Tíminn - 02.06.1973, Page 3
Laugardagur 2. júni 1973.
TÍMINN
3
sm&m
Togarinn Vivaria frá Grimsby út af Stokksnesi I gær. Hann aöstobaöi Irishman og freigátuna Scylla viö aö reyna aö koma vfr I skrúfu
Arvakurs, og var auk þess eitt þeirra skipa, sem sigldi á Arvakur. —Timamynd: Róbert.
Togarinn Gavina, sem missti annan togvírinn I viöureigninni í gærmorgun.
ÁRÁS Á ÁRVAKUR
Skemmdirnar á Árvakri
Samkvæmt fregnmiða frá
Landhelgisgæzlunni hefur bráða-
birgðaathugun á Arvakri leitt i
ljós eftirtaldar skemmdir:
Stefnisbogi hefur lagzt inn
ofanþilja, stjórnborðshorn á
bakka hefur lagzt inn, dæld er á
stjórnborðssiðu framan við kýr-
auga á herbergi annars vélstjóra,
fjórar allverulegar dældir eru á
bakborðsrennusteini frá brim-
brjót aftur fyrir eldhús, stór dæld
er á eldhúsþili og afturþili
eldhúss, dæld og gat er á bak-
borðsréttihylki að aftan og þil
réttihylkis gengið inn i stýris-
vélarúm, dæld er á bakborðshorni
að aftan og gat á efra skuthylki.
Af þessu sést, að skipið hefur
laskazt til muna, enda ótæpilega
að unnið af hálfu veiðiþjófanna og
verndarskipa þeirra.
Skjót og auðveld
fréttamiðlun
Fregnin af aðförum Bretanna á
miðunum við Suðausturland
barst til Reykjavikur á heppi-
legum tima. Forsetar Frakk-
lands og Bandarikjanna voru enn
á fundi i Myndlistarhúsinu, og
blaðafulltrúi rikisstjórnarinnar,
Hannes Jónsson, hóf þar fund
klukkan ellefu með á annað
hundrað útlendum blaða-
mönnum. Var hannaðgera þeim
grein fyrir ýmsum málum, svo
sem landhelgismálinu aðild
Islendinga að A-bandalaginu og
hersetu Bandarikjanna hér, er
blaðafulltrúi utanrikisráðu-
neytisins, Helgi Agústsson, kom
skyndilega inn og mælti við hann
nokkur orð i hljóði. Sleit Hannes
þá fundinum þegar i stað.
Allir skildu, að mikilvægir at-
burðir höfðu gerzt, og tiu
minútum siðar kom Hannes aftur
og hóf fund að nýju. Skýrði hann
þar frá öllum atvikum eins og þá
var bezt vitað, og mun ekki annar
atburður islenzkur hafa verið
kynntur fleiri fulltrúum fjölmiðla
samtimis.
fær og sigldi með eðlilegum
hraða.
Við suöurströndina sáum við
aðeins örfáa fiskibáta, en fremur
grunnt suðaustur af Papey
komum við fyrst að þremur
togurum. Um 25-30 milur út af
Stokksnesi, svo til beint framan
við radarspegil varnarliðsins,
komum viö aö heilum flota
skipa. Voru veiöiþjófarnir þar á
milli tiu og tuttugu og toguðu all-
viða nokkrir hliö við hlið með
stuttu millibili, en fáeinir voru
einir út af fyrir sig, spölkorn frá
öðrum skipum. Þarna voru tog-
arar þeir, sem um morguninn
höfðu veitzt að Arvakri og siglt á
hann. Stöku togari virtist ekki að
veiðum.
Lyngt var á þessum slóðum og
sjór svo sléttur, að hvergi
hvitnaði i bárufald,sólskin litið og
litlir þokuhnoðrar eða slæðu-
dreifar á stöku stað norður
undan. A norðurjaðri svæðis
þess, sem veiðiþjófarnir
höfðu lagt undir sig, var eitt
Islenzkt varðskip og sigldi frei-
gátan Scylla i humátt á eftir þvi,
Dráttarbátinn Irishman- fundum
við ekki, og hefur taugum skip-
stjórans ef til vill verið svo of-
boðið um morguninn, aö hann
hafi dregið sig i hlé.
