Tíminn - 02.06.1973, Blaðsíða 9

Tíminn - 02.06.1973, Blaðsíða 9
Laugardagur 2. júni 1973. TÍMINN 9 A heimili islenzku forsetahjónanna. A myndinni sjást taliö frá vinstri. Frú Halldóra Eld járn, William Rogers utanrikisráöherra Bandarikjanna, Georges Pompidou Frakklanas forseti, Richard Nixon Bandaríkjaforseti, Haraldur Kröyer, sendiherra, hr. Kristján Eldjárn forseti tslands og forseti sameinaös Alþingis Eysteinn Jónsson. Torfusamtökin? vitum lika að jafnvel elztu og tryggustu sambönd þarf aö endurnýja stöðugt, ef áhrif þeirra eiga aö geta verið eins mikil og hægt er i sibreytilegum heimi. Eins og Pompidou forseti hefur sagt, teljum við okkur geta komið á sannri einingu Evrópu og Bandarikjanna, jafnframt þvi að virða séreinkenni hvers fullvalda rikis. Þau bönd, sem tengja okkur — sameiginleg stjórnmálaleg arf- leifð, sameiginlegur áhugi á öryggi sambands Atlanzhafs- rikja — eru miklu traustari en nokkuð það mál, sem aðskilja kann okkur um stundarsakir. Ég er þess fullviss, að sam- ræður okkar muni verða til þess að skilningurinn á sameigin- legum áhugamálum og tak- mörkum okkar, verður enn nánari. Það er I anda einingar Evrópu og Ameriku, sem ég skála fyrir forseta tslands, forseta lýðveldis- ins Frakklands og forsætisráð- herra tslands. Skálarræða Nixons í kvöldverðarboðinu að Bessastöðum: „HANN VAR HINN ræðnasti og spurði margs um tsland og tslendinga”, sagði Magnús Einarsson varðstjóri, en hann og Tómas Jónsson varðstjóri frá Selfossi fengu þann óvænta „Frægur á einni nóttu”? Hér er Magnús Einarsson varöstjóri i Reykjavikurlögreglunni, en þaö kom I hans hlut aö vera leiösögu- maöur Bandarikjaforseta, þegar hann fékk sér hina óvæntu kvöld- göngu. heiöur að fylgja Nixon á fyrir- varalausri kvöldgöngu forsetans kvöldið. sem forsetinn kom. Þeir gengu niður með Fri- kirkjunni og niður aðTjörn.þaðan eftir Lækjargötunni upp Banka- strætið og Laugaveginn, en þegar þangað kom hætti öryggisvörðun- um að lltast á blikuna svo þeir fengu forsetann til að halda að sendiráðinu aftur. Nixon mætti nokkrum ungmennum á leiðinni og spurði þau nokkurra spurninga, m.a. um hvaða skóla þau gengju i o.s.frv. Hann undraðist greinilega,að allir sem hann hitti voru færir að svara honum á hans eigin móðurmáli og taldi þetta bera vott um góöa menntun landsmanna. Þegar gengið var fram hjá Bernhöfts- torfunni margfrægu útskýrði Magnús fyrir honum sögu þessara húsa og sagði honum að húsin væru nýmáluð. Nixon leizt vel á húsin og taldi hann að vel hefði tekizt til I litavalinu. E.t.v. hefur forsetaheimsóknin leitt af sér að Torfusamtökunum bætist einn nýr liðsmaður og líklega munar minna en að fá sjálfan for- seta Bandarikjanna á sitt mál. Franska sendinefndin gengur prúöbúin til kvöldveröarboös islenzka forsetans á Bessastööum. Fremstir fara þeir Giscard d'Estaing, fjármáiaráöherra og Michel Jobert utanrikisráöherra. Gömul tengzl sterkari en ný ágreiningsmól — Herra Kristján Eldjárn for- seti, frú Eldjárn, Pompidou, for- seti, Ólafur Jóhannesson, for- sætisráðherra og virðulegu gestir: Sem fyrsti forseti Banda- rikjanna, sem hefur þann heiður Nixon í aö koma hingað vil ég þakka Kristjáni Eldjárn forseta, fyrir hans vinsamlegu orð hér I kvöld og einlæga gestrisni. A fundum okkar i Reykjavik I þessari viku, höfum við tekið eftir ekki aðeins stoltri arfleifð Islands heldur einnig mikilvægi þess i nú- tlmanum. Sem staður miðja vegu milli Evrópu og Ameriku og sem aðila að NATO, hefur Island mikilvægu hlutverki aö gegna. I eflingu sambands Atlanzhafs- rikja. Fundir okkar i þessari viku hafa verið helgaðir þvi að efla frekar sambandið milli Atlanz- hafsrikjanna. A þessum fundum og öðrum, sem við höfum haldið, höfum við haldið uppi varanlegum og viö- tækum samr- milli Evrópu og Ameriku, i þeim tilgangi að endurnýja samband okkar — og gæða það nýju lifi. Frakkland er elzti vinur og bandamaður Bandarikjanna og við erum vissir um, eins og Lafayette eitt sinn sagði við Washington forseta, að vinátta Frakka og Bandarikjanna „muni vara að eilifu”. En við

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.