Tíminn - 02.06.1973, Qupperneq 13

Tíminn - 02.06.1973, Qupperneq 13
Laugardagur 2. júni 1973. TÍMINN 13 Útgefandi: Framsöknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson, Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblabs Timans). Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur I Aöalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Áskriftagjald 300 kr. á mánuöi innan lands, i lausasölu 18 kr. eintakiö. Blaöaprent h.f s i — Kynning Geirs Hallgrímssonar Það verður að teljast i mesta máta óviðeig- andi, að varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Geir Hallgrimsson, skuli velja daginn, sem Nixon og Pompidou voru hér og flest var hér erlendra blaðamanna, til að birta i einkamál- gagni sinu ádeilu á yfirstjórn landhelgis- gæzlunnar og störf hennar. Þvi einkennilegra er þetta hátterni, að umrætt einkamálgagn hans hafði haldið þvi fram, að heimsókn forset- anna ætti að nota til að kynna þeim landhelgis- málið og reyna á þann hátt að afla málstað Is- lendinga fylgis.Framlag varaformanns Sjálf- stæðisflokksins til þeirrar kynningar er að koma þeirri skoðun á framfæri, að aðaltals- maður stærsta stjornarandstöðuflokksins og stærsta flokks þjóðarinnar sé ósammála þvi, hvernig landhelgisgæzlunni sé stjórnað. Kynning Geirs Hallgrimssonar á landhelgis- málinu umræddan dag, er að halda þvi fram, að það hafi verið rangt af landhelgisgæzlunni að láta Ægi skjóta föstum skotum að Everton eftir að togarinn var margsinnis búinn að óhlýðnast viðvörunum hans og fyrirmælum. íslenzka landhelgisgæzlan átti með öðrum orð- um að gefast alveg upp og láta hinn brezka landhelgisbrjót fara með algeran sigur af hólmi. Guðmundur Kærnested, skipherra á Ægi, hefur i viðtali við Visi lýst þvi greinilega ,,að ef við hefðum ekkert gert, hefðum við misst allt úr höndum okkar og Bretar hefðu fiskað hvar, sem þeim sýndist eftir það.” Það hefði m.ö.o. leitt til alveldis Breta á miðunum, ef fylgt hefði verið stefnu Geirs Hallgrimsson- ar. Menn voru farnir að vona, að ummæli þeirra GylfaÞ. Gislasonar og Geirs Hallgrimssonar um þennan atburð, sem þeir létu falla i rikisút- varpinusiðastl.sunnudag, hefði verið sprottinn af misskilningi og verið mistök, sem þeir myndu leiðrétta. Alþýðublaðið hefur markað sér allt aðra stefnu en Gylfi og hafa menn dregið þá ályktun af þvi að þar væri ekki aðeins að ræða um bragarbót af hálfu Alþýðuflokks- ins, heldur einnig af hálfu Gylfa. En bersýni- legt er, að hjá Geir Hallgrimssyni hefur ekki verið um neinn misskilning eða mistök að ræða. Þess vegna áréttar hann það daginn, sem forsetarnir eru hér, að hann sé andvigur stjórn landhelgisgæzlunnar i þessu máli og hafi viljað láta Ægi gefast upp og láta brezka land- helgisbrjótinn fara sigrandi af hólmi. Fyrir Breta er ekki ónýtt að fá slika yfir- lýsingu frá aðaltalsmanni stærsta stjórnmála- flokksins á íslandi. Enda leið ekki á löngu, að þeir færðu sig upp á skaftið. Það leið ekki nema sólarhringur frá þvi að Mbl. birti grein Geirs og þangað til árásin var gerð á Árvakur. Geir Hallgrimsson tekur það áreiðanlega réttilega fram i grein sinni, að ekki séu allir á sama máli og hann i flokki hans um þetta efni. Þess ber vissulega að vænta, að það sýni sig nú, að i Sjálfstæðisflokknum séu þeir fleiri, sem láta stjórnast meira af þjóðarhagsmunum en öfgafullri stjórnarandstöðu. Þ.Þ. John Allan May, The Christian Science AAonitor: Brezka konungs- veldið þúsund ára Það er nú fyrst og fremst einingartákn Brezku konungshjónin á 25 ára starfsafmæli Eiisabetar drottningar. í MAÍ i vor halda Eng- lendingar hátiölegt þúsund ára afmæli konungdæmis i landi sinu. Bretar hafa yfir mörgu að gleöjast i þessu tilefni, en ekki hvaö sizt þeirri staöreynd, að þingbundiö konungsvald hefir reynzt mjög hentugt stjórnar- form. Konungsvald i Englandi er raunar miklu eldra en þúsund ára. Stytta Boadicea drottningar stendur við West- minsterbrú andspænis Big Ben og þinghúsinu. Drottning- in barðist við Rómverja á fyrstu öld eftir Krist eöa fyrir hart nær tvö þúsund árum. Boadicea eða Boudicca (Viktoria á nútima ensku) var aðeins drottning Icena einna eða ibúa Norfolk. Þorri kon- unga og drottninga, sem riktu i Englandi eftir hennar daga á miðöldum, voru einvaldar I litlum konungdæmum. ENGLAND komst fyrst allt undir einn konung