Tíminn - 02.06.1973, Qupperneq 1
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SIMI: 26660
RAFIÐJAN SIMI: 19294
—
c
125. tölublað — Laugardagur 2. júni — 57. árgangur
Hálfnað
erverk
þá hafið er
^ I
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
-Bretinn velur sér bráð:
Ráðizt á næstminnsta varð-
skipið og það óvopnaða
AAargsiglt á Arvakur úti fyrir Suðausturlandi, er þó slapp úr
þvögunni áður en tókst að sökkva honum
’•*' ' v'^ ■ v *■ ' „' .y , • ■>. .v >>- ■ —. ■
' **> -.... .•"••;... ,/ •><*.
úaaiBi&í
•ÍVaí»5í’ •w'"''■*•■ ■ ' .. •*■■ ... y,f'-'í V ••"*' • ... . - ■ "
•;:• ,...4' wwf7?rí*-•.*»'—
•=J**T**"r * ••• »~"V ' “r
.............,-.-."'•• .,/..; v •• -:T;.,. -•
? ^ A'v^*í^r ^sastJts.
I 'V
Árvakur viö Seley i gær. Skarðiö i stefniö sést greiniiega.
— Tímamynd: Róbert.
Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra:
Athafnaleysi
Nató-ráðsins
óþolandi til lengdar
TK-Reykjavík. Timinn haföi
samband viö ólaf
Jóhannesson forsætisráöherra
vegna ásigiinganna á Árvakur
i gær. Ólafur Jóhannesson
sagði:
j,Ég tel þetta svivirðilega
árás á óvopnað björgunar- og
vitaskip. Margar ásiglingar
voru gerðar, bæði af dráttar-
bátnum Irishman og togurum.
Það er ómögulegt að segja
annað en þessar árásir hafi
verið geröar undir umsjá her-
skipsins og verða þvi beinlinis
að skrifast á reikning brezka
flotans.
Það er auðvitað ómögulegt
að þola það til lengdar, að
Nato-ráðiö þvæli málið fyrir
sér án þess aö gripa i taumana
og sinna kröfu íslendinga,
þegar svona alvarleg brot
gegn okkur eiga sér stað.”
Forsetafundi lokið
Hér sjást þeir, forsetar Frakklands og Bandarikj-
anna, Pompidou og Nixon, að loknum samfundum.
Sjá frásagnir af fundum þeirra hér i Reykjavik á
ft—'7—8—9—10—11 siðu.
I (iÆRMORGUN létu Bretar til
skarar skriöa I islenzkri fiskveiöi-
lögsögu og neyttu aflsmuna
sinna. Kórnarlambiö var Arvakur
— næstminnsta skipiö, sem er viö
gæzlu á miöunum, og hiö eina.
sem er óvopnaö. Ilófst leikurinn
meö þvi, aö dráttarbáturinn
Irishman sigldi á Arvakur I
viöurvist freigátunnar Scyila, en
lykt '• þannig, aö þrjú skip sigldu
á hann samtimis, dráttarbáturinn
og tvcir brezkir togarar.
I.askaöist Árvakur lii verulegra
muna, en enginn maöur slasaöist
i þessum átökum. Komst
Arvakur á brott úr skipaþvögunni
eftir nær fjögurra stunda viöur-
cign, og haföi þá tekizt aö klippa
sundur togvlr eins veiöiþjófsins,
þótt viö ofurefli væri aö etja.
Saga þessa atviks er i stuttu
máli, að kl. tæplega hálf-sjö i
gærmorgun kom Arvakur að
ellefu útlendum togurum, sem
voru tuttugu og fjórar sjómilur
suðaustur af Hvalbak, ásamt
dráttarbátnum Irishman og frei-
gátunni Scylla, sem voru þar
veiðiþjófunum til halds og
trausts. Klukkan 6,21 sigldi Irish-
man á Arvakur bakborösmegin,
áður en hann var kominn aö
fyrsta togaranum eða hafði yfir -
leitt nokkuö aöhafzt. Hafði þó
skipherrann á Arvakri,
Höskuldur Skarphéöinsson, og
menn hans gætt þess I einu og öllu
að fylgja réttum siglingareglum
til hins ýtrasta.
Við þessa fyrstu ásiglingu kom
dæld i eldhús skipsins og gat á
bakborðshorn þess.
Liðsmunar neytt
Bretunum virðist hafa þótt hér
bera vel i veiði, þar sem Árvakur'
var óvopn., svo sem áður var
sagt, og hóf nú dráttarbáturinn
Irishman tilraunir til þess aö
koma dráttarvir i skrúfu
Arvakurs. Naut dráttarbáturinn
við þetta aðstoðar freigátunnar
og togarans Vivaria frá
Grimsby. Þegar ekki lánaðist að
flækja virinn i skrúfu Arvakurs,
hóf Irishman nýjar ásiglingartil-
raunir, og klukkan 8,19 tókst
dráttarbátnum aö sigla aftur á
bak á bakborössiðu Arvakurs, er
þá var mjög aðþrengdur af
skipunum og á hægri ferð.
Kom þó klippunum við
Enda þótt þarna væri háöur
ójafn leikur, er mörg skip sóttu að
Arvakri vopnlausum, tókst skip
verjum klukkan 9,10 að klippa
sundur stjórnborðstogvir brezka
skuttogarans Gavina frá Fleet-
wood. En þá sigldu dráttar-
báturinn Irishman og Grimsby-
togararnir Belgaum og Vivaria
samtimis á Arvakur — Irishman
og Belgaum á bakborðssiöu og
Vivaria á stjórnborðssiðu.
Sveigði siðarnefndi togarinn fyrir
framan Arvakur og dældaði stefni
hans. Ekki kom þó leki að
skipinu, þótt ekkert væri til
sparað að skadda það, en gat
kom á skuthylki þess.
Framhald á.3. siðu.