Tíminn - 19.05.1973, Qupperneq 27

Tíminn - 19.05.1973, Qupperneq 27
Laugardagur 19. maí 1973 TÍMINN 27 OLögfræðioðstoð Gunnar Eydal nokkuð að þeim hugmyndum, sem til greina koma við úrlausn þessa vandamáls, hér á Islandi. Tók hann það fram, að þar væri einungis um frumhug- myndir að ræða og væru þær þvi fjarri þvi að vera fullmótaðar, Hugmyndir Gunnars voru aðal- lega tvenns konar og verður hér gerð grein fyrir þeim i örstuttu máli. Fyrri hugmyndina nefnir hann sjúkrasamlagsfyrirkomulag. Ef slikt fyrirkomulag yrði tekið upp, fengju allir þjóðfélagsþegnar ókeypis lögfræðiaðstoð á svipaðan hátt og læknisþjónustu er háttað i dag. Afleiðingin væri sú, að laun lögmanna kæmu þá frá hinu opinbera. Kostur sliks kerfis er að sjálfsögðu sá, að þá þyrftiþað ekki að vera mati háð hverjir ættu rétt á slikri aðstoð og hverjir ekki. Ef þessi yrði raunin fengi hver fjölskylda sér liklega heimilislögfræðing. Ökosturinn við svona fyrir- komulag er hins vegar sá, að það yrði mjög dýrt og ljóst má vera, aðþeir,sem bezt eru staddir fjár- hagslega og mestar eignir eiga myndu helzt þurfa á lögfræði- þjónustunni að halda. Það getur tæplega talizt tilgangurinn með félagslegri samhjálp, að þeir njóti hennar helzt, sem sizt þurfa á henni að halda. I öðru lagi er hugsanlegt að fara svipaða leið og farin er i Danmörku, þ.e. ákveðin stofnun sér um þessa þjónustu að kostn- aðarlausu og stofnunin setur sér reglur um hverjir eigi rétt á að njóta þessarar fyrirgreiðslu. Kosturinn við þessa leið er sá, að hún nær fyrst og fremst til þeirra, sem af fjárhagslegum ástæðum eiga erfitt með að leita eftir lögfræðiaðstoð á hinum frjálsa markaði. Ekki er endilega nauðsynlegt að miða við ákveðið tekjuhámark, heldur mætti t.d. hugsa sér að þeir, sem hafa undir 450.000 i árstekjur, fengju endurgjaldslausa þjónustu, en úr þvi færi framlag hins opinbera minnkandi, allt upp i t.d. 600.000 kr. Þannig mætti draga úr þvi misræetti, sem skapast þegar draga þarf fastar markalinur sem miðast við ákveðna fjárhæð. Slik stofnun þyrfti einnig að hafa upplýsingamiðlun með höndum. Gunnar taldi, að sfðari leiðin hefði flesta kosti fram yfir þá fyrri, en sá galli væri þó á báðum þessum úrræðum, að reikna mætti með þvi að starfsemi þessi kæmi fyrst og fremst þeim til góða, sem búa á Reykjavikur- svæðinu. Góðar undirtektir Þegar Gunnar Eydal hafði lokið framsöguerindi sinu, hófust frjálsar umræður. Urðu þær allfjörugar og tóku margir til máls. Mátti þar hlýða á skoðanir hæstaréttarlögmanna, ráðu- neytisstjóra, pröfessora, dómara og fleiri aðila. Sýndist sitt hverjum um nauðsyn á lögfræðiþjónustu án endurgjalds. . Einn ræðumanna, örn Clausen hrl., taldi að tal um ókeypis lög- fræðiþjónustu, sem eitthvert nýmæli á íslandi væri út i bláinn. Sagði örn, að nver einasti starf- andi lögmaður á tslandi þekkti það af eigin reynslu, að fólk gengi inn á skrifstofur þeirra, legði sin mál fyrir iögmanninn og leitaði ráða. Siðan gerði lögmaðurinn sitt til að greiða úr vandamálum fólksins, en um greiðslu væri sjaldnast að ræða, nema úr yrði málarekstur, samningsgerð eða eitthvað þvi skylt. Mætti þvi raunverulega meðsanni segja, að starfandi lögmenn rækju i raun ókeypis upplýsingaþjónustu fyrir almenning. Taldi lögmaðurinn, að það gæti orðið lögmönnum mjög til góðs, ef hið opinbera tæki að sér að reka slika upplýsinga- miðlun, þvi að þá losnuðu lög- menn við þá miklu timaeyðslu sem þvi fylgir að hlusta á Pétur og Pál úti i bæ. Gætu þá lögmenn einbeitt sér að þeim verkefnum, sem