Tíminn - 19.05.1973, Qupperneq 28
Laugardagur 19. mai 1973
MERKIÐ.SEM GLEÐUR
HHtumst i kempféíaginu
j
Gistió á góóum.kjörum
■HIHIDfllL*
=nej-n Bl
=S]liy n
gGOÐI
LJ fyrirgóöan mut
$ KJÖTIDNAÐARSTÖD SAMBAlfDSINS
Fáránlegur byggingakostnaður:
Nýja slökkvistöðín í
Árbæjarhverfi verð-
ur dýr fyrir borgina
Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi
flettir ofan af bruðli Reykjavíkurborgar
A FUNDI borgarstjórnar
Reykjavikur i gær var samþykkt
að byggja nýja slökkvistöð i
Arbæjarhverfi, og Innkaupa-
stofnun borgarinnar þar með
heimilaö að gera samninga við
Þorvarð Gunnarsson um bygg-
ingu hússins. Tillaga þessa efnis
var samþykkt af fulltr.
Sjálfstæöisflokksins, en athygli
vakti, að allir aðrir borgarfull-
trúar sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna — og þá að ætla verður
i mótmælaskyni, til að mótmæla
fáránlega háu húsverði.
Sætti gagnrýni
i borgarráði
Það munu nú liöin tvö ár siðan
samþykkt var i borgarstjórn að
reisa nýja slökkvistöð i Arbæjar-
hverfi, til að auka eldvarnar-
öryggi á höfuðborgarsvæðinu.
Um þetta voru allir sammála. En
nú þegar framkvæmdir eiga að
hefjast, kemur i ljós að gera á hús
með svo fáránlegum tilkostnaði,
að langt verður að seilast til sam-
jöfnununar. Er hér ekki að sakast
við verktaka heldur er undir-
búningur málsins, sem unninn er
af borginni með þessum hætti.
Kristján Benediktsson, borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins,
kvaddi sér hljóðs á fundinum,
áður en til atkvæðagreiðslunnar
kom og sagði þá meðal annars, að
hann vildi gera grein fyrir þeirri
JÞ. Siglufirði — Bolfiskaflinn á
Siglufirði var með betra móti i
aprilmánuði og bárust á land 272
tonn I mánuðinum en það er
rúmum 100 tonnum meiri afli en á
sama tima i fyrra. Þrátt fyrir
þennan góða mánuð er heildarboý
fiskaflinn frá áramótum nokkurn
veginn sá sami og kom á land á
sama tímabili i fyrra eða 1534
tonn.
Disarfell lestaði 7000 kassa af
Siglósild frá lagmetisverk-
smiðjunni á Siglufirði á fimmtu-
daginn. A þessi farmur að fara á
Rússlandsmarkað.
Nú eru samgöngur á landi
komnar i þokkalegt horf norðan-
lands, og hefur þvi Drangur hætt
strandferðum sinum um sinn.
afstöðu, að hann sat hjá við at-
kvæðagreiðsluna um málið i
borgarráði, er það var þar til
meðferðar.
Tvöfaldur kostnaður
Minnti borgarfulltrúinn á að
þegar tillagan var samþykkt um
byggingu slökkvistöðvar i
Arbæjarhverfi tveim árum áður,
hefði hún verið samhljóða, en
kvaðst hins vegar ekki geta sam-
þykkt byggingu þessa húss, þvi
það væri að sinu mati algjör
óþarfi að reisa svo dýrt hús fyrir
þessa starfsemi. Kvað hann
þarna um að ræða nánast bif-
reiöageymslu, þar sem aðstaða
ætti að vera til að geyma 2-3
slökkvibila, en auk þess væru tvö
herbergi fyrir starfsmenn, sem
þarna eiga að vinna. Um það bil
helmingur hússins væri óinn-
réttaður kjallari, en þrátt fyrir
þetta kostar rúmmetrinn i þess-
ari byggingu rúmar 9.800krónur
og er þá ekki búið að gera ráð
fyrir teiknikostnaði og frágangi
lóðar. Slökkvistöðin við öskjuhlið
þótti á sinum tima sérstaklega
vönduð og dýr bygging, sem hefur
verið gagnrýnd og hefur vakið at-
hygli. Ef hinsvegar er borinnn
saman byggingarkostnaður
hennar og nýju stöðvarinnar i
Arbæjarhverfi, kemur I ljós að
öskjuhliðarstöðin kostar aðeins
8.150 kr. rúmmetrinn og er þá
fært til núverandi verðlags.
