Tíminn - 02.06.1973, Blaðsíða 15

Tíminn - 02.06.1973, Blaðsíða 15
Laugardagur 2. júnl 1973. TÍMINN 15 segir Kárí Arnórsson, skólastjóri aranna innbyrðis, hvar á kennslusvæðinu þeir vinna. Þannig sinnir kennari, sem staddur er i átthagafræðinni, öll- um þeim nemendum, sem þar eru, hvort sem þeir eru úr hans hópi eða öðrum. Þannig verður skólinn fyrst og fremst „okkar skóli”, eins og kennarar og nem- endur komast gjarna aö oröi. Skóli okkar allra, en ekki ,,minn bekkur”, sem aðeins kemur mér við og ekki neinum öörum. Nem- endurnir geta leitað til hvaða kennara sem er og kennslan er nær eingöngu einstaklings- kennsla. Að visu höfum viö sér- staka staði, svokallaða kennslu- króka, þar sem kennarar geta tekið inn litla hópa i einu i beina kennslu, og það gerum viö auðvit- aö oft, en engu að siöur er kennsl- an nær eingöngu einstaklings- kennsla eins og ég var aö segja. Af þvi leiðir, aö hver nemandi getur farið i gegnum námsefniö með þeim hraða, sem honum er eðlilegur, þannig að duglegur nemandi fær aukin verkefni eftir þvi sem hann kemst yfir, en þeir sem seinfærari eru fá að vinna meö sinum hraöa. Þetta verður mjög eðlilegt i svona blönduðum hópi, og nemendurnir finna ekki til þess að þeir séu á undan eða eftir skólafélögum sinum. Þeir hugsa sem einstaklingar og vinna sem einstaklingar, af þvi aö þeir eru ekki þvingaöir til þess aö fylgja einhverjum ákveðnum hópi, þarsem allir verða að vinna sama verk og þurfa meira að segja helzt að vinna það allir á sama hátt. Einstaklingskennsla. Vinnufriður — Er þetta kannski megin- markmið skólans? — Já, þaö má alveg komast svo að orði, aö þaö sé aöalmarkmiö skólans aö ná fram þessari ein- staklingskennslu, og ég held að óhætt sé að segja, aö það hafi tek- izt vel. — Þú gazt þess, að þið kennduö fyrir opnum dyrum. Truflar það ekki vinnufriö? Og hvað með ag- ann? — Okkur hefur virzt vinnufriður vera góöur og viö fáum meira starf út úr nemendunum með þessu móti heldur en með bekkj- arkennslunni. Það byggist að sjálfsögðu á þvi, að nemendur hafi næg verkefni. Svo leggjum við lika mikla áherzlu á tillits- Bh æ ps^llgg f i JgKgygÍjjj 11111 «-im »■ P; « Ifex •* jgjgSsl f^ÉJk * v T 1111111 m mm .! 1 1 ii Skólastjóri sýnir menntamálaráðherra, Magnúsi Torfa Ólafssyni og fleiri gestum húsakynni Fossvogs- skóla. Nestisstund í heimakrók. Blaöaljósmyndarinn dregur aö sér athygli nemendanna semi. Nemendurnir verða aö skilja, að við lifum i samfélagi, þar sem hver verður að taka tillit til annars, og skólinn á aö vera spegilmynd þess samfélags, sem viö viljum byggja. Með öörum oröum: Hann á aö vera eins og viö viljum að samfélag okkar sé. Um agann er það aö segja, að viö teljum, að þau vandamál séu til muna minni hér en i bekkja- kennslunni, en þaö skapast fyrst og fremst af þvi, aö nemendur eru alltaf uppteknir við störf. Þeir losna lika undan þeirri pressu, sem bekkjunum fylgir, þar sem allir þurfa að aka einn og sama veginn — og aka hann eins. Hér geta nemendurnir lika leitaö hver til annars og þeir sem betur mega I einhverri grein geta stutt hina, sem þurfa á aðstoð að halda. Þetta teljum viö mikinn félags- legan ávinning. — Hvernig stendur á að þið blandiö saman aldursflokkum? — Það er aöallega af tveimur ástæðum, sem viö gerum það. t fyrsta lagi er þetta til þess gert aö brjóta niður bekkjarkennsluna og þvinga kennarana út i einstak- lingskennslu. Reynslan hefur sýnt, til dæmis á Noröurlöndum, þar sem eru opnir skólar, en aldursárgöngum er ekki blandað saman, að þá hafa kennararnir kennt bekkjarkennslu I hinum opna skóla og það hefur ekki gef- izt vel. önnur ástæðan er félags- leg. Viö teljum það æskilegt aö nemendur vinni saman, þótt þeir séu á ýmsum aldri, enda er þaö i samræmi viö þjóöfélag okkar, þar sem mönnum er ekki skipaö Framhald á bls. 27. Kennsla I bakstri Kennarar i kaffihléi. Það bragöast vel, sem nemendurnir baka. Timamyndir Róbert.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.