Tíminn - 19.05.1973, Page 24
24
TÍMINN
Laugardagur 19. mai 1973
Lánsami Siqqi
Framh. á morgun
EINU sinni var bónda-
sonur, sem Siggi h#t, gott
skinn, en heldur ei*faldur.
Mörg ár vann hapn með
heiðri og sóma, hjja ríkum
höfðingja, en loks kom
óyndi í strákinn og langaði
hann nú mikið ti( þess að
komast heim tifl móður
sinnar og bað húsbónda
sinn um kaupið titt. Hann
gaf Sigga gullklúmp, sem
var álíka stór o$ höfuðið á
Sigga, og það far ekki af
smærri teguncfinni. Þetta
líkaði honum og vafði nú
um hann héndklæði og
lagði af stað heim á leið.
En veðrið var heitt og
klumpurinn afarþungur,
svo að Siggi varð strax upp-
gefinn og bogaði af honum
svitinn, Hann reyndi að
bera hann á höfðinu og
öxlunum, en ekkert dugði.
Þá reið maður fram hjá
Sigga, glaður og kátur og á
góðum hesti. ,,Þarna!",
sagði Siggi, ,,gaman væri
að ríða, ef að maður kynni
það og ætti góðan hest!"
Maðurinn stöðvaði hestinn,
er hann heyrði til Sigga, og
spurði hann hvað það væri,
sem hann væri þarna að
dragast með.
„O! Það er gull,
hreinasta gull og mesta
þyngsla gull! Ekkert
kvikindi á jörðinni streðar
eins mikið og maðurinn",
sagði Siggi og varpaði
klumpnum á jörðina
stynjandi.
,,H a n a ", s a g ð i
komumaður, „úr þvi að þig
langar til þess að ríða, þá
skulum við skipta. Láttu
mig hafa klumpinn þinn og
taktu hest minn i staðinn!".
Þetta lét Siggi ekki segja
sér tvisvar og greip í
hestinn. En maðurinn tók
gullklumpinn og flýtti sér í
burtu, af því að hann var
hræddur um, að Siggi
mundi iðrast kaupanna
Siggi klifraði nú upp á
hestinn og reið áfram allt
hvað af tók, svo moldrykið
þyrlaðist í háa loft, en þetta
varði ekki lengi, hesturinn
hrasaði um stein og Siggi
veltist af baki, af því að
hann kunni ekki að ríða.
Siggi var svo dasaður eftir
byltuna, að hann gat varla
hreyft legg eða lið og lá nú
kyrr um stund. Bóndi
nokkur, sem leiddi kú, sá
hestinn lausan og teymdi
hann með sér, þar til hann
hitti Sigga. Var þá Siggi
skælandi að núa fæturna.
„Ekki skal ég riða oftar,
það er ekki hollt! En hvað
þú ert lánsamur, góði
maður, að eiga svona
hægláta kú. Þú getur svo
drukkið mjólk hvern
einasta dag og borðað
smjör og ost, og þarft ekki
að detta af baki".
„Það er rétt", segir
bóndinn, sem hugsaði sér
nú gott til, „ef þér lízt
svona vel á kúna, þá lízt
mér vel á fjöruga hestinn
þinn, og við skulum skipta,
þú færð kúna fyrir
hestinn".
,, Það eru góð skipti, þetta
vil ég", sagði Siggi og tók
við kúnni og rak hana á
undan sér, en bóndinn
settist á hestinn og var
þegar kominn úr augsýn.
Á göngu sinni kom Siggi
að gestaskála og eyddi þar
síðustu aurum sinum, af
því að hann hélt, að nú
þyrfti hann ekki framar á
peningum að halda, úr því
að hann ætti kúna, og svo
hélt hann áfram. En eins
og áður er sagt, var mjög
heitt þennan dag, og all-
langt var til þorpsins, þar
sem móðir Sigga bjó, og
hann var orðinn mjög
þyrstur. Hann fór þá að
mjólka kúna, en fórst það
svo óhönduglega, að engin
mjólk kom, og loksins varð
kýrin leið á þessu og
sparkaði í Sigga, svo að
Til sölu
Sólaðir NYLON hjólbarðar til sölu.
SUMARDEKK — SNJÓDEKK
Ýmsar stærðir ó fólksbíla ó mjög hagstæðu
verði. Full óbyrgð tekin ó sólningunni.
Sendum um allt land gegn póstkröfu.
ÁRMÚLA 7 SÍMI 30501 REYKJAVÍK.