Báturinn kom til Sigluf jarðar, ný-
lega, og lestaði 450 tunnur af grá-
sleppuhrognum, sem hann flytur
til Danmerkur. Báturinn mun
einnig hafa komið við á öðrum
höfnum norðanlands og lestað þar
grásleppuhrogn.
Grásleppuvertiðin á Siglufirði
gengur mjög vel og munu allir
framleiðendur i bænum hafa
tekið á móti meira magni i ár en
þeir gerðu á allri vertiðinni i
fyrra. Mun grásleppuvertiðinni
þó ekki ljúka fyrr en um næstu
mánaðarmót.
Heldur hefur verið kalt i veðri i
Siglufirði að undanförnu. Sauð-
burði er að mestu lokið og munu
elztu lömbin vera meira en
mánaðar gömul.
í Slökkvistöðinni við öskju-
hlið er hinsvegar margt kostn-
aðarsamt, sem ekki er i þeirri
nýju, æfingasalur, æfingaturn,
gufubað og fl. Það hlýtur þvi að
gegna nokkurri furðu, ef nú á að
reisa hús, sem er nánast ekkert
annað en bifreiðageymsla, en á
samt að kosta milli n.ooo og
12.000 knrúmmetrinn. Visitöluhús
hagstofnunnar kostar á sama
tima að.eins 6.700 kr.og er þó um
fullfrágengna ibúð að ræða, þar
sem öll gjöld eru greidd i topp.
Vildi ekki seinka
framkvæmdum
Vegna þess að það er mjög
brýnt, að Arbæjarhverfi fái
slökkvistöð, vildum við ekki
leggjast beint gegn þessu máli.
Framhald á bls. 23
Gullborinn
á safn
Hifaveita Reykja
víkur hefur gefið
Arbæ jarsaf ninu
borinn
Starfsemi Arbæjarsafnsins
mun verða með liku sniði í
sumar og undanfarin sumur.
Meðal nýjunga er að Söluturn-
inn verður fluttur þangað upp-
eftir og vcrður settur niður á
há holtinu, en þangað mun
safnið teygja sig í framtíðinni.
Verður turninn liklega áfram
söluturn nieð iimandi nef-
tóbaki, gosi og iakkrís og fer
vel á þvi.
Safnstjórnin hefur samþykkt
að þyggja svonefndan
„Gullbor” af Hitaveitu
Reykjavikur, en það er sá
merkilegi bor, sem notaður
var til að bora eftir gulli i
Vatnsmýrinni, svona öðrum
„gullborum” hitaveitunnar til
aðgreiningar.
Þá er frá þvi að segja, að
mikill áhugi er fyrir að byggja
yfir vélakost safnsins og hefur
verið farið fram á 450.000
króna fjárveitingu til þessara
framkvæmda. JG
Góðir dagar á Siglufirði
Nemendur ekki lengur
felldir á unglingaprófi
STÆRÐFRÆÐI OG islenzkur
still eru nú ekki lengur fallgreinar
á unglingaprófi við lok skyldu-
náms. Þá er heldur ekki krafizt
ákveðinnar lágmarksaðalein-
kunnar. Til þess hafa nemendur
orðið að ná einkunninni fjórum i
islenzkum stil, reikningi og
heildarútkoman þurfti einnig að
vera fjórir.
Dr. Bragi Friðriksson hjá
Menntamáiaráðuneytinu sagði
okkur i gær, að ákvörðun þesei
hefði átt sér langan aðdraganda.
Hún væri liður i þvi að draga úr
ofuráhrifum prófa. Það væri ekki
aðalatriðið að nemendurnir
fengju einhverja ákveðna
einkunn heldur að þeir fengju þá
kennslu, sem þeir þurfa, og i
sumum tilfellum sérstaka hjálp i
islenzku og reikningi.
„Fá nemendur þessa hjálpar-
kennslu”? spurðum við Dr.
Braga.
„Þeir hafa kennski ekki fengið
hana, en það verður bókstaflega
að knýja það i gegn að svo verði.
