Tíminn - 02.06.1973, Page 14

Tíminn - 02.06.1973, Page 14
14 TÍMINN Laugardagur 2. júni 1973. Mynd úr vinnusal. Fossvogsskóli i Reykjavik VIÐ ERUM stödd í Foss- vogsskóla í Reykjavík og það er skólastjórinn, Kári Arnórsson, sem ætlar að spjalla við okkur stundar- korn og fræða okkur um þá starfsemi, sem hér fer fram. — Fyrst langar mig aö spyrja þig, skólastjóri: Hversu gamall er þessi skóli, sem þú veitir for- stööu? — Hann er aöeins tveggja ára, þaö er aö segja, aö þaö er annaö starfsáriö, sem nú er senn á enda. En þetta er fyrsta áriö meö þessu kennsluformi, þvi að fyrsta skóla- árið, 1971-72, var hér heföbundinn skóli, enda var þá byggingin ekki fullfrágengin. —„Meö þessu kennsluformi”, segir þú. Aö hverju leyti er hann frábrugðinn venjulegum skóla? — Hann er opinn skóli, eins og þaö er nefnt, og er nafniö reyndar tekiö úr erlendu máli. Hann er fyrsti opni skólinn á tslandi, en hins vegar hefur þetta skólaform veriö mjög aö ryöja sér til rúms, bæöi á Noröurlöndum, Englandi og i Bandarikjunum. Þaö var Fræðsluráö Reykjavikur, sem tók þá ákvöröun aö byggja þennan skóla með þeim hætti aö þar væri hægt að vera meö opinn skóla. Siöan var þaö sameiginleg ákvöröun Fræösluráös og skóla- stjóra aö þetta skyldi hefjast hér i haust og sú gerð af opnum skóla, sem viö erum meö hér, er eftir enskri fyrirmynd. Starfshættir — Hvað um starfshætti skólans? — Ef ég ætti aö lýsa þeim i stuttu máli, þá er fyrirkomulagiö þannig, aö viö höfum lagt niöur allar bekkjardeildir og erum með blandaða aldursárganga. Viö er- um með sex, sjö og áttá ára nem- endur saman, hver kennari ber ábyrgö á ákveönum hópi nem- enda, þaö eru svona i kringum þrjátiu börn. Þegar börnin koma i skólann á morgnana, byrjar hann á þvi að taka á móti þessum hópi, en hver hópur á ákveöinn staö i skólanum, sem viö köllum heima- krók, og þar talar kennarinn viö þau stutta stund á morgnana, áður en þau dreifast út til vinnu. Annan hvern dag eru allir nem- endur kallaöir saman á Sal og þá eru niu ára nemendurnir meö, en Veröur þetta ekki gott hjá mér það er elzti aldursflokkurinn hér. Þeir eru þó ekki inni i þessu opna kerfi, og ástæðan til þess er ein- göngu sú, að viö vissum þaö i haust, þegar viö tókum þetta kerfi upp, að niu ára börnin myndu hverfa frá okkur aö þessu ári liönu og fara þá aö stunda nám i heföbundnum skóla. Það var ekki taliö rétt aö láta þau byrja á námi i opnum skóla, vit- andi að þau gætu ekki haldið þvi áfram. — Getið þiö ekki kennt eldri ár- göngum en þetta? — Skólinn hér er ekki nærri full- byggöur, þaö er aöeins búið aö byggja um það bil einn þriðja hluta, og þaö er engin von til þess aö viö getum bætt við okkur eldri árgöngum fyrr en byggingunni er lokið. — Hvaö taka börnin sér fyrir hendur, þegar þau hafa lokiö sinni morgunstund meö kennar- anum, eins og þú varst aö segja áöan? — Eins og ég sagði, þá dreifast þau til vinnu hér og þar i skólan- um. Kennararnir vinna mjög náið saman. 1 öðrum endanum vinna saman tveir kennarar, en i hinum endanum þrir. Húsiö er sérstak- lega byggt fyrir þetta skólaform. Þar eru fimm almennar kennslu- stofur, að visu fremur litlar, svo er ein föndurstofa, nokkuð stór, og svo einn salur, sem tengir þessar stofur allar saman. Skól- inn er allur teppalagður, nema föndurstofan, á hverri stofu er stór rennihurö, þannig að hægt er að renna hálfum veggnum úr, en hér er hvergi kennt fyrir lokuðum dyrum, svo að við þurfum i raun- inni ekkert á þessum hurðum að halda, enda eru þær aldrei hreyfðar. Þegar svo nemendurnir fara til vinnu, eftir að hafa talað viö kennara sinn aö morgni, geta þeir sjálfir valið, hvaöa verkefni þeir taka sér fyrir hendur hverju sinni, en skólanum er skipt niöur'i ákveöin verksvæöi, þannig að öll stæröfræöi er unnin á einum staö, lestur og skrift á öörum, átthaga- fræöi á hinum þriðja og svo fram- vegis. Nemendur eru mjög fljótir að átta sig á þvi, hvar hvert og eitt verk er unniö, og þvi eru aldrei nein vandræöi aö koma þeim aö verki. Þeir rata þetta sjálfir, eölilega og snuröulaust. Eykur ábyrgðartilfinningu — Er ekki hætta á aö nem- Þaö er gaman aö mála. endurnir noti frelsið til þess að gera aðeins það,sem þeim þykir skemmtilegast? — Ef nemandi er til dæmis upp- lagður til þess. að reikna i dag, þá má hann reikna i allan dag, ef hann vill. Hlns vegar verður kennarinn, sem ber ábyrgð á hópnum, að fylgjast með þvi að farið sé yfir allt það efni, sem námsskráin ætlast til. Hann verð- ur þvi að færa daglega skýrslu um vinnubrögð hvers nemanda. Ef það svo kemur i ljós, aö nem- andi hafi mjög lengi sótt i sömu námsgrein, verður kennarinn að leiöa hann, sýna honum fram á, hvað hann á eftir að vinna og hjálpa honum til þess að taka þar til hendinni. — Hefur þetta gefizt vel? — Já, ágætlega. Þetta eykur mjög ábyrgöartilfinningu nem- endanna fyrir starfinu, þeir veröa sér þess meðvitandi, aö það eru ýmis verkefni, sem þeir verða aö ljúka, og að þau eru öll álika nauösynleg. Nú er ekki endilega vist, að sá kennari, sem hefur þennan til- tekna hóp, sé staddur á þeim ákveöna staö, þar sem viökom- andi nemandi ætlar aö vinna. Þaö er þvi samkomulag á milli kenn- Kári Arnórsson, skólastjóri Fossvogsskóla.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.