Geysimikíð skarð i
stefni Árvakurs
Við flugum einnig yfir Arvakur,
semkominnvar alllangt frá vett-
vangi, og leyndi sér ekki,að skipið
hafði hlotið miklar ákomur. Mest
bar á geysimiklu, ávölu skarði i
stefni þess. Einnig mátti glöggt
sjá,að hann hafði laskazt mikið
á skut, einkum bakborðsmegin og
á stjórnborði aö framan. Eins og
áður segir eru á honum meiri
skemmdir, þótt þær yrðu ekki
greindar úr flugvél.
Vinna á þilfari á togaranum Luneda frá Fleetwood I gær tæpar þrjátiu
mílur út af Stokksnesi.
Liggur hið bezta á
skipverjum á Árvakri
Klukkan tuttugu minútur
gengið i átta i gærkvöldi kom
Arvakur til Seyðisfjarðar. Höfðu
menn haft spurnir af þvi, að
skipið væri á leið inn fjörðinn, og
var mikill mannfjöldi á
bryggjunni að fagna skipi og
skipverjum.
Fréttaritari Timans á Seyöis-
firði, Ingimundur Hjálmarsson
heilsaði upp á skipherrann,
Höskuld Skarphéðinsson, er þó
vildi ekkert láta hafa eftir sér,
þar eð sjópróf hafa ekki farið fram
Hitt duldist ekki, aö það lá vel á
skipverjum, þrátt fyrir þann
ágang, er þeim var veittur, svo aö
Bretarnir hafa að minnsta kosti
ekki skotið þeim þann skelk i
bringu, er þeir hafa sennilega
ætlað.
Ingimundur sagöi, aö fyrsta
höggið, sem skipið hlaut hefði
sýnilega verið mikið. Varð eldh.ús
skipsins fyrir þessari árás og
engu likara en Bretarnir hefðu
ætlað að sækja sér þangaö te i
bollana sina, sagði Ingimundur.
kvað hann borðstokk mjög
dældaðan og bita i eldhúsinu
svignaða.
Annað mikið högg hefur skipið
hlotið, þar nafn þess er, og er þar
fjörutiu sentimetra löng rifa á
byrðingi neðan viö skammdekkið.
Loks er svo skarðiö i stefnið, er
mjög ber á, svo sem áður hefur
verið sagt, og er það heldur
meira stjórnborðsmegin.
— Við fögnum þeim hér eins og
þjóöhetjum, þessum mönnum,
sem tókst bæöi að borga nokkuö
fyrir sig með þvi að klippa sundur
togvir hjá einum veiðiþjófnum,
og fleyta skipi sinu að landi, þrátt
fyrir heiftarlega árás margra
skipa,sagði Ingimundur. Sannar-
iega háfa þeir komizt i mikinn
háska og sýnt mikið þrek og hug-
rekki.
Fjöldi veiðiþjófa
út af Stokksnesi
Fréttamaður Timans og ljós-
myndari flugu þegar austur á
miðin, á flugvél frá flugskóla
Helga Jónssonar. Höfðum viö
fljótt fregnir af þvi, að Arvakur
væri kominn á brott af svæðinu út
af Hvalbak, væri sæmilega sjó-
Motmæh
harðlega
EINAR Agústsson, utanrik-
isráöherra kallaöi i morgun
á sinn fund John McKenzie,
sendiherra Brctlands og bar
fram við hann harðorð mót-
mæli islenzku rikisstjórnar-
innar vegna ásiglinga drátt-
arbátsins Irishman og
brezkra togara á varðskipið
Arvakur.
