka
upp vetrarleiki og vetrar-
æfingar i þvi skyni að hrista
slenið af islenzkri knatt-
spyrnu. Og það er engum vafa
undirorpið, að þetta hafði góð
og jákvæð áhrif á islenzka
knattspyrnu, sem náði
hámarki 1970, en það ár er
eitthvert bezta ár islenzkrar
knattspyrnu.
En gallinn er sá, að islenzkir
knattspyrnumenn þoldu ekki
til lengdar álagið frá KSt og
félögunum.
Báðir aðilar, KSÍ og félögin,
vildu halda i leikmennina,
sem voru undir þungri pressu.
Á timabili var álagið slikt, að
atvinnumönnum i knattspyrnu
hefði ofboðið. Var nokkur
furða, þótt leikleiða tæki að
gæta hjá leikmönnum? Og
allir vita, að þegar leikleiði er
annars vegar, er ekki mikils
árangurs að vænta.
Þess vegna verður að ætla,
að það sé skynsamleg stefna
hjá KSI að létta álagið á leik
mönnum. Sú ákvörðun á
áreiðanlega eftir að skila
hagnaði. En jafnframt er rétt
að hafa i hug a að þótt þessi
stefna sé tekin nú, þýðir það
ekki, endilega, að hún eigi að
vara um aldur og ævi. Það
geta komið aftur þeir timar,
að nauðsynlegt sé að auka
landsliðsæfingar, t.d. með
vetrarleikjum. Þá ber
félögunum siðferðileg skylda
til að koma til móts við óskir
KSI — á sama hátt og KSI
hefur nú, á vissan hátt, komið
til móts við óskir félaganna
með þvi að draga úr landsliðs-
æfingum.
—alf.