eðlilegt er að slik stétt manna fáist við. Fleiri tóku i sama streng og örn Clausen og virtist það nokkuð almenn skoðun á fundinum, að eðlilegt væri að starfrækt væri einhver upplýsingaþjónusta i lög- fræðilegum efnum. Töldu flestir, að eðlilegt væri að slik starfsemi væri rekin i tengslum við aðra þjóðfélagslega ráðgjöf. Bent var á að slik starfsemi mætti þó ekki bindast neinni ákveðinni stofnun innan rikiskerfisins, sakir þeirrar hættu að hún gæti þá orðið eins konar talsmaður opinberra hags- muna, en aðalhlutverk þjónust- unnar væri einmitt það andstæða, það að upplýsa einstaklinginn um rétt hans innan kerfisins og rétt hans gagnvart öðrum einstak- lingum innan þessa sama kerfis. Langt var liðið á tólfta timann þegar umræðum lauk, og fundar- stjóri prófessor Þór Vilhjálmssor. sleit fundi. —GJ. FASTEIGN AVAL Skólavörðustig 3A (11. hæð) Simar 2-29-11 og 1-92-55 Fasteignakaupendur Vanti yður fasteign, þá'hafið samband við skrifstofu vora. Fasteignir af öllum stærðum og gerðum, fullbúnar og i’ smiðum. Fasteignaseíjendur Vinsamlegast látið skrá fast-. eignir yðar hiá okkur. Aherzla lögð á góða og örugga þjónustu. Leitið upp-i lýsir.ga um verð og skilmála. Makaskiptasamningar oft' mögulegir. önnumst hvers konar samn- ingsgerð fyrir yður. Jón Arason hdl. Málflutningur, fasteignasala I------------------ Dyrasímaþjónusta Annast viðgerðir og uppsetningar á öllum gerðum dyra- sima. Kem i heima- hús endurgjaldslaust oggerifast verðtilboð i uppsetningar. Ath. að i flest öllum göml- um húsum má leggja dyrasima án þess að kaplar sjáist utan á veggjum. Upplýsingar og pantanir i sima 42396 aðeins milli kl. 6-8 á kvöldin alla daga vikunnar. Innfærð 24/4 - 27/4 - 1973: Asmundur Ólafsson selur Þóri Long hluta i Safamýri 52. Baldur Bergsteinsson selur Sigurði Gunnarss. hluta i Mariu- bakka 28. Breiðholt h.f. selur Sævari Guðmundss. hluta i Æsufelli 2. Einar Einarsson selur Sigur- borgu Hilmarsd. hluta i Flóka- götu 60. Marta Ólafsd. selur Gunnari Asgeirssyni hluta i Starhaga 16. Aðalsteinn D. Októsson og Gyða Erlingsd. selja Þorbergi Jósefss. hluta i Rauðalæk 11. Halldór Friðgeirsson selur Helga Kolbeinss. hluta i Mávahlið 10. Breiðholt h.f. selur Gunnólfi Sigurjónss. hluta i Æsufelli 6. Björn Kristófersson selur Jóhannesi Ellertss húseignina Sæviðarsund 14. Njáll Guðnason selur Dagbjarti Hannessyni fasteignina Grettis- götu 44. Guðmundur Bergsson og Bergur Björnsson. selja Jóhannesi Geirss. og Ernu Kristjönu Þor- kelsdóttur raðhúsið Torfufell 13. Jóhannes Bjarnason selur Einari L. Nielsen hluta i Drápuhlið 19. AstriðurS. Guðmundsdóttir selur Kristinu Astu Friðriksd. hluta i Bólstaðarhlið 10. Gunnar Sigurðsson selur Ölafi Ragnarssyni hluta i Hraunbæ 192. Karl Jd’nsson selur Birgi Agústs- syni húsið Frostaskjól 3. Jens A. Pétursson selur Gunnari Kvaran hluta i Háaleitisbraut 22. Haraldur Kristinsson selur Bergi Ingimundarsyni hluta i Stóra- gerði 10. Inrifærð 30/4 - 4/5 - 1973: Guðmundur Magnússon selur Magnúsi Þ. Agústssyni hluta i Bollagötu 8. Björn Bjarnason selur Björgu Guðmundsd. og Halldóri Þor- steins. hl. i Dvergab. 