Tíminn - 02.06.1973, Qupperneq 17

Tíminn - 02.06.1973, Qupperneq 17
Laugardagur 2. júni 1973. TÍMINN 17 Hátíðahöld sjómannadags í Nauthólsvík og víðar NÆSTA sunnudag, 3. júni, er sjó- mannadagurinn. Að venju er hann haldinn hátiðlegur á ýmsan hátt. A blaðamannafundi með Sjómannadagsráði á miðvikudag kom fram, að dagskráin veröur með mjög liku sniði og verið hefur undanfarin ár. Nánar verður hún auglýst i blöðum og útvarpi um helgina, og er þvi ekki ástæða til að rekja hana náið hér. Klukkan átta á sunnudags- morgun verða fánar dregnir að hún á skipum i höfninni, og klukk- an ellefu hefst sjómannamessa i Dómkirkjunni, þar sem séra Grimur Grimsson minnist drukknaðra sjómanna. Þá syngur Guðmundur Jónsson einsöng. Blómsveigur verður lagður á leiði óþekkta sjómannsins i Fossvogs ,kirkjugarði. Lúðrasveit Reykja- vikur leikur bæði fyrir hádegi, við Hrafnistu og eins niðri i Nauthóls- vik. Og vitt og breitt um bæinn selja börn merki sjómannadags- ins og Sjómannadagsblaðið. Eins og þrjú undanfarin ár fara aðalhátiðahöldin fram i Naut- hólsvik, og hefjast þau klukkan 13:30 með leik lúðrasveitarinnar. Flutt verða fjögur ávörp: Lúðvik Jósefsson, sjávarútvegsmálaráð- herra talar sem fulltrúi rikis- sjórnarinnar, Björn Guömunds- son, útgerðarmaður frá Vest- mannaeyjum, sem fulltrúi út- gerðarmanna, Guðjón Armann Eyjólfsson skólastjóri Stýri- mannaskólans i Eyjum sem full- trúi sjómanna og loks afhendir Pétur Sigurðsson, formaður Sjó- mannadagsráðs, heiðursmerki sjómannadagsins. Jafnframt þessu fara fram kappsigling, kappróður, björgunar- og stakka- sund og koddaslagur i Nauthóls- vikinni. Þá kemur þyrla Land- helgigælsunnar og sýnir björgun manna úr bát og úr sjó. A eftir verður þyrlan til sýnis almenn- ingi. Þrjár gerðir af kappsiglur- um verða i gangi, alls 14 bátar. I kappróðrinum verða a.m.k. 12 sveitir. Ekki er vist, hvort næg þátttaka fæst i koddaslaginn, en hann féll niður i fyrra, vegna þess að engir buðu sig fram. Þessi leikur hefur þó veriö sérlega vin- sæll hjá börnunum. Veitingarnar verða á hátiðarsvæðinu i Naut- hólsvik. Strætisvagnaferðir verða frá Lækjartorgi og Helmmi frá kl. 13:00 a.m.k. á hálftima fresti. A sunnudagskvöld verður svo sjómannahóf að Hótel Sögu, sem hefst kl. 19:30. með borðhaldi. Skemmtiatriði veröa. Auk þess verða Eyjamenn með sérstakt hóf að Hótel Borg, en þeir taka annars þátt i almennum ..hátíöa- höldum dagsins og viðhöfn, aö meira eða minna leyti. Framkvæmdastjóri sjómanna- dagsins er Guömundur Hall- varösson. Fram kom og á fundinum, að Sjómannadagsráö hyggur á ýms- ar stórframkvæmdir. Má þar fyrst nefna „nýja Hrafnistu”, sem áformað er að reisa i Norðurbænum i Hafnarfirði. Hefur lóð (á mörkum Hafnarfj. og Garðahrepps) undir byggingu verið úthlutað og er nú unnið að hönnun byggingarinnar, sem vonast er til, að hægt verði að hefjast.