á dögum Edgars, sonar Játmundar mikla og Aelfgifu drottningar, en Edgar var krýndur til kon- ungs árið 973. Edgar hafði farið með konungsvald á Englandi i 14 ár áður en hann var krýndur. Vald hans yfir allri þjóðinni var þó ekki viðurkennt að lög- um fyrri en viö krýninguna. Átta konungar afsöluðu sér siðar völdum i hendur hans, þar á meðal konungur Skot- lands og konungurinn i Strath- clyde. Elizabet drottning, sem nú fer með völd i Englandi, er af- komandi Edgars. Það er þvi' þúsund ára afmæli konung- dæmis sem varanlegs tákns, sem nú er haldið hátíðlegt. MEÐAL Englendinga eru vitaskuld margir gagnrýnend- ur konungsvalds og fylgjendur lýðveldis. Willie Hamilton, skozkur þingmaður Verka- mannaflokksins, lætur til dæmis framhjá sér fara fá tækifæri til þess að andmæla konungsvaldinu, kostnaðinum við það og sérréttindum konungsfjölskyldunnar. Það gerðist einnig i Brigh- ton um daginn, að ráðherra einn neitaði að risa á fætur, þegar skál drottningarinnar var drukkin við hátiðlegt tæki- færi. Ástralíumenn eru aö leggja niður þjóðsönginn. Hann er ekki framar leikinn fyrir og eftir allar samkomur hér i Englandi, eins og eitt sinn tiðkaðist. Margir neita meira að segja að taka ofan meðan hann er leikinn, eins og þeim þó ber tvimælalaust. ÞRATT fyrir allt eru afar margir sammála um, að þús- und árum kongdæmisins hafi siður en svo verið á glæ kastað — svo að vægt sé til orða tekið. Núverandi konungsfjöl- skylda er afar geöþekk. Charl- es rikisarfi er heillandi ung- menni. Anna prinsessa er kunn sem hestakona á alþjóða vettvangi og er skörp og harð- skeytt. Hertoginn af Edinborg er hvort tveggja í senn heill- andi og skarpur. Drottningin sjálf er ágætis kona og gædd þeim hæfileikum, sem hæfa stöðu hennar. Þegar Englendingar halda hátiðlegt tiu alda afmæli konungdóms I landinu á sinn hógværa hátt gnæfir ofar öllu öðru viðurkenningin á þvi, að þeim hefir tekizt, eftir marg- vislegar tilraunir og mistök i nálega tiu aldir, að móta þing- bundna lýðræðisstjórn undir konungsveldi, og það kerfi er ágætlega starfhæft. Engum dytti i hug að mæla með einveldi eins og nú er komið málum, og þó reynist löngum torvelt i flestum lýð- veldum, þar sem lýðræði rikir, að hefja forustuna upp úr lág- kúru flokkabaráttunnar. Margir Bretar viðurkenna þó, að einveldi hafi marga aug- ljósa kosti. ÁNÆGJULEGT er einnig, að samkvæmt öllum heimild- um hefir Edgar verið afar við- kunnanlegur maður og einnig allgóður konungur. Stjórn- málasaga Englands allt frá hans dögum og fram á þennan dag greinir frá hægfara en ær- ið skrykkjóttum breytingum yfir I nútima lýðræði undir konungsstjórn. Eins og nú er komið er konungurinn ekki annað en æðsti maður rikisins að hefð- bundum hætti. En Elizabet drottning er með sérstökum og hentugum hætti tákn sög- unnar — en flekklaus. Hún er bæöi fulltrúi þjóðlegrar ein- ingar og tákn þeirar forustu þjóðarinnar, sem stendur ofar öllum flokkaerjum. De Gaulle forseti Frakk- lands flutti eitt sinn ræöu i Great Hall i Westminster. Hann sagði þá með nokkurri eftirsjá, að Frakkar byggju ekki við slikt kerfi. Ef þvi væri til að dreifa, sagði hann, „myndi enginn draga rikis- valdið I efa” þegar við veru- lega erfiðleika væri aö etja. Quintin Hogg — Hailsham lá- varður — sagði um þessi orð de Gaulles: „Við eigum aðeins við að etja erfiðleika i stjórn en ekki skort á hollustu við hið æðsta vald. Guð gefi, að svo megi verða sem lengst”. STEPHEN Bank sagn- fræðingur hefir með höndum stjórn þeirra kannana, sem fram fara á vegum Bandalags konungssinna. Hann lét mér i té eftirtalin rök að þvi, að arf- bundin konungsstjórn sé hið heppilegasta form æðstu stjórnar: Æðsti maður rikisins stend- ur þá ofan viö baráttu flokk- anna. Þegar alvarlega bjátar á er konungurinn eða drottningin sameigingartákn, og ofar öll- um annarlegum grun- semdum. Kjörinn þjóðarleiðtogi kann aðhafa að baki sér helming þjóðarinnar, en konungur eða drottning er fulltrúi hennar allrar. t lýöræðisriki er konungur eða drottning nálega óbugandi hindrun á vegi einræöis. Englendingar fagna þvi um þessar mundir, að þeim hefir tekizt að rata á leið til þess að tryggja þá hugmynd I fram- kvæmd, að hin æðsta stjórn- málaþjónusta sé i þvi fólgin að standa utan og ofan við erjur flokkanna.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.