Tíminn - 02.06.1973, Qupperneq 4

Tíminn - 02.06.1973, Qupperneq 4
4 TÍMINN Laugardagur 2. júnl 1973. Leikur fyrir fuglafræið Paul Newman leikarinn með fallegu bláu augun, hefur nú fengið því framgengt, að dóttir hans * .Nell, sem er þrettán ára gömul fái að leika i kvikmynd hjá honum. Móðir hennar, Joanne Woodward mun einnig leika í þessari mynd. Annars á Nell ekki að veröa leikkona, segir Paul, þvi að hún ætlar sér að verða dýralæknir. Paul New- mann mun leikstýra áður- nefndri kvikmynd, og prófaði hann þrjátiu stúlkur, sem komu til greina i hlutverkið, sem dóttir hans mun leika, en engin þeirra reyndist nægilega góö. Þegar hann kom svo heim til fjölskyldunnar, en hann á fimm dætur og einn son, sagði hann við Nell: Þú tekur að þér hlut- verkið. Annars hætti ég að borga fyrir þig fuglafræið, sem fuglarnir þinir lifa á. Þetta nægði til þess að fá Nell til að taka hlutverkið ,en hún hefur mjög lítinn áhuga á kvikmynd- um og kvikmyndaleik. Hún hugsar varla um annað en dýrin sin, og fuglarnir veröa að borða Þaö er mikiö af dýrum á heimili Newmans. Hann á bæöi ketti, hunda, hesta, fugla og meira aö segja skunk. ★ Alec: Ég finn, að hann er orðinn kynþroska, þessi. Anna og Mark saman á ný Þrátt fyrir það, aö Filipus prins hafi bannað Mark Phillips liðs- foringja að yfirgefa hersveit sina I Þýzkalandi, brá honum fyrir nýverið i fylgd með önnu prinsessu i Englandi. Hann hefur sem sagt virt bönn drottningarmannsins aö vettugi til þess að fá að sjá dóttur drottningarinnar, og er það ekki nema eðlilegt. Hér eru skötu- hjúin á gönguferð með hundana hennar önnur, Baskerville heita þeir báðir eftir Conan Doyle hundinum. Astin sigraði að lokum. Síðustu fréttir: Anna er trúlofuð ★ Ballétt um baráttuna gegn ofbeldi og styrjöldum Nýlega var frumsýndur ballett eftir Grazyna Basewicz i óperu og balletthúsinu i Warsjá. Hér var um að ræða tvö ballett- stykki, Þrána og Petrushka, en Petrushka er eftir Igor Stra- winski, en fyrrnefnda verkið eftir Basewicz. Þetta var sið- asta tónverkið, sem hann samdi, en hann lézt fyrir þrem- ur árum. Upphaflega textann að ballett þessum samdi Pablo Picasso. og mótmælir hann hér hryllingi styrjaldarinnar og i verkinu birtist greinilega baráttan viðóttann og tilraun til þess að ráða niðurlögum hans. Verkið er i heild eins konar tákn sigurs mannsins yfir ofbeldinu. Hér á myndinni sjást Witold Blajer og Danuta Smukala i einu atriði úr Þránni „Svona getur enginn gert nema þú Bert!” DENNI DÆMALAUSI — Ef við keyptum þrjá hunda i viðbót og sleða, þá þyrftiröu ekki að hafa áhyggjur af bflnum meir!

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.