Ogá þaðviljum viðleggjaáherzlu '
Geta má þess að á barnapróíi
er enn sem fyrr lágmarksaðal-
einkunn fimm og þau börn, sem
ekki ná henni endurtaka- siðasta
námsár barnaskólans. Margir
þeir nemendur, sem ekki hafa
náð tilskilinni einkunn á ung-
lingaprófi, hefðu eflaust þurft
sérstaka hjálp þegar i barna-
skóla og meira verklegt nám
fremur en bóknám það, sem
hingað til hefur verið lögð megin-
áherzla á i skólakerfi okkar. SJ
Naglarnir dregnir út
1 dag er síðasti dagurinn, sem ökumenn mega aka á negldum hjóÞ
börðum. En eins og kunnugt er var fyrir skömmu sett ný reglugerð um
notkun þeirra, þa-sem m.a segir, að ekki megi aka á þeim á timabiiinu
fr 1. mai til 1. október ár hvert. Að þessu sinni er veittur frestur til 20.
mai en eftir það geta menn átt á hættu að verða sektaðir ef þeir aka um
á nagladekkjum, eins og þau eru nefnd. Undanfarna daga hefur mikið
verið að gera á hjólbarðaverkstæðum við að skipta um dekk á bilum og
var víða löng bið. Þessi mynd er tekin á einu verkstæðanna I gær og er
þarna búið að setja sumardekkið undir en það neglda biður eftir þvi að
vera flutt heim i skúr. (Tiinamynd: Gunnar)
Hnífstungumaður
dæmdur
í gær var i sakadómi Reykja-
vikur kvcðinn upp dómur i máli,
sem af ákæruvaldsins hálfu var
höfðað á hendur Finnboga
Kristjáni Þórssyni, sjómanni,
Völvufelli 44 i Reykjavik fyrir
ýmis hegningarlagabrot, þar á
meðal fyrir að ráðast á unga
stúlku á móts við húsið nr. 2 við
Ferjubakka i Breiðholti snemma
niorguns hinn 19. desember s.l. og
stinga hana með hnif. Varð
stúlkan að gangast undir upp-
skurði tvivcgis af þessum sökum.
Akærði var sakfellur og með
hátterni sinu falinn hafa brotið
gegn ákvæðum almennra hegn-
ingarlaga um skjalafals, þjófnað,
fjársvik og stórfellda likamsárás.
Hann var hins vegar sýknaður af
þvi að hafa gerzt sekur um til-
raun til manndráps með árás
sinni á stúlkuna.
Akærði, sem ekki hafði áður
hlotið dóm fyrir brot á hegningar-
lögum, var dæmdur i 3 ára og 6
mánaða fangelsi, en tii frá-
dráttar kemur seta hans i gæzlu-
varðhaldi i samtals 147 daga. Þá
var ákærði dæmdur til að greiða
nokkrum aðilum skaðabætur, svo
og til greiðslu alls sakakost-
naðar.
Dóminum verður ekki áfrýjað,
þar sem bæði ákærði og ákæru-
valdið una dóminum.
Málið sótti á hálfu ákæruvalds-
ins fulltrúi saksóknara rikisins
Jónatan Sveinsson, en verjandi
ákærða var Ólafur Þorláksson
hérðarsdómslögmaður.
Dóminn kvað upp Sverrir
Einarsson sakadómari.
Banaslys
á Reykjanes-
braut
Klp—Reykja vik. — Banaslys
varð á Reykjanesbraut, skammt
frá afleggjaranum til
Innri-Njarðvikur, i fyrradag. Þar
voru þrir piltar á reiðhjólum á
leið út á Stapann og varð einn
beirra fyrir bil, sem ók i sömu átt.
Þegar billinn kom að, þar'se'm
drengirnir voru á hjólum, beygði
einn þeirra inn á Reykjanes-
brautina. og svo annar rétt á
eftir. Tókst bifreiðarstjóranum
ekki að koma i veg fyrir að annar
þeirra yrði fyrir bifreiðinni. Skall
drengurinn á framenda hennar og
þaðan i götuna, og mun hfa látizt
samstundis. Hann hét Vagn
Einarsson og var fæddur 24.
október 1960 og átti heima i
Ytri-Njarðvik.