-. handa við á næsta ári, ef fjármagn fæst. Þessi bygging mun verða fyrir 220-240 vistmenn. A Hrafnistu eru i dag 452 vist- menn og geysilegur fjöldi á biölista. — Stp SPORT SIGRAÐI I FIRMAKEPPNI FÁKS SB—Reykjavik. — Firmakeppni Fáks fór fram á sunnudaginn, á skeiðvelli félagsins að Viðivöll- um. Alls tóku 193 fyrirtæki þátt i mótinu og jafnmargir hestar. Keppni hófst kl. 15.00 með þvi að hestamenn riðu einn hring um völlinn. Úrslit i firmakeppninni urðu á þessa leið: No. 1 varð verzlunin Sport, en fyrir hana keppti Grani, Leifs Jóhannessonar, no. 2, Skartgrip- ir, Laugavegi 36, keppandi Bjarmi, Sveinbjörns Dagfinns- sonar, no. 3, Halldór Sigurðsson gullsm. Keppandi Gustur, eign Halldórs sjálfs og no. 4-5 voru Jöklar hf. keppandi Funi,Frið- þjófs Þorkelssonar og Almennar Tryggingar, keppandi Þytur, Sveins K. Sveinssonar. Þau fyrirtæki, se'm sigruðu fá viðurkenningarskjöl frá félaginu, en Sport fær fagran farandbikar til varðveizlu í eitt ár. Bikarinn gaf Halldór Sigurðsson, gullsmið- ur. Auk keppninnar sjálfrar var þarna ýmislegt annað á boðstól- um. Hryssur með folöld voru til sýnis fyrir börnin og einnig gátu þau fengið að skreppa á bak. Allmikið var af fólki þarna en veður varla nógu gott. Staða bæjarendurskoðanda Staða endurskoðanda hjá Hafnarfjarðar- bæ er laus til umsóknar. Askilin menntun er: Próf i endurskoðun, próf frá Háskóla tslands i viðskiptafræði eða hliðstæð menntun. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna Hafnarfjarðar- bæjar, 27. launaflokkur. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist undirrituðum eigisiðar en 15. júnin.k. Bæjarstjóri. k l&Ém 'vÆiwvföi jmjm j: :si RftltfiíOli ■fl'pmmil Sunnukórinn til Noregs og Færeyja Sunnukórinn á lsafirði fór i gær, 30. mai, i hljómleikaferð meö M/S Gullfossi. Kórinn syngur i Þránd- heimi, Tönsberg og Þórshöfn i Færeyjum. Einnig kemur hann fram á lslendingafélagsfundi i Osló. t ferðinni eru 48 söngfélagar og náiægt 30 gestir meö þeim. Fyrir brottförina hélt kórinn tónleika fyrir fullu húsi á lsafiröi og hlaut ágætar undirtektir. Sunnukórinn er nú 40 ára, og er þetta fyrsta för hans til útlanda. Sýning á danskri handavinnu í tilefni 50 ára afmælis ,,Det danske selskab" Fimmtudaginn 5. júni n.k. á félagiö ,,Det Danske selskab i Reykjavik” 50 ára afmæli. 1 þvi tilefni verður haldin sýning á danskri handavinnu i Norræna húsinu i Reykjavik. Sýningin verður opnuö 1. júni klukkan 17 sd. af ambassadörfrú Ebbu Kronmann. Allir eru velkomnir. Sýningin verður einnig opin 2.3.og 4. júni frá kl. 15-22. Allir munir á sýningunni eru i eign Dana á tslandi og fram- leiddiraf þeim eða öðrum Dönum, eða eru erföagripir frá Dan- mörku. Munirnir eru ýmist út- saumur, vefnaður, hnýting eða skornir i tré og hvaltönn, einnig smiöajárn og fleira. Allir munir eru tómstundavinna. Félagið heldur afmælisdaginn hátiðlegan meö boröhaldi og dansleik i Atthagasal að Hótel Sögu fyrir félaga og gesti. TopKvick leysist fljótt upp Hollurog bragðgóóur drykkur Gefió börnunum KAUPFELAGIÐ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.