26. Þórarinn Helgason og Helgi Baldurss. selja Guðjóni Ingvars- syni og Þorsteini Jónssyni v/b Kára RE 254. Kristján Þorláksson selur Hans Markúsi Hafsteinss. hluta i Efstasundi 100. Hólmsteinn Jóhannsson selur Rán Ármannsd. hluta i Sörla- skjóli 46. Fanny Ragnarsd. o. fl. selja Kristjönu Cortez hluta i Sund- laugavegi 18 Jón Þórðarson selur Þorgrimi Guðlaugss. hluta i Laugavegi 81. Páll E. Simonarson selur Vil- mundi Jónssyni hluta i Efri- Grund v/Breiðholtsveg. Þóra Bjarnad. og Bjarni Guðmundss. selja Gunnlaugi Briem húsið Helluland 19. Sigriður Kristjánsd. selur Sigurði Guðmundss. hluta i Kaplaskjóls- vegi 37. Atli Eiriksson s.f. selur Hilmari Svavarssyni hluta i Vesturbergi 2. Haukur Leósson selur önnur Tryggva hluta i Kleppsvegi 132 Anna Samúelsd selur Helgu Mariu Jónsd. hluta i Safamýri 42. Einar Pálsson o.fl. selja Siggeiri Vilhjálmssyni hluta i Sólvallag. 34. Þorbjörn Arnason selur Vigfúsi Vigfússyni hluta i Dunhaga 17. Aslaug Magnúsd. og Magnús Guðmundss. selja Jóni S. Kristjánss. hl. i Rauðarárst. 42. Magnús Þórðarson selur Njáli Guðnasyni hluta i Keldulandi 1. Elisabet Theodórsd. o. fl. selja Ingólfi Hákonarsyni og Björgu Finnsd. hluta i Hjarðarhaga 23. Ingólfur Hákonarson og Björg Finnsd. selja Guðmundi Guðjónss. og Þórunni Gunnarss. hluta i Hjarðarhaga 23. Ragnar Þórðarson selur Slátur- félagi Suðurlands hluta i Aðal- stræti 9. örn Gislason selur Smára Kristjánss. hluta i Æsufelli 6. Hafsteinn Danielsson selur Gunnari Jónssyni hluta i v/b ölver RE-40. Eggert Þorfinnsson selur Hauki Gunnarss. hluta i Meistaravöllum 31. Guðrún Kaldal selur borgarsjóði R.vikur rétt, til erfðafestul. Laugamýrarbl. 23. Atli Eiriksson s.f. selur Hrafnkatli Björnss. hluta i Leiru- bakka 12. Baldur Bergsteinsson selur Friðrik Schram hluta i Mariu- bakka 28. Breiðholt h.f. selur Sophie Isa- bellu Kofoed-Hansen og Þorsteini Tómasyni hluta i Æsufelli 6. Sigriður Gizurard. selur Sævari Tryggvasyni hluta i Efstalandi 18. Innfærð 7/5 - 1 1/5 - 1973: Guðrún M. Ólafsd. seiur Magnúsi Vilhjálmssyni hluta i Öðinsg. 19. Ragnar Tómasson selur Sigurði Þórðarsyni hluta i Efstalandi 16. Haukur Sveinbjarnarson selur Kára Sigfússyni húseignina Sæviðarsund 70. Jón Hanness. selur Sigþrúði Guðmundsd. og Jóni Sigurðss. hluta i Irabakka 22. Hafsteinn Kristjánss. selur Baldri Þorleifss. hluta i Karfavogi 11. Svanur Þór Vilhjálmss. selur Þorkatli Erlingss. hluta i Háaleitisbraut 121. Baldur Bergsteinss. selur Ásgeiri Asgeirss. hluta i Mariubakka 28. Klara J. Óskarsd. selur Signýju Hauksd. hluta i Urðarstig 13. Sigurður Eyjólfss selur Kjartani T. Ólafss. hluta i Hjarðarhaga 11. Uni G. Björnss. selur Láru Sigfúsd. og Konráð Konráðss. hluta i Hraunbæ 124. Breiðholt h.f. selur Grimi Jósafatss. hluta i Æsufelli 6. Garðar Fjalar Láruss. selur Ólafi M. Ólafss. húseignina Grundar- land 8. Tjarnargata 26 s.f. selur Sveini Einarss. og Þóru Kristjánsd. húsið Tjarnarg. 26. Bára Björnsd. selur Sig. Sverri Guðmundss. hluta i Armúla 38. Jóhannes Vilbergss. selur Erni Gislasyni hluta i Ljósheimum 18. Ólöf Kristin Magnúsd. selur Oddi Jónassyni hluta i Reynimel 35. H.f. Júpiter selur ísfélagi Vest- mannaeyja hluta i Laugarnesvegi 79. H.f. Júpiter og h.f. Marz selja Isfélagi Vestmannaeyja eignir sinar að Kirkjusandi eystra. Páll Thorberg Jónass. selur Óla Harðarsyni hluta i Laugarnes- vegi 67. Herdis Lyngdal selur Þorleifi og Oddi H. Þorleifss. hluta i Mávahlið 33. Ásgeir Gunnarss. selur Þráni Einarss. hluta I Hraunbæ 34. Breiðholt h.f. selur Guðbergi Halldórss. hluta i Æsufelli 2. ■ Við veijum runia: það borgar sig > •• nuidal . OFNAR H/F. 4 Síðumúla 27 . Reykjavik Símar 3-55-55 og 3-42-00 f------- Sundlaug opin frá kl. 08-11 og 16-22 Laugardaga og sunnudaga frá kl. 08-19 k-____________ BLÓMASALUR • A BORÐAPANTANIR I SIMUM 22321 22322. BORÐUM HALDIÐ TIL KL. 9 VÍKINGASALUR

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.