Togarakaupin
llaraldur llenryson lög-
fræöingur skrifar grein um
togarakaupin I siðasta blað
Þjóömála. Hann segir m.a.:
„Fyrirheit rikisstjórnarinn-
ar um endurnýjun togaraflot-
ans er nú óðum að komast I
framkvæmd. Alls mun hafa
verið samið um smiöi á u.þ.b.
40 togurum, sem flestir eru af
stærðinni 300-500 brúttó Smá-
lestir en nokkrir 800-1000. Nú
eru komnir allnokkrir togarar
til landsins og hafa ótvlrætt
sannað gildi sitt. Flestir eru
þessir togarar af minni gerð-
inni og eru þeir gerðir út frá
hinum ýmsu byggöarlögum I
dreifbýlinu. Virðist reynslan
af þeim vera góð og hafa þeir
þegar reynzt veruleg lyfti-
stöng atvinnulífi sumra þess-
ara byggðarlaga.
AAikil fjárfesting
llaraldur segir enn fremur:
„Það getur enguin dulizt, að
sú fjárfesting, sem hér hefur
verið lagt I, er glfurleg og
meiri en æskileg er okkar
þjóðarhúi á svo skömmum
lima. Kn hér var veriö að
vinna upp vanrækslusyndir
fyrri valdhafa, sem sýndu
þessum mikilvæga þætti at-
vinnu- og efnahagslifsins fá-
dæma skilningsleysi og tóin-
la:ti. Við hljótum hins vegar að
kappkosta að til slikra stökk-
brcytinga atvinnuuppbygg-
ingu þurfi ekki oftar að koma.
Auk þess sem þær eru fjár-
hagslega erfiðar þjóðarbúinu
er hætt við að þær verði ekki
markvissar og skili ekki að
öllu lcyti þvl, sem til var
ætlazt.
Þannig má segja, að við
endurnýjun togaraflotans nú
hafi þvl miður ekki verið gætt
nægilega að þeim atriðum öll-
um, sem máli skipta. Kr llk-
lcgt, að við eigum eftir að reka
okkur á ýmsa • annmarka á
næstu árum. T.d. er ekki að
sjá að fariö hafi fram raunhæf
athugun á þvl, hvaöa stærðir
og gerðir togara væru okkur
heppilegastir miöað við þau
fiskimið, sem sækja þarf og
þau gæði aflans, sem gera
verður kröfur um. (Cg efast
mjög um, að stærri togararn-
ir, eins og þeir veröa útbúnir,
eigi fullan rétt á sér og skili
þvl, sem þeim er ætlað. A ég
þar fyrst og fremst viö, að þeir
séu of stórir fyrir nærmiöin og
útbúnaður þeirra til geymslu
hráefnis til lengri tima litili
sem enginn, þar sem þeir hafa
hvorki frystibúnaö né vinnslu-
tæki um borð. óliklegt er þvl,
aö það hráefni, sem þeir skila
á land, verði fyrsta flokks, en
auövitaö á að keppa að þvi
umfram allt, að ný tæki veröi
fær um að skila fyrsta flokks
hráefni.”
Stöðug
endurnýjun
Að lokum segir Haraldur:
„Aðalatriðið nú er að stofn-
aö veröi til alhliða áætlana-
gerðar um eðlilega og nauð-
synlega endurnýjun fiski-
skipaflota okkar, sem tryggi
stöðuga þróun fram á við.
Framkvæmdastofnun rlkisins
á að sjálfsögðu aö annast slika
áætlanagerð i samráði og
samvinnu viö hina ýmsu aðila,
sem hér eiga hlut að máli. Að
mörgu þarf að hyggja, svo
sem þoli fiskistofnanna við
landið og skynsamlegri nýt-
ingu landgrunnsins, afkasta-
getu framleiðslutækja I landi,
stærð fiskiskipa o.s.frv.
Hryggilegt væri ef við létum
það henda okkur enn á ný að
sofna á veröinum eftir það,
sem nú hefur veriö gert. Lær-
um af reynslunni og nýtum
þetta stórátak okkur til varan-
legs gagns.” Þ.Þ.