Eins og kunnugt er veröur „Kabarett” frumsýndur i kvöld. Hér er um
að ræða verk, er hlotið hefur frábæra dóma og metaðsókn hvarvetna
um heim, þar sem það hefur verið sýnt. Hér eru orð litils megnug, en
sjón sögu rikari. A myndinni eru Bessi Bjarnason, er Ieikur aðaihlut-
verkið, sem skemmtistjórinn i klúbbnum, og Rósa Ingólfsdóttir, sem
ein af hinum „hýru meyjum” á sama stað. (Tímamynd: Róbert)
Árbæjarsókn:
KÖKUBASAR OG
FLÓ AMARK AÐU R
Stundum er sagt,að einn megin-
galli velferðarþjóðfélagsins sé sá,
að hyggja efnis sé sett öðru
framar og flest metið til fjár
Enginn fáist helzt til að gera hið
minnsta viðvik , nema greiðsla
komi gegnogmeira sé skeytt um
upphæð kaups en gæði vinnu. Vaf-
alaust er þetta einn fylgikvilla
lifsþægindakapphlaupsins og lifs-
gæðastreitunnar, en þeir eru þvi
miður fleiri, svo sem lifsleiði og
taugaveiklun.
Asókninni i efnisgæðum má
likja við salta vatnið, þvi meir
sem af þvi er drukkið þeim mun
ákafari verður þorstinn.
En góðu heilli eru frá þessu
margar undantekningar, og
vissulega er það eins og sólar
geisli, sem yljar um hjartarætur,
i öllu moldviðri kröfusýkinnar,
þegar upp úr sérhagsmuna-
sjónarmiðum stétta og
flokka gnæfa einstakliugar og
félagssamtök, sem skilja, að
fórnar- og hjálparstörf, þar sem
ekki er spurt um laun, gefa ekki
siður gull i lófa og veita mannin-
um hamingju og heill.
I hugann koma margs konar
liknarfélög, sem starfa á sjálf-
boðaliðagrundvelli og hafa mörg
þessi félög unnið afrek á sviði
mannúðar- og menningarmála.
Varðandi fórnar- og þjónustustörf
hafa konurnar ævinlega staðið i
fremstu sveit, verið fyrstar til
að veita hverju góðu máli
lið og mest munað um liðveizlu
þeirra. Hér eru kvenfélög
safnaðanna ofarlega á blaði.
Mikið er starf þeirra orðið og
dýrmætt að kirkju- menningar-
og liknarmálum.og laur. peirra
hafa ekki verið önnur en sú
ánægja, sem ætið veitist yfir
hverju vel unnu verki i þágu góðs
málstaðar eða háleitrar hug-
sjónar. Konur safnaðarkven-
félaganna hafa unnið svo merki-
legt og mikilvægt starf fyrir
kristilegt menningarlif i landinu,
að það verður seint fullmetið, eða
þakkað að verðleikum.
A þetta er minnt hér að gefnu
tilefni.
Kvenfélag Arbæjarsóknar
hefur haldið upp þróttmiklu
félagsstarfi allt frá þvi að félagið
var stofnað fyrir rúmum 4 árum,
og félagskonur lagt á sig mikla
vinnu við margháttaða fjár-
öflunarstarfsemi. Og á þeim er
engan bilbug að finna, öðru nær.
A siðastliðnum vetri samþykkti
félagið að gefa háa fjárhæð til
fyrirhugaðrar safnaðarheimilis-
byggingar i Arbæ og á sunnu-
daginn ætla þær að færast meira i
fang en nokkru sinni fyrr. Þá
verður haldinn hinn árlegi köku-
basar félagsins og óhætt er að
kynna hann frekar hér, svo
þekktur sem hann er orðinn og
vinsæll bæði i minni og maga
hverfisbúa.
En jafnframt efnir félagið til
flóamarkaðar i skólanum og
verða þar á boðstólum hinir
margvislegustu munir á afar
hagstæðu verði. Eigi þarf að eyða
að þvi orðum, hvert starf liggur
hér að baki hjá basarnefnd
félagsins og örðum félagskonum.
Þessum fáu linum er ætlaö að
minna á fórnfúst áhugastarf
óeigingjarnra kvenna sem okkur
hinum ber vissulega að styðja og
styrkja eftir megni. Arbæingar og
vildarmenn Arbæjarhverfis.
Fjölmennum i hátiðasal Ár-
bæjarskóla á sunnudaginn kl. 2 og
sýnum i verki, að við metum störf
kvenfélags Arbæjarsóknar að
verðleikum.
Guðmundur Þorsteinsson
sóknarprestur.